Dagur - 01.02.1996, Qupperneq 11
Fimmtudagur 1. febrúar 1996 - DAGUR - 11
IÞRÓTTIR
FROSTI EIPSSON
Hjörtur Leví Pétursson frá Sel-
fossi var dæmdur í eins leiks
bann á fundi aganefndar HSÍ í
fyrradag, fyrir rauða spjaldið
sem hann fékk í bikarleiknum
gegn KA. Bannið tekur gildi
fimmtudaginn 1. febrúar í leik
gegn ÍR.
Pétur Bjamason, leikmaður
KA, hefur setið á varamanna-
bekk KA-liðsins á mörgum
leikjum liðsins í vetur og sagð-
ist fyrir stuttu helst vilja ná
300 leikjunum með KA á ein-
hvern annan hátt. Hann kom
inná gegn Selfossi í um það bil
tíu sekúndur, eftir smávægileg
meiðsl Björgvins Björgvins-
sonar.
Valdimar Grímsson baðst af-
sökunar á ummælum sínum
um Julian Duranona, í Morg-
unblaðinu í gær. Ummæli voru
liöfð eftir honum eftir leik KA
og Selfoss en í blaðinu í gær
segist hann sjá eftir því að hafa
látið orðin falla og segist lengi
hafa verið aðdáandi Kúbu-
mannsins.
KA-menn reikna með að hefja
forsölu á bikarúrslitaleikinn
nk. mánudag. Líklega mun
Handknattleiksdeild KA fá til
sín 800 fullorðinsmiða og 300
bamamiða. Ekki er búist við
því að uppselt verði á leikinn,
sem fram fer í Laugardalshöll
annan laugardag.
Karfa:
Úrvalsdeildin af
staðeftir hlé
Keppni í Úrvalsdeildinni í
körfuknattleik hefst að nýju í
kvöld, eftir tíu daga hlé vegna
bikarúrslitanna. Fimm leikir
fara fram í deildinni og verða
bæði norðanliðin í eldlínunni.
Tindastóll mætir botnliðinu Val
á heimavelli sínum á Sauðárkróki,
en Þórsarar halda til Keflavíkur og
leika gegn heimamönnum. Aðrir
leikir kvöldsins eru viðureignir IR
og ÍA, Hauka og Skallagríms og
Breiðabliks og Grindavíkur. Allir
leikimir hefjast klukkan 20.
Staðan í deildinni er nú þessi:
Njarðvík 24 20 4 2178:1897 40
Haukar 24 20 4 2119:1855 40
Grindavík 24 17 7 2247:1965 34
Keflavík 24 16 8 2227:1988 32
Tindastóll 24 13 11 1849:1860 26
KR 24 13 112027:2023 26
Skallagrímur 24 12 12 1882:1925 24
ÍR 24 10 14 1929:1959 20
ÍA 24 7 17 2071:2258 14
Þór 24 7 17 2007:2013 14
Breiðablik 24 6 18 1911:2229 12
Valur 24 3 211825:2300 6
Handbolti:
ísland tapaði
íslenska karlalandsliðið í hand-
knattleik mátti þola eins marks
tap gegn Noregi, 25:24, í fyrsta
leik Lottó-keppninnar sem hófst
í gær í Noregi. Norðmenn skor-
uðu sigurmarkið á lokamínút-
unni en íslendingar höfðu yfir í
leikhléi 12:15.
Mörk íslands: Patrekur Jóhannesson 6,
Bjarki Sigurðsson 5, Ólafur Stefánsson
5, Sigurður Bjarnason 4, Björgvin
Björgvinsson 2, Róbert Sighvatsson 1,
Davíð Ólafsson 1.
Aflraunakappinn Torfi Ólafsson:
Draumurinn
er að geta
lifað af þessu
Akureyringurinn Torfi Ólafsson
er um margt óvenjulegur maður
og segja má að uppeldi hans hafi
um margt verið öðru vísi en
jafnaldra hans. Faðir hans var
vegavinnustjóri, og Torfi var að
eigin sögn sjö ára gamall þegar
hann var settur í vegavinnu á
Barðaströnd þar sem hann var í
tíu sumur og á þessum árum var
það mesta skemmtunin að tusk-
ast á við bændur í nágrenninu.
Kraftadellan hefur lengi loðað
við hann, hann er fyrrum ís-
landsmeistari í kraftlyftingum
en hefur nú alfarið snúið sér að
aflraunum og segist ætla að gefa
sér þetta ár, til að sýna að hann
geti náð árangri á þeim víg-
stöðvum.
Dagur brá sér í Vaxtarræktina
til að fylgjast með æfingu hjá
kappanum og forvitnast aðeins um
hans hagi og þessa íþrótt, aflraun-
irnar.
