Dagur - 23.08.1996, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Föstudagur 23. ágúst 1996
BR/EÐINOUR
Afhentu
barna-
deild FSA
höfðing-
lega gjöf
Þeir félagarnir Valdimar Þengilsson
og Sigfús Orn Sigurðarson, 9 ára,
færðu barnadeild FSA á Akureyri
nýlega gjöf sem voru LEGO-kubbar
að verSmæti um 12 þúsund krónur.
A myndinni eru þeir fóstbræðurnir
meS gjöfina áður en hún var af-
hent. Mynd/txt:GG
Hvað
veistu?
Þú ert draumur en dálítið feit,
þú ert dyggðug en samt nokkuð tæp,
þú ert saklaus ag ofan úr sveit,
skyld þeim svívirðilegasta glæp,
og ég hata þig hérumbil núll,
jafnt í hinsta sem alfyrsta sinn.
Og ég brýst til þín út og brýst inn
gegnum atóm og sól, jörð og túngl.
Stórskemmtilegt IjóS sem nefnist
„Draumurinn". Hver yrkir svo?
•ssauxD-] J9p|pH §ip|D>|SS|aqoN - dui9j6 |ij jnujs>j uuið supgy
—
Hvað ætlar
þú að gera
unt helgina?
Margrét Erlendsdóttir hefur veriS fréttamaður hjá Ríkisútvarp-
inu á Akureyri í fjögur ár. Hún lætur af störfum um mánaSa-
mótin ágúst-september og fer til Reykjavíkur. Margrét segist
hafa í nægu aö snúast um helgina. „Á laugardaginn ætla ég
að halda kveðjuhátíðina „Bless Akureyri" en hún er fyrir sam-
starfsfólk mitt hér hjá Rúvak. Á sunnudaginn ætla ég að vakna
klukkan sex, eftir veisluna miklu, og draga fram rakstrarvélina
og raka saman dótinu eftir samkvæmið. Síðan ætla ég að ná
mér í pappakassa og undirbúa flutninginn suður með því
^pakka niður mínum jarðnesku eigum,"
r
Minkur nemur land
'N
I Öldinni okkar árið 1931 er greint frá bví að Gunnar Sig-
urðson á Selalæk hafi fengið þrjá minka frá Sviþjóð, Ivö
kvendýr og eitt karldýr. Síðan segir í Öldinni: „Minkur er
mikið ræktaður á Norðurlöndum og fást af honum verðmæt
skinn. Hann er af
marðarkyni, einna
líkastur hreysiketti á
vöxt, langur og mjór,
syndur eins og selur
og snöggur í hrevf-
ingum. Aðalfæða
hans er fiskur og
þess vegna borgar
sig bezt að rækta
hann [Dar sem hægt
er að tá ódýran fisk."
Fróðleikur
Hvað voru mörg hlé?
Lengsta skráð leiksýning er The Acting Life
sem sýnd var 17.-18. mars 1984 í Tom Mann
leikhúsinu í Sydney í Ástralíu. Flutningur leik-
ritsins tók 19 klukkustundir og 15 mínútur og
21 klukkustund að meðtöldum hléum.
Heilræði dagsins
Besta ráÖið til aö láta leika á sig, er að álíta
sig slungnari en aðra.
____í eldlínunm__________
Sigfús Karlsson:
Erfitt að lenda í miklum vindi
„Þetta er dálítið erfitt, sérstaklega ef maður lendir í miklum vindi á þessum
litlu bátum því þeir eru á ferS og flugi, enda er ég yfirleitt lurkum laminn eftir
svona rnót," segir Sigfús Karlsson, stjórnarmaður í Sjóstangaveiðifélagi Akur-
eyrar, SJÓVAK og einn 56 keppenda á móti sem félagiS gengst íyrir um
helgina.
Lagt er út frá Dalvík klukkan sjö árdegis, í dag og á morgun og Sigfús
segir að hann þurfi að koma sér á fætur klukkan hálf-fimm, báða morgnana.
-En út á hvaS gengur þessi íþrótt?
„Allt þaS sem kemur á krókinn er tekiS upp, en ef ufsi og þorskur er undir
45 sm þá er honum gefið líf. Stig eru síSan gefin, eftir því hvar menn lenda í
mótinu og á bátum sínum. ÞaS hefur gengið ágætlega hingaS til. Ætli sveitin
mín sé ekki búin að vinna fjögur eða fimm af síðustu sjö mótum og einn sveit-
armeðlimurinn, Hafþár Gunnarsson, er að berjast um Islandsmeistaratitilinn."
Spurning vikunnar _SpurL á Akureyri
Telur þú að Eyfirðingar geri opinberlega meira úr veðrinu en aðrir landsmenn?
Sigurbjörn Viðarsson: Hjörtur Þór Frímannsson:
Ja, þaS er þó ástæða til þess. Er ekki Nei, þaS tel ég ekki.
veSriS alltaf best hérna?
Kári Karlsson:
Nei, mér finnst þaS nú ekki en þaS er
bara oft svo gott veSur hérna. Stundum
heitara en veSurstofurnar segja til um.
Sigurveig Bergsteinsdóttir:
Nei, alls ekki. Mér finnst ekki
heyrast neitt meira frá okkur en
fjölmiSlunum fyrir sunnan.
Guðrún Erlendsdóttir:
Nei, ég held aS þaS sé bara
staSreynd aS besta veSriS á landinu
sé hér á Akureyri.