Dagur


Dagur - 14.10.1995, Qupperneq 17

Dagur - 14.10.1995, Qupperneq 17
Laugardagur 14. október 1995 - DAGUR - 17 POPP_______________ MA6NÚS ÚEIR CUÐMUNDSSON Pönk með meiru Eftir að nýja ameríska pönkbylgj- an náði að skjóta rótum á heima- slóðum á síðasta ári, hefur hún farið sem eldur í sinu um heims- byggðina þvera og endilanga. Þar hafa auðvitað Offspring og Green Day farið fremstar í flokki, en ekki langt á hæla þeim hafa síðan komið sveitir á borð við Bad Rel- igion, (sem reyndar tilheyrði fyrri tíma pönkbylgjunni í Bandaríkj- unum líka), NOFX, Pennywise og nú síðast, en ekki síst, Rancid. Kemur Rancid eins og flestar hinna frá Kaliforníusvæðinu og sendi síðsumars frá sér sína þriðju plötu,...And Out Come The Wolves, á vegum Epitaphút- gáfunnar þekktu. Hinar fyrri eru samnefnd fyrsta plata og Let's Get... Uppítaf hljómsveitarinnar má rekja til loka síðasta áratugar, en þá reis hún úr rústum annarr- ar pönksveitar, Operation Ivy, sem um nokkurt skeið hafði reynt fyrir sér með takmörkuðum ár- angri. Var það gítarleikarinn Tim Armstrong, sem stærstan hlut átti þar að máli, en líkt og í Operation Ivy, er hann í aðalhlutverki hjá Rancid ásamt söngvaranum og bassaleikaranum, Matt Freeman. Hinir tveir sem líka eru í hljóm- sveitinni eru svo trommarinn Brett Reed og gítarleikarinn Lars Frederiksen (líkast til danskættað- ur eins og nafni hans Ulrich, bumbuslagari Metallica). Til að byrja með stóð reyndar til að gít- arleikari ásamt Armstrong yrði drengur að nafni Billy Joe. Hann entist hins vegar ekki nema í nokkrar vikur, en stofnaði ekki löngu síðar sína eigin sveit, sem söngvari og gítarleikari. Segja margir það sem betur fer, því hljómsveitin, eða öllu heldur tríó- ið, er nefnilega Green Day. íslenskir plötupunktar Til viðbótar íslenskum plötu- punktum frá því í síðustu viku, koma hér nokkrir til viðbótar, en enn fleiri munu eflaust bætast við. • Sigtryggur Baldursson/Bog- omil Font sendir frá sér um margt athyglisverða plötu, þar sem hann túlkar lög þýska laga- höfundarins þekkta Kurt Weil. Er platan tekin upp í Bandaríkj- unum og nefnist, Beyond Repa- ir. • Líkt og Unun hefur gert, hafa stúlkumar í Kolrössu krókríð- andi nú endurunnið eldri lög sín og tekið þau upp að nýju með enskum textum vegna útgáfu er- lendis. Nefnist platan, sem einnig kemur ut hér, Stranger Tales. Þær hafa svo stigið skrefi lengra, með því að taka sér líka enskt nafn vegna útgáfunnar. Kalla þær sig Bellatrix. • Ólafía Hrönn Jónsdóttir, leik- kona, hefur aldeilis sannað að hún er engu síðri sem söngkona m.a. með glæsilegri frammi- stöðu sinni sem Lóa, í leikritinu Taktu lagið Lóa. Hún hefur líka fengist nokkuð við það utan leikhússins að syngja, hæði með hljómsveit og eins undir eigin nafni. Hún er nú i haust að senda frá sér plötu ásamt Tóm- asi R. Einarssyni, kontrabassa- leikara, þar sem djassinn verður að sjálfsögðu við völd. - Rancid að verða eitt af stóru nöfnunum Breskur blær Líkt og stíllinn að nokkru og tján- ingin hjá Green Day og ímyndin og áreitnu textarnir hjá Penny- wise, svipar ýmislegt og raunar flest hjá Rancid til gamla breska pönksins, þess upprunalega, frek- ar en til þess bandaríska. Má þar t.d. nefna sérstaklega hljóminn á ... And Out Come The Wol- ves og útlitið, hárskurðinn o.s.frv. En það er ekki bara breska pönkið sem þeir Arm strong og félagar sækja fyrir- myndir í. Til að krydda pönk- bræðinginn og gera hann enn kræsilegri og um leið brjóta form- ið svolítið upp, eru ein fjögur af lögunum 19 á nýju plötunni í hin- um skemmtilega „Ska" stfl, sem sveitir á borð við Madness og Bad Maners urðu frægar af end- emum fyrir. Hefur þetta tiltæki ekki hvað síst fallið vel í kramið og gert það að verkum að Rancid telst hafa nokkra sérstöðu í ný- pönkinu. Virðist Rancid vera á góðri leið með að skapa sér svip- aðan sess og Green Day og Off- spring og eru sumir farnir að nefna þá sem „hina bandarísku Clash". Green Day. Mikil spenna í kringum þá. Ný plata Green Day sveipuð spennu I beinu framhaldi af umfjöllun um Rancid og plötu þeirrar