Torfi er þrítugur, fjögurra
bama faðir og segist vera á þeim
aldri, þegar margir leggi fyrir sig
aflraunirnar. „Þetta er fyrsta árið
sem ég stunda þessa íþrótt að
einhverju viti. Ég hef bara verið í
hálfri vinnu síðasta hálfa árið og
stefni að því að gera það út þetta
ár. Upphaflega var mér boðið að
taka þátt í móti og svo má segja
að þetta hafi hlaðið utan á sig og
ég reikna með að keppa á mörgum
mótum í ár. Ég er búinn að fórna
ansi miklu, en ég á góða konu sem
stutt hefur mig af heilum hug,“
segir Torfi.
Vinsælt sjónvarpsefni
Aflraunakeppnir hafa notið mik-
illa vinsælda í sjónvarpi að sögn
Torfa. „I fyrravor fór ég að keppa
á móti í Bretlandi, fyrir hollenska
sjónvarpsstöð. í Hollandi einu
mældist horfun á þáttinn 1,8 millj-
ónir en hann var síðan seldur eitt-
hvað víðar. Þá er talið að um 100
milljónir fylgist með keppninni
„Sterkasti maður heims.“ Vin-
sældirnar stafa af því held ég að
þessi mót eru allt öðruvísi en fólk
er vant úr íþróttum. Fólk er alltaf
að sjá eitthvað nýtt og hrikalegt.
Við erum til að mynda öðruvísi í
vextinum heldur en flest annað
fólk,“ segir Torfi, sem er 199 cm
og 160 kíló.
- En eru miklar tjárhæðir í boði
fyrir keppendur?
„Það er ekki stór markaður hér
á landi, fyrir auglýsendur og
styrktaraðila, þannig að ég held að
íslenskir keppendur geti haft það
svona þokkalegt, en ekkert meira
en það. En í öðrum löndum er allt
annað upp teningnum. Ég get tek-
ið sem dæmi Gary Taylor, að árið
1993 þegar hann vann keppnina
„sterkasti maður heims“, þénaði
Fred Williams og félagar úr Þór
mæta Keflvíkingum í kvöld.
Blak - bikarkeppnin:
KA afgreiddi Sindra
á fjörutíu mínútum
KA komst í undanúrslit í Bik-
arkeppni karla í blaki í fyrra-
kvöld með auðveldum sigri á
Sindra frá Hornafirði. Leikur-
inn fór fram á Höfn og sigraði
KA-liðið örugglega í öllum
þremur hrinunum, 2:15, 3:15
og síðustu hrinunni 7:15 eftir
að KA hafði náð að skora níu
fyrstu stigin. Viðureignin tók
aðeins fjörutíu mínútur.
IS og Stjaman áttust við í
gærkvöld og þá mun Iþróttafé-
lagið Hamar leika við HK í
kvöld. Þróttur og HK eru einnig
í undanúrslitunum.
KA á því tvö lið í undanúr-
slitum í blaki, en eins og sagt
hefur verið frá vann kvennalið
KA sér rétt til að leika í undan-
úrslitunum með sigri á Völs-
ungi.
Erna Dögg varð fyrir valinu
sem íþróttamaður Húsavíkur
Erna Dögg Þorvaldsdóttir, fijáls-
íþróttakona úr Völsungi, var kjör-
in íþróttamaður Húsavíkur 1995 í
hófi, sem haldið var í félagsað-
stöðu Völsunga um síðustu helgi.
Erna Dögg er íslandsmeistari í
100 og 200 m hlaupi í sínum flokki,
15-16 ára, og er framarlega í 400 m
hlaupi. Hún var á síðasta ári valin
til keppni á Ólympíudaga æskunnar
og fór með íandsliðinu til Dan-
merkur og á Álaborgarleikana. Hún
á héraðsmet í sínum bestu greinum.
Tvær stúlkur voru valdar „Völs-
ungar ársins“. Það voru þær Guð-
rún Helgadóttir, frjálsíþróttakona,
og Sigurveig Gunnarsdóttir, sund-
kona, en veittur var bikar sem gef-
inn er af íþróttasambandinu í minn-
ingu Hallmars Freys Bjamasonar,
fyrrum foimanns Völsungs. Hann
er veittur þeim einstaklingi á aldrin-
um 14-16 ára, sem unnið hefur
óeigingjarnt og gott starf að félags-
málum innan Völsungs. Þær störf-
uðu að fjáröflunum og aðstoðuðu
við mót, svo eitthvað sé nefnt.
