Dagur - 14.10.1995, Page 21
Laugardagur 14. október 1995 - DAGUR - 21
Grenndarkynning í bígerð vegna byggingaframkvæmda við Ólafsfjarðarkirkju:
Framkvæmdir hefjast næsta vor
og lýkur um næstu aldamót
Bygging safnaðarheimilis við Ól-
afsfjarðarkirkju og stækkun á
sjálfri kirkjunni verður boðin út í
vetur og er fyrirhugað að hefja
framkvæmdir vorið 1996 en upp-
haflega var áætlað að hefja fram-
kvæmdir á þessu sumri. Stefnt er
að lokum framkvæmda um alda-
mót að sögn Júlíönu Ingadóttur,
gjaldkera sóknamefndarinnar, en
auk eigin fjármagns kemur styrkur
frá Jöfnunarsjóði sókna. Safnaðar-
heimilið og stækkun kirkjunnar er
teiknuð af Fanneyju Hauksdóttur,
arkitekt hjá Arkitekta- og Verk-
fræðistofu Hauks hf. á Akureyri.
Stækkun kirkjunnar er aðkall-
andi til að geta tekið á móti öllum
þeim kirkjugestum sem sækja
fjölmennustu kirkjuathafnimar.
Fyrirhuguð er grenndarkynning á
Félag íslenskra bú-
fræðikandidata:
Eflið fræðslu,
rannsóknir og
leiðbeinmgar!
Á fundi stjómar Félags íslenskra
búfræðikandidata, sem haldinn
var í Reykjavík 20. september
1995, var rætt um fræðslu, rann-
sóknir og leiðbeiningar í landbún-
aði. I framhaldi af umræðunum
samþykkti stjórnin eftirfarandi
ályktun:
„Islenskur landbúnaður hefur á
undanfömum tíu árum eða frá
gildistöku búvömlaganna 1985,
gengið í gegnum mjög miklar
breytingar. Staða framleiðenda,
afurðastöðva, vinnslu og dreifing-
ar er nú allt önnur en áður og ljóst
er að þessar breytingar hafa ekki
gengið sársaukalaust fyrir sig.
Möguleikar aukinnar fræðslu,
rannsókna og leiðbeiningar í þess-
um miklu breytingum hafa ekki
verið nýtttir sem skyldi.
Nú em enn fyrirsjáanlegar
miklar breytingar í landbúnaði og
því áríðandi að nýta nú þessa
þætti til hins ítrasta þannig að
breytingamar geti orðið sem já-
kvæðastar fyrir íslenskan landbún-
að og þjóðlífið allt.
Félag íslenskra búfræðikandid-
ata skorar á landbúnaðarráðherra,
Alþingi, forsvarsmenn rannsókna-
og menntastofnana og Bændasam-
tök Islands að taka höndum saman
við eflingu fræðslu, rannsókna og
leiðbeininga í landbúnaði og búa
þannig í haginn fyrir þróttmikinn
landbúnað og gróskumikið mann-
líf í sveitum, íslenskri þjóð til
heilla um ókomna tíð.“
teikningum og áformum sóknar-
nefndarinnar en hún verður
tilkynnt innan tíðar og stendur í
tvo mánuði þannig að íbúum í
næsta nágrenni gefist kostur á að
koma sínum athugasemdum á
framfæri. Ljóst er að m.a. þarf að
fjarlægja skúr sem er á lóðarmörk-
unum en ekki er ljóst hvaða kostn-
að sóknamefnd ber af því.
Fyrir nokkru var teiknuð ný
kirkja fyrir Ólafsfirðinga sem fyr-
irhugað var að stæði við enda bæj-
artjamarinnar gegnt kirkjugarðin-
um. Fallið var síðan frá þeim hug-
myndum, ekki síst vegna óánægju
bæjarbúa með staðarval en kirkjan
þótti m.a. skyggja á útsýni fram í
Ólafsfjörð.
GG
Kirkjan í Ólafsfírði, sem verður stækkuð, er lengst til hægri á myndinni, síðan kemur viðbygging sem hægt er að opna inn í kirkjuna þegar mesta fjölmenn-
ið er, síðan inngangurinn í safnaðarheimilið og safnaðarheimilið sjálft.
