Dagur - 17.02.1996, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Laugardagur 17. febrúar 1996
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI,
SÍMI: 462 4222
SÍMFAX: 462 7639 • SÍMFAX AUGLÝSINGADEILDAR: 462 2087
ÁSKRIFT M. VSK. KR. 1500 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125
RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.),
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.)
AÐRIR BLAÐAMENN: AUÐUR INGÓLFSDÓTTIR,
GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON,
SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON, FROSTI EIÐSSON (Iþróttir),
BLAÐAM. HÚSAVÍK - SÍMIÁ SKRIFST. 464 1585, FAX 464 2285. HS. BLM. 464 3521
LJÓSMYNDARI: BJÖRN Gl'SUSON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRIMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 462 5165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
Líklega er algengasta skýringin á því að fólk lendir í ógöngum
í fjármálum vegna fasteignakaupa sú að ekki eru fyrirfram
gerðar raunhæfar áætlanir. Boginn er spenntur til hins ítrasta
og ekki er gert ráð fyrir að tekjur kunni að lækka skyndilega.
Afleiðangarnar eru því miður oft alvarlegar, áður en fólk veit
af er það komið í þrot.
Nú má það vera ljóst að þeir kostir sem eru á húsnæðis-
markaðnum henta fólki misjafnlega vel. í afar athyglisverðri
samantekt Stefáns Ingólfssonar, verkfræðings, fyrir Neyt-
endablaðið kemur í ljós að Búsetakerfið er hagstæðasti kost-
urinn, hvort sem litið er til félagslegs hluta Búseta eða þess
almenna. Og athugun Stefáns leiðir í stórum dráttum í ljós að
húsnæðiskostnaður í félagslega kerfinu sé alltof mikill og það
rísi engan veginn undir því að bera þetta heiti og vera ætlað
láglaunafólki. Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytenda-
samtakanna, víkur að þessari niðurstöðu Stefáns í leiðara
Neytendablaðsins og segir: „Þegar það liggur fyrir að hús-
næðiskostnaður fyrir láglaunafjölskyldu er nálægt 40% lægri í
félagslegri búsetaíbúð með húsaleigubótum heldur en í jafn-
stórri íbúð innan verkamannabústaðakerfisins (húsnæðis-
nefndir), er greinilegt að síðarnefnda kerfið er í ólagi."
Annað atriði í könnun Stefáns Ingólfssonar er allrar athygh
vert. Hann kemst að því að fjölskylda með minna en 150 þús-
und króna mánaðartekjur hafi enga möguleika á því að kaupa
íbúð á almennum markaði miðað við húsbréf til 25 ára - ekki
einu sinni lélega tveggja herbergja íbúð, þrátt fyrir að hafa
sparað fyrir 15% kaupverðs. Stefán telur að það sé fyrst við
200-250 þúsund króna tekjumörkin sem íslenska vísitölufjöl-
skyldan geti leyft sér þann munað að búa í þriggja herbergja
íbúð.
„Það hlýtur að vera eitthvað bogið við það kerfi sem við
búum við, kerfi sem í raun byggir á séreignastefnu. Stórs
hluta af skýringunni gæti verið að leita í allt of háum raun-
vöxtum," segir Jóhannes Gunnarson í Neytendablaðinu.
Það er auðvitað mergurinn málsins, eins og Dagur hefur
margoft bent á, að húsnæðiskerfið á íslandi er stórkostlega
vanskapað. Það er einfaldlega allt of dýrt fyrir meðaljóninn að
eignast húsnæði í dag. Unga fólkinu sem kemur peningalítið
úr námi er nánast ofviða að eignast eigið húsnæði og það
lendir í vítahring leigumarkaðarins með námslán á bakinu
sem eiga eftir að reynast þung byrði. Hér er ekki dregin upp
fögur mynd, en því miður er það svo að athugun Stefáns Ing-
ólfssonar staðfestir þá skoðun Dags að húsnæðiskerfið á ís-
landi er á villigötum.
í UPPÁHALDI
H'aukurJakobsson œtti
að vera mörgum Ak-
ureyringum að góðu
kunnur. Hatm var
fjölhœfur íþróttamað-
ur á yngri árum og lagði þá fyr-
ir sig knattspyrnu. frjálsar
(þróttir og skíði. Á síðari árum
hefur hann getið sér gott orð
sem kylfingur í öldungaflokki,
þar sem hann er enn að taka
framförum þráttfyrir að hann
sé kominn á sjötugsaldurinn.
Haukur er giftur Kolbrúnu
Sveinsdóttur og eiga þau fiimm
uppkomin börn og níu barna-
börn.
HvaSa matur er í mestu uppáhaldi
hjá þér?
Ég held að uppáhaldsmaturinn sé
saltkjöt og baunir. Einhverra
hluta vegna hefur mér þótt það
besti matur sem ég fæ, ef ég
fengi að panta hjá konunni
minni, þá mundi ég panta þetta.