Særún Jónsdóttir var valin
Handknattleiksstúlka ársins. Særún
leikur með fimmta flokki félagsins,
sem varð íslandsmeistari á sl. ári,
en titillinn er sá fyrsti sem Völsung-
ur vinnur í yngri flokkum í hand-
knattleik í mörg ár. Þá fékk Hafliði
Jónsson Hvatningarbikarinn, en það
er bikar sem Iþróttasamband fatl-
aðra gaf bocciadeild Völsungs.
Við þetta sama tækifæri var
undirritaður samningur á milli
Völsungs og KÞ-Miðbæjar um
búninga frá Puma. Völsungur veitti
einnig fyritækjum viðurkenningu
fyrir góðan stuðning og kaupfé-
lagsstjóranum, Þorgeiri Hlöðvers-
syni, þakkað gott samstarf. Fjórar
deildir innan Kaupfélagsins fengu
viðurkenningar, það voru Brauð-
gerðin, Miðbær, Mjólkursamsalan
og Kjötiðjan.
Ingólfur Freysson, formaður
Völsungs, tók við lyklum að nýjum
verðlaunaskáp úr hendi Aðalsteins
Baldurssonar, hjá Verkalýðsfélagi
Húsavíkur, en félagið gaf Völsungi
skápa undir verðlaunagripi. Völs-
ungar héldu hófið í félagsaðstöðu
sinni og rétt innan við hundrað
manns komu á staðinn til að
fylgjast með og þiggja kaffiveiting-
ar.
Torfi Olafsson hefur náð ágætum árangri á aflraunamótum, m.a. varð hann
þriðji á geysisterku móti í Kaupmannahöfn sl. haust.
hann fimmtán milljónir á árinu, ég
stórefa það hins vegar að Magnús
Ver hafi þénað svo mikið, kannski
ekki nema einn tíunda af þeirri
upphæð."
- í hvaða grein ert þú bestur?
„Ég er mjög sterkur í öllum
steinum og á til að mynda heims-
met í að ganga með Húsafellshell-
una. Hún er alþjóðleg og menn í
ýmsum löndum eru komnir með
steina sem líta út eins og hún. Ég
gekk nteð 205 kg stein 94 metra, í
grasi niður brekku og það var
mjö’g erfitt."
- Hvað með nteiðsl. Er ekki
hætta á að maður gangi fram af
sjálfum sér, með því að reyna við
miklar þyngdir?
„Ég veit ekki hvað er óhollt og
livað ekki. Meiðsl eru fremur fátíð
í þessari íþrótt, það er helst að
menn hafi slitið vöðva, til að
mynda upphandleggsvöðva og
það hef ég reynt sjálfur. Á mótum
er mjög vel fylgst með keppend-
um og stundum eru fjórir læknar
með og ef einhver vafaatriði koma
upp eru keppendur látnir hætta, af
ótta við skaðabótakröfu. Það gerð-
ist 1976 að vaxtarræktarkappinn
Frank Colombo fór í mál við
mótshaldara og fékk einhverjar
milljónir dala í bætur.“
- Hvað er á döfinni hjá þér á
næstunni?
„Það má segja að árið sé ná-
lægt því fullbókað hjá mér. Ég á
von á því að ég keppi á móti sem
haldið verður á Jótlandi um næstu
mánaðamót, líklega tek ég þátt í
móti á Hawaí í byrjun aprfl og trú-
lega verða mót hjá mér fram í des-
ember.“
KA-mót í
skíðagöngu
Fyrsta skíðagöngumót vetrarins
verður haldið í Hlíðarfjalli á laug-
ardaginn. Gangan hefst klukkan
13 við efra gönguhúsið á Stórhæð
og verður keppt í öllum tlokkum.
Gengið verður með frjálsri aðferð.
Getrauna-
dagur Þórs
Getraunadagur verður í Hamri, fé-
lagsheimili Þórs, í dag frá klukkan
16-21. Viktor Viktorsson frá Get-
raunum kemur og svarar fyrir-
spumum, Greifaleikurinn er
kynntur og hópnúmerum úthlutað.
Kynning verður á Intemetinu og
módemum. Fyrir hverjar 100 krón-
ur sem þú tippar á enska boltann í
leikviku tnnm, fá menn eina röð á
ítalska boltanum. Þeir sem tippa í
Hamri í þessari leikviku eiga
einnig kost á því að fá módem, en
dregið verður um tvö slík. Ef
menn koma með diskettu geta þeir
fengið afrit af getraunaforritinu.
Hamar
félagsheimili Þórs:
Líkamsrækt og tækjasalur
Ljósabekkir
Vatnsgufubað
Nuddpottur
Salir til leigu
Beinar útsendingar
Getraunaþjónusta
Hamar
sími 461 2080