Dagur - 23.08.1996, Blaðsíða 3

Dagur - 23.08.1996, Blaðsíða 3
í DAOSLJÓSINU 6G6 r íöugfi .SS lypsbuíaöR - RUÐAQ - S Föstudagur 23. águst 1996 - DAGUR - 3 Steinkirkja átti að rísa á Breiðabólstað: Biðin langa ..Til að taka af öll tvímæli um lengur á forna frægð, er ungur vegleika Inisa á íslandi skal og stórhuga höfðingi fellur frá þess getið, að dómkirkjurnar á og ekki verður úr því verki er Hólum og í Skálholli. er voru hann hugðist að framkvæma. jalnslórará 12. og 13. ölct, voru Steinkirkja á Brciðabólstað l'rá stærstu timburkirkjur, sem sög- miðri 12. öld gæti því eins vcl ur l'ara af á Norðurlöndum; 50 staðið þar enn í dag og sam- m á lengd, I2 m breiðar og 20 bærileg hús í nágrannalöndun- m um þverskip, en líklega allt unt. Þarf ekki að orðlengja um að 13 m lofthæð upp í rjáfur. ... það hver vegsauki Breiðaból- Á allmörgum stöðum voru stal'- stað hefði orðið að steinkirkju kirkjur og líklega á Brciðaból- Illuga og væri enn, en hinsvcgar stað; en óefað hefur kirkjuhús ætlandi að fleiri hel'ðu farið að þar verið veglegt rnjög, fyrst hans dæmi, ef til lykta var leitt. ætlað var að reisa þar stein- Atiðunn biskup rauður lagði kírkju, en betur stæði en háreist löngu síðar, eða á öðrunt áratug timburbygging. Svo vil til að í 14. aldar, hornstein að mikilli lok Kristnisögu segir frá því, cr steinkirkju á IJólunt, en ekki lllugi Ingimundarson, dótlurson varð úr vegna skammlífis hans Hafliða Mássonar, drukknaði. á stólnum. Steinkirkja var fyrst cr hann flulti lím til steinkirkju vfgð á Hólum haustið 1763, þeirrar, er hann ætlaði að gera á nærri hálfri 5. öld síðar, Voru staðnum. Er þetta eina dæmið þá liðnir 612 vetur frá því er um sleinkirkjusmíði á þjóðveld- stcinkirkjan átti að rísa vestur á isöldinni, og varð hún þó svo Breiðabólstað." endaslepp. Hér er eitl það óhapp þessa rnikla staðar, er (Fora testaur, ,, Ágú.st sisurW. veldur þvf, að ekkert minnir i. bimii bis. 173 iii r74) Mynd: KB Breiðabólstaðarkirkja í Vesturhópi. Merkar fornminjar finnast viö uppgröft að Breiöabólstað í Vesturhópi: Grunnur steinkirkju llluga fundinn? Hjörleifur Stefánsson arkitekt vann að uppgreftrinum, en hann er manna fróðastur um byggingalist á íslandi fvrr á öldum. Mynd: KB Eins og fram kom í Degi í gær var við fomleifauppgröft að Breiða- bólstað í Vesturhópi í Húnaþingi, fyrr í vikunni, komið niður á merkar steinhleðslur sem kunnug- ir telja að geti verið grunnur fyrstu steinkirkjunnar á íslandi. Þá hafa, undir hlöðnum steinvegg, fundist bæjarrústir og eldstæði, sem líkur benda til að séu frá landnámsöld. Guðmundur Ólafsson, fomleifa- fræðingur, og Hjörleifur Stefáns- son, arkitekt, önnuðust þennan uppgröft sem unnið var að í byrj- un vikunnar. I samtali við Dag sagði Guðmundur þetta vera merkan fornleifafund sem ástæða sé til að athuga nánar, en slíkt ráð- ist af fjárveitingum - sem nú þeg- ar eru skomar við trog. „Það sem er athyglivert varð- andi þennan fornleifafund er að við erum komin lengra aftur í tím- ann, en elstu heimildir geta sagt um búsetu hér á Breiðabólstað. Við höfum fundið hér rústir af bæ sem líklega er frá landsnámsöld. Landnáma segir frá Sóta sem nam Vesturhóp og byggði bæ sinn und- ir Sótafelli, sem stendur einmitt beint upp af Breiðabólstað. Þá fundum við reglulegar steinhleðsl- ur sem við höfum velt fyrir okkur hvort geti verið grunnur að stein- kirkju þeirri sem Illugi Ingimund- arson hugðist reisa á staðnum um árið 1150,“ segir sr. Kristján Bjömsson á Hvammstanga, sókn- arprestur í Breiðabólstaðarpresta- kalli, sem fylgst hefur með