Dagur - 15.02.1996, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 15. febrúar 1996
FRETTIR
Húsbréf
Innlausnarverð
húsbréfa í
1. flokki 1989
1. flokki 1990
2. flokki 1990
2. flokki 1991
3. flokki 1992
2. flokki 1993
2. flokki 1994
3. flokki 1994
Innlausnardagur 15. febrúar 1996.
1. flokkur 1989: Nafnverð: 500.000 kr. 50.000 kr. 5.000 kr. Innlausnarverð: 909.248 kr. 90.925 kr. 9.092 kr.
1. flokkur 1990: Nafnverð: 500.000 kr. 50.000 kr. 5.000 kr. innlausnarverð: 802.755 kr. 80.275 kr. 8.028 kr.
2. flokkur 1990: Nafnverð: 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 1.595.881 kr. 159.588 kr. 15.959 kr.
2. flokkur 1991: Nafnverð: 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 1.483.405 kr. 148.341 kr. 14.834 kr.
3. flokkur 1992: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 6.546.318 kr. 1.309.264 kr. 130.926 kr. 13.093 kr.
2. flokkur 1993: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 6.039.445 kr. 1.207.889 kr. 120.789 kr. 12.079 kr.
2. flokkur 1994: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 5.594.747 kr. 1.118.949 kr. 111.895 kr. 11.189 kr.
3. flokkur 1994: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 5.492.470 kr. 1.098.494 kr. 109.849 kr. 10.985 kr.
Innlausnarstaður: Veðdeild Landsbanka íslands
Suðurlandsbraut 24.
cSd húsnaðisstofnun ríkisins
I I HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 - 108 REYKJAVÍK • SlMI 569 6900
BELTIN
yUMFERÐAR
RÁÐ
Loðnuaflinn 320 þúsund lestir:
Júpíter með
mestan kvóta
Bráðabirgðakvóti í loðnu var
ákveðinn í upphafi yfir-
standandi loðnuvertíðar 800
þúsund lestir og komu 536 þús-
und tonn í hlut íslendinga. End-
anlegur loðnukvóti hefur verið
ákveðinn 1.150 þúsund og kem-
ur aukningin, 350 þúsund lestir,
öll í hlut íslenskra skipa. Heild-
arloðnukvótinn er því 906 þús-
und lestir og af því hafa veiðist
um 320 þúsund lestir.
Til þess að takist að veiða þau
liðlega 580 þúsund tonn sem eftir
eru þurfa allar aðstæður að vera
hagstæðar; bæði veður og ganga
loðnunnar vestur fyrir landið á
hrygningarstöðvar. Ný loðnu-
ganga upp að landinu austanverðu
gæti lengt vertíðina að einhverju
marki.
Samkvæmt samningi við ESB
um gagnkvæmar veiðiheimildir
fær fsland þessu til viðbótar 30
þúsund lestir af loðnu frá ESB í
skiptum fyrir 3 þúsund tonna
karfakvóta. Auk þessa hefur ís-
land gert sérstakt samkomulega
við Færeyinga um veiðiheimildir
og samkvæmt þeim fá Færeyingar
að veiða 10 þúsund lestir af loðnu.
Dalborg EA-317, togari Snorra
Snorrasonar á Dalvík, hefur
undanfarna daga legið við
bryggju á Hornafirði og fryst
loðnu. Auk þess er verið að
framkvæma breytingar á skip-
inu, skipta um spil og setja nýja
vinnslulínu í skipið auk flokkara
og fleiri smærri verka.
Togarinn er nýkominn af
rækjuveiðum í Flæmska hattinum,
þar sem hann hefur verið síðan í
júlímánuði 1995, en hann var
keyptur á sl. sumri til Dalvíkur.
Vegna þess að ekki hefur verið
flokkari um borð hefur rækjan
verið fryst óflokkuð í 7 kg öskjur.
Frystigeta skipsins er um 30 tonn
Vegagerð ríkisins hefur ákveðið
að ganga að tilboði Héraðsverks
hf. á Egilsstöðum um uppbygg-
ingu og lagningu slitlags á Norð-
urlandsvegi um Möðrudalsöræfi,
frá Jökulsá á Fjöllum, yfir Bisk-
upsháls og í Víðidal, alls 13,3
km. kafla. Framkvæmdir munu
hefjast þann 15. júní í sumar og
á að ljúka fyrir ágústlok 1997.
Kvótahæsta loðnuskipið er
Víkingur AK-100 með 40.337
lestir, en kvótahæstur norðlenskra
skipa er Júpíter ÞH-61 frá Þórs-
höfn með 35.503 lestir sem veitt
hafði 10.537 lestir sl. mánudag.
