Dagur - 11.07.1996, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Fimmtudagur 11. júlí 1996
Málin rædd. Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri í umhverfisráðuneyti, og Stefán Skaftason,
búnaðarráðunautur í S-Þingeyjarsýslu.
Landbúnaðarráðherrar fjögurra landa. Kalevi Hemila frá Finnlandi, Annika Ahnberg frá Sví-
þjóð, Guðmundur Bjarnason, og Gunnhild Öyangen frá Noregi.
Á góðri stundu. Sigurður Skúlason, skógarvörður í Vaglaskógi, og Guðmundur Bjarnason, land-
búnaðarráðherra.
Góða veislu gjöra skal.
Vaglaskógur:
Rádherrar
í skógarveislu
Landbúnaðrráðherrar Norðurlanda - og embættismenn í þeim málaflokki - héldu
sameiginlegan fund á Húsavík fyrr í vikunni, þar sem rædd voru ýmis landbúnarmál
þessara landa. Að sögn Guðmundar Bjamasonar, ráðherra, voru skógræktarmál tals-
vert til umfjöllunar á þessum fundi og því var ekki úr vegi að enda fundarhöld þessi
með sameiginlegri skógarveislu í Vaglaskógi, sl. þriðjudagskvöld. Fjölmenni var þar
samankomið og gleðskapur góður. Bomar voru fram veitingar sem gestir þáðu í
veðurblíðunni í skóginum á fallegu sumarkvöldi. Meðfylgjandi myndir vom teknar
þar.
Landbúnaðarmálin hafa hér sjálfsagt verið rædd í botn og vandamálin leyst. Ari Teitsson, for-
maður Bæandasamtaka íslands, og Björn Sigurbjörnsson, ráðuneytisstjóri í landbúnaðarráðu-
neytinu.Mvndir: -shs.
„Independence Day“ í Borgarbíói:
Stærsta mynd sögunnar?
Bandaríkjunum þann 3. júlí og
óhætt er að segja að hún hafi sleg-
ið í gegn því síðastliðin helgi var
sú tekjuhæsta í sögu Hollywood.
Samanlagt fengu bíóhúsin þar
vestra tæpar 173 milljónir dollara
í kassann eftir aðeins 5 sýningar-
daga en svona til samanburðar þá
hefur Jurassic Park, tekjuhæsta
myndin fram að þessu, þénað 900
milljónir. ID4 er nú sýnd allan
sólarhringinn í Bandankjunum
jafnframt því sem slegist er um
miða á nætur- og morgunsýningar.
Independence Day segir frá því
þegar geimverur ráðast að jarðar-
búum og yfirtaka allt með ofbeldi
og eyðileggingu. Risastór geim-
skip taka sér stöðu yfir stærstu
borgum heims og fyrr en varir
hefja geimverumar árás. Nú verða
jarðarbúar að sameinast og berjast
gegn mestu vá sem sótt hefur að
mannkyninu. Titill myndarinnar
Um miðjan agust munu Regnbog- samtímis kvikmyndina Indepen-
inn, Háskólabíó, Laugarásbíó og dence Day eða ID4.
Borgarbíó á Akureyri, frumsýna Mynd þessi var frumsýnd í
vísar einmitt til þjóðhátíðardags
Bandaríkjanna, 4. júlí, en þann
dag átti árás geimveranna að hefj-
ast.
Leikstjóri er Roland Emme-
rich, sá sami og leikstýrði Star-
gate. Hann skrifaði handritið að
ID4 á 30 dögum ásamt framleið-
andanum Dean Devlin, eftir að
svissneskur blaðamaður hafði ein-
hvem tíma spurt Emmerich hvort
hann tryði á geimverur. Emmerich
sagðist ekki gera það... en eitt-
hvað hlýtur honum að hafa snúist
hugur! Þeir félagar stæra sig víst
mikið af því að láta myndir líta út
fyrir að kosta helmingi meira en
þær gera í rauninni. Og til þess
nota þeir að sjálfsögðu hinar ótrú-
legustu tæknibrellur, eins og sjást
ÍID4.
Með helstu hlutverk fara Jeff
Goldblum (The Fly, Jurassic
Park), Bill Pullman (While You
Where Sleeping, Mr. Wrong) og
Will Smith (Bad Boys). EJ