Dagur - 11.07.1996, Blaðsíða 2

Dagur - 11.07.1996, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 11. júlí 1996 FRÉTTIR Akureyri: Endurbætur fram- undan á ráðhúsinu Sameiningamál í Þingeyjarsýslum: „Vona að sveitarsljórn- ir verði jákvæðari“ Fagnaði 50 ára vígsluafmæli Sr. Amgrímur Jónsson þjónaði fyrir altari í Akureyrarkirkju síðastliðinn sunnudag og fagnaði með því að 50 ár voru þá liðin frá því hann tók vígslu til Odda á Rangárvöllum. Á sínum tíma annaðist sr. Friðrik J. Rafnar vígsluna en vígsluvottar voru þeir sr. Sigurður Guðmundsson, sr. Stefán Eggertsson, sr. Sigurður Stefánsson og sr. Bjöm O. Bjömsson. Sr. Amgrímur lét af prestskap árið 1993 en hann þjónaði í 18 ár í Odda og í um 30 ár í Háteigskirkju í Reykjavík. JÓH/Mynd: bg - hönnunarkostnaður gagnrýndur á bæjarstjórnarfundi Nú í haust hefst fyrsti áfangi umfangsmikilla breytinga við ráðhúsið á Akureyri, Geislagötu 9, eða bæjarskrifstofurnar. Þar sem m.a. eru til húsa tækni- og umhverfissvið Akureyrarbæjar auk sjálfra bæjarskrifstofanna, skrifstofu bæjarstjóra og fundar- salar bæjarstjórnar. Til að byrja með verða gerðar miklar breyt- ingar á jarðhæð hússins og byggð verður 240 fermetra við- bygging til vesturs með um 170 fermetra kjallara. Samþykkt hefur verið að ganga til samninga við Arkitektastofu Svans Eiríkssonar ehf. um hönun- arvinnu vegna fyrirhugaðra fram- kvæmda. Stefnt er á að koma neðstu hæðinni í gagnið sem fyrst, en hún hefur að mestu staðið ónotuð síðan Slökkvilið Akureyr- ar flutt í nýtt húsnæði við Árstíg. Á neðstu hæðinni við Geislagötu verður m.a. afgreiðsla bæjarskrif- stofunnar í framtíðinni. Á fundi framkvæmdanefndar á dögunum var samþykkt að hönn- unarvinnu fyrsta áfanga verði lok- ið fyrir 5. september nk. f 2. áfanga á að ráðast í breytingar og endurbætur á hinum þremur hæð- unum og skal þeirri hönnunar- vinnu og þar með allri hönnun, lokið fyrir 1. júlí 1997. Heildar- kostnaður er áætlaður 77,5 millj- ónir og þar af er hönnunarkostn- aður rúmar 8,5 milljónir auk virð- isaukaskatts. Heimir Ingimarsson, bæjarfulltrúi Alþýðubandalags, sem situr í framkvæmdanefnd, tók ekki þátt í afgreiðslu málsins þar sem hann sagist telja hönnunar- kostnað óeðlilega háan, eða 11 % af framkvæmdakostnaði. Á bæjar- stjórnarfundi svaraði formaður nefndarinnar, Gísli Bragi Hjartar- son, því til að erfitt væri að segja nákvæmlega til um hver sé rétta eða eðlilega talan í þessu sam- Ekki hefur orðið vart frekari grútarmengunar við Svalbarðs- strönd né fleiri fulgar drepist þar af þeim sökum frá í gær, en sem kunnugt er varð talsverður skaði fyrr í vikunni vegna meng- unar á þessum slóðum. Alfreð Schiöth, heilbrigðisfull- trúi, segir að ýmislegt bendi til að orsök mengunarinnar megi rekja til að grútur eða lensivatn hafi bandi. Þetta hafi hins vegar verið sú upphæð sem samningar náðust um. Oddur Halldórsson, bæjarfull- trúi, tók reyndar undir gagnrýni Heimis og sagði það sína skoðun að Akureyri væri „hönnuðavænn bær.“ Þriðji áfangi fyrirhugaðra breytinga á Geislagötu 9 er síðan viðbygging til austurs ásamt tengigangi. Þar er í framtíðinni stefnt á að verði stjórnun og þjón- usta bæjarins, aðstaða fyrir bæjar- ráð og bæjarfulltrúa, eldhús, mötuneyti og ýmislegt fleira. Hús- ið verður á tveimur hæðum, u.