Dagur - 28.09.1995, Page 12
Fjölskylduvemd
...eíns og þú
vílt hafa hana
Fjölskyíduvernd er ný þjónusta Tryggíngar hf.
Hún felur í sér míkínn sveigjanleíka fyrír hvern og eínn tíl
að sníða tryggíngarpakkann að sínum þörfum.
TRYGGING HF
Hofsbót 4 • Sfmi 462 1844
© VEÐRIÐ
Mikill áhugi í ár á beinu flugi frá Akureyri til borga í Evrópu:
Eftirspurnin sjaldan
eða aldrei veriö meiri
- fyrsta ferðin í dag - um 190 manns í beinu flugi til Glasgow
Eftir því sem Dagur kemst
næst hafa aldrei jafn margir
bókað sig í beint flug frá Akur-
eyri í haustferðir til borga í Evr-
ópu og á þessu hausti. „Vertíð-
in“ hefst í dag kl. 18.25 þegar
757 Boeing vél Flugleiða hefur
sig á loft frá Akureyrarflugvelli
með um 190 manns til Glasgow í
Skotlandi. Samkvæmt upplýs-
ingum ferðaskrifstofanna má
ætla að um 1400 manns fari í
beinu flugi frá Akureyri til
borga í Evrópu.
Þær ferðir sem þegar hafa verið
ákveðnar eru eftirfarandi:
28. september - Glasgow, 6.
október - Dublin, 9. október -
Dublin, 12. október - Dublin, 12.
október - Glasgow, 15. október -
Glasgow, 18. október - Newc-
astle, 20. október - Cork, 30. októ-
ber - Dublin og 9. nóvember - Ed-
inborg.
Ferðin í dag til Glasgow er á
vegum Flugleiða og dugir ekki
minna en stærsta vél fyrirtækisins,
sem tekur 189 manns í sæti.
A vegum ferðaskrifstofunnar
Úrvals-Utsýn er áætlað að fari um
500 manns til Glasgow og Edin-
borgar. Samkvæmt upplýsingum
ferðaskrifstofunnar í gær er þessi
sala með meira móti. Aberandi
hefur verið að fólk á vinnustöðum
taki sig saman og fari í slíka ferð
og dæmi er um að starfsmannafé-
lög hyggist halda árshátíð ytra.
Bróðurpartur þeirra sem keypt
hafa ferð til Glasgow og Edin-
borgar á vegum Úrvals-Útsýnar er
frá Akureyri en einnig eru þar
nokkrir stórir hópar, til dæmis frá
Ólafsfirði og Húsavík.
Samvinnuferðir-Landsýn selur
ferðir lil Dublin og Cork á írlandi.
Dublinarferðir hefur fyrirtækið
selt í nokkur ár en þetta er í fyrsta
skipti sem selt er í beint flug til
Cork. í gær áætlaði Ásdís Áma-
dóttir hjá Samvinnuferðum-
Landsýn að búið væri að selja 535
sæti í þessar í ferðir. Uppselt er í
nokkrar þeirra en laus sæti í aðrar.
Ásdís sagði þetta ekki ósvipaða
sölu og undanfarin ár. Hún kann-
aðist líka við að vinnustaðahópar
færu í þessar ferðir, stærsti hópur-
inn væri um 100 manns. Ásdís
bætti við að síðan byrjað var að
bjóða upp á beint flug frá Akur-
eyri til borga í Evrópu hafi orðið
áberandi samdráttur í sölu á svo-
kölluðum helgarpökkum til
Reykjavflcur.
Þær upplýsingar fengust hjá
ferðaskrifstofunni Alís í Hafnar-
firði að boðið væri upp á eina ferð
í beinu flugi frá Ákureyri til
Newcastle í Englandi. Hluti af far-
þegunum kemur um borð í vélina
í Keflavík, en norðanfólk í þessari
vél er líklega um 120 talsins.
