Dagur - 16.09.1995, Síða 20
Þrír menn fórust í
flugslysi í Kletthyrnu
í Bægisárjökli
Fjögurra sæta flugvél af gerð-
inni Cessna Skyhawk, TF-
ELS, fórst síðdegis í gær í Klett-
hyrnu í Bægisárjökli og með
henni þrír menn. Flugvélin kom
til Akureyrar um fjögurleytið í
gær og hafði skamma viðkomu,
fór aftur í loftið áleiðis til
Reykjavíkur liðlega fimm og
flaug fram Glerárdal í góðu
veðri, aðeins skýjahula á íjalla-
toppum.
Flugvélin sást á radar frá
Langanesi við Bægisárjökul um
10 mínútum eftir brottför en síðan
ekki meir. Þegar vélin kom ekki
til Reykjavíkur á tilsettum tíma
voru björgunarsveitir settar í við-
bragðsstöðu og um miðnættið
héldu þrjár sveitir frá Landsbjörg
á Akureyri af stað til leitar fram
Glerárdal. Fyrstu menn komu svo
á slysstað klukkan hálfníu í gær-
morgun og skömmu síðar kom
þyrla Landhelgisgæslunnar á stað-
inn með lækni sem staðfesti að
ntennirnir væru allir látnir. Lfm
1000 manns tók þátt í leitinni í
gær auk 30 flugvéla. Flugslysa-
nefnd ásamt starfsmönnum Loft-
ferðaeftirlitsins kom á slysstað um
hádegisbilið í gær til að rannsaka
orsök slyssins. Nánari tildrög
slyssins voru ekki ljós er blaðið
fór í prentun í gær.
GG
Flugslysanefnd ásamt starfsmönnum loftferðacftirlits Flugmálastjórnar
komu til Akureyrar í gær og héldu þegar á slysstað með þyrlu Landhelgis-
gæslunnar til rannsóknar á flugslysínu. Mynd: BG
Þeirfóru alla leið á
HELIX
smurolíu og
BCTRA 3ENSÍNI
Skeljungur hf.
óskar þeim félögum
til hamingju.
Á Helixbílnum fyrstir í mark í fjórða sinn
Ökuleikni, góður bíll, úrvals smurefni og betra bensín
hafa skilað þeim Ásgeiri Sigurðssyni og Braga
Guðmundssyni undraverðum árangri í Alþjóða
Reykjavíkurrallinu. Þetta varfjórði sigur þeirra í
alþjóðarallinu og tíundi sigur þeirra í röð í rallkeppni.
Alla leið
Skeljungur hf.
Einkaumboð fyrir Shell-vörur á íslandi