Dagur


Dagur - 13.10.1995, Qupperneq 2

Dagur - 13.10.1995, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Föstudagur 13. október 1995 FRÉTTIR Mánabergið í flotkvínni Nóg er að gera hjá Slippstöðinni- Odda hf. þessa dagana og mikil umferð skipa. Þessi mynd var tek- in af Mánaberginu ÓF-42 frá Ól- afsfirði í flotkvínni og í dráttar- brautinni var Akureyrartogarinn Harðbakur EA-303. Við kantinn lágu risatogarinn Hannover, sem verið er að breyta til lýsingsveiða við Namibíu, aftan við hann lá Snæfugl-SU 20 frá Reyðarfirði og aftastur var Amar HU-1 frá Skagaströnd, sem senn verður af- hentur nýjum eigendum á Græn- landi. Að sögn Inga Bjömssonar, framkvæmdastjóra Slippstöðvar- innar-Odda, er fyrirsjáanleg mikil vinna fram í a.m.k. miðjan næsta mánuð og hefur fyrirtækið fengið talsvert af aukamannskap frá öðr- um fyrirtækjum, auk undirverk- taka. HA/Mynd: BG Helgi Stefánsson hjá DNG og Aðalsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri Sjafn- ar hf., við nýja hreinsikerfíð. Mynd: Sigurður Bogi. Efnaverksmiðjan Sjöfn hf. og DNG: Selja hreinsikerfi til fiskvinnslu í Nambibíu Efnaverksmiðjan Sjöfn hf. á Ak- ureyri hefur gert samning um sölu til Namibíu á hreinsikerfi og ræstivörum sem notaðar eru í fískvinnslustöðvum. Nokkur samskonar kerfí hafa verið sett upp í íslenskum fiskvinnslu- stöðvum og í skipum, en síaukn- ar kröfur eru gerðar um hrein- Iæti í fískiðnaðinum. Það eru Sjöfn hf. og DNG á Lónsbakka í Glæsibæjarhreppi sem hannað hafa þetta hreinsikerfi í sameiningu. Flestir hlutar þess eru aðfengnir, en hönnunin og samsetningin er íslensk. Kerfin eru tengd háþrýstidælum og um vinnslusali eru lagnir sem hægt er að fara inn á, þar sem henta þykir. Þar eru lagnir fyrir spúlbyssur. Dælumar sem tengdar eru við kerfið fara í gang, ein af annarri, eftir álagi hverju sinni. Sölusamningurinn til Namibíu hljóðar upp á 3,5 millj. kr., en í þeirri tölu eru dælikerfið, helstu aukahlutir og nokkurra mánaða birgðir af hreinsiefnum. Þegar hafa nokkur fiskvinnslu- hús tekið í notkun áðumefnt hreinsikerfi, svo sem Utgerðarfé- lag Akureyringa hf., Búlandstind- ur hf. á Djúpavogi og Ámes hf. í Þorlákshöfn, en auk þess eru kerf- in komin í nokkur af nýrri hér- lendum fiskiskipum. -sbs. Þriggja ára áætlun Akureyrarbæjar: Verið að svíkja gefin loforð - segir Þórarinn B. Jónsson, bæjarfulitrúi Sjálfstæðisflokks Þórarinn B. Jónsson, bæjarfull- trúi Sjálfstæðisflokks, var sá eini sem greiddi atkvæði gegn þriggja ára áætlun Akureyrar- bæjar um rekstur, íjármál og framkvæmdir bæjarsjóðs á ár- unum 1996-1998, en áætlunin var samþykkt á bæjarstjórnar- fundi sl. þriðjudagskvöld. Þórar- inn segir alveg skýrt hvað liggur til grundvallar afstöðu sinni. „Fyrir síðustu kosningar voru allir flokkar með úrlausnir fyrir íþróttamenn á sinni stefnuskrá. Það er t.d. búið að lofa yfirbyggðu skautasvelli síðastliðin 20 ár, það er búið að lofa úrbótum fyrir knattspyrnumenn og margir töl- uðu um yfirbyggða aðstöðu í því sambandi fyrir síðustu kosningar. Síðan er þriggja ára áætlun sett fram núna og það er ekkert á eign- færða fjárfestingu til íþrótta- og tómstundamála nema Sundlaugin. Ég er vissulega mjög ánægður með uppbygginguna á Sundlaug- inni því þetta er mjög gott varð- andi t.d. ferðamálin. En mér finnst hún ekki beint tengjast íþróttamál- um í bænum því keppnisíþróttirn- ar þar eru aðeins lítill hluti af starfseminni. Þetta er allt öðruvísi en þegar þú byggir t.d. íþróttahús. Ég var einn af þeim sem stóð að því hjá Sjálfstæðisflokknum að þessi mál væru á okkar stefnuskrá og ég vil ekki svíkja það,“ sagði Á Sauðárkróki hafa menn haft af því nokkrar áhyggur að of lít- ið sé um að ferðamenn stoppi í bænum. Eru ferðamálayfirvöld á staðnum nú með ýmislegt á prjónunum í þeim efnum. „Við vildum gjaman að fleiri ferðamenn kæmu, skoðuðu bæinn og hefðu aðeins lengri viðdvöl. Menn hafa verið að velta fyrir sér hvernig við getum bætt úr því. Við erum með mjög fjölsóttan stað hér í nágrenninu sem er Glaumbær. Við vildum gjaman fá fleira af þessu fóki hingað á Sauð- árkrók til að sýna því hvað bærinn hefur uppá að bjóða. Hér hefur Þórarinn B. Jónsson. Þórarinn. Hann segir menn vissulega spyrja hvar taka eigi peningana og hann telur ýmsar leiðir færar í þeim efnum. „Ég vil láta fara ofan í hina ýmsu