Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1994, Qupperneq 6
22
FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1994
Föstudagur 21. október
SJÓNVARPIÐ
16.40 Þingsjá. Endurtekinn þáttur frá
fimmtudagskvöldi.
17.00 Leiðarljós (5) (Guiding Light).
Bandarískur myndaflokkur.
17.50 Táknmálsfréttir.
18.00 Bernskubrek Tomma og Jenna
(9:26) (Tom and the Jerry Kids). Banda-
rískur teiknimyndaflokkur meö
Dabba og Labba o.fl. Leikraddir
Magnús Ölafsson og Linda Gísla-
dóttir.
18.25 Úr ríki náttúrunnar: „Kló er fall-
eg þín...“ (6:7) - Smáir en knáir
(Velvet Claw: Small and Deadly).
Nýr breskur myndaflokkur um þró-
un rándýra í náttúrunni allt frá tím-
um risaeólanna.
18.55 Fréttaskeyti.
19.00 Fjör á fjölbraut (3:26) (Heart-
break High). Ástralskur mynda-
flokkur sem gerist meóal unglinga
í framhaldsskóla.
20.00 Fréttir.
20.35 Veöur.
20.40 Kastljós. Fréttaskýringaþáttur.
Umsjón. Gunnar E. Kvaran.
21.10 Derrick (7:15) (Derrick). Þýsk
þáttaröö um hinn sívinsæla rann-
sóknarlögreglumann í Múnchen.
Aðalhlutverk: Horst Tappert.
22.15 Maöurinn á ströndinni
(L'homme sur les quais). Frönsk/kana-
dísk bíómynd frá 1993. Kona rifjar
upp óþaegilegar minningar úr
æsku sinni undir ógnarstjórn Duv-
alier-fjölskyldunnar á Haítí. Mynd-
in var valin í aöalkeppni kvik-
myndahátíðarinnar í Cannes 1993.
Leikstjóri: Raoul Peck. Aðalhlut-
verk: Toto Bissainthe, Jean-Mic-
hel Martial, Patrick Rameau, Mi-
reille Metellus og JenniferZubar.
23.55 Lenny Kravitz á tónleikum
(Lenny Kravitz Unplugged). Tónlistar-
þáttur meö bandaríska rokkaranum
Lenny Kravitz.
0.40 Útvarpsfréttir i dagskrárlok.
16.00 Popp og kók (e).
17.05 Nágrannar.
17.30 Myrkfælnu draugarnir.
17.45 Jón spæjó.
17.50 Eruö þiö myrkfælin? (Are You
Afraid of the Dark? II) (5.13).
18.15 Stórfiskaleikur. (Fish Police).
18.45 Sjónvarpsmarkaöurinn.
19.19 19.19.
20.20 Eiríkur.
20.50 Kafbáturinn. (SeaQuest D.S.V.)
(11.23).
Roger Moore er i hlutverki
007 á föstudagskvöld á Stöð
2.
21.45 Njósnarínn sem elskaði mig
(The Spy Who Loved Me). James
Bond-þema Stöðvar 2 heldur
áfram og nú er Roger Moore kom-
inn í hlutverk spæjarans 007.
23.55 Blaze. Paul Newman og Lolita
Davidovich fara með aðalhlutverk-
in í þessari gamansömu og sann-
sögulegu mynd um ástarævintýri
fylkisstjórans og fatafellunnar. Það
vakti almenna hneykslan í Louis-
iana þegar upp komst að fylkis-
stjórinn, Earl K. Long, átti vingott
við fatafellu sem kölluð var Blaze
Starr.
1.50 Hart á móti höröu. (Hard to Kill).
Lögreglumaðurinn Mason Storm
liggur í dauðadái í sjö ár eftir að
glæpahyski særir hann lífshættu-
lega og myrðir eiginkonu hans.
3.25 Týndi sonurinn (The Stranger
within). Dag nokkurn er bankað
upp á hjá Mare og á dyrapallinum
stendur ungur maður. Hann segist
heita Mark og vera sonur hennar
sem hvarf sporlaust fyrir fimmtán
árum, þá aðeins þriggja ára gam-
all.
4.55 Dagskrárlok.
Rás I
FM 92,4/93,5
6.45 Veðurfregnir.
6.50 Bæn: Sr. Hreinn Hákonarson flyt-
ur.
7.00 Fréttir. Morgunþáttur rásar 1 -
Hanna G. Sigurðardóttir og Trausti
Þór Sverrisson.
7.30 Fréttayfirlit og veðurfregnir.
7.45 Maðurinn á götunni.
8.00 Fréttlr.
8.10 Pólitíska hornið. Að utan.
8.31 Tíðindi úr menningarlífinu.
8.40 Gagnrýni.
9.00 Fréttir.
9.03 „Ég man þá tið“. Þáttur Her-
manns Ragnars Stefánssonar.
(Einnig fluttur í næturútvarpi nk.
sunnudagsmorgun.)
10.00 Fréttir.
10.03 Morgunleikfimi með Halldóru
Björnsdóttur.
10.10 Smásagan: „Manja" eftir Ljúd-
mílu Petrúshevskaju. Ingibjörg
Haraldsdóttir les eigin þýðingu.
(Einnig flutt nk. laugardagskvöld
kl. 22.35.)
