Dagur - 09.11.1995, Page 1
78. árg.
Akureyri, fimmtudagur 9. nóvember 1995
216. tölublað
Venjulegir og demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Akureyri:
Stórtónleikar
til styrktar
Flateyringum
Nú eru í undirbúningi stór-
tónleikar á Akureyri til
styrktar þeim sem eiga um sárt
að binda eftir snjóflóðið á Flat-
eyri. Tónleikarnir verða að öllu
óbreyttu haldnir í fþróttahöll-
inni sunnudaginn 19. nóvember
nk. og þar mun koma fram flest
okkar besta tónlistarfólk um
þessar mundir.
Að sögn Pálma Gunnarssonar,
tónlistarmanns, sem unnið hefur
að undirbúningi, liggur væntan-
lega fyrir í dag hverjir þarna verða
en Páimi sagðist geta lofað því að
engin yrði svikinn af þeirri
skemmtun sem boðið verður upp
á. „Við treystum á að Akureyring-
ar og aðrir Norðlendingar drífi sig
af stað og komi til þess að hlusta
og leggi um leið þessu góða mál-
efni lið,“ sagði Pálmi. HA
Akureyri:
Borgar-
braut
á teikni-
borðinu
*
Atæknideild Akureyrar-
bæjar er haftn vinna við
hönnun lagningar Borgar-
brautar og brúar yfir Glerá
norðan við Sólborgarhúsin.
Þetta er umtalsverð fram-
kvæmd og óvíst hvenær í
hana verði ráðist.
Um er að ræða lagningu
götu sem mun tengja núver-
andi Borgarbraut og Dalsbraut
niður með Glerá og alla leið að
gatnamótum Glerárgötu og
Tryggvabrautar. Samkvæmt
skipulagi er gert ráð fyrir að
Dalsbraut verði lögð frá Borg-
arbraut í suður að KA-húsinu
og þaðan áfram suðurundir
Verkmenntaskóla. Þessi Dals-
brautarhugmynd er þó ekki á
teikniborði tæknideildar að
sinni, fyrst og fremst er sjón-
um beint að Borgarbrautinni.
Guðmundur Guðlaugsson,
verkfræðingur hjá Akureyrar-
bæ, segir engan vafa á því að
Borgarbraut sé mjög mikilvæg
tenging efri hverfa bæjarins
við miðbæjarsvæðið. Hann vill
á þessu stigi engu um það spá
hvenær í þessa brýnu fram-
kvæmd verði ráðist, það fari
að töluverðu leyti eftir því
hverju samgönguyfirvöld í
landinu svari því erindi Akur-
eyrarbæjar að umrædd leið sé
skilgreind sem þjóðvegur, á
svipaðan hátt og lil dæmis
Tryggvabraut og Glerárgata,
en stofnframkvæmdir við slík-
ar götur séu kostaðar af ríkinu.
óþh
Jóhannes Óli Garðarsson, yfirmaður markaðs- og söludcildar Slippstöðvarinnar- Odda hf. t.v. og Ólafur Sverrisson,
yfirverkstjóri, t.h. útskýra notkunargildi nýju flotkvíarinnar í heimsókn grænlenska sjávarútvegsráðherrans til Ak-
ureyrar í gær. Milli þeirra standa sjávarútvegsráðherrarnir Paviaraq Heilmann og Þorsteinn Pálsson. Mynd: BG
Sjávarútvegsráðherra
Grænlands:
Tæknivæðingin
vekur athygli
Sjávarútvegsráðherra Græn-
lands, Paviaraq Heilmann,
sem í gær heimsótti fyrirtæki á
Akureyri í sjávarútvegi, segir að
það hafi vakið athygli hans við
heimsóknir til akureyrsku fyrir-
tækjanna hversu tæknivædd
þau væru og gæði framleiðsl-
unnar mikil. Þá þekkingu geti
Grænlendingar nýtt sér.