Búist er við að selt verði í þau
sæti sem enn eru laus í þessar vél-
ar og gangi það eftir má ætla að
um 1400 manns fari í haustferðir
til borga í Evrópu í beinu flugi frá
Akureyri á þessu hausti. óþh
Fræðslustjórum
sagt
Menntamálaráðherra hefur
sent fræðslustjómm
landsins uppsagnarbréf og tek-
ur uppsögnin gildi 1. ágúst
1996, en þá flyst rekstur
grunnskólans endanlega frá
ríkinu yflr til sveitarfélaganna.
Jafnframt er fræðslustjórum
gert að segja upp starfsfólki
fræðsluskrifstofanna og tekur
uppsögn þeirra sömuleiðis gildi
1. ágúst 1996.
Únnið er að undirbúningi
verkefnaflutningsins og em upp-
sagnir fræðslustjóranna liður í
því. Fræðsluskrifstofurnar verða
lagðar niður, en ekki er að í'ullu
ljóst hvað við tekur og er það
raunar töluvert mismunandi eftir
kjördæmum. Til dæmis komu
fram mjög skiptar skoðanir á að-
alfundi Samtaka sveitarfélaga á
Norðurlandi vestra fyrir skömmu
og er stjórn samtakanna að vinna
áfram að málinu í framhaldi af
umræðum á aðalfundinum. Með-
al annars hefur verið lagt til að
sjálfstæðar launaskrifstofur verði
við hvem skóla í kjördæminu. Þá
em skiptar skoðanir um hvemig
ráðgjöf; kennsluráðgjöf, sér-
kennsluráðgjöf og sálfræðiþjón-
ustu verði fyrir komið. óþh
Eftir þetta norðankast virðist
sem eigi að rofa til og jafnframt
á að hlýna. í dag er spáð létt-
skýjuðu veðri um nær allt land
og hita á bilinu 3-8 stig. Á
föstudag snýst vindur til suð-
vestlægrar og síðan suðaust-
lægrar áttar. Það má búast við
rigningu um allt land og um-
talsvert hlýnandi. Veturinn hef-
ur því hopað - í bili að minnsta
kosti.
Veiði í Mývatni lauk í gær:
Niðursveiflunni lokiö
etta hefur verið sæmilegt
sumar í veiðinni og langt yfir
meðallagi seinni ára,“ sagði
Héðinn Sverrisson, bóndi á Geit-
eyjarströnd í Mývatnssveit í gær
en þá lauk veiði á þessu ári í
Mývatni. Eins og flestum er ef-
laust kunnugt hefur verið niður-
sveiflutímabil í silungsveiðinni í
vatninu í rúma tvo áratugi en
miðað við síðustu tvö árin er að
sjá sem nú sé loks að rætast úr.
Aðspurður hvort einhver svæði
bæti við sig umfram önnur segir
Héðinn að framan af sumri hafi
verið þokkaleg veiði í Norðurflóa
og vestantil í suðurhluta vatnsins.
„Svo virðist sem veiðin nái sér
síður upp hér austantil í suðurhlut-
anum,“ sagði Héðinn. Silungurinn
í sumar hefur verið feitur og
nokkuð vænn sem sýnir að áta
hefur verið næg fyrir fiskinn.
„Þetta virðist vita á að veiðin
sé upp á við og stofninn að styrkj-
ast. Þetta hefur, að undanskildum
2-3 árum, verið í niðursveiflu allt
frá 1970 en í ágúst 1993 fór virki-
lega að rætast úr.“
Flestir bændur við vatnið
reykja silunginn og senda á mark-
að, jafnt sunnan heiða sem norð-
an. Héðinn segir að alla jafna sé
barátta um fiskinn síðustu dagana
veiðitímabilsins enda Mývatnssil-
ungurinn vinsæll. Veiðitímabilið
hefst aftur 1. febrúar og leggja
bændur þá undir ís. JÓH
KAUPLAND
Kaupangi • Sími 462 3565
Sjúkrahúsið á Húsavík.
