Dagur


Dagur - 16.09.1995, Qupperneq 20

Dagur - 16.09.1995, Qupperneq 20
Þrír menn fórust í flugslysi í Kletthyrnu í Bægisárjökli Fjögurra sæta flugvél af gerð- inni Cessna Skyhawk, TF- ELS, fórst síðdegis í gær í Klett- hyrnu í Bægisárjökli og með henni þrír menn. Flugvélin kom til Akureyrar um fjögurleytið í gær og hafði skamma viðkomu, fór aftur í loftið áleiðis til Reykjavíkur liðlega fimm og flaug fram Glerárdal í góðu veðri, aðeins skýjahula á íjalla- toppum. Flugvélin sást á radar frá Langanesi við Bægisárjökul um 10 mínútum eftir brottför en síðan ekki meir. Þegar vélin kom ekki til Reykjavíkur á tilsettum tíma voru björgunarsveitir settar í við- bragðsstöðu og um miðnættið héldu þrjár sveitir frá Landsbjörg á Akureyri af stað til leitar fram Glerárdal. Fyrstu menn komu svo á slysstað klukkan hálfníu í gær- morgun og skömmu síðar kom þyrla Landhelgisgæslunnar á stað- inn með lækni sem staðfesti að ntennirnir væru allir látnir. Lfm 1000 manns tók þátt í leitinni í gær auk 30 flugvéla. Flugslysa- nefnd ásamt starfsmönnum Loft- ferðaeftirlitsins kom á slysstað um hádegisbilið í gær til að rannsaka orsök slyssins. Nánari tildrög slyssins voru ekki ljós er blaðið fór í prentun í gær. GG Flugslysanefnd ásamt starfsmönnum loftferðacftirlits Flugmálastjórnar komu til Akureyrar í gær og héldu þegar á slysstað með þyrlu Landhelgis- gæslunnar til rannsóknar á flugslysínu. Mynd: BG Þeirfóru alla leið á HELIX smurolíu og BCTRA 3ENSÍNI Skeljungur hf. óskar þeim félögum til hamingju. Á Helixbílnum fyrstir í mark í fjórða sinn Ökuleikni, góður bíll, úrvals smurefni og betra bensín hafa skilað þeim Ásgeiri Sigurðssyni og Braga Guðmundssyni undraverðum árangri í Alþjóða Reykjavíkurrallinu. Þetta varfjórði sigur þeirra í alþjóðarallinu og tíundi sigur þeirra í röð í rallkeppni. Alla leið Skeljungur hf. Einkaumboð fyrir Shell-vörur á íslandi

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.