Ljósmyndasamkeppni Frissa fríska:
Duttu í
lukkupottinn
Fyrir stuttu voru afhent verðlaun í
ljósmyndasamkeppni Frissa
fríska. Samkeppnin fólst í því að
taka mynd af sér eða vinum sínum
með Frissa femu, litla eða stóra,
og senda til Kaupfélags Eyfirð-
inga. Fjölmargir tóku þátt í þess-
um leik og barst mikill fjöldi
Kampakátar með verðlaunin. Til
vinstri er Áslaug Þorvaldsdóttir og
<Harpa Ingimundardóttir er
til hægri.
mynda eð um 2000. Frissi fríski
þakkar fyrir frábæra þátttöku.
Svo skemmtilega vildi til að
fyrstu og önnur verðlaun komu
bæði í hlut Borgnesinga. Fyrstu
verðlaun, Pioneer hljómflutnings-
samstæðu, hlaut Áslaug Þorvalds-
dóttir og önnur verðlaun, Sharp
hljómflutningssamstæða, kom í
hlut Hörpu Ingimundardóttur. Af
þessu tilefni var verðlaunaafhend-
ingin haldin í Borgamesi og var
myndin tekin þegar Áslaug og
Harpa tóku við vinningunum.
tækniskóli Islands
The lcelandic College of Engineering and Technology
Höföabakki 9-112 Reykjavík • Sími 577 1400
Bréfasími 577 1401 • Internet heimasíða: http://www.ti.is/
Innritun nýnema
Teknir verða inn nemendur á eftirtaldar náms-
brautir á vorönn 1996.
Aglovv tíl Húsavíkur
Aglow eru alþjóðleg kristileg
samtök kvenna, sem stofnuð voru
í Bandaríkjunum árið 1967 og á
íslandi fyrir um það bil 10 árum
síðan.
Aglow samtökin em ekki
bundin kirkjudeildum, heldur vilja
þau hvetja sérhverja konu til að
tilheyra staðbundnum söfnuði og
vera virkur þátttakandi í starfi
hans.
Markmið Aglow er meðal ann-
ars að hjálpa konum að gera sér
grein fyrir stöðu sinni samkvæmt
því sem Biblían kennir og að
vinna að einingu meðal kristinna
manna, með því að lofa og tilbiðja
Guð á öllum sviðum lífs þeirra.
Þúsundir Aglow kvenna um
allan heim eru í dag að vinna sam-
an að því að ná til:
■ Kvenna frá ýmis konar menn-
ingu,
■ eldri og yngri kvenna,
■ giftra og einhleypra kvenna,
■ heimavinnandi kvenna og
þeirra sem vinna utan heimilis.
Á íslandi eru þrír starfandi
Aglow hópar og það stendur til að
byrja með fjórða hópinn á Húsa-
vík í næstu viku. Konur frá Aglow
á Akureyri, sem hafa starfað síð-
astliðin fimm ár, munu taka þátt í
kynningarfundi ásamt konum á
Húsavík. Kynningarfundurinn
verður haldinn þriðjudaginn 17.
október kl. 20 í sal verkalýðsfé-
laganna. Aðgangur er ókeypis en
boðið verður upp á kaffiveitingar,
sem kosta kr. 300.
Allar konur eru hvattar til þess
að vera með.
Nánari upplýsingar veita Janice
í síma 464 1330 og Auður í síma
464 1317. (Fréttatilkynning)
Umsóknarfrestur rennur út 20. október nk.
Frumgreinadeild
• nám til raungreinadeildarprófs
• einnar annar hraðferð fyrir stúdenta sem þurfa viðbótarnám
í raungreinum til að geta hafið tæknifræðinám.
Rekstrardeild - rekstrarsvið
• iðnrekstrarfræði
• útflutningsmarkaðsfræði til B.Sc. prófs. Inntökuskilyrði eru
próf í iðnrekstrarfræði, rekstrarfræði eða sambærilegu.
Rekstrardeild - tæknisvið
• iðnaðartæknifræði til B.Sc. prófs. Inntökuskilyrði: raun-
greinadeildarpróf eða stúdentspróf af eðlisfræði- eða tækni-
braut.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu skólans alla virka daga
kl. 8.30-15.30.
Rektor.