Dagur - 15.02.1996, Blaðsíða 1

Dagur - 15.02.1996, Blaðsíða 1
79. árg. Akureyri, fimmtudagur 15. febrúar 1996 32. töiublað Venjulegír og demantsskornir trúlofunarhringar Afgreiddir samdægurs GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI Atvinnumálanefnd Akureyrar veitir fyrirtækjum viðurkenningar: Samherji hf. fyrirtæki ársins Utgerðarðarfyrirtækið Sam- herji hf. á Akureyri var í gær útnefnt fyrirtæki ársins 1995 af atvinnumálanefnd Akureyrar- bæjar. Nefndin ákvað á síðasta ári að taka upp þann sið að verð- launa árlega eitthvert fyrirtæki sem skaraði framúr. A viður- kenningin að vekja athygli á ár- angri akureyrskra fyrirtækja og á Akureyri sem athafnabæ. Auk Samherja fengu Kjamafæði hf., KEA, Purity Herbs snyrtivörur ehf. og Sandblástur og málm- húðun hf. viðurkenningar. Þorsteinn Már Baldvinsson, framkvæmdastjóri og einn eigenda Samherja hf., sagðist vissulega vera ánægður með útnefninguna. .d’að er ýmislegt athyglisvert að gerast í atvinnulífi bæjarins og ég nefni sem dæmi Purity Herbs snyrtivörur og góðan árangur KEA í sölu á Frissa fríska. Þá hefur vel- gengni Sandblásturs og málmhúð- unar haldið áfram og þannig mætti áfram telja,“ sagði Þorsteinn Már Samherji hefur vaxið hratt þau 13 ár sem það hefur starfað. Eig- endur og stofnendur eru sem kunnugt er frændumir Þorsteinn Már Baldvinsson, Kristján Vil- helmsson og Þorsteinn Vilhelms- son. Alls gerir Samherji út hér á landi 6 fyrstitogara, tvo fersk- rækjutogara og eitt nótaskip Auk þess gerir fyrirtækið út eitt frystiskip í Færeyjum og fjóra frystitogara í Þýskalandi. Samtals eru þetta 14 stór fiskiskip sem mynda eins km langa röð, væri Guðmundur Stefánsson, for- ^ maður atvinnumálanefndar Ak- ^ ureyrarbæjar, óskar Samherja- frændum til hamingju. Þorsteinn Már Baldvinsson, lengst til hægri, og Kristján Vilhelmsson, lengst til vinstri. A myndinni má einnig sjá verðlaunagripinn, sem listakonan Sólveig Baldursdóttir vann í ís- lenskt grágrýti. Myndir: BG Akureyri: Margir sektaðir Að undanförnu hefur Ak- ureyrarlögreglan verið að taka á margs konar umferð- arlagabrotum, sem ökumenn ættu að eiga auðvelt með að kippa í liðinn. Síðasta hálfan mánuð hafa 50 verið sektaðir fyrir að vera ekki með öryggisbelti, númer verið klippt af 54 bifreiðum, tjölmargir hafa verið sektaðir fyrir að fara yfir á rauðu og enn fleiri fyrir að vera ekki með ökuskítrteini. „Ég trúi ekki öðru en fólk geti notað peningana sína í annað en borga sektir og held að það ætti að fara að hugsa sinn gang,“ sagði varðstjóri hjá Ak- ureyrarlögreglunni. Þannig er 3.000 króna sekt l'yrir að nota ekki belti og sama upphæð fyr- ir að vera ekki með ökuskír- teini. HA þeim lagt enda við enda. Útgerð frystiskipa er aðeins hluti starfseminnar, því af veltu Samherja og dótturfélaga er land- vinnsla um 45%. Samherji annast sölu sinna eigin afurða undir merkinu „Ice Frech seafood". Fyr- irtækið á 50% hlut í Strýtu á Akur- eyri og Söltunarfélag Dalvíkur að öllu leyti, en þessi fyrirtæki vinna árlega um 9000 tonn af rækju. Starfsmenn Samherja og dótturfyr- irtækja eru samtals um 400 talsins. Mikið var um að vera á síðasta ári hjá Samherja. Auk kaupa á tveim skipum og Söltunarfélagi Dalvíkur stofnaði það til samvinnu við stórfyrirtækið Royal Green- land um markaðssetningu á rækju og keypti loks helmings hlut í þýska útgerðarfyrirtækinu DFF. „Ætli verkefni þessa árs og þess næsta sé ekki að ná vel utan um Raunhæfur ávinningur kann að felast í því að flytja til landsins nýtt kyn mjólkurkúa. Samanburðarrannsóknir í Fær- eyjum á íslenskum kúm og svo- kölluðum NRF kúm leiða í ljós að hugsanlega megi auka afurð- ir mjólkurkúa hér á landi um- talsvert. Jón Viðar Jónmunds- son ræðir þetta mál á ráðu- nautafundi Bændasamtaka fs- lands sem hófst sl. þriðjudag í Reykjavík og lýkur á morgun. Jón Viðar Jónmundsson segir að fjölmörg sjónarmið séu uppi varðandi það hvaða kúakyn eigi að flytja til landsins, ef til inn- flutnings eigi almennt að koma. í stuttu máli sagt séu þrír möguleik- ar á borðinu. I fyrsta