Uppáhaldsdrykkur?
Ég drekk mest af undanrennu og
mér finnst hún mjög góð þegar
hún er köld.
HvaSa heimilsstörfflnnst þér
skemmtilegustlleiSinlegust?
Mér finnst hundfúit að ryksuga
en í lagi að vaska upp.
Stundar þú einhverja markvissa
hreyfingu eSa líkamsrœkt?
Já, ég syndi töluvert og síðan er
ég tvisvar til þrisvar í viku í
Haukur Jakobsson.
þrekæfingum og svo er golfið
númer eitt, tvö og þrjú hjá mér.
Ert þú íeinhverjum klúbb eSafé-
lagasamtökum?
Ég er KA-maður og er í Golf-
klúbbi Reykjavíkur. Svo syng ég
svolítið í Gamla Geysi.
HvaSa blöS og tímarit kaupir þú?
Ég kaupi íþróttablaðið og Morg-
unblaðið.
HvaSa bók er á náttborSinu hjá þér?
Það eru nú tómar veiðisögur. Það
eru aðallega bækur um laxveiði
sem ég les og svo er ég að lesa
að gamni mínu gamla bók um
Kevin Keegan.
/ hvaSa stjörnumerki ertþú?
Sporðdrekanum.
HvaSa tonlistarmaSur er ímestu
uppáhaldi hjá þér?
Ég hélt mjög mikið upp á Elvis
Presley og Mario Lanza.
Uppáhaldsleikari?
Mér fannst nú Clark Cable alltaf
skemmtilegur og svo Errol
Flynn.
HvaS horfir þú helst á ( sjánvarpi?
íþróttir og fréttir.
A hvaSa stjómmálamanni hefurSu
mest álit?
Davíð Oddssyni.
Hver er aS þínu matifegursti staSur
á íslandi?
Af þeim stöðum sem ég hef
komið til finnst mér Mývatn vera
fallegast.
Hvar vildiröu helst búa ef þú þyrftir
aS flytja búferlum nú?
Á Grenivík í HÖfðahverfi, þar
sem ég fæddist.
Efþú ynnir stóra vinninginn (lóttó-
inu hvernig myndir þú eySa pening-
unum?
Ég held ég mundi styrkja bömin
mín.
Hvernig vilt þú helst verja frístund-
um þínum?
Á golfvellinum, við veiðiskap og
með fjölskyldu minni.
HvaS gerðir þú (fríinu sl. sumar?
Ég stundaði nú aðallega golf.
HvaS œtlar þú aS gera um helgina?
Ég ætla að vera í fertugsafmæli
sonar míns (Sveins Ævars). -fe
Hundíult að ryksuga
en í lagi að vaska upp
Fyrir ágæta lesendur mína á Akureyri
og í nærsveitum bregð ég hér á blað
þessari sígildu tækifærisræðu minni.
Á morgun held ég til Finnlands að
ylja löndum vorum í Helsinki með
stúfnum atama. Vona bara að ferjan
strandi nú ekki strax aptur! Og von-
andi yljar þorratalan þessi ukkur eins
og vel og raunin hefur verið á með ís-
lendinga í Stokkhólmi, Jönköping og
Lundi. Það er „Jönköpingsvaríanten“
sem hér birtist og því einu við hann að
bæta að þau eru orðin tuttuguogþrjú
árin síðan ég hóf nám við skóla Brahe
á Visingsö. Hér eru annars stóísk veð-
ur. Vötn ísilögð, hvít jörð og kulda-
blár himinskjöldur. Fimtán stiga frost
sólarhringunum saman. En daginn
lengir... Kemur þá ræðan:
,Ágætu landar, svenska vanner
och andra bekanta! Best er að hafa
góða tölu stutta. Það stendur jú mikið
til! Og sýnast mér flestir hér eins
hressir og þeir væm í beinni útsend-
ingu hjá Hemma Gunn. Áður en
lengra er haldið: njótið heil hins ldass-
íska matar! Þorrablót em til þess að
gera mikill fomaldarsiður sem Naust-
ið margumgetna á Vesturgötunni tók
upp 1960 og má nú enginn vami halda
nema viðkomandi hafi afgreitt svo og
svo marga hrútspúnga og önnur glóð-
araugu árlega og skolað niður með
þeim Svarta dauða. Hláturinn lengir
lífið en spikið þjarmar að hjartarótum
þannig að allt gengur þetta upp, enda
engin tradisjón til á Islandi nema sult-
ur og brennivín, og á okkar síðustu og
verstu hraði, ráðleysi og algjört óhóf.
En auðvitað stendur það til bóta eins
og allt annað. Skárra væri það nú!
