Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1994, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 1994
45
Ásgeir Smári fyrir framan eina
mynd sína.
Danskir dagar
Ásgeirs Smára
Um síöustu helgi opnaði Ásgeir
Smári Einarsson sýningu á olíu-
myndum í Gallerí Fold, Lauga-
vegi 118d (gengið inn frá Rauðar-
árstíg). Sýninguna nefnir hann
Danska daga. Ásgeir Smári er
fæddur 1955 í Reykjavík. Eftir að
hann útskrifaðist úr Myndlista-
Snjór kom-
inná
norðanvert
hálendið
Yfirleitt er færð á vegum góð, en á
þessum árstíma getur fyrirvaralitið
Færð á vegum
myndast hálka, einkum á heiðum og
er víða hált á morgnana þessa dag-
ana á Vestfjörðum, Norðurlandi og á
Austfjörðum. í gær var til að mynda
hálka í Vatnsskarði á leiðinni norður
á Akureyri og hálka er víða á alfara-
leiðum á Vestíjörðum. Hálendisvegir
eru flestir færir enn þá en nopkkur
snjór er þó kominn á norðanvert
hálendið.
Sýningar
og handíðaskóla íslands stundaði
hann nám við listaskólann DFK
í Stuttgart.
Yrkisefni Ásgeirs Smára er
borgin og borgarlífið. Hann hefur
haldið fjölmargar einkasýningar
hér á landi, í Danmörku og
Þýskalandi, auk þess sem hann
hefur tekið þátt í samsýningum.
Síðastliðið ár hefur Ásgeir Smári
dvalið í Danmörku. Á sýningunni
má sjá hluta af þeim verkum sem
hann málaði þar og þess vegna
kýs listamaðurinn að kalla sýn-
inguna Danska daga.
I kynningarhorni GaUerí Fold-
ar er sýning á myndum eftir
Kristínu Amgrímsdóttur sem
fædd er 1953. Kristín hefur haldið
nokkrar einkasýningar og tekið
þátt í samsýningum og eru mynd-
ir hennar sem hún sýnir unnar
með blandaðri tækni.
Hákarlar eru yfirleitt ekki sá fisk-
ur sem veiðimenn sækjast eftir.
Mannætu-
hákarlveiddur
á stöng
Stærsti skrásetti fiskur, sem
veiðst hefur á stöng, er hvítur
mannætuhákarl (Charcarodon
charcharias). Þegar hann var
vigtaður reyndist hann vera 1208
kíló og 5,13 metra langur. Sá sem
veiddi hákarlinn í Denial-flóan-
um við strendur Ástralíu heitir
Alf Dean. Þetta átti sér stað 1959.
Enn stærri hákarl var veiddur á
stöng í Ástralíu 1976 en það met
fékkst ekki staðfest þar sem notað
var hvalkjöt sem beita. Þessir
Blessuð veröldin
hákarlar eru þó ekki nema smá-
smíði miðað við hvíta hákarlinn
sem nokkrir fiskimenn veiddu
með handskutli í höfninni á San
Miguel á Azoreyjum í júní 1978.
Hann reyndist vera 4536 kíló og
9 metra langur.
Lengsta viðureignin
Lengsta skráða viðureign eins
manns við fisk er 32 klst. og 5
mínútna viðureign Donalds Heat-
ley við merling við Major-eyju á
Nýja-Sjálandi í janúar 1968. Við-
ureigninni lauk með tapi veiði-
mannsins en áður en fiskurinn
sleit sig lausan hafði hann dregið
12 tonna skemmtibátinn 80 kíló-
metra vegalengd.
Kuran-Swing áKringlukránni:
í kvöld mun Kuran-Swing vera
með tónleika á Kringlukránni. Þar
munu Szymon Kuran og félagar
hans þrír leika órafmagnaða
swingtónlist, frumsamin lög og
„standard" sígaunalög.
Hljóöfæraskipan í Kuran-Swing
er nokkuð sérstök og á sér ekki
hliðstæðu hér á landi, tveir gitarar,
fiðla og kontrabássi. Þaö er foring-
inn sjálfur, Szymon Kuran, sem
leikur á fiðlu, Bjarni Sveinbjörns-
son leikur á kontrabassa og gitar-
leikararnir eru Björn Thoroddsen
og Ólafur Þóröarson.
Kuran-Swing var stofnað 1989 og
hefur leikíð bæði hér heima og er-
lendis við góöar undirtektir. Um
þessar mundir er kvartettinn að
vinna að annarri hljómplötu sinni
Kuran-Swing leikur órafmagnaða tonlisi.
og verður efni á þeirri plötu ein- kvartettsins. Tónleikamir hefjast
göngu frumsamið af meðlimum kl. 22.00 og er aögangur ókeypis.
