Dagur - 13.10.1995, Blaðsíða 16
Akureyri, föstudagur 13. október 1995
Utlit fyrir miðlungs
kartöfluuppskeru
Kartöflubændur á Eyjafjarð-
arsvæðinu er flestir langt
komnir með að taka upp og
margir búnir. Vætutíð í síðustu
viku setti strik í reikninginn hjá
mörgum þar sem garðar urðu
víða ófærir. Eins hafa menn ver-
ið að vonast til að eitthvað
myndi hlýna í veðri þar sem
ekki er mjög heppilegt að taka
upp þegar hitastigið er ekki
nema rétt við frostmark.
Ólafur Vagnsson, ráðunautur
hjá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar,
sagði útlit fyrir að uppskera yrði
ntjög nálægt því að vera í meðal-
lagi á svæðinu. „Mér sýnist að það
verði niðurstaðan á endanum þrátt
fyrir allt. Þetta má að sjálfsögðu
þakka þeim hlýindum sem voru
nánast allan ágústmánuð. Þannig
að þó þetta væri allt afskaplega
seint á ferðinni í júlílok er ótrúlegt
hvað getur gerst á einum til einum
og hálfum mánuði ef tíðin er hag-
© VEÐRIÐ
Ekki eru horfur á mjög miklum
breytingum á veðrinu næstu
daga. I gær var norðlæg átt á
Akureyri og hitinn rétt yfir
frostmarki. í dag er áfram
spáð norðlægri átt, en líklega
verður eilítið bjartara en í
gær. Á morgun, sunnudag og
mánudag spáir Veðurstofan
austlægri átt og búast má við
éljum úti við ströndina. Frem-
ur svalt verður í veðri.
stæð. Það var helst að hitinn nýtt-
ist ekki í görðunt sem eru mjög
þurrir, þar sem lítil úrkoma var í
ágúst,“ sagði Ólafur. Hann sagði
ekki ólíklegt að einhverjar frost-
skemmdir hefðu orðið en það ætti
eftir að koma betur í ljós.
Varðandi kartöflubirgðir á
landinu öllu sagist Ólafur ekki
hafa staðfestar fréttir. Hann hefði
heyrt að uppskera á Suðurlandi
væri misjöfn, en þaðan kemur
ntjög stór hluti framleiðslunnar.
„Eg myndi meta stöðuna þannig
að framleiðsla yrði nálægt því sem
innanlandsmarkaður þarf, sem
gæti skapað meiri ró á markaðin-
um en var t.d. á síðasta ári,“ sagði
Ólafur Vagnsson. HA
stig 10
Verð frá kr.
569 lítri
KAUPLAND
Kaupangi ■ Simi 462 3565
BÍLASÝNING
laugardaginn 14. október og sunnudaginn 15. október kl. 13-17
’96 árgerðirnar af Ford Escort
til sýnis og reynsluaksturs!
Bílarnir eru
glæsilegir jafnt
innan sem utan og
hlaðnir öllum þeim
búnaði sem prýða á
góðan bíl.
Sjón er sögu ríkari.
Sem dæmi um búnað má
nefna:
- Vökvastýri
- Útvarp/segulband
- Samlæsing
- Upphituð framrúða
- Upphitaðir, rafstýrðir
hliðarspeglar
- Litað gler
- Krumpsvæði í fram- og
afturhluta
- og ótal margt fleira.
- fyrir alla!
Laufásgötu 9, Akureyri, sími 462 6300
Brimborg Faxafeni 8, Reykjavík, sími 515 7000