Mér eru orð gömlu konunnar á
strandprómenaðinum í Varberg ofar-
lega í huga á þessum merku tímamót-
um í lífi mínu. Tiden gár och vi med
den sagði gamla konan. Eru það orð
að sönnu. Rétt tuttugu árin síðan ég
fann fyrst fótum mínum forráð á
sænskri grundu og einmitt hér í Smá-
löndunum, nánar tiltekið á þeirri
ágætu eyju Visingsö, hvar ég lagði
meðal annars stund á hin húmanist-
ísku fræðin vorönnina sjötíuogþrjú, og
Jönköping reyndar fyrsta erlenda stór-
borgin sem ég kynntist til einhvurrar
hlítar. Og enn er búsældarlegt kring-
um Vattem og gulu ljósin á fegurstu
hraðbraut norðursins jafnheillandi nú
sem þá. Megið þið prísa ukkur sæl að
búa á þessum slóðum landar góðir,
sænskir gestir vorir, vinir og félagar.
Það væsti heldur ekki um mig á Vis-
ingsö. Ég tók strax þátt í samsöng
nemenda á kynningarkvöldi og hefí
ávallt síðan litið Rósu á Bala hýrum
augum. Og síðan gaus jú það útdauða
Helgafell í Vestmannaeyjum og varð
ég þá á svipstundu frægasti einstak-
lingurinn á Visingsö og þó víðar væri
leitað og kom sér vel fyrir mig að hafa
verið kokkur á bát í Éyjum í einnog-
hálfan sólarhring á vorvertíðinni sjö-
tíuogtvö. Allt samkvæmt slagaranum
gamla: Oft er fjör í Eyjum þegar fisk-
ast þar! En nú yfir í aðra sálma fer-
skeytlunnar. Því hvað á betur við svið,
hákarl og hangikjöt en nokkrar slíkar
úr Vopnafirði. Þar er verkaður bestur
hákarl á Fróni. Og best að byrja á
einni matarlegri! Á góðu búi í Hofsár-
dal bjuggu nokkrir bræður og voru
allir sem sem einn haldnir miklu
heymarleysi. Gat það tekið tímann
sinn að kalla þá í matinn úr túninu um
hásláttinn. Og einu sinni kom skáld-
mæltasti bróðurinn ansi seint að kræs-
ingunum og var víst lítið eftir. Hrökk
honum þá þessi staka af munni.
Oft hefurfokið mold á mel
mikil auðna orðið.
Sá hefur vakið vísnaþel
sem seinast sest við borðið.
En engar sögur fara af því hversu
saddur hann varð af skáldskapnum.
Sumarið 74 þegar ég var kaupa-
maður á Skjaldþingsstöðum lenti hálf-
gerður frændi minn út af um hábjarta
nótt sólmánuðar og var talið að Bakk-
us hefði verið með í för. Lét hann
ólukkuna lítt á sig fá heldur orti þessa
fleygu ferskeytlu rykaður niðri í
skurðinum, kannski með heilahristing:
Hvort bóndi eða kona bílnum aka
ja breytir litlu sýnist mér.
Því eftir því munu allir taka
að keyrir út af hvorsumer.
Og stendur enn fyrir sínu. Til
huggunar skólafólki og þeim sem
sloppið hafa að mestu við nám af
slíku tagi ætla ég nú að fara með tvær
vísur tengdar skólum og námi. Sú
fyrri er eftir föðurbróður minn Ingólf
Jónsson heitinn sem lengi var bóndi á
Skjaldþingsstöðum í Vopnafirði.
Hafði ég hana oft á takteinum á há-
skólaárum mínum í Lundi, enda eftir
miklu að sækjast:
/ Háskólanum happ þitt er,
hundraðþúsund líkur.
Fáð’ér miða.flýttu þér,
fljótt þú verður ríkur.
Blessuð sé minning Ingólfs. Seinni
vísuna lærði ég af Jóni Kárasyni, sem
leigði hjá pabba og mömmu í Eyrar-
vegi 35 síðustu tíu árin áður en þau
fóru á Dvalarheimilið Hlíð, og er hún
mér alltaf ákaflega hugstæð:
Ferða-Gvendur kom úr skóla,
greindi sundurA og B.
Uti á hlaðifer að góla
um hvað klukkan orðin C.
Svo mörg voru þau orð. Og víst er
fleira matur en feitt kjöt en látum okk-
ur neyta á meðan nefinu stendur. Því
enginn veit fyrir víst sinn næturstað,
hvað svo sem líður strætisvögnum,
jámbrautarlestum, flugvélum og
leigubílum. Tilvera okkar er undarlegt
ferðalag og hótel okkar er jörðin kvað
Tómas. Og kannski ekki úr vegi að
rifja upp Hávamál: hver sem sér orð-
stír góðan getur ogsvoframvegis. Tím-
inn er fugl sem flýgur hratt og reyndar
af skomum skammi. Látum því dans-
inn duna á fjölunum fram á nótt!
Hristum af okkar doða, dmnga og
slen: áfram veginn!“