Dagur - 13.10.1995, Blaðsíða 1
78. árg.
Akureyri, föstudagur 13. október 1995
Verið
yiðbúin
197. tölublað
Utanverður
Eyjafjörður
verði
lýstur eitt
atvinnu-
svæði
Að undanförnu hefur nokkuð
verið rætt um að sveitarfé-
lög séu að knýja fólk til að flytja
lögheimili sitt ef það á að fá at-
vinnu á viðkomandi stað. Um
þetta var rætt á samráðsfundi
framkvæmdastjóra sveitarfélaga
við utanverðan Eyjafjörð, sem
haldinn var á dögunum.
Hálfdán Kristjánsson, bæjar-
stjóri í Ólafsfirði, segir þessa um-
ræðu vissulega vera eðlilega á
vettvangi sveitarfélaganna, því um
sé að ræða þeirra megin tekju-
stofn, þ.e. skatttekjur. Á fundinum
komust menn að þeirri niðurstöðu
að búseta sem skilyrði fyrir at-
vinnu væri ekki réttlætanleg.
Ákveðið var að beina því því til
sveitarstjórnarmanna að huga að
því að lýsa Ut-Eyjafjarðarsvæðið
eitt atvinnusvæði. „Ef menn eru
að huga að samstarfi á þeim nót-
um sem við erum að gera, er full
ástæða til að hverfa frá því að bú-
seta sé skilyrði fyrir atvinnu og
lýsa því yfir að svæðið sé eitt at-
vinnusvæði," sagði Hálfdán.
Hann segist ekki vita um um-
talsverða árekstra vegna svona
mála, en dæmi séu um að menn
sem vinna á einum stað en búa á
öðrum hafi fengið vinsamleg til-
mæli um að breyta lögheimili
sínu. Umrædd yfirlýsing frá fund-
inum geti verið eitt skref í frekara
samstarfi sveitarfélaga við utan-
verðan Eyjafjörð, en menn eru
einmitt að huga að slíku þessa
dagana. HA
Tignit gestir á frumsýningu
Eins og kom fram í Degi í gær frumsýnir Leikfélag
Akureyrar í kvöld Drakúla greifa, leikgerð Irans
Michael Scott úr hinu heimsþekkta verki breska rit-
höfundarins Bram Stoker. Þessi leikgerð Scotts, sem
er jafnframt leikstjóri sýningarinnar, hefur ekki áður
verið færð á svið og því er hér um heimsfrumsýningu
á þessari leikgerð að ræða. Meðal gesta á frumsýn-
ingu Leikfélags Akureyrar í kvöld verða forseti Is-
lands, Vigdís Finnbogadóttir, Bjöm Bjamason,
menntamálaráðherra, og eiginkona hans, Rut Ingólfs-
dóttir, Stefán Baldursson, leikhússtjóri Þjóðleikhúss-
ins, og eiginkona hans, Þórunn Sigurðardóttir.
Á meðfylgjandi mynd er Viðar Eggertsson, leik-
hússtjóri LA, í essinu sínu í hlutverki Drakúla greifa.
óþh/Mynd: BG.
Sýslumannsembættið í Ólafsfirði lagt niður í byrjun árs 1996:
Stefnt að því að Ólafsfirðingar
sæki sína þjónustu til Dalvíkur
- segir Þorsteinn Pálsson, dómsmálaráðherra
Akvörðun stjórnvalda að leggja niður
sýslumannsembættið í Ólafsfirði, eins
og kemur fram í þeim fjárlögum sem ríkis-
stjórn Davíðs Oddssonar hefur lagt fram á
Alþingi, hefur valdið talsverðu umróti í
hugum Ólafsfirðinga og bæjarstjórn Ólafs-
Qarðar hefur mótmælt þeirri ákvörðun og
talið hana skref afturábak í þjónustu við
íbúa á landsbyggðinni.
Þorsteinn Pálsson, dómsmálaráðherra, seg-
ir umtalsverðan sparnað fólginn í því að sam-
eina embætti sýslumanns í Ölafsfirði cmbætt-
inu á Akureyri og þar sé um verulega upphæð
að ræða. Þessar breytingar eru fyrirhugaðar í
byrjun næsta árs.
