Dagur - 01.02.1996, Blaðsíða 3
FRETTIR
Fimmtudagur 1. febrúar 1996 - DAGUR - 3
Oddviti Ljósavatnshrepps um flutning grunnskólans til sveitarfélaganna:
Hefði verið skynsam-
legast að gera tilraun
Helga Erlingsdóttir, oddviti
Ljósavatnshrepps, segir það sitt
mat, í nýjasta tölublaði Nýrra
menntamála, sem Hið íslenska
kennarafélag og Kennarasam-
band íslands gefa út, að skyn-
samlegast hefði verið að gera til-
raun með flutning grunnskólans
í nokkrum sveitarfélögum til að
sjá hvernig það gengi og í fram-
haldi af því að taka upp um-
ræðu um hvort yfirfærsla á
rekstri grunnskólans frá ríki til
sveitarfélaga yrði til bóta.
Helga segir í viðtalinu í Nýjum
menntamálum að vel geti verið
rétt að sveitarfélög hafi betri tök á
því að hagræða í rekstri grunn-
skólans, þó sé ekki víst að alls-
staðar sé svigrúm til þess. Hún
segir að Ljósavatnshreppur þurfi
að skoða þessi mál, en hann standi
að rekstri tveggja grunnskóla og
því fylgi nokkurt óhagræði.
Helga Erlingsdóttir.
Spumingunni urn hvort sam-
eina þurfi sveitarfélög til að
tryggja betur rekstur grunnskóla á
landsbyggðinni, svarar Helga á
þann veg að allt virðist benda til
þess að sameina þurfi sveitarfélög
til þess að þau verði færari um að
sinna verkefnum sem þeim beri og
sé þá ekki einungis horft til grunn-
skólans. Hins vegar segir Helga
að viss hætta sé á því að með sam-
einingu verði grunnskólum fækk-
að og svo fylgi í kjölfarið að
byggð leggist af þar sem
skólaganga verði erfiðust eða á
jaðarsvæðum hins nýja sveitarfé-
lags.
Helga segist óttast það mest
þegar grunnskólinn verði færður
til sveitarfélaganna að ekki fáist
nægilegt fjármagn til að reka góð-
an grunnskóla þar sem hægt sé að
uppfylla öll grunnskólalögin og
greiða kennurum verðug laun.
Hins vegar segist Helga binda
vonir við að sveitarstjómir leggi í
það metnað sinn að efla og bæta
grunnskólann eftir bestu getu. óþh
Tryggingastofnun:
Segir flesta elli-
lífeyrisþega borga
áfram lægri gjöld
Samkvæmt tilkynningu frá
Tryggingastofnun munu ellilíf-
eyrisþegar yngri en 70 ára, sem
hafa almennar tekjur undir
rúmum 820 þúsund krónum, svo
og ellilífeyrisþegar sem áður
nutu örorkulífeyris, áfram
greiða lægra gjald fyrir læknis-
þjónustu og heilsugæslu eftir 1.
febrúar.
Tryggingastofnun segir að und-
anþágur í nýrri reglugerð heil-
brigðis- og tryggingamálaráðu-
neytisins tryggi stórum hópi elli-
lífeyrisþega áfram læknisþjónustu
og heilsugæslu á lægra verði. Með
reglugerðinni, sem taki gildi í dag,
1. febrúar, hækki aldursmörk í 70
ár til að eiga rétt á þessari þjón-
ustu gegn lægra gjaldi, en veittar
voru undanþágur frá þeirri reglu.
Tryggingastofnun tekur fram
að ellilífeyrisþegar sem nutu ör-
orkulífeyris fram til 67 ára aldurs
og ellilífeyrisþegar sem fái
greiddan fullan grunnlífeyri, eigi
áfram rétt á læknisþjónustu og
heilsugæslu gegn lægra gjaldi.
Þessir hópar njóti sama réttar og
áður til afsláttarkorta, þannig að
hámarksgreiðsla fyrir hvern ein-
stakling gegn fullu gjaldi sé áfram
3 þúsund krónur.
Hins vegar tekur Trygginga-
stofnun fram í tilkynningu sinni í
gær að þeir ellilífeyrisþegar yngri
en 70 ára, sem ekki voru öryrkjar
og hafi atvinnu-, leigu-, eða fjár-
magnstekjur umfram 68.519 krón-
ur á mánuði, eða 822.227 krónur á
ári, greiði hins vegar fullt gjald
fyrir læknisþjónustu og heilsu-
gæslu frá og með deginum í dag.
óþh
Nefnd á vegum heilbrigðisráöherra skilaði tillögum sínum í gær:
Aðstoð við þá sem
vilja hætta að reykja
Nefnd sem heilbrigðisráðherra
skipaði á síðasta ári til þess að
kanna möguleika á skipulögðum
aðgerðum til þess að hjálpa fólki
að hætta að reykja, hefur lokið
störfum og fékk ráðherra tillög-
ur hennar í hendur í gær.
Tillögurnar eru tvíþættar. Ann-
ars vegar er lagt til að hafin verði
skipuleg fimm daga meðferð fyrir
fólk sem á erfiðleikum með að
hætta að reykja og er við það mið-
að að hún verði á Heilsustofnun
Náttúrulækningafélags íslands í
Hveragerði. Gert er ráð fyrir að
meðferðin hefjist í maf nk. Til að
byrja með er gert ráð fyrir að
NLFÍ taki við allt að 10 hópum á
ári til að byrja með. Út frá því er
gengið að þátttakendur j meðferð
Heilsustofnunar NLFÍ munu
greiða sjálfir á bilinu 6-10 þús.
krónur.
I annan stað leggur nefndin
áherslu á að komið verði á fót
tveggja daga leiðbeinendanám-
skeiðum fyrir starfsmenn heilsu-
gæslu, sjúkrahúsa og meðferðar-
stofnana á sviði ávana- og fíkni-
efna, svo og frjálsra félagasam-
taka. Þar verði þátttakendum gef-
inn kostur á að kynnast undir-
stöðuatriðum tóbaksvarna og
meðferðar gegn reykingum.
Fyrsta námskeiðið er áformað
dagana 27. og 28. apríl. Tekið er
fram að framkvæmd þessara leið-
beinendanámskeiða sé háð því að
það gjald sem lagt er á brúttósölu
tóbaks hækki úr 0,2% í 0,4% skv.
frumvarpi heilbrigðisráðherra um
breytingar á lögunt urn tóbaks-
vamir.
í þeirri nefnd sem lagt hefur
fram þessar tillögur sátu Ingimar
Einarsson, félagsfræðingur, for-
ntaður, Þorsteinn Blöndal, yfir-
læknir, Helgi Guðbergsson, yfir-
læknir, Sigríður Lister, hjúkrunar-
fræðingur, Ingileif Ólafsdóttir,
hjúkrunarfræðingur, Þórarinn
Gíslason, sérfræðingur í lungna-
lækningunt, og Ernrna R. Marin-
ósdóttir, deildarstjóri. óþh
daga
útsala
hefst í dag
Dömudeild
Herradeild
Barnadeild
Sportvörudeild