Júlli Dan GK-197, sem keyptur
hefur verið til Þórshafnar hefur
veitt 2.080 lestir og er með sama
bráðabirgðakvóta; Þórður Jónas-
son EA-350 er með 16.337 lesta
kvóta og hefur veitt 2.939 lestir;
Amþór EA-16 frá Árskógssandi
er með 3.000 lesta bráðabirgða-
kvóta og hefur veitt sama magn;
Guðmundur Ólafur ÓF-91 frá 01-
afsfirði er með 17.048 lesta kvóta
og hefur veitt 3.563 tonn; Björg
Jónsdóttir ÞH-321 frá Húsavík er
með 18.250 lesta kvóta og aflinn
4.940 tonn; Súlan EA-300 frá Ak-
ureyri er með 18.786 lesta kvóta
og 4.098 lesta afla til þessa; Þor-
steinn EA-810 frá Akureyri hefur
veitt 7.050 lestir af 32.596 lesta
kvóta og Sunna SI-67 frá Siglu-
firði fékk úthlutað 804 tonna
loðnukvóta en hefur ekkert veitt
og ekki líklegt að af verði, því
skipið er fyrst og fremst á rækju.
GG
á sólarhring og kemur loðnan í
öskjum frá Borgey hf. á Höfn og
er fryst um borð og síðan send til
baka, þ.e. ekki er um kaup skips-
ins á loðnu að ræða.
Siglufjarðartogarinn Siglir SI
er á loðnumiðunum og kemur að
loðnuskipunum og dælir úr nót
þeirra um borð þar sem loðnan er
flokkuð og fryst og einnig brædd,
en um borð er mjölverksmiðja.
Frystigeta Siglis SI er um 40 tonn
á sólarhring, en afkastageta verk-
smiðjunnar er um 8 tonn af mjöli
og 5 tonn af lýsi. Fleiri frystitog-
arar eru á loðnumiðunum, m.a.
Örfirisey RE, sem hefur fengið
flokkaða loðnu af Beiti NK. GG
Tilboð Héraðsverks hf. var hið
7. lægsta af 24 sem bárust í þetta
verkefni. Farið var yfir tilboðin og
niðurstaðan varð sú að ganga að
nefndu tilboði Héraðsverks, þar
sem sumir, sem lægri voru, féllu
frá sínum tilboðum eða þau voru
metin óraunhæf af verkkaupa.
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á
162 millj. kr. -sbs.
Ráðstefna
um tækni
og vinnslu
í sjávarútvegi
Tæknifræðingafélag íslands
og Verkfræðingafélag ís-
lands gangast fyrir ráðstefnu
um tækni og vinnslu í sjávar-
útvegi á Hótel KEA nk. laug-
ardag, 17. febrúar. Meðal
annars verður fjallað um
gæðastjórnun og framleiðslu-
tækni, nýjungar í búnaði
skipa og fiskvinnslu, nýjung-
ar í skipahönnun og stefnu-
mótun og kennslu í sjávarút-
vegsfræðum. Að loknum fyr-
irlestrum verða pallborðsum-
ræður.
Meðal fyrirlesara á ráð-
stefnunni em Magnús Magn-
ússon, útgerðarstjóri ÚA, Jón-
atan S. Svavarsson hjá Kæli-
smiðjunni Frost hf„ dr. Geira
A. Gunnlaugsson, fram-
kvæmdastjóri Marels hf„
Magne Johnsen frá Simrad,
Kristján Gíslason frá Radíó-
miðlun, Kristinn Daníelsson
hjá Haftækni hf„ Daníel G.
Friðriksson hjá Ráðgarði og
Jón Þórðarson, deildarstjóri
sjávarútvegsdeildar Háskólans
á Akureyri.
Þátttöku á ráðstefnuna er
hægt að tilkynna til skrifstofu
VFI og TFÍ. Síminn er
5688511. óþh
Góður hagnaður
íslandsbanka
íslandsbanki skilaði 331
milljóna króna hagnaði á ár-
inu 1995 samanborið við 185
milljóna króna hagnað árið
1994.
Framlag á afskriftareikning
Islandsbanka á síðasta ári var
831 milljón króna, sem er rétt
liðlega helmingur framlags á
afskriftareikning árið 1994.
Rekstrarkostnaður íslands-
banka lækkaði um 42 milljónir
króna á síðasta ári samanborið
við árið á undan. Eigið fé ís-
landsbanka og dótturfélaga
hans var um sfðustu áramót
4.897 milljarðar króna. óþh
Ný stjórn ATVR
Fjármálaráðherra skipaði í
gær stjórn Áfengis- og
tóbaksverslunar ríkisins.
Aðalmenn í stjórn eru Hild-
ur Petersen, framkvæmda-
stjóri, sem jafnframt var skip-
uð formaður stjómarinnar,
Þórarinn Sveinsson, læknir, og
Árni Tómasson, endurskoð-
andi. Varamenn eru Dögg
Pálsdóttir, lögfræðingur, Sig-
urður M. Magnússon, eðlis-
fræðingur, og Anna Margrét
Jóhannesdóttir, stjórnmála-
fræðingur. Stjómin er skipuð
til tveggja ára í senn, en henn-
ar er að marka stefnu og sam-
þykkja starfsáætlun og rekstr-
aráætlun hvers árs að fenginni
tillögu forstjóra. Þá hefur hún
eftirlit með rekstri. óþh
Loðna fryst um
borð í Dalborgu
Noröurlandsvegur um Möðrudalsöræfi:
Gengið að tilboði
Héraðsverks