lagi innflutn- ingur smávaxinna mjólkurkúa af líkri stærð og íslenski stofninn, í þann rekstur sem við erum með í Þýskalandi og sjá til þess. að sam- starfið í Færeyjum gangi vel,“ öðru lagi innflutningur svartra eða svartskjöldóttra kúa og í þriðja lagi komi til greina að flytja inn rauðar eða rauðskjöldóttar kýr. Segir Jón Viðar að tveir fyrst- nefndu stofnarnir komi tæpast til greina. í þeim, sem fyrst var nefndur, eru kýr af Jersey stofni, sem óumdeilt eru þær kýr sem framleitt geta meiri orku í mjólk á hvert kg. í líkamsþunga en nokk- urt annað nautgripakyn. Fituinni- hald mjólkur þessara kúa sé hins vegar slíkt, að mjólkin henti að- eins til smjörvinnslu og það dæmi stofninn úr leik. Það eru kýr af rauðum stofni, Ayrshire kyn, sem Jón Viðar Jón- mundsson telur að henti best á ís- landi. Hann segir að ef komi til innflutnings sé eðlilegast að gera ráð fyrir að fluttir verði inn fóstur- svaraði Þorsteinn Már spuming- unni um hvort frekari landvinning- ar væru framundan. HA vísar í kýr í einangrunarstöðina í Hrísey. Gangi þessar hugmyndir út frá því að nýju kyni mjólkurkúa verði komið upp í landinu. Varla sé ástæða til að ræða þann mögu- leika að einstakir bændur fengju sér nýtt kúakyn, eins og víða er erlendis. „Fyrsti möguleiki til innflutn- ings skapast þegar stöðin í Hrísey hefur verið leyst úr þeirri einangr- un sem hún er nú í, vegna inn- flutnings á nýjum holdanautakynj- um. Það er mögulegt að verði snemma á árinu 1997. Gengi það eftir þá gæti fyrsti árgangur inn- fluttra nauta fæðst 1998. Þau naut koma í notkun 1999 í landi og kálfar undan þeim fæðast árið 2000,“ segir Jón Viðar Jónmunds- son í erindi sínu á ráðunautafund- inum. -sbs. Bæjarstjórn Ólafsfjarðar: Viðheldur trún- aði um málefni Glits hf. Björn Valur Gíslason, bæj- arfulltrúi minnihlutans í bæjarstjórn Ólafsljarðar, lagði fram bréf á bæjarstjórn- arfundi sl. þriðjudag þar sem farið var fram á að trúnaði vegna umræðna um kera- mikverksmiðjuna Glit hf. yrði aflétt. í haust kom út ít- arleg skýrsla um stöðu Glits hf. og markaðshorfur og var hún unnin af Sigurði Björns- syni. Sú skýrsla hefur verið trúnaðarmál sem og fundar- gerðir sem íjallað hafa um fyrirtækið. Á bæjarstjórnarfundinum var samþykkt að viðhalda trúnaði um málið að sinni með atkvæðum sjö bæjarstjómar- manna. Ólafsfjarðarbær á 98% hlut í fyrirtækinu og fer bæjar- stjóri ásamt bæjarráði með daglegan rekstur þess. Björn Valur segir ástæðu þess að bréfið var sent, þrýsting frá mörgum bæjarbúum um að staða fyrirtækisins verði upp- lýst auk þess sem sögusagnir gangi um það í Ólafsfirði að sumir kröfuhafar í Gliti hf. hafi fengið kröfur greiddar en aðrir ekki. Bjöm Valur segir að ef fyrirtækið verði gjald- þrota verði það tugmilljóna króna skellur fyrir bæjarsjóð sem á fyrirtækið og er í ábyrgðum fyrir lánum þess. GG Uppboðí Kaupmannahöfn: Enn hækkar skinna- verð Islensk minkaskinn hafa hækkað um 86% í verði á einu ári og refaskinn um 72%. Þetta er niðurstaðan eftir skinnauppboð í Kaup- mannahöfn, sem lauk í gær. Þar seldust íslensk blárefa- skinn á 8.700 kr. og minka- skinn um 2.700 kr. Rekstur og horfur í íslensk- urn loðdýrabúskap hafa stór- lega batnað frá í fyrra, að því er fram kemur í tilkynningu frá Sambandi íslenskra loðdýra- ræktenda. Þar segir jafnframt að búast megi við að gjaldeyr- istekjur af greininni verði um 550 milljónir kr. á þessu ári og ekki séu nema unt 15% af að- föngum til framleiðslunnar innflutt. Loðdýrabændur standa næstkomandi laugardag fyrir sýningu á Hótel Sögu, þar sem sýnd eru rninka- og refaskinn frá bændum af öllu landinu og afhent verða verðlaun þar að lútandi. Þá mun verslunin Pelsinn sýna nýjustu stefnur og strauma í loðfatnaði. -sbs. Fjögur fyrirtæki fengu viðurkenningar auk Samherja. Frá vinstri: Ásta Sýr- usdóttir frá PH-snyrtivörum, Magnús Gauti Gautason frá KEA, Eiður Gunnlaugsson frá Kjarnafæði og Jón Dan Jóhannsson frá Sandblæstri og mámhúðum. Nýtt mjólkurkúakyn flutt til landsins?

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.