Dagur - 01.02.1996, Blaðsíða 16

Dagur - 01.02.1996, Blaðsíða 16
Vel hefur gengið að vinna í hinni nýju rækjuverksmiðju Fiskiðjusamlags Húsavíkur. Verksmiðjan tók á móti 850 tonnum í janúar. Gífurleg rækjuveiði var í síðasta mánuði, líklega sú mesta í einum mánuði frá upphafi. Þessi mynd var tekin í rækjuverksmiðju Fiskiðjusamlags Húsavíkur í gær. Mynd: bg Rækjuveiði í janúar iíklega sú mesta í einum mánuði frá upphafi: Fiskiðjusamlagið tók á móti 850 tonnum í janúar Rein bauð lægst í loka- frágang Fimm tilboð bárust í loka- frágang nýbyggingar Borgar- hólsskóla á Húsavík, en þau voru opnuð í gær. Lægsta tilboð- ið kom frá Trésmiðjunni Rein, sem bauð 74,9 milljónir. Er það 97,8% af kostnaðaráætlun Tækniþjónustunnar hf. á Húsa- vík, sem hljóðaði upp á 76,6 milljónir. Aðrir sem buðu voru Norður- vík með 76,4 millljónir, Trésmiðj- an Vík hf. 80,8 milljónir, Timbur- tak sf. 82,4 milljónir og Helgi Vigfússon 97,8 milljónir. Nú er verið að yfirfara tilboðin og bjóst Pálmi Þorsteinsson, tæknifræðing- ur Húsavíkurbæjar, við því að nið- urstaða lægi fyrir innan skamms. Nýbygging Borgarhólsskóla er tvær hæðir og kjallari. Byrjað verður á að innrétta efri hæðina og á hún að vera tilbúin til notkunar þann 20. ágúst nk. Síðan verður unnið áfram við verkið eins og fjárveitingar leyfa. Miðað er við að húsið verði fullbúið haustið 1998. HA Stjórn HÓ: Bíður ákvörðunar stjórnvalda Stjórn Hraðfrystihúss Ól- afsfjarðar hf. er að bíða ákvörðunar stjórnvalda til lausnar miklum vanda land- frystingar á bolfiski, sem rek- in er með allt að 12% halla samkvæmt útreikningum Samtaka fiskvinnslustöðva. Jón Þorvaldsson, stjórnar- formaður Hraðfrystihúss Ól- afsfjarðar hf., segir að ekki sé fyrirhugað að hætta tímabund- ið vinnslunni hjá HÓ, stjómin hafi ekki tekið ákvarðanir um leiðir til lausnar vandanum, þ.m.t. hvort gengisbreyting sé æskileg leið. Hjá HÓ vinna um 70 manns og yrði lokun frysti- hússins mikið reiðarslag fyrir atvinnulífið í Ólafsfirði. Þessa dagana er verið að vinna þar blandaðan afla, in.a. ýsu, þorsk og karfa, en frystihúsið á einnig eitthvað af Rússafiski til að grípa til, verði skortur af ferskfiski til vinnslu. Auk atla af togurum hefur fiskur verið keyptur af fiskmörkuðunum. GG @ VEÐRIÐ Léttskýjað verður víðast hvar á Norðurlandi í dag. Frostið verður allt að 6 stig, kaldast í innsveitum. Búast má við einhverjum éljagangi fyrri hluta dagsins. Suðaust- an strekkingur en þurrviðri verður er nær dregur helg- inni og frost allt að 10 stig. Síðan má búast við norð- austanátt og éljagangi. Uthafsrækjuveiðar hafa gengið geysileg vel hér við land það sem af er þessu ári og stefnir í það að janúaraflinn verði mesti mánaðarafli frá upp- hafi. Orsökin er fyrst og fremst góð tíð svo oftast hefur geflð á sjó en einnig mikil veiði á öllum Björn Bjarnason, mennta- málaráðherra, segist ekki kæra sig um að blanda sér í þær deilur sem upp séu risnar um réttmæti þess að byggja upp matvælaframleiðslubraut í Há- skólanum á Akureyri á sama tíma og Háskóli Islands hafí námsbraut í matvælafræði. Eins og fram kom í Degi fyrir nokkru hefur menntamálaráðu- neytið veitt Háskólanum á Akur- eyri heimild til stofnunar náms- brautar í matvælaframleiðslu og er við það miðað að það nám hefjist næsta haust. Ýmsum hefur þótt anda nokkuð köldu frá Háskóla ís- lands í garð Háskólans á Akureyri eftir að þessi ákvörðun ráðuneyt- isins lá fyrir og hefur stjórn Ey- þings, samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi eystra, samþykkt ályktun þar sem lýst er áhyggjum af þeim yftrgangi sem birtist í bar- áttu Háskóla Islands gegn upp- byggingu og þróun Háskólans á Akureyri þvert á yfirlýsta stefnu hefðbundnum úthafsrækjuslóð- um fyrir Norðurlandi. Rækjuverksmiðja Fiskiðjusam- lags