Dagur - 28.09.1995, Blaðsíða 3

Dagur - 28.09.1995, Blaðsíða 3
FRETTIR 269f '.9dnieJos8 8S itJDBbutiTirnR -RU0AO-S Fimmtudagur 28. september 1995 - DAGUR - 3 Veiöireglur hertar í Flæmska hattinum: Veiöileyfi fyrir 18 íslensk skip Samkvæmt samkomulagi aðild- arþjóða NAFO, fískveiðinefndar Norðvestur- Atlantshafsins, fá 18 íslensk skip að stunda rækju- veiðar á Flæmska hattinum við Nýfundnaland á næsta ári og mega þau veiða í alls 1.200 daga. Þetta svarar til þess að hvert það skip sem sótt hefur á þessi mið að undanförnu megi veiða á þessum slóðum í 60 til 70 daga. Islendingar fluttu tillögu um hámarkskvóta og tímabundið veiðibann en henni var hafnað, en áðumefnd tillaga var flutt af Norðmönnum, Færeyingum, Grænlendingum, Eistlendingum, Lettum og Litháum. í tillögunni er m.a. ákvæði um að nota verði 40 mm rækjuskilju. Engar ákvarðanir Útvarp Norðurlands: Ekki gert ráð fyrir breytingum á útsend- ingartíma Eins og komið hefur fram, eru uppi nokk- uð stíf sparnaðar- áform hjá Ríkisút- varpinu og er við það miðað að skera niður um sem svarar 13 milljónum króna til áramóta. Arnar Páll Hauksson, deild- arstjóri Utvarps Norðurlands á Akureyri, segir að ekki sé gert ráð fyrir að skera niður þjón- ustu við hlustendur, útsending- artíminn verði eftir sem áður sá sami; morgunútsending eftir áttafréttir fréttastofu útvarps og síðdegisútsending á sínum stað kl. 18.35. Hins vegar segir Arnar Páll að ekki sé fyrirhug- að að senda út þátt kl. 11 á laugardögum eins og á síðasta vetri, þar sé um að ræða sparn- aðarráðstöfun. Sem liður í sparnaðaráform- um RÚV er ætlunin að stokka upp morgunútsendingu Rásar 2 og 1 að því leyti að á eftir áttafréttum og til Ícl. 8.30 verð- ur svokallað „fréttamagasín" þar sem fréttastofa útvarps kemur við sögu á samtengdum rásum. Þetta þýðir það í raun að hlustendur hafa nú val, þeir sem ekki vilja hlusta á svæðis- útsendingu Útvarps Norður- lands á tíðni Rásar 2, geta stillt viðtækin á tíðni Rásar 1 og hlustað á fréttatengt efni á samtengdum rásum. Arnar Páll sagði að rekstur Útvarps Norðurlands hafi á liðnum árum verið í jafnvægi og svo væri enn. Hins vegar sagði hann að Útvarp Norður- lands eins og annar rekstur RÚV hafí orðið fyrir niður- skurðarhnífnum á undanföm- um ámm. óþh hafa verið teknar í sjávarútvegs- ráðuneytinu um hvernig veiðum íslensku skipanna verði stjórnað innan áðurnefndra marka. Sumir útgerðarmenn telja að með sam- komulaginu sé ekki verið að þjóna hagsmunum strandríkja eins og Kanada enda komi tillagan frá ríkjum sem hafi mesta veiði- reynslu á þessum slóðum og þann- ig þjóni þau best eigin hagsmun- um. í Flæmska hattinum eru tvö norðlensk skip á veiðum; Arnar- nes SI-70 frá Siglufirði og Dal- borg EA-317 frá Dalvík en auk þess hefur Sunna SI-67 frá Siglu- firði stundað veiðar á þessum slóðum. í Flæmska hattinum eru nú þrjú önnur skip; Andvari VE, Klara Sveinsdóttir SU og Ottó Wathne NS. Guðmundur Péturs ÍS, sem gerður er út af Básafelli hf. á ísafirði, er væntalegur til löndunar á Isafirði nk. laugardag með um 100 tonn og liggur verð- mæti aflans nærri 13 milljónum króna. Básafell gerir einnig út Hafrafell ÍS sem nýbúið er að landa 75 tonnum að verðmæti tæpar 10 milljónir króna. Hvorug- ur lsafjarðartogaranna fer aftur í Flæmska hattinn að sinni. GG Fjallskilamál á Langanesi í höndum félagsmálaráðherra: Erum aö verja hefð- bundiö skipulag fyrir bylt ingarkenndum umbótum - segir Marinó Jóhannsson bóndi í Tunguseli, einn þremenn- inganna sem standa að kærunni til félagsmálaráöuneytisins Marinó Jóhannsson, bóndi í Tunguseli, sem sæti átti í fjallskila- og riðunefndinni í Þórshafnarhreppi, sem hefur verið sett af, segir að nefndin hafí aidrei starfað með eðlileg- um hætti eftir síðustu sveitar- stjórnarkosningar. Ástæðu þess telur Marinó fyrst og fremst vera pólitískan ágreining. Meirihluti hreppsnefndar hafí skipað Úlfar Þórðarson á Syðribrekku formann nefndar- innar, en pólitískur meirihluti hafi legið á hinum kantinum. Bændur hafí verið ákaflega ósáttir við þá ákvörðun. „Úlfar hafði einhverja minni- máttarkennd út af þessu og við skrifuðum hreppsnefnd bréf í fyrra og óskuðum eftir því að fá að kjósa formann, varaformann og ritara nefndarinnar eins og gert hefur verið I hálfa öld, eða jafnvel lengur. Þeirri málaleitan synjaði hreppsnefndin og féll- umst við á