upp- greftrinum. Höfuðstaður í Hólastifti Breiðabólstaður í Vesturhópi er einn af höfuðstöðum kristni í Hólastifti og ýmsir höfðingjar sátu staðinn fyrr á öldum. Þar sat Haf- liði Másson, lögmaður Norðlend- ingafjórðungs, sem frægastur var fyrir deilur sínar og bardaga við Þorgils Odsson á Staðarhóli, sem urðu þess valdandi að hann missti einn fingur. Hafliði krafðist firna- mikilla bóta fyrir fingu.inn - og síðan hefur að orðtæki verið haft að dýr myndi Hafliði allur. Dóttursonur Hafliða var áður- nefndur Illugi Ingimundarson, en meðal fyrirætlana hans um viðreisn Breiðabólstaðar var að reisa þar steinkirkju um miðja 12. öldina. Segir frá því í Kristnisögu að Illugi hafi farið utan til Noregs að sækja steinlím til byggingar kirkjunnar, en aldrei komið til baka úr þeirri ferð. Að hugmyndin um steinkirkju hafi farið með honum í hafið. Tilhöggnir steinar Upphaf rannsóknanna var að í lok síðasta mánaðar var unnið að greftri við kirkjugarðsvegg á Breiðabólstað og var þá komið niður á tvo aldagamla tilhöggna steina. Þetta vakti athygli og var Þór Magnússon, þjóðminjavörður, sem fæddur er og uppalinn á Hvammstanga, kallaður til. Hann og sr. Kristján Bjömsson könnuðu aðstæður og var mat Þórs að frek- ari rannsókna væri þörf. Sem áður segir var í þessari rannsókn, sem þó er ekki ítarleg, komið niður á gólf bæjar sem tal- inn er geta verið frá landnámsöld, - og þá kornu rnenn einnig niður á reglulega steinhleðslu milli kirkju og núverandi bæjarhúsa á Breiða- hólstað, sem verið gæti grunnur að kirkju. Milli steina fannst í vik- unni kalkkennt efni, unnið úr skeljum, sem menn velta nú fyrir sér hvort verið gæti leifar af stein- lírni. Sýni af þessu efni hafa verið tekin til efna- og aldursgreiningar. Getgátum kollvarpað Til þessa hefur verið talið að framkvæmdir við gerð steinkirkj- unnar góðu hafi aldrei farið af stað, en með fomleifarannsóknum vikunnar hafa komið frant vís- bendingar sem geta kollvarpað þessum getgátum. Og í fáum orð- um sagt standa rnenn nú frammi fyrir eftirfarandi spurningum: Að rústir landnámsbæjar á Breiðaból- stað séu leifar af bæ þeim sem Landnáma segir að Sóti hafi byggt undir Sótafelli, en það er einmitt íjallið sem stendur beint uppaf bænum. Hin spurningin er eftir- farandi: Var sr. Illugi Ingimundar- son byjaður á grunni fyrstu stein- kirkju á Islandi, þegar hann fór ut- an urn rniðbik 12. aldarinnar að sækja steinlím. Jákvæð svör við báðum þessum spumingum eru ekki fráleit. Almennt vilja fróðir menn þó fara varlega í sakirnar í þessu máli og taka ekki stórt upp í sig. Guð- rnundur Ólafsson, fomleifafræð- ingur, kvaðst til að mynda í sam- tali við blaðið um þetta mál, vilja fara afar varlega í sakimar með fullyrðingar. Hann segir þetta þó vera merkasta mál sem ástæða sé að kanna nánar. Að hans sögn eru það algjörar fruntrannsóknir sent nú hafa verið gerðar. Ástæða sé þó til að kanna rnálið frekar, en það sé þó undir fjárveitingum komið. Hefur Þjóðntinjasafnið alls ekki úr þeim peningum að spila að það geti rannsakað þær fomleifar sem það vill og telur ástæðu til. -sbs. Kirkjan í Hvalsey í Eystribyggð á Grænlandi er hlaðin snemma á öldum af íslendingum þeim sem þá byggðu landið. Um 1500 lagðist búseta þeirra í landinu af. En ef til vill heföi steinkirkjan að Breiðabólstað ekki litið ósvipað út og steinkirkjan í Hvalsey. Mynd: -sbs. Tilhöggnir steinar hafa fundist í uppgrel'trinuin og ekki þykir fjarstæðu- kennt að þeir séu úr steinkirkju Illuga Ingimundarsonar. Mynd: KB

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.