Dagur - 18.11.1995, Blaðsíða 17

Dagur - 18.11.1995, Blaðsíða 17
Laugardagur 18. nóvember 1995 - DAGUR - 17 Eldhús Surekhu Indverskt lostæti við ysta haf. Ljúffengir veisluréttir fýrir einkasam- kvæmi og minni veislur. Heitir indverskir réttir fyrir vinnu- hópa alla daga. Því ekki aö reyna indverskan mat, framandi og Ijúffengan, kryddaðan af kunnáttu og næmni? Frí heimsendingarþjónusta. Vinsamlegast pantið með fyrirvara. Indís, Suðurbyggð 16, Akureyri, sími 4611856 og 896 3250. Ökukennsla Fundir Kenni á glænýjan og glæsilegan Mazda 323 sportbíl. Útvega öll náms- og prófgögn. Kenni allan daginn, kvöldin og um helgar. Anna Kristín Hansdóttir, ökukennari, heimasími 462 3837, farsími 853 3440, símboði 846 2606. □ HULD 599511207 VI 2. ÁJ. i i Kristiiee samtök (lAglOWkvenna. ^7 Aglow-fundur verður þriðjudagskvöldið 21. nóvember kl. 20 í sal verkalýðsfélaganna, Húsavík. Aðgangur ókeypis, kaffiveitingar kr. 300. Allar konur hjartanlega velkomnar. Stjórnin. Gisting Messur Gisting, Reykjahvoli, Mosfellsbæ. _ 4 og 6 manna með sér eldhúsi. Tökum hópa allt aö 25 manns, setustofa og sjónvarp. Almenningsvagnar á 30 mín. fresti, fjarlægð 50 m. Uppl. í síma 566 7237, fax 566 7235. Bólstrun Húsgagnabólstrun. Bílaklæðningar. Efnissala. Látið fagmann vinna verkið. Bólstrun Einars Guðbjartssonar, Reykjarsíða 22, sími 462 5553. Bólstrun og viðgerðir. Áklæði og leðurlíki í miklu úrvali. Vönduð vinna. Visa raðgreiðslur. K.B. bólstrun, Strandgötu 39, sími 462 1768. Klæði og geri við húsgögn fyrir heimili, stofnanir, fyrirtæki, skip og báta. Áklæöi, leðurlíki og önnur efni til bólstrunar í úrvali. Góðir greiðslu- skilmálar. Vísaraðgreiðslur. Fagmaður vinnur verkið. Leitið upplýsinga. Bólstrun B.S. Geislagötu 1. Akureyri. Sími 462 5322, fax 461 2475. Sunnudagaskóli Akureyrarkirkju verð- ur nk. sunnudag kl. 11. Öll böm velkomin. Munið kirkjubílana. Hátíðarmessa verður í Akureyrarkirkju nk. sunnu- dag í tilefni 55 ára afmælis kirkjunnar. Séra Sigurður Guðmundsson vígslu- biskup prédikar. Óskar Pétursson syngur. Sálmar: 288-286-523. Kvenfélag Ak- ureyrarkirkju verður með kaffisölu og kökubasar í Safnaðarheimilinu eftir messu. Messa á FSA kl. 10.30. S.G._______________________________ Laugalandsprestakail. Sunnudagur 19. nóvember: Kaup- vangskirkja, messakl. 13.30. Kristnesspítali, messa kl. 15.00. Glerárkirkja. Laugardagur 18. nóv- ember. Bibiíulestur og bæna- stund verður í kirkjunni kl. 13.00. Þátttakendur fá afhent gögn sér að kostnaðarlausu. Allir velkomnir. Sunnudagur 19. nóvember. Barnasamkoma verður í kirkiunni kl. 11.00. Foreldrar eru hvattir til að mæta með börnum sínum. Guðsþjónusta verður kl. 14.00. Amaldur Bárðarson guðfræðingur Betri þrif • Gluggahreinsun. • Almennar ræstingar. • Teppahreinsun. • Dagleg þrif. • Bónhreinsun & bónhúðun. • Rimlagardínur, hreinsaðar með hátíðni. Betri þrif Benjamín Friðríksson, Vestursíða 18, Akureyri, sími 4621012. prédikar. Fundur æskulýðsfclagsins verður kl. 18.00. Sóknarprestur._____________________ Þarfað endurnýja raflögnina? Öll rafmagnsþjónusta og rafmagnsteikningar, hvort sem verkið er stórt eða smátt. LÖGGILTUR RAFVERKTAKI Sími 461 1090 Laufássprestakall. 