það og samþykktum Úlfar sem fjallskilastjóra, en ósk- uðum eftir því að fá að kjósa varaformann og ritara, sent ekki var fallist á. Úlfar taldi nefndina óstarthæfa og vísaði málinu til hreppsnefndar. Það var gert bráðabirgðasamkomulag í fyrra um göngur og öli tjallskil og síð- an átti að halda fund í nefndinni, þ.e. sl. haust, en sá fundur var aldrei haldinn og við vorum í sömu sporum í haust þegar átti að jafna niður. Sagan endurtók sig því í haust þegar kom að verkaskiptingu innan nefndarinn- ar; fjallskilastjóri vísaði málinu til hreppsnefndar og hún I fram- haldi þess setti okkur af. Við þrír sem kærðum hreppsnefndina, er- um að verja hefðbundið skipulag fyrir byltingarkenndum umbót- um og trúum að menn vilji viðhalda hefðbundinni samvinnu í þessu máli,“ sagði Marinó Jó- hannsson í Tunguseli. Marinó segir málið í hnotsk- urn vera það hvort fjallskil eigi að vera í höndum bænda og um það hafi verið góður samstarfs- vilji í fyrrum tjallskilanefndum. Nú hafi pólitíkin hins vegar sett strik f reikninginn og í nefndinni sitji m.a. einn „hobbíbóndi", Halldór Halldórsson, sem búi á Þórshöfn og eigi um 20 kindur. Ein skilarétt er á þessu svæði, Hallgilsstaðarétt sunnan Hali- gilssstaða, og telur Marinó Jó- hannsson það engan veginn nægjanlegt að hafa aðeins eina skilarétt fyrir þetta svæði en rétt- að sé í aukaréttum, t.d. á Sauða- nesi og nýlega í Tunguseli. GG Kristinn Hugason um norðlenska hestamennsku í sumar: Markvissari vinnubrögð í kynbótastarfi skortir „Séð frá sjónarhóli kynbóta- starfsins þá var nýliðið sumar frekar tíðindalítið. Þá skoðun mína hef ég áður látið í ljós að þátttaka norðlenskra hesta- manna í kynbótasýningum er of lítil. Það hefur síst batnað nú í sumar,“ sagði Kristinn Huga- son, hrossaræktarráðunautur Bændasamtaka fslands, í sam- tali við Dag, aðspurður um álit hans á framþróun í norðlenskri hestamennsku nú í sumar. Kristinn Hugason telur að markvissari vinnubrögð skorti hjá norðlenskum hestamönnum, s.s. hvað varðar að koma með kyn- bótahross fram til sýninga. Þetta sé meginskýring þess að þátttaka og árangur norðlenskra hesla- manna með kynbótahross sín á mótum þess árs sé jafn tíðindalítill og raun ber vitni. Heildarvirknin þarf að aukast „Það vantar að menn gangi mark- vissar til verks og temji hross sín með það fyrir augum að sýna þau og taka síðan ákvörðun um fram- haldið á grundvelli dóma sem fyr- ir liggja. Þrátt fyrir mikla fjölgun hrossa á Norðurlandi, líkt og ann- arsstaðar, hefur hinsvegar engin aukning orðið í því að hross komi til dóms. Framkvæmd sýninga- halds á Norðurlandi í sumar gekk hinsvegar vel og nyrðra er margt góðra sýningarmanna - og einnig hrossaræktarmenn í allra fremstu röð. En eigi að síður þarf heildar- virknin að aukast til muna,“ segir Kristinn. Jafnbesta reiðmennskan er í Eyjafirði Reiðmennsku norðlenskra hesta- manna segir Kristinn vera mjög áþekka því sem hún hafi verið. A heildina litið sé þróunin jákvæð. Afgerandi munur sé millli svæða að því leyti að þar séu góðir reið- menn. Bestu reiðmennirnir eru, að mati Kristins, í Eyjafirði og Skagafirði. „Jafnbesta reið- mennskan er í Eyjafirði. Margir góðir reiðmenn eru einnig í Skagafirði en heilt yfir er reið- mennska þar mjög misjöfn," segir Kristinn. Hrossum má fækka „Þátttaka norðlenskra hestamanna í kynbótasýningum þarf að aukast á næstu árum. Á því er brýn þörf og hér eru engin héruð norðan- lands undanskilin. Og ég get líka alveg sagt það hér sem ég sagði jafnframt á hestamannamótum í sumar, að í hrossaræktinni eigum við enga aðra leið í áframhaldinu en leið gæðanna. Rækta þarf betri hross og öðrum þeirn sem síðri eru má að ósekju fækka,“ sagði Kristinn. -sbs. Ekkert upp í kröfur í þrota- bú Skeljakletts Skeljaklettur hf. á Hvammstanga var úrskurðaður gjaldþrota 9. febrúar á sl. ári. Skiptum er nú lokið og fundust engar eignir í bú- inu. Ekkert fékkst því upp í 55,4 milljóna króna kröfur í búið. óþh GUNNAR RAFN JONSSON opnan m^iverka SYNINGll f HeklusaL, GaLLení ALLm Handa, á GLeKáneymm, Akuneym pösTudagmn 29. sepremhen 1995 kL.20.00 Við opnumna Leika AKnlnLduK Eyja SöLvadÓTTiK og Sigmveig GunnaKsöÓTTiK á gnaK Á sýningunm venða ypiK 60 vaTnsLiTamyndiK Opið aLLa ðaga pm kL. 14-19 Sýnmgunm Lýkrn 10. okwkeK ALLik bjamanLega veLkomnm!

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.