Dagur - 15.02.1996, Page 5
Fimmtudagur 15. febrúar 1996 - DAGUR - 5
* t
* *
TlL MlNNINGAR UM
Hefur
Minningarsjóði
Heimahlynningar á Akureyri
Verið Færð Minningargjöf
MEÐ INNILEGRI HLUTTEKNINGU
Geno ÚT f MINNINGU
BJARNA SIGURÐSSONAR,
PRENTSMIÐJUSTJÓRA POB
Skeljungur styrkir
skógrækt í landinu
um 10 milljónir í ár
Miimíngarsjóður um
Bjarna Sigurðsson
Stofnaður hefur verið sjóður til
minningar um Bjarna Sigurðs-
son, prentsmiðjustjóra POB hf.
Prentuð hafa verið minningar-
kort sem hönnuð voru af Kristj-
önu, ekkju Bjama, en prentuð
og unnin í Prentsmiðjunni Ás-
prent/Pob hf.
Þeir sem vilja minnast Bjama
Sigurðssonar geta fengið minning-
arkort keypt í öllum blómabúðum
á Akureyri frá og með deginum í
dag, fimmtudegi, og styrkt með
því Heimahlynningu Akureyrar,
en starfsfólk hennar reyndist
Bjarna heitnum og Kristjönu mjög
vel í veikindum hans.
Skógrækt ríkisins og Skeljungur
hf. hafa samið um
áframhaldandi samstarf þessara
aðila undir kjörorðinu „Skóg-
rækt með Skeljungi“. Sam-
kvæmt samningnum mun Skelj-
ungur hf. leggja 10 milljónir
króna til verkefna á sviði skóg-
ræktar á þessu ári.
Samstarf Skógræktarinnar og
Skeljungs hófst á miðju ári 1993
og frá þeim tíma hefur Skeljungur
styrkt skógrækt í landinu um 27
milljónir króna. Félagasamtök og
einstaklingar hafa fengið skóg-
ræktarstyrki, framleiddar hafa ver-
ið skógarplöntur og skóglendi
opnuð almenningi með bættu að-
gengi og áningaraðstöðu.
Meginmarkmið samstarfs
Skeljungs og Skógræktarinnar
hafa verið að efla almennan áhuga
á skógrækt og skógræktarstarfi í
landinu í þeim tilgangi að stækka
skóglendi Islands. Vísasta leiðin
til að glæða skógræktaráhuga ís-
lendinga er að fá þá til að heim-
sækja þá fjölmörgu skógarreiti
sem til eru í landinu. Slfk heim-
sókn lætur engan ósnortinn. Því
hefur í þessu samstarfi verið gert
sérstakt átak í að opna skógana.
Skóglendi Skógræktar nksins
hafa verið gerð aðgengilegri til al-
mennrar notkunar með grisjun,
göngustígagerð, merkingum og
bættri áningaraðstöðu. í því sam-
bandi má nefna Hallormsstaða-
skóg, Vaglaskóg, Grundarreitinn í
Eyjafirði, Reykjarhólsskóg í
Varmahlíð í Skagafirði, Jafna-
skarðsskóg við Hreðavatn, Stálpa-
staðaskóg í Skorradal, skóglendið
í Esjuhlíðum við Mógilsá, Hauka-
dalsskóg í Biskupstungum og
Tumastaði í Fljótshlíð. Samanlögð
lengd skógarstíga sem unnt hefur
verið að leggja vegna framlagsins
frá Skeljungi nemur tugum kíló-
metra og á enn eftir að aukast.
Sérstakir skógardagar sem efnt
hefur verð til í tengslum við opn-
un skóganna hafa verið mjög fjöl-
sóttir. Reynslan hefur sýnt að
landsmenn kunna vel að meta
þetta framtak enda hefur öll um-
ferð um skóglendi aukist til muna.
Með samningi sem nú hefur
verið undirritaður er tryggt áfram-
hald á því samstarfi sem verið
hefur milli Skógræktar ríkisins og
Skeljungs hf. undanfarin ár. Fram-
tíðarverkefnin eru mörg. Fjöldi
skóglenda bíða grisjunar og bætts
aðgengis, en ákveðið hefur verið
að leggja áherslu á göngustíga-
gerð í Þórsmörk, á Þingvöllum og
í Eiðaskógi á Héraði. Fljótlega
verða auglýstir Skeljungsstyrkir
þar sem félagasamtök og einstak-
lingar geta sótt um fjárstuðning til
gróðursetningarverkefna. Lögð
verður áhersla á að veita færri en
myndarlegri styrki en áður. Með
haustinu er stefnt að fræsöfnunar-
átaki með þátttöku almennings.
Frá vinstri: Arnbjörg Edda Guðbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri VFÍ, Þor-
steinn Már Baldvinsson, framkvæmdastjóri Samherja, Ólafur Tómasson,
póst- og símamálastjóri, og Karl Ómar Jónsson, formaður VFÍ.
Þorsteinn Már og
Olafur fengu
heiðursmerki VFÍ
mora
[0EBSEQQ1
Nútímaleg blöndunartæki
fyrir öryggi og ánægju
I
TS
Á árshátíð Verkfræðingafélags
íslands, sem haldin var laugar-
daginn 3. febrúar sl., voru þeir
Ólafur Tómasson, rafmagns-
verkfræðingur og póst- og síma-
málastjóri, og Þorsteinn Már
Baldvinsson, skipaverkfræðing-
ur og framkvæmdastjóri Sam-
herja á Akureyri, sæmdir æðsta
heiðursmerki VFÍ. í tilkynningu
frá Verkfræðingafélaginu segir
að merkið sé afhent þeim mönn-
um sem skarað hafi fram úr á
sínu sviði og á þann hátt unnið
til viðurkenningar.
Við afhendingu heiðursmerkj-
anna kom m.a. fram í máli Karls
Ómars Jónssonar, formanns VFÍ:
Ólafur Tómasson er rafmagns-
verkfræðingur frá Háskólanum í
Edinborg. Honum hefur sem póst-
og símamálastjóra tekist að nýta
nútímaþekkingu á sviði fjarskipta,
stjómunar og viðskipta, þannig að
Island má nú teljast í fararbroddi
hvað varðar símaþjónustu og önn-
ur fjarskipti. Hann hefur einnig átt
sæti í fjölmörgum alþjóðlegum
tækninefndum á þessu sviði. Olaf-
ur hefur starfað ötullega að félags-
málum innan VFÍ.
Þorsteinn Már Baldvinsson er
skipaverkfræðingur frá NTH í
Þrándheimi. Hann hóf starfsferil
sinn í íslenskum skipaiðnaði en
sneri sér síðan fljótlega að útgerð-
armálum þar sem hann hefur
reynst áræðinn og atorkusamur
frumkvöðull í útgerð frystitogara
og náð þar miklum árangri. Hann
hefur stuðlað að aukinni fagþekk-
ingu í sjávarútvegi og er einn af
forgöngumönnum þessa lands í
útgerð ftskiskipa á alþjóðlegum
vettvangi.
Nýkomið: Slár fyrir sturtuhengi, sturtur,
úðarar og fleira á góðu verði
RAUTT LjjÓS Á***
J tfæ
IFERÐAR
RAUTT LjOS
BYGGINGAVORUR
LONSBAKKA•601 AKUREYRI
□r 463 0321, 463 0326, 463 0323
FAX 462 7813