Dagur - 09.11.1995, Síða 9
Fimmtudagur 9. nóvember 1995 - DAGUR - 9
Kjördæmisþing framsóknarmanna:
Áhyggjur af vaxandi
ólgu á vinnumarkaði
- segir í stjórnmálaályktun
„Kjördæmisþingið fagnar auknu
fylgi Framsóknarflokksins í Al-
þingiskosningunum sl. vor og lýs-
ir fullum stuðningi við aðild
flokksins að ríkisstjóm Davíðs
Oddssonar. Stjómarsáttmálinn er
samkomulag tveggja ólíkra stjóm-
málaflokka en öll helstu stefnumál
Framsóknarflokksins em þó
tryggilega bundin í honum og að
þeim er unnið af fullum krafti,“
segir í stjómmálaályktuninni, sem
samþykkt var á 40. kjördæmis-
þinginu á Hótel Húsavík sl. laug-
ardag.
Ennfremur segir í ályktuninni:
„Þingið telur að forgangsverkefni
núverandi ríkisstjómar sé að tak-
ast á við ríkisreksturinn þannig að
jafnvægi verði komið á í rekstri
ríkissjóðs. Viðvarandi hallarekstur
mun leggja velferðarkerfið í rúst
og hneppa komandi kynslóðir í
skuldafjötra. Erlendar skuldir rík-
isins em of miklar og
áframhaldandi halli á ríkissjóði
kemur í veg fyrir lækkun vaxta og
auknar fjárfestingar í atvinnulíf-
inu, sem em forsendur bættrar af-
komu heimilanna og
skattalækkana.
Augljóst er að grípa þarf til
umdeildra aðgerða til þess að
stöðva útgjaldaþensluna. Þar
standa ráðherrar Framsóknar-
flokksins frammi fyrir erfiðum
verkefnum, einkanlega á sviði
heilbrigðis- og tryggingamála og
félagsmála. Þingið treystir því að
þess verði gætt í þeim aðgerðum
að þeim verði hlíft sem höllustum
fæti standa. Lögð verði áhersla á
mikilvægi forvamarstarfs m.a.
hvað varðar neyslu fíkniefna.
Þingið lýsir áhyggjum af vax-
andi ólgu á vinnumarkaði. Þingið
skorar á aðila vinnumarkaðarins
og ríkisstjóm að finna leiðir til
þess að bæta hlut þeirra sem lök-
ust hafa kjörin. Þeir sem minnst
bera úr býtum geta ekki sætt sig
við núverandi ástand. I þeim efn-
um verða ráðherrar Framsóknar-
flokksins að hafa forgöngu. Þá tel-
ur þingið það kjaralega og sið-
ferðilega nauðsyn að tekið verði
enn harðar á skattsvikum, skatt-
rannsóknir og skatteftirlit aukið
og leitað nýrra leiða í þeim efnum.
Búvömsamningurinn milli rík-
isvalds og Bændasamtakanna er
nauðsynlegur þáttur í því að verja
atvinnu og byggð í landinu. Þing-
ið lýsir ánægju með vinnubrögð
landbúnaðarráðherra við gerð
samningsins í mjög þröngri stöðu
og telur hann til hagsbóta fyrir
sauðfjárræktina.
Norðurland eystra hefur upp á
marga kosti að bjóða til hagsældar
fyrir íbúa kjördæmisins. Þar er
sjávarútvegur sterkur og hafa at-
hafnamenn í sjávarútvegi sýnt
frumkvæði á því sviði m.a. með
veiðum á úthafinu og fullvinnslu
sjávarafurða. Iðnaður er að vinna
sig upp eftir mikla lægð. Náttúm-
fegurð og náttúmauðlindir eru
einstakar og gefa óendanlega
möguleika í ferðaþjónustu. Því
þarf að taka tillit til umhverfis við
nýtingu auðlinda til þess að ekki
verði rýrðir möguleikar komandi
kynslóða.
Þingið vill að Framsóknar-
flokkurinn vinni eftir sem hingað
til að gagnkvæmum skilningi milli
dreifbýlis og þéttbýlis. Aðeins á
þann hátt tekst okkur að vinna í
sátt að framfömm í þessu landi til
heilla fyrir komandi kynslóðir."
IM
ilómin falt
bleikur máni lýsir klakahöllin.
Hvert fórst þú með blóm og bjartar nœtur
bamið í mér þráir þetta allt.
í myrkri og kulda nljótt þá hugur grcetur
ég hugsa til þín með attt þitt ayra skart.
Ó bliða vor þú bráðum kemur aftur
þá bamið gleðst í hverri hreinni sál.
Um migflœðir Ijúfur dulinn kraftur
ég lýt þér djúpt þú alheims mikla leyndarmál.
Margrét Jónsdóttir frá Fjalli.
Okkar frábæra kjúklinga ueisla er
framlengd £// sunnudagski/ölds
LÓNSBAKKA . 601 AKUREYRI
463 0321, 463 0326, 463 0323
Mjög
hagstætt
verö
■ESQuZÍmmMí
Nýkomið mikið úrval
mottum
09 stökum
tenpum
Evrópukeppni bilcarhafa
í handknattleik
ICA-VSZ Kosice
í KA heimilinu laugardaginn 1 1. nóvember kl. 17.00
Nú er áríðandi að mæta. - Fyllum KA heimilið af bestu stuðningsmönnum í heimi.