Dagur - 16.09.1995, Qupperneq 15
UTAN LANDSTEINANNA
Laugardagur 16. september 1995 - DAGUR - 15
UMSJÓN: SÆVAR HREIÐARSSON
Hórkarlinn
og prinsessan
Sjarmörinn Hugh Grant á enn óhreint mjöl í pokahominu. Hann segist
nefnilega hafa átt ástarfund með Dfönu prinsessu - en aðeins í draumi.
Mig dreymir iðulega um að ég sitji við tedrykkju með drottningunni.
Mig dreymir einnig um Lafði Díönu en þeir draumar em of afbrigðilegir
til að tala um þá frekar, sagði klámkarlinn Hugh í viðtali. Breska kon-
ungsfjölskyldan er þó ekki einráð í draumum stráksa því hann hefur
einnig lýst því yfir að hann hafi mikið dálæti á klappstýrum og kaþólskar
klappstýmr em í tvöföldu uppáhaldi, sagði Hugh en þess ber þó að geta
að hann lét þessi orð falla áður en hann var handtekinn fyrir viðskipti sín
við vændiskonu. Eftir að það gerðist hefur farið heldur lítið fyrir slíkum
ummælum frá kappanum.
Spéfuglinn Hugh Grant hefur oft
látið stór orð falla í viðtölum án
þess að nokkur tæki þeini alvarlega.
Eftir að hann var handtekinn í
fylgd með vændiskonu hafa mörg af
grófari ummælum hans verið grafin
upp og birt undir nýjum formerkj-
um.
vera í friði
Ofurfyrirsætan Claudia Schiffer og væntanlegur eigin-
maður hennar, galdrakarlinn David Copperfield, lifa í
ótta eftir að hafa verið ofsótt undanfama sjö mánuði.
Það er ung kona sem hefur ekki látið parið í friði og
hótað þeim báðum öllu illu. Copperfield segir að
konan hafi staðið andspænis honum á götu úti og
heimtað að hann lýsti yfir ást sinni á henni. „Við
Claudia erum verulega hrædd,“ segir Copperfield.
Fyrirsætan segist einnig hafa verið skelfingu lostin
þegar konan hringdi eitt sinn í hana seint að kvöldi
og látið ljótar lýsingar dynja í eyru hennar. Konan
sem ásækir parið er fyrrum starfsmaður þeirra,
sem hefur hótað að drepa þau vegna þess að hún
er hrædd um að Schiffer hafi gert vonir hennar
um ástarsamband við hinn moldríka galdramann
að engu. Síðustu sjö mánuði hefur hún ekki látið
parið í friði og lögregla og stórt lið lífvarða er á
varðbergi hvar sem þau fara. Claudia og David
eiga heimili í Bandaríkjunum, Bretlandi og
Frakklandi og alls staðar hefur öryggisgæsla
verið hert. Copperfield gaf Schiffer trúlofunar-
hring sem kostaði litlar 100 milljónir en þrátt
fyrir það hafa verið sögur á kreiki um að ástar-
samband þeirra sé aðeins sviðsett til að hylja sam-
kynhneigð þeirra beggja. „Ég hef heyrt þessar sög-
ur um að við séum bara saman til að bæta almenn-
ingsálitið. Þær sögur eru sennilega til komnar
vegna þess að fólki finnst kannski samband okkar
of gott til að vera satt en við erum alsæl og harð-
ákveðin í að ganga í það heilaga. í raun getur vel
verið að við höfum þegar gift okkur, hver veit?“
sagði galdramaðurinn rétt til þess að stríða forvitn-
um blaðasnápum.
Claudia SchiiTcr cins og hún gerist best.
hoggi
Söngvarinn Michael Bolton felldi
kærustu sína, leikkonuna Nico-
lette Sheridan, með öflugri sveiflu
í hornaboltaleik sem haldinn var í
góðgerðarskyni í Wisconsin í
Bandaríkjunum. Sheridan var að
skrifa eiginhandaráritanir við hlið-
ina á vellinum þegar boltinn
skaust í afturendann á henni og
hún féll við. í stað þess að hugga
vinkonuna og hjálpa henni á fætur
blótaði Bolton henni mjög fyrir að
þvælast fyrir þegar hann væri í
stuði.
^ Michacl Bolton ætti að halda
” sig við tónlistina.
Nicolette Sheridan er ein af helstu
kynbonibunum í Hollywood en
henni hefur gengið betur á sjón-
varpsskjánum en á hvíta tjald-^
inu.
Hola í
Gáfnaljósið í
leilclistinni
Draumastúlka ofurmennisins Super-
man mun sýna á sér nýja hlið í
væntanlegri kvikmynd. Teri Hatcher,
sem leikur Lois Lane í þáttunum um
Superman, sem sýndir eru á föstu-
dagskvöldum á Stöð 2, fækkar fötum
í myndinni Heaven Prisoners. Þar
fómar hún ímynd sinni sem saklausa
blaðastúlkan í sjónvarpsþáttunum og
leikur í staðinn kynótt tálkvendi sem
kvelur myndarlega mótleikara sína,
Alec Baldwin og Eric Roberts, af
miklu miskunnarleysi. „Ég leik losta-
fulla tæfu. Ögrandi og stjómsama
konu sem elskar eigin lrkama," segir
hin þrítuga Teri um þetta hlutverk sitt.
„Ég mun koma mörgum á óvart en
fólk verður ekki fyrir vonbrigðum
með það sem það fær að sjá,“ segir
Teri og mun myndin eflaust verða vel
sótt fyrir vikið. Teri Hatcher hefur
skipað sér sess sem kynbomba í
Hollywood þrátt fyrir að hún sé
hvorki heimsk né ljóska. í raun er
Teri alveg bráðgáfuð og hún hefur
jafnvel íhugað að segja skilið við
leiklistina og gerast stærðfræðikenn-
ari. „Ég er einna helst þekkt fyrir
glæsilegan líkama og engum dettur til
hugar að telja mig gáfaða. Ég elska
stærðfræði," segir leikkonan og því til
fulltingis bendir hún á að í bókahill-
um sínum séu nær eingöngu eðlis-
fræðibækur. „Það var alltaf ætlun mín
að verða kennari en ég villtist af braut
þegar mér bauðst að reyna fyrir mér í
leiklistinni," er haft eftir stúlkunni
fögm.
Teri Hatchcr er niargt annað til lista
lagt en að leika. ^
Sálarstríð
sönskonunnar
Sheryl Crow á í
stöðugri baráttu við
þunglyndið.
hún nýtur nú á dögum
sækir þunglyndið enn
á hana. Ég veit ekki
hvort þetta hverfur
nokkurn tíma. Ég hef
þurft að fara oft í með-
ferð til að skilja hvað-
an þetta kemur og ég
hræðist þessar hugsan-
ir ekki lengur, sagði
Crow. Hún sagðist
hafa reynt að nota
þessar hugsanir á já-
kvæðan hátt en bætti
við að þetta hefði slæm
áhrif á tónlistarhæfi-
leika sína. Ég er alls
ekkert skapandi þeg-
ar ég er þunglynd.
Söngkonan Sheryl Crow hefur
skýrt frá því að hún eigi enn í
baráttu við þunglyndið sem setti
mark sitt á fyrstu ár hennar í
tónlistarbransanum. Grammy-
verðlaunahafinn Crow sagðist
hafa gengið í gegnum tímabil í
lífi sínu þar sem hún hugsaði
um sjálfsmorð hvem ein-
asta dag. Þrátt fyrir þær
miklu vinsældir sem