rekstrarþætti hjá bæn- um. T.d. athuga hagkvæmni þess að sameina veitumar, ég vil láta skoða Punktinn og er hjartanlega sammála tillögum ÍTA um að stofna eina tómstundamiðstöð í bænum. Ég vil láta fara ofan í rekstur Tónlistarskólans og við verðum að skoða þar hvaða þjón- ustu við ætlum að veita, svo nokk- ferðamönnum vissulega fjölgað, t.d. með tilkomu Aningar og hótelin hafa einnig verið dugleg að fá til sín fólk, en við söknum þess að menn hafi ekki meira við að vera hér á staðnum,“ sagði Bjöm Sigurbjömsson, formaður bæjarráðs Sauðárkróks. I þessu sambandi hafa menn að hans sögn verið að velta fyrir sér t.d. að koma upp einhverjum söfn- um. Hann bendir einnig á að ferð- um í Drangey hefur verið að fjölga og á því sviði gætu verið ónýttir möguleikar, t.d. að bjóða upp á sjóstangveiði og fleira slíkt. HA uð sé nefnt. í sambandi við hag- ræðingu og spamað í rekstri bæj- arins þá dugar ekki að tala bara endalaust um þess hluti, menn verða að láta verkin tala.“ Hann segir ekki sjálfgefið að þó eitthvað sé samþykkt í dag verði það þannig til eilífðarnóns. „Ég mun halda áfram að berjast fyrir bættri aðstöðu fyrir íþrótta- fólk á Akureyri meðan ég er í pólitík og kem ekki til með að samþykkja neina áætlun, hvort sem er til eins árs eða þriggja, nema hún taki eitthvert mið af þessum þörfum. Mér finnst ein- faldlega með þessu að verið sé að svíkja loforð sem menn voru lokk- aðir á fyrir síðustu kosningar,“ sagði Þórarinn. HA Akureyri: Punktar úr bæjarráði Endurmat fasteigna á Oddeyrartanga Á bæjarráðsfundi í gær voru lögð fram bréf, sem ióðar- skrárritari hefur tekið saman, vegna endurmats, sem Fast- eignamat ríkisins hefur gert á eignum fyrirtækjanna Strýtu hf., Samherja hf. og Eyrar- frosts hf. á Oddeyrartanga. Endunnatið hefur leitt til veru- legrar lækkunar á fasteigna- matsverði eignanna umfram það sem er á flestum öðrum eignum á svæðinu. Bæjarráð samþykkti að áfrýja úrskurði Fasteignamats ríkisins um lóð- armat hjá ofangreindum fyrir- tækjum til yfirfasteignamats- nefndar með ósk um end- urskoðun matsins. Jafnframt var bæjarlögmanni og lóðar- skrárritara falið að taka saman greinargerð um málið og fylgja því eftir. Sækir um 15 millj. kr. styrk Á bæjarráðsfundinum í gær var tekið fyrir bréf frá Kvenna- deild Slysavamafélags íslands á Akureyri og Sjóbjörgunar- sveit SVÉÍ þar sem þess er far- ið á leit að Akureyrarbær styrki félögin með kr. 15 millj- ónum króna til þess að ljúka smíði félagsheimilis og björg- unarstöðvar á uppfyllingu sunnan Strandgötu. Bæjarráð vísaði erindinu til gerðar fjár- hagsáætlunar fyrir næsta ár. Tónmenntaskólinn sækir um styrk Einnig var lagt fram bréf í gær frá Tónmenntaskólanum á Ak- ureyri þar sem endumýjað er erindi frá skólanum dags. 26. október 1994 með beiðni um styrk til niðurgreiðslu á skóla- gjöldum nemenda og vísað til svars bæjarráðs í bókun 29. desember 1994. Bæjarráð vís- aði erindinu til gerðar fjár- hagsáætlunar fyrir næsta ár. Skólanefnd Siglufjarðar: Leitar til ráðuneytis vegna slakrar niðurstöðu samræmdra prófa Skóla- og menningarnefnd Siglufjarðar samþykkti sam- hljóða í síðustu viku að óska eftir því við menntamálaráðu- neytið að það geri úttekt á öllu skólastarfí Grunnskóla Siglufjarðar með það fyrir augum að fínna orsakir slakr- ar niðurstöðu í samræmdum prófum í skólanum síðustu ár- in. I greinargerð með tillögunni kemur fram að niðurstaða sam- ræmdra prófa í Gmnnskóla Siglufjarðar hafi verið undir landsmeðaltali árin 1992-1995 og á árunum 1992 og 1995 hafi niðurstöður verið lakari en meðaltal á Norðurlandi vestra. Með hliðsjón af þessu og væntanlegri yfirtöku bæjarins á öllum rekstri grunnskólans á næsta ári er það álit skóla- og menningamefndar að mikilvægt sé að fá aðstoð menntamála- ráðuneytisins við skoðun á skólastarfinu. Orðrétt segir í greinargerðinni: „Skólanefnd vill standa að yfirtöku á grunn- skólanum á sem bestan hátt og því leggjum við áherslu á að vinna við úttektina hefjist hið fyrsta. Nefndarmenn vænta góðs samstarfs við mennta- málayfirvöld, skólastjómendur, kennara, foreldra og bæjarstjóm við úttektina og vonast til að hún verði til þess að efla allt skólastarf á Siglufirði nemend- um til heilla." óþh Sauðárkrókur: Vilja krækja í fleiri ferðamenn

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.