1 Kirkjuskóli nk. laugardag 18. nóv. í Svalbarðskirkju kl. 11 og í Grenivíkur- kirkju kl. 13.30. Kyrrðar- og bænastund í Svalbarðs- kirkju sunnudagskvöldið 19. nóv. kl. 21. Sóknarprestur._____________________ Möðruvallaprestakall. Barna- og fjölskylduguðsþjónusta verður í Möðruvallakirkju nk. sunnu- dag 19. nóvemberkl. 11. Sunnudagaskólinn verður á sínum stað með svipuðu sniði. Bamaefnið verður afhent, sögustund, mikið sungið og fl. Axel og Ösp koma í heimsókn. For- eldrar em hvattir til að mæta með bömum sínum. Verið velkomin. Sóknarprestur.____________________ Húsavíkurkirkja. Sunnudagaskóli nk. sunnitdag kl. 11. Foreldrar eru hvattir til að mæta með bömum sínum. Guðsþjónusta kl. 14. Femtingarböm aðstoða. Vænst er þátt- töku fermingarbama og foreldra þeirra. Sóknarprestur. Líkkistur Krossar á leiÖi Legsteinar EINVAL Óseyri 4, Akureyri, sími 461 1730. Heimasímar: Einar Valmundsson 462 3972, Valmundur Einarsson 462 5330. Innréttingar Framleiðum Eldhúsinnréttingar. Baðinnréttingar. Fataskápa. Gerum föst verðtilboð. Greiðsluskilmálar. Parket í miklu úrvali. Sýningarsalur er opinn frá kl. 9-18 mánudaga-föstudaga. Dalsbraut 1 • 600 Akureyri Sími 461 1188 Fax 461 1189 Móttaka smáauglýsinga er tll kl. 11.00 f.h. daginn fyrlr útgáfudag.14.00. KFUM og KFUK Sunnuhlíð. Sunnudagur 19. nóv. kl. 20.30. Bænasamkoma. Beðið fyrir starfmu. Allir em hjartanlega velkomnir. HUÍTASUnnUHIfíKJAfl V/5KARÐ5HL1Ð Laugard. 18. nóv. kl. 20.30: Vakninga- samkoma, John og Dorothy Zpinden, biblíukennarar frá Englandi tala. Sunnud. 19. nóv. kl. 11.00: Safnaðar- samkoma. (Brauðsbrotning). Sunnud. 19. nóv. kl. 15.30: Vakninga- santkoma. Zpinden hjónin tala, á báð- um samkomunum. Samskot verða tekin til kristniboðsins. Mikill og fjölbreyttur söngur. Allir eru hjartanlega velkomnir. Vonarlínan, sími 462 1210. Hjálpræðisherinn, Hvannavöiium 10. Laugardaginn kl. 15.00: > Basar. Laufabrauð og kök- ur til sölu. Líka verður hægt að kaupa heitar vöfflur og kafft. Sunnudaginn kl. 13.30: Sunnudaga- skóli. Kl. 20.00: Almenn samkoma. Ann Merethe Jakobsen talar. Mánudaginn kí. 16.00: Almenn sam- koma. Heimilasamband. Miðvikudaginn kl. 17.00: Krakka- klúbbur. Fimmtudaginn kl. 20.30: Hjálparflokk- ur. Allir em alltaf velkomnir á Her. Frá Sálarrannsóknafé- iaginu á Akureyri. Miðillinn Þórunn Maggý Guðmundsdóttir starfar hjá félaginu dagana 18,- 22. nóv. og spámiðillinn Lára Halla Snæfells starfar dagana 24.