Dagur - 23.08.1996, Blaðsíða 7
HVAÐ ER AÐ CERAST?
Föstudagur 23. ágúst 1996 - DAGUFt - 7
„Óperu-þykkni“ á
Akureyri og Húsavík
Þingeyska þremenningaklíkan
Alltof langt-gengið, nánar tiltek-
ið þeir Ármann Guðmundsson,
Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir
Tryggvason, hyggjast skemmta
Norðlendingum um helgina með
sýningum á söngleiknum Bíbí
og blakan (á valdi kaldhæðni ör-
laganna), sem þeir félagar kjósa
að kalla óperuþykkni.
Ármann, Sævar og Þorgeir
eru norðlensku leikhúsáhuga-
fólki að góðu kunnir, en þeir
skrifuðu m.a. Góðverkin kalla -
átakasaga, fyrir Leikfélag Akur-
eyrar á sínum tíma. Einnig hafa
ýmis áhugaleikfélög víða um
land notið krafta þeirra.
Bíbí og blakan rekur á grá-
glettinn hátt sögu hinnar dular-
fullu Bíbíar og tveggja enn dul-
arfyllri karlmanna, ástum þeirra
og örlögum í ómögulegum
heimi óperunnar þar sem allt er
mögulegt og leðurblökur og
næturdrottningar eru daglegt
brauð.
Flytjendur auk höfundanna
þriggja eru Silja Björk Ólafs-
dóttir og Hulda Hákonardóttir.
Undirleik annast Gunnar Bene-
diktsson.
Sýnt verður í Samkomuhús-
inu á Húsavík í kvöld, föstudag-
inn 23. ágúst, og í Deiglunni á
Akureyri laugardaginn 24. ágúst
og sunnudaginn 25. ágúst.
Sýningamar hefjast kl. 21:00
en verkið er um klukkustundar
langt.
Hollenskur dans
í Deiglunni
í kvöld, föstudaginn 23. ágúst
kl. 21, verður danssýning í
Deiglunni á Akureyri, þar sem
Ingrid Zalme frá Hollandi dans-
ar verk sitt „The Only One“.
Verkið er nýtt af nálinni og er
því um heimsfrumsýningu að
ræða.
Ingrid er atvinnudansari í
Hollandi og kallar dans sinn
súrrealískt hreyfileikhús. Hún
fjallar í verkinu um erfitt líf for-
sögulegra vera í heimi nútím-
ans. I sýningum sínum notar
Ingrid Zalme ýmis konar tækni
svo sem litskyggnur ofl. Hér er
á ferðinni ákaflega forvitnilegur
listviðburður og ættu unnendur
dans og leikhúss ekki að missa
af honum.
Síðasta sýningarhelgi
Þúsundþjalasmiðurinn, málar-
inn, myndhöggvarinn, leik-
tjaldamálarinn, kennarinn og
myndlistarkrítíker Dagsljóss,
Vignir Jóhannsson, gefur Ákur-
eyringum kost á að skoða í kistu
sína í Deiglunni um þessar
mundir.
Vignir sýnir veggverk úr tré
og eir ásamt frístandandi skúlp-
túr. Vignir, sem er Akumesing-
ur, útskrifaðist frá grafíkdeild
Myndlista- og handíðaskólans
1979, en hélt í framhaldsnám til
N- Ameríku þar sem hann bjó í
allmörg ár að loknu námi. Vign-
ir býr og starfar í Reykjavík um
þessar mundir og hefur ekki
sýnt á Akureyri áður. Sýning-
unni lýkur 26. ágúst.
Flóamarkaður
Hjálpræðishersins
I dag kl. 10-17 verður opinn flóa-
markaður Hjálpræðishersins að
Hvannavöllum 10 á Akureyri. Það
færist sífellt í aukana að fólk gefi
notaðan fatnað á markaðinn og
því hefur úrvalið sjaldan verið
meira á bæði böm og fullorðna.
Berjaferð á Flateyjardal
Á morgun, laugardaginn 24.
ágúst, verður farin berjaferð í
Flateyjardal í Skjálfanda á vegum
Ferðafélags Akureyrar. Farið
verður í land Brettingsstaða.
Brottför er kl. 8 og gert ráð fyrir
að lagt verði af stað til baka um
kl. 17. Fólk er beðið að athuga að
ef mikið verður um óþroskuð ber,
er frekar ástæða til að handtína.
A sunnudag verður lagt í þriðja
hluta afmælisraðgöngu Ferðafé-
lags Akureyrar. Gengið verður frá
Sörlastöðum í Fnjóskadal, farið
um gamlan reiðveg yfir Vallafjall
og komið niður hjá Stóruvöllum í
Bárðardal. Þetta er um 12-13 km
leið og tekur um 6 klst. Brottför er
kl. 9. Nánar upplýsingar eru veitt-
ar á skrifstofu FA, sem er opin
alla virka daga milli kl. 16 og 19.
Síminn er 462 2720.
Minjasafnið opið um helgina
Minjasafnið á Akureyri er opið
alla daga frá kl. 11 til 17 og em
Akureyringar, Eyfirðingar og
ferðafólk boðið velkomið. Sýn-
ingar safnsins hafa verið endur-
bættar á undanfömum árum og
því eflaust eitthvað nýtt fyrir
flesta að sjá. Aðgangseyrir er kr.
250 en frítt fyrir eldri borgara og
böm á grunnskólaaldri.
Uppskeruhátíð
unglingavinnunnar
I kvöld, föstudaginn 23. ágúst,
verður uppskeruhátíð unglinga-
vinnunnar í Dynheimum á Akur-
eyri. Þeir unglingar sem hafa
starfað hjá unglingavinnunni í
sumar (fæddir 1980, 1981 og
1982) eru boðnir velkomnir. Ball-
ið hefst kl. 20 og stendur til 24.
