Dagur - 16.09.1995, Side 15

Dagur - 16.09.1995, Side 15
UTAN LANDSTEINANNA Laugardagur 16. september 1995 - DAGUR - 15 UMSJÓN: SÆVAR HREIÐARSSON Hórkarlinn og prinsessan Sjarmörinn Hugh Grant á enn óhreint mjöl í pokahominu. Hann segist nefnilega hafa átt ástarfund með Dfönu prinsessu - en aðeins í draumi. Mig dreymir iðulega um að ég sitji við tedrykkju með drottningunni. Mig dreymir einnig um Lafði Díönu en þeir draumar em of afbrigðilegir til að tala um þá frekar, sagði klámkarlinn Hugh í viðtali. Breska kon- ungsfjölskyldan er þó ekki einráð í draumum stráksa því hann hefur einnig lýst því yfir að hann hafi mikið dálæti á klappstýrum og kaþólskar klappstýmr em í tvöföldu uppáhaldi, sagði Hugh en þess ber þó að geta að hann lét þessi orð falla áður en hann var handtekinn fyrir viðskipti sín við vændiskonu. Eftir að það gerðist hefur farið heldur lítið fyrir slíkum ummælum frá kappanum. Spéfuglinn Hugh Grant hefur oft látið stór orð falla í viðtölum án þess að nokkur tæki þeini alvarlega. Eftir að hann var handtekinn í fylgd með vændiskonu hafa mörg af grófari ummælum hans verið grafin upp og birt undir nýjum formerkj- um. vera í friði Ofurfyrirsætan Claudia Schiffer og væntanlegur eigin- maður hennar, galdrakarlinn David Copperfield, lifa í ótta eftir að hafa verið ofsótt undanfama sjö mánuði. Það er ung kona sem hefur ekki látið parið í friði og hótað þeim báðum öllu illu. Copperfield segir að konan hafi staðið andspænis honum á götu úti og heimtað að hann lýsti yfir ást sinni á henni. „Við Claudia erum verulega hrædd,“ segir Copperfield. Fyrirsætan segist einnig hafa verið skelfingu lostin þegar konan hringdi eitt sinn í hana seint að kvöldi og látið ljótar lýsingar dynja í eyru hennar. Konan sem ásækir parið er fyrrum starfsmaður þeirra, sem hefur hótað að drepa þau vegna þess að hún er hrædd um að Schiffer hafi gert vonir hennar um ástarsamband við hinn moldríka galdramann að engu. Síðustu sjö mánuði hefur hún ekki látið parið í friði og lögregla og stórt lið lífvarða er á varðbergi hvar sem þau fara. Claudia og David eiga heimili í Bandaríkjunum, Bretlandi og Frakklandi og alls staðar hefur öryggisgæsla verið hert. Copperfield gaf Schiffer trúlofunar- hring sem kostaði litlar 100 milljónir en þrátt fyrir það hafa verið sögur á kreiki um að ástar- samband þeirra sé aðeins sviðsett til að hylja sam- kynhneigð þeirra beggja. „Ég hef heyrt þessar sög- ur um að við séum bara saman til að bæta almenn- ingsálitið. Þær sögur eru sennilega til komnar vegna þess að fólki finnst kannski samband okkar of gott til að vera satt en við erum alsæl og harð- ákveðin í að ganga í það heilaga. í raun getur vel verið að við höfum þegar gift okkur, hver veit?“ sagði galdramaðurinn rétt til þess að stríða forvitn- um blaðasnápum. Claudia SchiiTcr cins og hún gerist best. hoggi Söngvarinn Michael Bolton felldi kærustu sína, leikkonuna Nico- lette Sheridan, með öflugri sveiflu í hornaboltaleik sem haldinn var í góðgerðarskyni í Wisconsin í Bandaríkjunum. Sheridan var að skrifa eiginhandaráritanir við hlið- ina á vellinum þegar boltinn skaust í afturendann á henni og hún féll við. í stað þess að hugga vinkonuna og hjálpa henni á fætur blótaði Bolton henni mjög fyrir að þvælast fyrir þegar hann væri í stuði. ^ Michacl Bolton ætti að halda ” sig við tónlistina. Nicolette Sheridan er ein af helstu kynbonibunum í Hollywood en henni hefur gengið betur á sjón- varpsskjánum en á hvíta tjald-^ inu. Hola í Gáfnaljósið í leilclistinni Draumastúlka ofurmennisins Super- man mun sýna á sér nýja hlið í væntanlegri kvikmynd. Teri Hatcher, sem leikur Lois Lane í þáttunum um Superman, sem sýndir eru á föstu- dagskvöldum á Stöð 2, fækkar fötum í myndinni Heaven Prisoners. Þar fómar hún ímynd sinni sem saklausa blaðastúlkan í sjónvarpsþáttunum og leikur í staðinn kynótt tálkvendi sem kvelur myndarlega mótleikara sína, Alec Baldwin og Eric Roberts, af miklu miskunnarleysi. „Ég leik losta- fulla tæfu. Ögrandi og stjómsama konu sem elskar eigin lrkama," segir hin þrítuga Teri um þetta hlutverk sitt. „Ég mun koma mörgum á óvart en fólk verður ekki fyrir vonbrigðum með það sem það fær að sjá,“ segir Teri og mun myndin eflaust verða vel sótt fyrir vikið. Teri Hatcher hefur skipað sér sess sem kynbomba í Hollywood þrátt fyrir að hún sé hvorki heimsk né ljóska. í raun er Teri alveg bráðgáfuð og hún hefur jafnvel íhugað að segja skilið við leiklistina og gerast stærðfræðikenn- ari. „Ég er einna helst þekkt fyrir glæsilegan líkama og engum dettur til hugar að telja mig gáfaða. Ég elska stærðfræði," segir leikkonan og því til fulltingis bendir hún á að í bókahill- um sínum séu nær eingöngu eðlis- fræðibækur. „Það var alltaf ætlun mín að verða kennari en ég villtist af braut þegar mér bauðst að reyna fyrir mér í leiklistinni," er haft eftir stúlkunni fögm. Teri Hatchcr er niargt annað til lista lagt en að leika. ^ Sálarstríð sönskonunnar Sheryl Crow á í stöðugri baráttu við þunglyndið. hún nýtur nú á dögum sækir þunglyndið enn á hana. Ég veit ekki hvort þetta hverfur nokkurn tíma. Ég hef þurft að fara oft í með- ferð til að skilja hvað- an þetta kemur og ég hræðist þessar hugsan- ir ekki lengur, sagði Crow. Hún sagðist hafa reynt að nota þessar hugsanir á já- kvæðan hátt en bætti við að þetta hefði slæm áhrif á tónlistarhæfi- leika sína. Ég er alls ekkert skapandi þeg- ar ég er þunglynd. Söngkonan Sheryl Crow hefur skýrt frá því að hún eigi enn í baráttu við þunglyndið sem setti mark sitt á fyrstu ár hennar í tónlistarbransanum. Grammy- verðlaunahafinn Crow sagðist hafa gengið í gegnum tímabil í lífi sínu þar sem hún hugsaði um sjálfsmorð hvem ein- asta dag. Þrátt fyrir þær miklu vinsældir sem

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.