Dagur - 01.02.1996, Blaðsíða 9

Dagur - 01.02.1996, Blaðsíða 9
LESEN DAHORNIÐ Fimmtudagur 1. febrúar 1996 - DAGUR - 9 Hver er þessi kona? Bréfritari veltir því fyrir sér hver komi „gamla manninum“ í KA-Iiðinu, Al- freð Gíslasyni, í gang fyrir hvern leik og tjasli honum síðan saman eftir leiki. sjálfsagt að þið upplýsið okkur aumingjarnir getum líka notið hver þessi kona er svo við hinir þessara hæfileika konunnar." Saknar íslands og vill eignast íslenska pennavini Gunnar skrifar: „Eins og allir vita sem fylgjast eitthvað með handbolta, þá er KA-liðið á ótrúlegri siglingu og alltaf heldur hann áfram gamli maðurinn, Alfreð Gíslason. Og þá er það málið hvaða kona það er sem kemur honum alltaf í gang fyrir leiki og tjaslar lionum aftur saman eftir leiki? Eftir ábyggileg- um heimildum tekur hún mark- vörðinn líka alltaf í gegn rétt fyrir leiki. í hálfleik á Selfossi á dögun- um var KA-liðið lesið upp og sagt að aðstoðarmenn væru Ami Stef- ánsson og Ingibjörg Ragnarsdótt- ir. Þetta er í fyrsta skipti sem ég hef vitað til þess að kvenmaður væri á skýrslu í karlaflokki hjá KA þó að ég hafi fylgst með í ótal ár. En hver er þessi kona sem virð- ist geta gert kraftaverk á þessum strákum aftur og aftur? Ég sá við- tal við markvörðinn þar sem sagt var að hann væri að koma úr nuddi frá Ingu í KA-húsinu og einu sinni heyrði ég hann segja að besti skemmtistaðurinn á Akur- eyri væri nuddstofan sem hann færi á. Ég las haft eftir Alfreð að hann hefði kynnst nuddurum út um allan heim en Inga væri sú allra besta. Og því finnst okkur Merkið triá- plöntumar! Kristján Larsen hringdi og sagð- ist oft ganga upp í Fálkafell ofan Akureyrar. Öðru megin við slóð- ina upp eftir væri búið að gróður- setja trjáplöntur. „Ég veitti því eft- irtekt um daginn þegar snjófölið var, að menn virtust ekki vera að hugsa um það eða ef til vill ekki vita af því að þama væru trjá- plöntur, því þeir keyrðu utan slóð- ar og yfir plönturnar. Eg vil koma þeirri ósk á fram- færi að með skilti eða einhverju slíku verði rækilega merkt að þama séu trjáplöntur. Það gæti orðið til þess að forða því að þær verði eyðilagðar.“ Um skattsvik Eldri kona hringdi vegna auglýs- ingar í Degi sl. þriðjudag frá Framkvæmdanefnd um skattsvik þar sem segir að „Sá sem svíkur undan skatti leggur byrðar á aðra“. Vildi lesandinn benda á í tengslum við þessa auglýsingu að sá sem þiggur skattlaus laun og önnur skattlaus fríðindi leggi byrðar á aðra. „Þeir sem svíkja undan skatti eru ekki allir með breið bök. Þeir eru að reyna að bjarga sér,“ sagði lesandinn. Óskar efitir pennavinum á Islandi Ritstjórn Dags hefur borist frá Liechtenstein þar sem óskað er eftir pennavini á íslandi. Bréfritari heitir Florentine Hilty og er sautj- án ára gamall nemandi. Hún segist í bréfinu hafa áhuga á bóklestri, bréfaskriftum, að kynnast fólki í fjarlægum löndum og menningu þess og tungumálum og ferðalög- um. Florentine skrifar á ensku, frönsku og þýsku. Heimilisfang hennar er: Florentine Hilty ZollstraBe 58 FL-9494 Schaan Fúrstentum Liechtenstein Ég heiti Jon Eberhardt og er 23 ára gamall. Móðir mín var íslensk og faðir minn er þýskættaður Bandaríkjamaður. Ég fæddist í Reykjavík, var um tíma á Akra- nesi og loks í Keflavík áður en við fluttumst til Bandaríkjanna. Ég sé eftir því að hafa flutt frá íslandi en á þessum árum hafði ég ekki mik- ið um það að segja. Móðir mín þrýsti á föður minn að flytja þang- að þó hann væri ekki viljugur til þess. Hann var hrifinn af Islandi og var búinn að finna sig í þessu umhverfi sem hefur þennan mikla sögulega bakgrunn. Ég hef oft heimsótt Island í gegum árin, oft- ast yfir jólin. Árið 1991 flutti ég til Reykjavíkur og bjó um sex mánaða skeið hjá ömmu minni og frænda. Undanfarið hef ég verið hald- inn heimþrá til Islands vegna þess að ég sakna margs þaðan. Ég hef ýmsar fjárhagslegar skuldbinding- ar hér í Flórída sem halda mér hér og þess vegna óska ég eftir að eignast íslenska pennavini, sem gætu fært mig nær því að vera á Islandi. Mín áhugamál eru aðallega tónlist og lestur. Músíkáhuginn er á sviði allt frá klassíkur til polka, ég hlusta jafnvel á Unun og Utan- garðsmenn! Fjölbreytnin er líka mikil í lestrinum, ég les bækur um sögu Islands, bækur um neðan- jarðarbyggingar og jafnvel vís- indaskáldsögur. Utanáskrift mín er: Jon Eberhardt Ste. 30 6851 Hwy. So. 17-92 Fern Park, FL 32730 U.S.A. e-mail is eeberha9@acc.net Skúli Gauta og Gunni Tryggva í dúndurstuði alla helgina Aldurstakmark 20 ár obb-vicinn STRANDGÖTU 53 • SÍMI462 6020 J Bji ■ —*■— ■ ■ - --- (H Tilboð 31. jan.-6. feb. Success hrísgrjón hvít 198 g kr. 79 KS súrmjólk m/jarðarb./súkk. kr. 67 KS súrmjólk m/bl. ávöxtum kr. 67 Heinz bakaðar baunir 205 g kr. 39 Rauðkál 720 g kr. 79 Hy Top nuyones 908 g kr. 98 Tnrix3ípakkakr.89 t Appelsínur lkgkr.78 Guleplilkgkr.87 Paprika græn kr. 179 kg Paprika rauð kr. 179 kg Atrix krem 800 ml túba kr. 865 Atrix Hydrogel 75 ml túba kr. 196 Ultra kuldakrem 75 ml dós kr. 158 Labelloblárkr.89 Nautasnitsel kr. 698 kg Unghænur kr. 99 kg Fiskbúðingur kr. 495 kg Svínalæri heil og hálf kr. 339 kg f ' / . ’ j- . \ \ " V/ f Samlokubrauð gróft kr. 98 Gouda 86% 1 kg kr. 584 Camenbert ostur (sterkur) kr. 158 Rjómaostur m/piparbl. 100 g kr. 69 Kotasæla800gkr.69 Nesquik 700 g + 500 g + kanna kr. 487 Sykur þýskur 1 kg kr. 54 - þegar þú verslar ódýrt Opið: Mánudaga-f östudaga kl. 12-18.30 Laugard. kl. 10-16 • Sunnud. kl. 13-17

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.