Dagur - 17.02.1996, Page 15

Dagur - 17.02.1996, Page 15
r\nr\ t- „ r*»- oi i.o /\ n k i- Laugardagur 17. febrúar 1996 - DAGUR - 15 íslandsmeistarakeppni í kökuskreytingum: Ingólfur aftan við tertuna, en skrautið á tertunni er allt handmálað með matarlitum og því mikil vinna sem liggur að baki. framfarir í kökuskreytingum á síð- ustu árum. Engin sérstök skilyrði voru sett fyrir þátttöku f keppninni en keppendur voru flestir bakarar eða lærðir konditorar, sumir jafn- vel hvoru tveggja. „Ég hugsa að það séu ekki nema svona 15 manns hér á landi sem fást eitt- hvað að ráði við kökuskreyting- ar,“ segir Ingólfur. Ingólfur tók líka þátt í keppn- inni í fyrra en þá vissi hann ekki nógu vel út á hvað keppnin gekk. „Eg hugsa að ég hafi verið með þemalausasta borðið. Við áttum að gera eina kransaköku og eina tertu en enga borðskreytingu. Hjá mér voru engin tengsl milli kran- sakökunnar og tertunnar og mér fannst borðið mitt hálf asnalegt þegar ég sá hvað hinir voru að gera. Það var því mjög gaman að fá verðlaun fyrir þema í ár,“ segir bakarinn Ingólfur Gíslason. AI Þema Ingólfs var „Prinsar í álögum“ og svona leit borðið hans út þegar allt var tilbúið. Til hægri er kransakakan, tertan er vinstra megin en fyrir miðju er borðskrautið. Helgina 27. og 28. janúar héldu Landssamband bakarameistara, Klúbbur bakarameistara og Bak- arasveinafélag íslands Islands- meistarakeppni í kökuskreyting- um í Perlunni í Reykjavrk. Þetta er í annað sinn sem slík keppni er haldin hérlendis og voru þátttak- endur ellefu talsins. Akureyring- urinn Ingólfur Gíslason, yfirbakari hjá KEA, var eini þátttakandinn utan af landi en hann hlaut sér- staka viðurkenningu fyrir hug- mynd og þema. Keppendur fengu í upphafi autt borð og áttu þeir að skreyta borðið með þriggja hæða tertu, kransa- köku, konfektsmástykkjum og ætilegri borðskreytingu. Perlan var opin almenningi á meðan á keppni stóð og gat fólk fylgst með keppendum allt frá byrjun. Keppnin vakti töluverða athygli því fjöldi fólks lagði leið sína í Perluna og skiptu gestir þúsund- um. Borðskrautið var fleki sem á voru froskar. Skilyrði var að borðskraut- ið væri ætilegt og er það allt úr marsipani. Blár dúkur á borðinu táknaði vatn og til að undirstrika það bjó Ingólfur til vatnaliljur, sem liggja hér og þar umhverfis flekann. Veitt voru verðlaun fyrir fyrsta annað og þriðja sæti og auk þess voru veitt þrjú aukaverðlaun og eitt þeirra féll Ingólfi Gíslasyni í skaut fyrir hugmynd og þema eins og áður segir. Prinsar í álögum Þema Ingólfs var „Prinsar í álög- um“ en eins og sést á meðfylgjandi myndum voru frosk- ar áberandi, bæði á tertunni og á borðskreytingu. Ingólfur segist hafa gert töluvert af því að búa til fígúrur úr marsípani og því varð úr að hann notaði froska í sinni skreytingu. Nafnið á verkinu varð hins vegar ekki til fyrr en sama morgun og keppnin byrjaði. Vinnan við skreytingar af þessu tagi er geysimikil og segir Ingólfur þessa vinnu töluvert frá- brugðna því sem bakarar fást yfir- leitt við. Kökuskreytingar eru orð- in listgrein og hafa orðið miklar Akureyringur fékk viðurkenningu UTAN LANDSTEINA Johnny Depp reynir nú ákaft að ná sambandi við Bela Lugosi, en Lugosi varð einmitt frægur fyrir að fara með með hlutverk Drakúla greifa í kvikmynd á sínum tíma. Eftir að hafa leikið í myndinni Ed Wood fyrir stuttu, er Johnny kominn með þessa tilteknu Drakúla- mynd á heilann. Hann fjárfesti í draugalegum kastala sem eitt sinn var í eigu Bela Lugosi og heldur miðilsfundi en það virðist ganga illa að ná sambandi... Sharon Lawrence úr N.Y.P.D. Blue vard svo óheppin um daginn ad týna for- láta demantseyrnalokk, sem kostaði litla 15.000 dollara. l.eikkonan varð aó sjálfsögðu svekkt og lét setja upp plaköt og auglýsti ákaft eftir lokknum. Auðvitað bar það engan árang- Dennis Franz sem leikur kærasta hennar úr þáttunum, er í raun mesta gæðahlóð á bak við haröa grímu lögrcglumannsins. Fyrir jólin fór hann að heimsækja systur sína á sjúkrahús og komst að því að ekki var hægt að gefa öllum krökkunum þar jólagjaftr. Dennis þusti í leikfangabúðir og eyddi í jólagjaftr, kom svo til baka í jólasveinagerfi og deildi út gjöfunum. Flottur kall! ELSA JÓHANNSDÓTTIR Réttarkerfíð er skrítið í Bandaríkjunum. Af hverju? Jú, þessi léttklædda dama á myndinni, Carol Shaya, var rekin úr lögreglunni í New York fyrir það að myndir birtust af henni í tímaritinu Playboy. Lögreglumaðurinn Edward Mallia á líklega einnig brottrekstur yfir höfði sér fyrir að birtast á forsíðu Playgirl, sem sést hér á litlu myndinni. En svo er það slökkviliðsmaðurinn William Bresnan sem slær allt út. Hann gerðist róttækari og lék hlutverk í djarl'ri mynd með frægri klámdrottningu þar vestra, Marilyn Chambcrs, og var dæmdur til að vinna kauplaust í mánuð fyrir sinn verknað (!?). Spáið í það...

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.