Verðlaun verða veitt fyrir frum-
Þórey sýnír á
Hótel Hjalteyri
Nú stendur yfir sýning á verkum
Þóreyjar Eyþórsdóttur á Hótel
Hjalteyri þar sem hún sýnir eink-
um myndvefnað og textflverk,
sem hún hefur unnið á þessu ári.
Á sýningunni má m.a. sjá íslensk-
an krosssaum og refilsaum.
Þetta er síðasta myndlistarsýn-
ing sumarsins á Hótel Hjalteyri.
Sýningunni lýkur á síðasta opnun-
ardegi sumarsins á Hótel Hjalt-
eyri, 31. ágúst nk.
legasta búninginn. Aðgangur er
ókeypis.
Tvær hljómsveitir í Árskógi
Mikið verður um dýrðir í Árskógi
á Árskógsströnd í kvöld þegar
hljómsveitirnar Reggae on Ice og
Sólstrandargæjarnir spila fyrir
dansi. Sætaferðir frá Siglufirði,
Ólafsfirði, Dalvík og Akureyri.
Greifarnir í Sjallanum
Hljómsveitin Greifamir skemmtir
gestum Sjallans á Akureyri í
kvöld, föstudagskvöld. Ánnað
kvöld verður diskótek í Sjallanum
þar sem Dabbi Rún snýr diskum.
Húsið verður opnað kl. 24.
í Kjallaranum verður Guð-
mundur Rúnar Lúðvíksson í kvöld
og annað kvöld.
Flóamarkaður í Kjarnalundi
Flóamarkaður Náttúmlækningafé-
lags Akureyrar verður í Kjama-
lundi nk. mánudagskvöld kl. 20-
22. í boði er ætíð mikið af góðum
fatnaði, bókum o.fl. Allir munimir
eru ódýrir.
Independence Day
í Borgarbíói
Aðalmynd Borgarbíós á Akureyri
um helgina verður eins og um síð-
ustu helgi stórmyndin „Indepen-
dence Day“. Fyrstu sýningarhelg-
ina komu yfir 2000 manns á
myndina á Akureyri og enn er
stöðugur straumur fólks á hana.
ID 4 verður sýnd í kvöld kl.
18.30, 21 og 23.30. Annað kvöld,
sunnudagskvöld, mánudagskvöld
og þriðjudagskvöld verða sýning-
ar kl. 20 og 23.
Annað kvöld og sunnudags-
kvöld verður sýnd kl. 21 myndin
Dead Presidents og kl. 23.15 birt-
ist á hvíta tjaldinu myndin Don’t
be a Menace. Á sunnudag kl. 15
verður sýnd myndin Dunston
Checks In.
Dönsk
hönnun í
KetiUmsinu
Á morgun, laugardag, kl. 16
verður opnuð í Ketilhúsinu á
Akureyri sýning á ýmiskonar
danskri hönnun. Þessi sýning
markar upphaf danskrar viku,
sem verður í næstu viku og
rekur einn viðburðurinn annan.
Að sýningunni standa danska
sendiráðið á íslandi, Akureyr-
arbær og Listasafn Akureyrar.
Sýningin verður opin frá kl. 16
á morgun og síðan alla daga
kl. 14-18.
Ástæða er til að hvetja fólk
að fjölmenna í Ketilhúsið og
skoða danska hönnun, (hús-
gögn og margt fleira) sem má
fullyrða að sé mjög athyglis-
verð.
Knut Eckstein sýnir í Galleríi +
Gallerí + í Brekkugötu 35 á Akureyri verður opnað
aftur eftir sumarfrí nk. sunnudag, 25. ágúst, kl. 16
með sýningu Þjóðverjans Knut Eckstein. Sýningin
nefnist Mont- BÍanc.
Knut Eckstein stundaði nám í skipasmíðum og
síðan myndlistamám í Hochschule fiir Kiinste í
Bremen í Þýskalandi og varð meisterschiiler 1993.
Hann hefur síðan þá tekið þátt í fjölmörgum samsýn-
ingum og haldið sjö einkasýningar í Frakklandi og
Þýskalandi. Hann hefur einnig hlotið nokkrar viður-
kenningar fyrir verk sín. Nýverið hlaut hann hinn eft-
irsótta DAÁD styrk til árs dvalar í New York og á
leið sinni vestur um haf kemur hann við í Galleríi +
og gefst Akureyringum og gestum tækifæri til að sjá
og heyra verk hans.
Knut Eckstein vinnur gjaman með umhverfi sitt
með innsetningum og notar oft efni eins og pappa,
plast, gler, myndbönd, hljóð og ljós. Verk hans em
afar spennandi í einfaldleika sínum og fjalla líka um
hluti og aðstæður sem fólk kannast auðveldlega við.
Hann tók þátt í sýningunni „Sýnir og veruleiki“ í
Galleríi Gúlp með hljóðverk nú fyrir skömmu. Knut
Eckstein verður viðstaddur opnunina í Galleríi +
Gallerí + hefur verið starfrækt frá því í febrúar.
Þar eru reglulega haldnar sýningar og hefur galleríið
vakið mikla athygli, ekki síst utan Akureyrar. Gallerí
+ er hugsað fyrir tilraunir starfandi myndlistarmanna
sem vilja notfæra sér óhefðbundið rými fyrir hug-
myndir sínar. Næstu sýningar í haust og vetur em
með Ástu Ólafsdóttur, Þorvaldi Þorsteinssyni, Joris
Rademaker, Pétri Emi Friðrikssyni og Jóni Laxdal
Halldórssyni.
Gallerí + er opið laugardaga og sunnudaga milli
kl. 14 og 18. Sýningin stendur til 8. september.