Paviaraq segir að bæði íslend-
ingar og Grænlendingar eigi við-
skipti við Evrópubandalagið og
Grænlendingar hafi þar sótt urn
tollfríðindi. Þjóðirnar eigi margra
sameiginlegra hagsmuna að gæta
varðandi úthafsveiðar og vemdun
fiskistofna og því sé gott samstarf
báðum í hag og þyrfti að auka í
náinni framtíð. Rannsóknir á út-
hafskarfastofninum þyrfti að auka
og eins hafi komið til greina að
þjóðirnar verði með sameiginleg-
an kvóta á karfa. Það þyrfti að
ræða af fullri alvöru. GG
Grænlenski sjávarútvegsráðherrann í opinberri heimsókn:
Leggum áherslu á að ná sam-
stöðu með Grænlendingum
- fyrir fund Norðuratlantshafsfiskveiðinefndarinnar, sagði Þorsteinn Pálsson
Sjávarútvegsráðherra Græn-
lands, Paviaraq Heilmann, er
í opinberri heimsókn á íslandi
þessa dagana, og í gær kom
hann til Akureyrar ásamt fylgd-
arliði og í för var Þorsteinn Páls-
son, sjávarútvegsráðherra,
ásamt starfsmönnum ráðuneyt-
isins. Auk þess að heimsækja
fyrirtæki í sjávarútvegi mun
grænlenski ráðherrann eiga
fundi með Þorsteini Pálssyni um
úthafskarfa, sameiginlega
stofna, rannsóknarstarf, fisk-
veiðieftirlit, menntun í sjávarút-
vegi, málefni sjávarspendýra og
fleira.
Eftir komuna til Akureyrar
héldu gestirnir að Slippstöðinni-
Odda hf. og síðan til Samherja hf.,
Strýtu hf., Háskólans á Akureyri,
Utgerðarfélags Akureyringa hf. og
DNG við Lónsbrú. Gestimir sátu
hádegisverð í boði Samherja hf.
og kvöldverð í boði Akureyrar-
bæjar.
Þorsteinn Pálsson, sjávarút-
vegsráðherra, segir að tilgangur
heimsóknarinnar sé sá að styrkja
tengslin við Grænland, en þrátt
fyrir að tengslin við Grænlendinga
hafi verið góð hafi þau verið of
lítil. Þjóðimar eigi mikilvægra,
sameiginlegra hagsmuna að gæta.
„Tilgangurinn með heimsókn-
inni til Akureyrar er að að sýna
ráðherranum myndarleg fyrirtæki
í sjávarútvegi og við höfum haft
mikla ánægju af því að koma
hingað því á Akureyri eru mörg af
fremstu sjávarútvegsfyrirtækjum
landsins. Eitt af því sem við höf-
um verið að ræða er stjómun út-
hafskarfaveiðanna á Reykjanes-
hrygg, en í næstu viku byrjar árs-
fundur Norðausturatlantshafsfisk-
veiðinefndarinnar og við leggjum
mikla áherslu á að ná samstöðu
með Grænlendingum fyrir þann
fund. Ég geri mér raunar vonir um
að við getum átt samleið með
þeim. Megininntak samtala okkar
hér er að undirbúa okkur fyrir
þann fund því Island og Grænland
em strandþjóðir og því skiptir það
máli að við reynum að samræma
okkar afstöðu. Hagsmunir þjóð-
anna eru svolítið ólíkir; Græn-
lendingar selja allan sinn kvóta
auk þess sem rannsóknir hafa far-
ið fram á þeim tíma þegar stofn-
inn er innan grænlenskrar lög-
sögu,“ sagði Þorsteinn Pálsson.
Þorsteinn sagði það mjög
ánægjulegt að geta farið með
starfsbróður sinn í fyrirtæki á Ak-
ureyri sem eiga samstarf og við-
skipti við Grænlendinga, eins og
Samherja, Strýtu og Slippstöðina-
Odda. GG
Loðna farin að berast til Krossanesverksmiðjunnar:
Sigurður VE-15 með 950 tonn
Fyrsta loðnan barst til
Krossanesverksmiðjunnar
sl. mánudagskvöld eftir all-
langt hlé, en þangað kom síð-
ast loðna um miðjan júlímán-
uð. Það var Guðmundur VE-
29 sem landaði 860 tonnum.
Um fjögurleytið í gær kom
svo Sigurður VE með 950 tonn
en ekki var í gær vitað um fleiri
loðnubáta á leið til löndunar í
Krossanes. Lýsisnýting loðnunn-
ar er um 12% en verksmiðjan
getur afkastað mun meira magni,
en afkastageta hennar er um 500
tonn á sólarhring. Bræla var á
loðnumiðunum norður af
Straumnesi í fyrrinótt og engin
veiði. Til Siglufjarðar kom
Svanur RE-45 með 600 tonn.
Hafrannsóknaskipin Árni Frið-
riksson og Bjarni Sæmundsson,
sem verið hafa við rannsóknir og
loðnuleit, hafa orðið lítið vör eft-
ir að austur fyrir Kolbeinsey
kom. GG
Sigurður VE-15 kom til Krossanesverksmiðjunnar í gær með 950 tonn af
loðnu. Mynd: BG