Dagur - 11.07.1996, Blaðsíða 9
Listasumar:
Brunahanará
Tuborgjassi
Eins og venjulega á fimmtudögum
á Listasumri verður Tuborgjass
Listasumars og Cafe Karolínu í
Deiglunni. Þann 11. júlí leikur
djasskvartettinn Brunahanar í
Deiglunni og er það í fyrsta sinn
sem hin nýstofnaða sveit kemur
fram opinberlega þó að liðsmenn
hennar hafi leikið saman um hríð.
Kvartettinn skipa: Jóel Pálsson,
saxófónn, Kjartan Valdemarsson,
píanó, Einar Valur Scheving,
trommur, og Þórður Högnason,
kontrabassa. Tónleikamir hefjast
kl. 21.30 og er aðgangur ókeypis.
Brunahunarnir jassa í Deiglunni
á fimmtudagskvöld.
Morgunblaðið á nýjum stað
Afgreiðsla og ritstjórn Morgun-
blaðsins á Akureyri flutti fyrir
skömmu í ný húsakynni að Kaup-
vangsstræti 1, úr Hafnarstræti 85,
þar sem aðstaða blaðsins í bænum
hafði verið um langa hríð. Húsa-
Athugasemd
varðandi
Tröllaskaga-
tvíþraut
í Degi í gær birtist dagskrá vina-
bæjamóts í Ólafsfirði um komandi
helgi. Skíðadeild Leifturs óskar
eftir að koma á framfæri varðandi
Tröllaskagatvíþraut, sem er einn
dagskrárliða á laugardag, að mæt-
ing í þrautina er við félagsheimilið
Tjamarborg kl. 10.30 og þangað
koma þeir með hjól sem ætla að
hjóla. Þar eiga einnig að mæta
þeir sem hyggjast einungis ganga
yfir Reykjaheiði. Farið verður
með rútu til Dalvíkur og göngu-
fólki verður ekið í bæinn frá
Reykjum eftir gönguna yfir
Reykjaheiði. Varðandi útvegun
hjóla er óskað eftir að komið verði
á framfæri að þar sé einungis átt
við erlendu gestina, sem hefðu
áhuga á að vera með. JÓH
kynni Morgunblaðsins á nýjum
stað eru um 120 fermetrar, sem er
helmingi stærra húsnæði en var á
hinum fyrri. „Það breytir öllu fyrir
okkur að komast í nýtt og betra
húsnæði, við komumst varla leng-
ur fyrir á gamla staðnum,“ sagði
Margrét Þóra Þórsdóttir, blaða-
maður, í samtali við Dag. A
meðfylgjandi mynd eru við af-
greiðsluborðið, frá vinstri talið,
þau Margrét Þóra, Kristján Krist-
jánsson, blaðamaður og ljósmynd-
ari, Rebekka Sigurðardóttir, skrif-
stofumaður, Rúnar Antonsson,
dreifingarstjóri, og fyrir innan af-
greiðsluborðið situr Jódís Jóseps-
dóttir, skrifstofumaður.
-SbS./Mynd: BG
SKILAFRESTUR
AUGLÝSINGA
Auglýsendur!
Athugið að skilafrestur
í helgarblaðið okkar
er til kl. 14.00
á fimmtudögum
- já 14.00 á fimmtudögum
D
auglýsingadeild,
sími 462 4222, fax 462 2087
Opið frá kl. 08.00-17.00
Fimmtudagur 11. júlí 1996 - DAGUFt - 9
11.-16. júlí
Danisco franskar kartöflur
750 g kr. 119
O
Hatting pítubrauð kr. 98
O
Feta í kryddolíu 240 g kr. 195
O
Paprikuostur 250 g kr. 128
O
Sveppaostur 250 g kr. 128
O
Rjómaostur m/hvítlauk kr. 69
O
Jarðarber 500 g kr. 179
O
Gular melónur kr. 69 kg
O
Unghænur kr. 99 kg
O
Club saltkex kr. 42
O
Bógsneiðar kryddaðar
kr. 589 kg
O
Hellma mayonnes col.frítt
470 g kr. 139
Þegar þú verslar ódýrt
Opið mánudaga til föstudaga kl. 12-18.30
Laugardaga kl. 10-16 - Sunnudaga kl. 13-17