Húsavíkur hf. hefur ekki tek- ið á móti jafn miklu magni af rækju til vinnslu í janúar og á þessu ári, éða um 850 tonnum. Hjá nýrri rækjuverksmiðju félags- stjórnvalda. Stjórn Eyþings álykt- aði að beina því til fyrirtækja á Norðurlandi eystra að beita sér af fullum þunga með sveitarfélögum á svæðinu í baráttunni fyrir efl- ingu Háskólans á Akureyri á sviði sjávarútvegs og matvælavinnslu. Þá skorar stjórn Eyþings á ríkis- stjórnina að halda fast við yfir- lýsta stefnu um uppbyggingu Há- skólans. „Ég ætla mér ekki að blanda mér í þessar deilur,“ sagði Björn Bjarnason, menntamálaráðherra, í gær. „Við horfum á þetta og von- um að deilurnar verði ekki til þess að skaða það nám sem Háskóli ís- lands býður upp á annars vegar og Háskólinn á Akureyri hins vegar. Námið verður að þróast eftir þeim lögmálum sem eru á hverjum stað,“ sagði menntamálaráðherra. Leikskólakennaranám við HA? Áður hefur komið fram að for- svarsmenn Háskólans-á Akureyri ins, sem staðsett er á hafnarsvæð- inu, þar sem gamla saltfiskhúsið var, er unnið við að pilla rækju í allt að 14 tíma á dag á tveimur vöktum og unnið var alla síðustu helgi og verður unnið á laugar- dögum á næstunni. Vinna við pill- un hófst 3. janúar sl. en vakta- hafa mikinn áhuga á því að út- vfkka starfsemi kennaradeildar skólans með því að taka upp leik- skólakennaranám. Björn Bjama- son, menntamálaráðherra, segir að þetta mál sé til skoðunar í ráðu- neytinu. „Það er verið að setja niður nefnd til þess að skoða námsskrána í því efni og hún er að hefja störf. Við þurfum að átta okkur betur á námsskránni áður en lengra verður haldið. Háskólinn á Akureyri á fulltrúa í þessari nefnd ásamt fleirum," sagði mennta- málaráðherra. „Við gerum okkur grein fyrir því að leikskólakenn- aranámið er aðkreppt og á því þarf að taka. Háskólinn á Akureyri hefur lýst áhuga á því að hefja kennslu fyrir leikskólakennara sem vafa- laust rúmast innan kennaradeildar- innar þar. En við þurfum að fara yfir námsskrána og nefnd er að fara af stað í því efni,“ sagði Björn Bjarnason. óþh vinna hófst ekki fyrr en 8. janúar sl., og þá á frosinni rækju en verk- smiðjan á tölvert magn af frosinni rækju til að grípa til ef hörgull verður á ferskri rækju. Afkasta- geta nýju verksmiðjunnar er helm- ingi meiri en gömlu verksmiðj- unnar hvem klukkutíma sem pill- að er. I gömlu verksmiðjunni, sem staðsett var úti á höfðanum norðan við höfnina, var afkastagetan að hámarki um 110 tonn á viku en í síðustu viku voru unnin liðlega 200 tonn í nýju verksmiðjunni á heldur skemmri tíma en í gömlu verksmiðjunni, en á tveimur vökt- um. Stefnt er að því að vinnslan verði á næstunni ekki undir 170 tonnum á viku. Starfsmannafjöld- inn er svipaður og var áður, þó eitthvað fleira fólk. Rækjuverksmiðja FH hefur keypt töluvert af iðnaðarrækju af frystiskipum, þ.á.m. af þremur skipum á Húsavík, Júlíusi Havs- teen ÞH, Þórunni Havsteen ÞH, Geira Péturs ÞH og Stakfelli ÞH frá Þórshöfn. Einnig hefur verið keypt ísrækja af tveimur stórum úthafsrækjubátum, Björgu Jóns- dóttur II ÞH, sem er að fara á loðnuveiðar, og Kristbjörgu ÞH. Þrír bátar eru á innfjarðarrækju- veiðum á Skjálfandaflóa og hafa aflað vel. Innfjarðarrækjan hefur verið allvæn og betri en oft áður miðað við árstíma, eða unt 200 stk/kg eða stærri, en úthafsrækjan hefur verið smærri, eða allt upp í 250 stk/kg. Húsnæði það sem hýsti gömlu rækjuverksmiðjuna hefur verið á söluskrá og hefur borist í það til- boð frá byggingaverktökum á Húsavík; Vík hf. ásamt tveimur öðrum aðilum. Það er til skoðunar hjá stjóm FH þessa dagana. GG Stjórn Eyþings telur Háskóla ísiands sýna yfirgang: Blanda mér ekki í þessar deilur - segir Björn Bjarnason, menntamálaráöherra

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.