Dagur


Dagur - 16.09.1995, Qupperneq 14

Dagur - 16.09.1995, Qupperneq 14
14- DAGUR - Laugardagur 16. september 1995 Sigurhæðir. Mynd: BG Sigurhæðir miðstöð ritlistar? Fundur í Deiglunni nk. þriðjudag um framtíð hússins Endurbætur hafa staðið yfir und- anfarin ár á Sigurhæðum á Akur- eyri, húsi Matthíasar Jochumsson- ar, og standa vonir til að þeim framkvæmdum ljúki á þessu ári. Matthías reisti húsið árið 1903 og bjó í því til dauðadags árið 1920, þá orðinn 85 ára gamall. A síðasta ári vann starfshópur á vegurn menningarmálanefndar að tillögum um nýtingu hússins sem nokkurs konar miðstöðvar ritlistar á Akureyri með starfsenri „skálda- húss“ á þessum stað. Tillögur menningarmálanefndar ásamt fleiri tillögum sem séð hafa dags- ins ljós um framtíðarnýtingu húss- ins verða kynntar á fundi í Deigl- unni þriðjudaginn 19. september nk. kl. 20.30. Þar gefst öllum áhugamönnum um Sigurhæðir kostur á að ræða nýtingu hússins og koma á framfæri eigin hug- myndum. GG Mál og menning gefur út „Skömmm“ Mál og menning hefur sent frá sér heimildaskáldsöguna „Skömmin“ eftir skáldkonuna og lækninn Tas- limu Nasrin, en hún er einn gesta Bókmenntahátíðar í Reykjavík 1995. „Skömmin hefst þann 7. des- ember árið 1992, daginn eftir að hópur hindúískra öfgamanna lagði fimm hundruð ára gamla mosku múslíma í Ayodhya á Indlandi í rúst. Milljónir hindúa í múslímska grannríkinu Bangladesh fyllast beyg, því þeir vita að ódæðisins verður grimmilega hefnt á sak- lausu fólki sem af tilviljun játar sömu trú og öfgamennirnir. Hindúafjölskyldan í sögu- smiðju „Skammarinnar" er ekki trúrækin. Heimilisfaðirinn, Sud- hamoy Datta, læknir í Dhaka, lítur á sig sem trúlausan mann og hann hefur alið börnin sín tvö upp í mannúðarstefnu og kærleika til alls sem lifir. En eftir atburðinn í Ayodhya magnast ofsóknir múslíma gegn hindúum í Bangladesh. „Við eig- um um tvennt að velja, að fremja sjálfsmorð eða flytja úr landi," segir Surajon, sonur Sudhamoys, en faðir hans vill ekki hlusta. Það væri föðurlandssvik í hans augum að flýja land. En er hann ekki með þeirri afstöðu að kalla hörmungar yfir fjölskyldu sína? Taslima Nasrin vefur í þessari heimildaskáldsögu saman áhrifa- miklum frásögnum og upplýsing- um úr nútíð og fortíð. Hún dregur upp ljóslifandi mynd af því hvern- ig múslímar í Bangladesh hafa níðst á hindúíska minnihlutanum áratugum saman, en um leið er bók hennar ákall um umburðar- lyndi og rnannúð, og hefur kostað hana fordæmingu og útlegð. Silja Aðalsteinsdóttir þýddi bókina. Talima Nasrin er læknir frá Bangladesh sem hefur árum sam- an skrifað smásögur og greinar í dagblöð í Dhaka. Hún er vinsæll höfundur í heimalandi sínu, eink- um meðal kvenna, en býr nú í út- legð í Svíþjóð. Sænski PEN- klúbburinn veitti henni málfrelsis- verðlaun árið 1994. „Skömmin“ er 239 bls., prent- uð í Prentsmiðjunni Odda hf. Kápuna gerði Margrét E. Laxness. Skömmin er bók mánaðarins í september og kostar þá 1385 kr. en hækkar í 1980 kr. 1. október. Dagsverk ’96 Operasjon dagsverk er söfnunar- verkefni sem oft hefur verið fram- kvæmt á Norðurlöndunum, en þó aðeins tvisvar á Islandi. Byggist það á því að nemendur á Norður- löndunum helga einn dag skóla- starfsins í að fara út á vinnumark- aðinn til að afla fjár er síðan renn- ur til námsaðstoðar í ríkjum 3ja heimsins. Er þetta unnið í sam- starfi við fyrirtæki og atvinnurek- endur. Hverju verkefni er fylgt eftir á þann hátt að fjármunir til kennslu- verkefna eru skammtaðir og náið fylgst með því hvemig hvert og eitt verkefni gengur fyrir sig. Með þessu er hægt að tryggja að pen- ingamir komist til skila á réttan og nothæfan hátt. Hjálparstofnun kirkjunnar hefur til dæmis verið í nánu samstarfi við þetta verkefni og fylgt sérverkefnunum eftir. Síðastliðið vor var hafist handa við að undirbúa nýlt OD-verkefni á Islandi og hefur því verið valið heitið Dagsverk ’95. Stefnt er að því að halda söfnunardaginn þann 21. mars nk. í samstarfi við Nor- eg, sem að þessu sinni ætlar að styrkja götubörn í Brasilíu. í haust mun starfið miðast við að koma verkefninu á framfæri og nánari undirbúning, þ.e. stofnun landsnefndar o.s.frv. GAMLA MYNDIN Hver kannast við fólkið? Ef lesendur Dags þékkja ein- hvern á þeim myndum sent hér birtast eru þeir vinsamlegast beðnir að snúa sér til Minja- safnsins, annað hvort með því að senda bréf í pósthólf 341, 602 Akureyri eða hringja í síma 462 4162 eða 461 2562 (símsvari). M3-1 943 Ljósmynd: Hallgrímur Einarsson og synir/ Minjasafniö á Akurcyri

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.