-26. nóv. Tímapantanir kl. 15 og 18 og alla virka daga milli kl. 13.30 og 15 í símum 461 2147 og 462 7677. Einnig verður hcilun í húsi félagsins laugardaginn 18. nóv. milli kl. 13.30 og 16. Stjórnin. Landlæknir varar við Mansjúríu-sveppnum - talinn hafa orsakað alvarlegar sýkingar og dauðsföll Undanfarna mánuði hafa margir íslendingar neytt Mansjúríu- sveppatesins, afurð svepps sem gengið hefur endurgjaldslaust milli manna. í leiðbeiningum sem oft fylgja er sveppasafmn sagður hafa þá náttúru að hægja á öldrun- arbreytingum, laga hægðatregðu, niðurgang, vöðvabólgu og margt fleira, svo sem dekkja höfuðhár. Þá er því haldið fram að teið hafi hjálpað ónæmiskerfi fjölmargra alnæmissjúklinga. Ólafur Guðlaugsson, læknir á Landspítalanum, hefur í samvinnu við Hollustuvemd og sýkladeild Landspítalans ræktað sveppa- vökvann og kynnt sér ítarlega skrif um hann í erlendum tímarit- um. Hér er á ferðinni gersveppur af tegundinni Saccharomyces cerevisiae, en sveppur honum skyldur er velþekktur sjúkdóms- valdur í mönnum og margir telja sig hafa óþol gegn honum. í fag- tímaritum hefur verið lýst alvar- legum sýkingum og nokkrum dauðsföllum þar sem Sacchar- omyces cerevisiae var talinn vera orsakavaldur, oft reyndar með öðrum sveppum eða bakteríum. Sjúklingar voru oftast með alvar- lega sjúkdóma fyrir þó dæmi séu um alvarlegar sýningar hjá hraustu fólki með væga sjúkdóma, svo sem sykursýki og gerfiloku í hjarta. Þá hefur komið í ljós að sveppurinn getur valdið endur- teknum leggangabólgum í hraust- um konum. Umsagnir um jákvæðan árang- ur af sveppateinu hvetja fólk með ýmsa sjúkdóma til neyslu þessa töfravökva. Sjúklingar með alvar- lega sjúkdóma hafa beinlínis verið hvattir til neyslu. í Ijósi þess þyk- ir Landiæknisembættinu full ástæða til að vara við neyslu þessa vökva. Á það sérstaklega við um sjúklinga með ónæmis- bælandi sjúkdóma svo sem krabbamein og sjúklinga á ónæmisbælandi lyfjum. HA Félag íslenskra organleikara: Nýium sálmum safnað í tilefni af norrænu kirkjutónlistar- móti í Gautaborg á næsta ári er Félag íslenskra organleikara að leita eftir nýjum kórsöngslögum eftir íslensk tónskáld. Til stendur að kynna þessa tónlist á hátíðinni með nótnaútgáfu og flutningi verka. Til þess að þetta megi takast sem best hefur félagið leitað til tónskálda, organista og kórstjóra eftir efni. Undirtektir hafa verið nokkuð góðar, en vitað er að víða leynast gimsteinar og eru nú allir beðnir um að láta hendur standa fram úr ennum og leita í dyrum og dyngjum að kórverkum eftir ís- lenska höfunda og láta organleik- arafélagið vita. Jafnframt er nauðsynlegt að vita hvaða kórar og einstaklingar hafa hugsað sér að fara til Gauta- borgar, svo unnt sé að skipuleggja flutning og kynningu verkanna á staðnum. Stjórn Félags íslenskra organleikara skorar á alla sem hlut eiga að máli að hafa samband hið fyrsta, svo unnt sé að ganga frá skipulagningu mótsins í góðum tíma. (Frétlatilkynning)

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.