Mynd: IM
Húsavík:
Er heilbrigðisþjón-
usta grundvallar-
atriði fyrir búsetu?
- fundur um framtíð héraðssjúkrahúsa
verður haldinn á Húsavík á laugardag
Fundur um framtíð héraðs-
sjúkrahúsa verður haldinn
á Hótel Húsavík nk. Iaugar-
dag. Það eru sjúkrahús á
landsbyggðinni sem til fundar-
ins boða en tilefni hans er að
forsvarsmönnum sjúkrahúsa á
landsbyggðinni finnst óeðlilega
staðið að skýrslugerðum um
þessi mál þar sem lítið eða
ekkert samráð sé haft við það
fólk sem vinnur við viðkom-
andi stofnanir.
„Yfirlýst markmið er að spara
og dreifa valdi en okkur sýnist
að í mörgum tilfellum stefni
lausnirnar í þveröfuga átt. Þessi
mál þarf að ræða mikið betur og
það ætlum við okkur að gera á
þessum fundi,“ segja fundarboð-
endur, sem telja mikilsvert að
sem flestir mæti á þennan fund,
en fólki gefst þar tækifæri til að
láta í sér heyra. Fundurinn er op-
inn almenningi og til hans eru
boðaðir fulltrúar sjúkrahúsa, hei-
brigðisráðherra og starfsmenn
ráðuneytisins, landlæknir og
starfsmenn landlæknisembættis-
ins, sveitarstjórnarmenn, þing-
menn og fréttamenn.
Frummælendur á fundinum
eru: Ólafur Ólafsson, landlækn-
ir, Kristján Erlendsson, kennslu-
stjóri læknadeildar Háskóla ís-
lands, Torfi Magnússon, for-
maður læknaráðs Borgarspítal-
ans, Ólafur R. Ingimarsson, yfir-
læknir Sjúkrahúss Skagfirðinga,
Þorsteinn Jóhannesson, yfir-
læknir Sjúkrahúsinu á ísafirði,
Jón Sigurbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri Sjúkrahúsinu á
Siglufirði og Haukur Gunnars-
son, kennari við Borgarhóls-
skóla á Húsavík. Umræður
verða að loknu hádegisverðar-
hléi.
„Ég hvet fólk til að mæta á
fundinn sem verður án efa
skemmtilegur og fræðandi. Fram
hefur komið að fagfólki í
Reykjavík finnst stóra málið að
loka sjúkrahúsum úti á landi og
breyta þeim í hjúkrunarheimili.
Er ekki heilbrigðisþjónustan á
hverju svæði grundvallaratriði
þess að fólk vilji búa þar?“ spyr
Friðfinnur Hermannsson, fram-
kvæmdastjóri Sjúkrahússins á
Húsavík, í viðtali í opnu Dags í
dag. Dagur heimsótti sjúkrahús-
ið og ræddi við starfsfólk þess til
að vapa ljósi á hvaða starfsemi
fer fram á einu af landsbyggðar-
sjúkraliúsunum. IM
Þessa dagana er hópur ítala frá vikublaðinu Gioa á Akureyri í þeim
tilgangi að safna efni. Fjórar íslenskar fyrirsætur, sem sjást á
meðfylgjandi mynd er tekin var fyrir utan Hótel KEA á Akureyri í
gær, sýna fatnað frá þekktum erlendum hönnuðum og einnig sýna
þær íslenskan fatnað. Þessi heimsókn ítalanna er afar dýrmæt land-
kynning, enda er Gioa gefið út í 400 þúsund eintökum og er eitt
þekktasta tísku-, mannlífs og ferðamálatímaritið á Ítalíu.
Nánar verður fjallað um heimsókn ítalanna í helgarblaði Dags. óþh
Módelin fest á fílmu