„Fyrir tveimur árum vorum við með hug-
myndir um ntjög róttækar skipulagsbreyting-
ar sem lutu ekki aðeins að minnstu embætt-
unum eins og í Ólafsfirði og á Bolungarvík,
heldur einnig að stærstu embættunum á höf-
uðborgarsvæðinu og við töldum að einnig
væri hægt að hagræða með sameiningu
þeirra. Þær hugmyndir náðu ekki fram að
ganga. í Ólafsfirði og Bolungarvfk er um að
ræða litlar einingar og tiltölulega stutt í næstu
þjónustu sýslumanns, bæði til Dalvíkur og
Isafjarðar, og það eru aðairökin fyrir því að
við erum að grípa til hagræðingar á þessum
tveimur stöðum. Samgöngur hafa batnað og
tæknin breyst sem gerir þessar breytingar
auðveldari, líka fyrir íbúa viðkomandi byggð-
arlaga," sagði Þorsteinn Pálsson, dómsmála-
ráðherra, í samtali við Dag í gær.
Dómsmálaráðherra segir hugmyndir unt
stækkun þjónustusvæðis embættisins í Ólafs-
firði í þá veru að jrað næði einnig til t.d. Dal-
víkur, Svarfaðardals og Hríseyjar ekki hafa
komið til greina, þærekki þótt aðgengilegar.
„Það er enn ekki afráðið hvemig l'arið
verður með þær húseignir sem tilheyra emb-
ætti sýslumanns í Ólafsfirði, en líklega verða
þær seldar. Við höfum bent á að það er að-
eins steinsnar í þjónustu sýslumannsembætt-
isins á Dalvík og er stefnt að því að afgreiðsl-
an á Dalvík muni þjóna Dalvíkingum, Ólafs-
firðingum og fleiri íbúum við utanverðan
Eyjafjörð,“ sagði Þorsteinn Pálsson, dóms-
málaráðherra. GG
Skagafjörður:
Samstarf
kannað í
skólamálum
Afundi bæjarráðs Sauðár-
króks á dögunum var lagt
fram bréf frá hreppsnefnd Skef-
ilsstaðahrepps, þar sem óskað er
eftir viðræðum við bæjarstjórn
Sauðárkróks um mögulega aðild
Skefilsstaðahrepps að Grunn-
skóla Sauðárkróks. Var bæjar-
stjóra og formanni skólanefndar
falið að ganga til viðræðna við
hreppsnefnd Skefisstaðahrepps
um málið.
Að sögn Björns Sigurbjörns-
sonar, fomianns bæjarráðs og
skólastjóra Gagnfræðaskólans, er í
gangi samstarf við Rípuhrepp sem
sent hefur nemendur í elstu bekkj-
um grunnskólans til Sauðárkróks
og em uppi hugmyndir um nánara
samstarf en verið hefur. Björn
segir góða reynslu af þessu sam-
starfi. „Við erum mjög sáttir við
að samstarf eflist og dafni milli
sveitarfélaganna, á þessum svið-
um sem öðrum.“ HA
Akureyrarhöfn:
Farið í vestur-
bakka Fiski-
hafnar 1998
Endurskoðuð framkvæmda-
áætlun Akureyrarhafnar
fyrir árin 1996-1999 var sam-
þykkt á fundi hafnarstjórnar á
dögunum. Þar kemur fram að
samtals verði varið 255,3 millj-
ónum króna til framkvæmda á
vegum hafnarinnar á þessum
tíma. Bæjarráð á eftir á afgreiða
áætlunina.
Á næsta ári eru áætlaðar 20
milljónir til að ljúka þeim fram-
kvæmdum sem eru í gangi í
Krossanesi og 8 milljónir í við-
gerð á dráttarbraut. Á árinu 1997
eru áætlaðar 51,1 milljón í leng-
ingu Oddeyrarbryggju til austurs
og 32,5 milljónir í að lengja
Tangabryggju til suðurs. Verður í
þeirri framkvæmd rifin trébryggja
sem er fyrir framan fóðurvöru-
deild KEA.
Á árunum 1998-1999 eru áætl-
aðar 137 milljónir í fyrsta áfanga
vesturbakka Fiskihafnar, þ.e. þar
sem nú er Sanavöllurinn. Verður
höfnin stækkuð lil vesturs og
byggður 100 m viðlegukantur.
Einar Sveinn Ólafsson, formaður
hafnarstjómar, segir að búið sé að
gefa Samherja hf. vilyrði um að
farið verði í þennan áfanga, en þar
er athafnasvæði fyrirtækisins
hugsað. Fram að þeim tíma hefur
Samherji fengið aðstöðu á austur-
bakka Fiskihalnar, þar sem hús
verður sett niður til bráðabirgða.
Einar Sveinn segist eiga eftir
að sjá hvað framlag ríkisins verð-
ur á næstu fjárlögum og þegar það
kemur í ljós verði menn að meta
hvort þessum framkvæmdahraða
verður haldið, þá hugsanlega með
auknum lántökum, hvort for-
gangsröð verður breytt eða skorið
niður miðað við þessa áætlun. HA