þ.b. 480 fermetrar að grunnfleti. HA verið losað frá loðnuskipi á úts- tími frá Krossanesi. Hann tekur þó fram að heilbrigðisyfirvöld séu „ekki í neinum lögguleik," eins og hann komst að orði, í þeim til- gangi upplýsa málið eða að refsa þeim sem grútinn losaði. Mestu máli skipti að atvik sem þetta ger- ist ekki aftur og verður áróðurs- starfi hagað með það í huga. -sbs. Grútarmengunin á Svalbarðsströnd: „Heilbrigðiseftiiiitið ekki í lögguleik" Formaöur slysavarnadeildarinnar Hrings í Mývatnssveit afhendir Sigurði Rúnari Ragnarssyni, sveitarstjóra, myndavélarnar sem deildin gaf sundlauginni í sveitinni. Mývatnssveit: Sundlaugin fær goða gjof Nýverið voru sundlauginni í Sundlaugin í Mývatnssveit er opin kvöldin alla daga vikunnar yfir Mývatnssveit færðar góðar gjaf- frá kl. 10 á morgnana til kl. 10 á sumarið. GKJ Bestu skógarhnífarnir sýndir á Laugalandi ir. Slysavarnadeildin Hringur í Mývatnssveit festi kaup á og gaf sundlauginni myndavélabúnað til að vakta sundlaugarsvæðið. Sundlaugin í Mývatnssveit var tekin í notkun 1982 og er mikið notuð bæði af heimamönnum og gestum. Til að bæta eftirlit með sundlaugarsvæðinu gaf slysa- varnadeildin Hringur fjórar myndavélar, sem staðsettar eru úti við laugina og heitu pottana og geta gæslumenn fylgst með á skjá inni í húsinu. Þetta þykir hið mesta öryggistæki og auðveldar starfsmönnum eftirlitsstörfin. I dag hefst í handverkshúsinu á Laugalandi í Eyjaljarðarsveit sýning á þeim gripum sem sendir voru inn í keppni á vegum Skóg- ræktar ríkisins og landbúnaðar- ráðuneytisins undir yfirskriftinni „íslenski skógarhnífurinn 1996.“ í keppnina bárust 60 handunnir hnífar frá yfir 40 aðilum víðsvegar um land. í þessum hópi eru margir afar fallegir gripir og sumir hrein listaverk, en smiðirnir koma úr ýmsum starfsstéttum. Má geta þess að Eyfirðingar stóðu sig afar vel í þessari keppni. Sýningin stendur yfir til sunnudagsins 14. júlí og er opin daglega kl. 0-18. HA - segir Sigurður Rúnar Ragnarsson, formað- ur héraðsnefndar Suður-Þingeyjarsýslu „Þetta kemur til með að taka Iengri tíma en ég vona samt að þó sameiningarmál verði ekki rædd núna þá verði sveitar- stjórninrnar jákvæðar fyrir sam- starfi,“ segir Sigurður Rúnar Ragnarsson, sveitarstjóri í Mý- vatnssveit og formaður héraðs- nefndar Suður-Þingeyjarsýslu, aðspurður um hvernig unnið verði úr þeirri könnun um sam- einingarvilja sem lagður var fyr- ir kjósendur í sveitarfélögum í sýslunni samhliða forsetakosn- ingunum á dögunum. Eins og fram hefur komið sner- ist könnunin um það hvort fólk vildi að sveitarstjómimar í Suður- Þingeyjarsýslu töluðu saman um sameiningu og var það samþykkt allstaðar nema í Tjömeshreppi, Hálshreppi og Bárðardal, þó sumsstaðar naumlega. „Það er ekki gott að ráða í það hvað verð- ur en það er þó ljóst að þrjár sveit- arstjómir hafa ekkert umboð til viðræðna, Tjömes-, Hálshreppur og Bárðdælir, þar sem meirihlut- inn sagði nei,“ segir Sigurður Rúnar. „Samvinna hefur gengið allvel um þau mál sem nú þegar er samvinna um og sumum málum væri hreinlega ekki sinnt ef ekki væri um þau samstarf. Dvalar- heimili aldraðra er stærsta sam- starfsverkefni sveitarfélaganna svo og byggingafulltrúinn og heil- brigðisfulltrúinn og þess má geta að velta sameiginlegra verkefna var 130 milljónir á síðasta ári,“ sagði Sigurður Rúnar. GKJ Samvinnuferöir-Landsýn og Úrval-Útsýn: Ekki búiö aö ákveöa haust- ferðirnar Samvinnuferðir-Landsýn verða ekki með bein millilandaflug frá Akureyri í sumar og segir tals- maður fyrirtækisins að ekki sé búið að ákveða hvenær farið verði í haustferðirnar og þá hvert. Úrval-Útsýn segir að fyrsta ferðin út til Zurich í Sviss hafi verið farin 6. júlí síðastliðinn og að flogið verði þangað vikulega það sem eftir lifi sumars. Ekki er búið að taka endanlega ákvörðun um hvenær verður flogið út í haust en áætlað er að fara til Edin- borgar, Glasgow og Newcastle. mgh

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.