Dagur - 16.09.1995, Síða 14
14- DAGUR - Laugardagur 16. september 1995
Sigurhæðir.
Mynd: BG
Sigurhæðir miðstöð ritlistar?
Fundur í Deiglunni
nk. þriðjudag um
framtíð hússins
Endurbætur hafa staðið yfir und-
anfarin ár á Sigurhæðum á Akur-
eyri, húsi Matthíasar Jochumsson-
ar, og standa vonir til að þeim
framkvæmdum ljúki á þessu ári.
Matthías reisti húsið árið 1903 og
bjó í því til dauðadags árið 1920,
þá orðinn 85 ára gamall.
A síðasta ári vann starfshópur á
vegurn menningarmálanefndar að
tillögum um nýtingu hússins sem
nokkurs konar miðstöðvar ritlistar
á Akureyri með starfsenri „skálda-
húss“ á þessum stað. Tillögur
menningarmálanefndar ásamt
fleiri tillögum sem séð hafa dags-
ins ljós um framtíðarnýtingu húss-
ins verða kynntar á fundi í Deigl-
unni þriðjudaginn 19. september
nk. kl. 20.30. Þar gefst öllum
áhugamönnum um Sigurhæðir
kostur á að ræða nýtingu hússins
og koma á framfæri eigin hug-
myndum. GG
Mál og menning
gefur út „Skömmm“
Mál og menning hefur sent frá sér
heimildaskáldsöguna „Skömmin“
eftir skáldkonuna og lækninn Tas-
limu Nasrin, en hún er einn gesta
Bókmenntahátíðar í Reykjavík
1995.
„Skömmin hefst þann 7. des-
ember árið 1992, daginn eftir að
hópur hindúískra öfgamanna lagði
fimm hundruð ára gamla mosku
múslíma í Ayodhya á Indlandi í
rúst. Milljónir hindúa í múslímska
grannríkinu Bangladesh fyllast
beyg, því þeir vita að ódæðisins
verður grimmilega hefnt á sak-
lausu fólki sem af tilviljun játar
sömu trú og öfgamennirnir.
Hindúafjölskyldan í sögu-
smiðju „Skammarinnar" er ekki
trúrækin. Heimilisfaðirinn, Sud-
hamoy Datta, læknir í Dhaka, lítur
á sig sem trúlausan mann og hann
hefur alið börnin sín tvö upp í
mannúðarstefnu og kærleika til
alls sem lifir.
En eftir atburðinn í Ayodhya
magnast ofsóknir múslíma gegn
hindúum í Bangladesh. „Við eig-
um um tvennt að velja, að fremja
sjálfsmorð eða flytja úr landi,"
segir Surajon, sonur Sudhamoys,
en faðir hans vill ekki hlusta. Það
væri föðurlandssvik í hans augum
að flýja land. En er hann ekki með
þeirri afstöðu að kalla hörmungar
yfir fjölskyldu sína?
Taslima Nasrin vefur í þessari
heimildaskáldsögu saman áhrifa-
miklum frásögnum og upplýsing-
um úr nútíð og fortíð. Hún dregur
upp ljóslifandi mynd af því hvern-
ig múslímar í Bangladesh hafa
níðst á hindúíska minnihlutanum
áratugum saman, en um leið er
bók hennar ákall um umburðar-
lyndi og rnannúð, og hefur kostað
hana fordæmingu og útlegð.
Silja Aðalsteinsdóttir þýddi
bókina.
Talima Nasrin er læknir frá
Bangladesh sem hefur árum sam-
an skrifað smásögur og greinar í
dagblöð í Dhaka. Hún er vinsæll
höfundur í heimalandi sínu, eink-
um meðal kvenna, en býr nú í út-
legð í Svíþjóð. Sænski PEN-
klúbburinn veitti henni málfrelsis-
verðlaun árið 1994.
„Skömmin“ er 239 bls., prent-
uð í Prentsmiðjunni Odda hf.
Kápuna gerði Margrét E. Laxness.
Skömmin er bók mánaðarins í
september og kostar þá 1385 kr.
en hækkar í 1980 kr. 1. október.
Dagsverk ’96
Operasjon dagsverk er söfnunar-
verkefni sem oft hefur verið fram-
kvæmt á Norðurlöndunum, en þó
aðeins tvisvar á Islandi. Byggist
það á því að nemendur á Norður-
löndunum helga einn dag skóla-
starfsins í að fara út á vinnumark-
aðinn til að afla fjár er síðan renn-
ur til námsaðstoðar í ríkjum 3ja
heimsins. Er þetta unnið í sam-
starfi við fyrirtæki og atvinnurek-
endur.
Hverju verkefni er fylgt eftir á
þann hátt að fjármunir til kennslu-
verkefna eru skammtaðir og náið
fylgst með því hvemig hvert og
eitt verkefni gengur fyrir sig. Með
þessu er hægt að tryggja að pen-
ingamir komist til skila á réttan og
nothæfan hátt. Hjálparstofnun
kirkjunnar hefur til dæmis verið í
nánu samstarfi við þetta verkefni
og fylgt sérverkefnunum eftir.
Síðastliðið vor var hafist handa
við að undirbúa nýlt OD-verkefni
á Islandi og hefur því verið valið
heitið Dagsverk ’95. Stefnt er að
því að halda söfnunardaginn þann
21. mars nk. í samstarfi við Nor-
eg, sem að þessu sinni ætlar að
styrkja götubörn í Brasilíu.
í haust mun starfið miðast við
að koma verkefninu á framfæri og
nánari undirbúning, þ.e. stofnun
landsnefndar o.s.frv.
GAMLA MYNDIN
Hver
kannast
við fólkið?
Ef lesendur Dags þékkja ein-
hvern á þeim myndum sent hér
birtast eru þeir vinsamlegast
beðnir að snúa sér til Minja-
safnsins, annað hvort með því að
senda bréf í pósthólf 341, 602
Akureyri eða hringja í síma 462
4162 eða 461 2562 (símsvari).
M3-1 943 Ljósmynd: Hallgrímur Einarsson og synir/
Minjasafniö á Akurcyri