sveit- ar, er ekki úr vegi að skýra frá fregnum af nýrri plötu Green Day, Billy Joe og félaga, sem nú er Rancid. Pönkarar á hraðri uppleið. um það bil að koma út. Fyrir utan að vera beðið með mikilli eftir- væntingu tónlistarinnar vegna, eftir gríðarlega velgengni Dookie, hefur mikil spenna verið í kring- um útgáfu nýju plötunnar vegna, samkvæmt háværum sögusögn- um, heldur vafasams útlits henn- ar. A myndinni, sem prýða á framhlið plötunnar samkvæmt jessum sögusögnum, er pönkpar, ?ar sem karlmaðurinn beinir jyssu að höfði sér og eiga þama að vera komin engin önnur en þau Kurt Cobain og Coumey Lo- ve. Vont ef satt væri, en það sem hefur orðið til að ýta undir þessar getgátur, er að hönnuninni hefur verið haldið tryggilega leyndri. Hafa eintök ætluð blaðamönnum og fleirum í kynningarskyni, jafn- vel verið án útlitsbæklingsins og hefur viðkomandi verið tjáð að hann fáist ekki fyrr en á útgáfu- degi. Nafnið á plötunni er hins vegar ekkert launungarmál, þótt erfitt reynist sumum að bera það rétt fram. Insomniac heitir hún, en það mun vera fræðiheitið yfir svefnleysi á enskri tungu, eða eitthvað í þá áttina. Erlendir punktar • Sterkur orðrómur er nú uppi í Bandaríkjunum um að söngvari Stone Temple Pilots, Scott Weiland, hafi verið lát- inn taka pokann sinn. Á ágreiningur milli hans og annarra meðlima sveitarinn- ar, sem myndaðist í kjölfar eiturlyfjamáls Weilands fyrr á árinu, að hafa náð vissu há- marki og hann sem sagt verið látinn flakka. En þetta á eftir að fást staðfest. Garbage þykir myrk, en til alls líkleg. • Garbage, fjögra arma rokk- sveit, vekur nú gríðarlega at- hygli með sinni fyrstu sam- nefndu plötu. Það er ekki hvað síst vegna þess að trommuleikari í henni er eng- inn annar en „Goðsögnin í lifanda lífi" Butch Vig, upp- tökustjórinn sem stóran þátt átti í uppgangi Nirvana. Þá skartar sveitin líka athyglis- verðri söngkonu, Slrirley Manson, sem Vig gróf upp í Edinborg í Skotlandi. • Safn bestu laga nýróm- antíkursveitarinnar góðu, Human League, er nú að koma á markað innan fárra daga. Verður af þvi tilefni endurútgefinn smellurinn mikli frá 1981, Don't You Want Me, í nýrri útsetningu. Á plötimni, sem nefnist ein- faldlega, Greatest Hits, verð- ur einnig eitt nýtt lag, Stay With Me Tonight, sem gefið verður út á smáskífu í byrjun næstaárs. Leikurinn endurtekinn? Eftir að hafa selt um tvær millj- ónir eintaka af fyrstu plötunni sinni, Definatly Maybe, þar af rúma eina í heimalandinu Bret- landi og platan, frá því hún kom út í fyrra, setið nær stöðugt á topp 20 þar, eru Oasis með gítar- - önnur plata leikarann og aðallagahöfundinn Noel Gallagher og Liam Gallag- her söngvara í fararbroddi, nú að freista áframhaldandi gæfu með nýrri plötu, What's The Story (Morning Glory). Ofurhávaði, ærandi gítar og ofsakraftur að Oasis komin út hætti sveita á borð við Who, Stooges (Iggy Pop og félagar) og Sex Pistols, blæbrigði á við The Smiths og „Bítlaðar" ballöður, var sá margslungni matseðill sem Oasis bauð upp á með Def- inatly Maybe og hitti beint í mark. Nú hins vegar eru laga- smíðarnar að mestu hávaða- minni og útsetningarnar áferðar- fallegri, strengir og þess háttar, eins og reyndar smáskífan vin- sæla frá því fyrr í sumar, Whate- ver, boðaði. Bítlaáhrifin eru aftur á móti svo sannarlega ekki minni og eru jafnvel meiri og áþreifan- legri en fyrr. Nafn plötunnar er t.d. fengið frá samnefndu lagi eftir George Harrison af plöhmni hans, Wonderwall, og í allavega tveimur lögum skírskotar Noel Gallagher greinilega til Bítlanna, í öðru tilfellinu beint til lagsins fræga, With A Little Help From My Friends. (Sem sumir segja reyndar að hafi ekki orðið sígilt fyrr en Joe Cocker sló í gegn með það.) Hefur breska popppressan tekið þessu nokkuð misjafnlega, en flestir eru sammála um að platan muni seljast vel, jafnvel betur en Definatly Maybe, þann- ig að hljómsveitin verði áfram í fararbroddi í hinu svonefnda nýja breska poppi og þá vænta- lega ásamt Blur. Oasis. „Bítlaðir" í bak og fyrir.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.