Litla telpan á myndinni fæddist
sunnudaginn 18. september kl.
20.47 á fæðingardeild Landspítal-
ans. Hún var 50 sentímetra löng
þegar hún var mæld og vó 14 merk-
ur. Foreldrar hennar eru Auöur
Skúladóttir og Hjörtur Fjeldsted og
systkini hennar eru Viktor Helgi,
7 ára, og Fanný Heiða, 4 ára.
Woody Harrelson leikur annað
aðalhlutverkið í Kúrekum í New
York.
Nútímakúrekar
í nútímaborg
Háskólabíó sýnir um þessar
mundir gaman- og spennumynd-
ina Kúrekar í New York (Cow^
boys in New York) þar sem þeir
Woody Harrelson og Kiefer Sut-
herland fara með hlutverk kú-
reka frá Nýju-Mexíkó sem hafa
það að atvinnu aö keppa á ótemju.
Þeir mega muna tímana tvenna
þegar myndin hefst en taka sig
þó saman í andlitinu þegar það
fréttist að vinur þeirra hafi horfið
í New York og fara að leita að
honum.
Woody Harrelson, sem leikur
annað aðalhlutverkið, hefur átt
Bíóíkvöld
velgengni að fagna að undan-
fómu og leikur hann eftirminni-
lega aðalhlutverkið í nýjustu
kvikmynd Olivers Stone, Natural
Borne Killers sem vakið hefur
mikið umtal.
Woody Harrelson hefur einnig
gert góða hluti á leiksviði og lék
til að mynda á Broadway í Brook-
lyn Laundry á móti Glenn Close
og Laura Derm árið 1991.
Nýjar myndir
Háskólabíó: Loftsteinamaðurinn.
Háskólabíó: Jói tannstöngull.
Laugarásbíó: Dauðaleikur.
Saga-bíó: Skýjahöllin.
Bíóhöllin: Leifturhraði.
Stjörnubió: Úlfur.
Bíóborgin: Sonur Bleika pardussins.
Regnboginn: Neyðarúrræði.
Gengið
Almenn gengisskráning LÍ nr. 232.
05. október 1994 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 67,620 67,820 67,680
Pund 107,210 107,530 106,850
Kan.dollar 50,230 50,430 50,420
Dönsk kr. 11,1610 11,2060 11,1670
Norsk kr. 10,0250 10,0650 10,0080
Sænsk kr. 9,1440 9,1800 9,1070
Fi. mark 14,0540 14,1100 13,8760
Fra. franki 12,7940 12,8450 12,8410
Belg. franki 2,1247 2,1332 2,1325
Sviss. franki 52,6900 52,9000 52,9100
Holl. gyllini 39,0300 39,1900 39,1400
Þýskt mark 43,7300 43,8600 43,8300
It. Ifra 0,04307 0,04329 0,04358
Aust. sch. 6,2080 6,2390 6,2310
Port. escudo 0,4281 0,4303 0,4306
Spá. peseti 0,5267 0,6293 0,5284
Jap. yen 0,67800 0,68000 0,68620
írskt pund 105,880 106,410 105,680
SDR 98,90000 99,39000 99,35000
ECU 83,5800 83,9100 83,7600
Símsvari vegna gengisskráningar 623270.
Krossgátan
7 5~" ■7 r L> jT~
5 1 L,
/0 i "
ir~ )rJ )<+
TT-
1$
T J 22
Lárétt: 1 hrúður, 8 þræði, 9 blað, 10 enn,
11 skóli, 12 sefa, 14 spil, 16 kaka, 18 berg-
málið, 20 drykkur, 21 hamur, 22 frost-
skemmd. <1—
Lóðrétt: 1 skass, 2 deila, 3 kvendýr, 4
skoruna, 5 ferðalagið, 6 handlegg, 7 skem-
ill, 13 tryllta, 15 nesti, 17 málmur, 18 vein,
19 umdæmisstafir.
Lausn á siðustu krossgátu.
Lárétt: 1 verk 5 vis, 7 ágerast, 9 engil,
10 ær, 11 falskt, 13 skutlar, 15 tein, 17
úrs, 19 ar, 20 litla.
Lóðrétt: 1 vá, 2 egna, 3 reglu, 4 kristni,
5 val, 6 ísætar, 8 trúr, 12 klút, 14 ker, 16
U, 18 sa.