10.45 Veöurfregnir.
11.00 Fréttir.
11.03 Samfélagið í nærmynd. Umsjón:
Jón B. Guðlaugsson og Þórdís
Arnljótsdóttir.
12.00 Fréttayfirlit á hádegi.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veöurfregnir.
12.50 Auðlindin. Sjávarútvegs- og við-
skiptamál.
12.57 Dánarfregnir og auglýsingar.
13.05 Hádegisleikrit Utvarpsleikhúss-
ins, „Sérhver maður skal vera
frjáls“: Réttarhöld í Torun, leikrit
eftir Trevor Barnes, byggt á réttar-
skjölum í Popieluszko-málinu.
Lokaþáttur. Margrét Jónsdóttir
þýddi. Leikstjóri: Gísli Alfreðsson.
Leikendur: Hallmar Sigurðsson,
Róbert Arnfinnsson, Rúrik Har-
aldsson, Erlingur Gíslason, Jakob
Þór Einarsson, Sigurður Karlsson
og Þröstur Leó Gunnarsson.
Helgi Seljan, fyrrverandi
alþingismaöur, er stjórn-
andi þáttanna Spurt og
spjallað.
13.20 Spurt og spjailað. Keppnislið frá
félagsmiðstöðvum aldraðra í
Reykjavík leiða saman hesta sína.
Stjórnandi: Helgi Seljan. Dómari:
Barði Friðriksson.
14.00 Fréttir.
14.03 Útvarpssagan, Endurminningar
Casanova, ritaðar af honum sjálf-
um. Ólafur Gíslason þýddi. Sigurð-
ur Karlsson les. (30)
14.30 Lengra en nefiö nær. Frásögur
af fólki og fyrirburðum, sumar á
mörkum raunveruleika og ímynd-
unar. Umsjón: Yngvi Kjartansson.
(Frá Akureyri.)
15.00 Fréttir.
15.03 Tónstiginn. Umsjón: Sigríður
Stephensen. (Einnig útvarpað að
loknum fréttum á miðnætti.)
15.53 Dagbók.
16.00 Fréttir.
16.05 Skíma - fjölfræðiþáttur. Umsjón:
Ásgeir Eggertsson og Steinunn
Harðardóttir.
16.30 Veöurfregnir.
16.40 Púlsinn - þjónustuþáttur. Um-
sjón: Jóhanna Harðardóttir.
17.00 Fréttir.
17.03 Fimm fjóröu. Djassþáttur í umsjá
Lönu Kolbrúnar Eddudóttur. (End-
urtekinn að loknum fréttum á mið-
nætti annað kvöld.)
18.00 Fréttir.
18.03 Þjóðarþel - úr Sturlungu. Gísli
Sigurðsson les. (35) Anna Margr-
ét Sigurðardóttir rýnir í textann og
veitir fyrir sér forvitnilegum atrið-
um. (Einnig útvarpað aðfararnótt
mánudags kl. 4.00.)
18.30 Kvika. Tíðindi úr menningarlífinu.
Umsjón: Jón Ásgeir Sigurðsson.
18.48 Dánarfregnir og auglýsingar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Auglýsingar og veöurfregnir.
19.35 Margfætlan. Tónlist, áhugamál,
viðtöl og fréttir.
20.00 Söngvaþing. - Förumannaflokkar
þeysa eftir Karl 0. Runólfsson. -
Fóstbræðrasyrpa. Karlakórinn
Fóstbræður syngur; Ragnar
Björnsson stjórnar. - Vorgyðjan
kemur eftir Árna Thorsteinsson. -
Lindin eftir Eyþór Stefánsson. -
Smalastúlkan eftir Skúla Halldórs-
son. - Blítt er undir björkunum og
- Máríuvers eftir Pál ísólfsson. -
Vorvindur og - Á Sprengisandi
eftir Sigvalda Kaldalóns. Kvenna-
kórinn Lissý syngur; Hildur
Tryggvadóttir syngur einsöng,
Guðrún A. Kristinsdóttir leikur með
á píanó; Margrét Bóasdóttirstjórn-
ar.
20.30 Á ferðalagi um tílveruna. Um-
sjón: Kristín Hafsteinsdóttir. (Áður
á dagskrá í gærdag.)
21.00 Tangó ffyrir tvo. Umsjón: Svan-
hildur Jakobsdóttir. (Endurflutt í
næturútvarpi aðfaranótt fimmtu-
dags kl. 2.04.)
22.00 Fréttir.
22.07 Maöurinn á götunni. Hér og nú.
Gagnrýni.
22.27 Orö kvöldsins: Halldór Vilhelms-
son flytur.
22.30 Veöurfregnir.
22.35 Tónlist frá Bretlandseyjum. -
Fjögur lítil verk fyrir klarínett og
píanó eftir William Yeates Hurl-
stone.
23.00 Kvöldgestir. Þáttur Jónasar Jón-
assonar.
24.00 Fréttir.
0.10 Tónstiginn. Umsjón: Sigríður
Stephensen. (Endurtekinn þáttur
frá miðdegi.)
1.00 Næturútvarp á samtengdum
rásum til morguns.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunútvarpið - Vaknað til lifs-
ins. Kristín Ólafsdóttir og Leifur
Hauksson. - Jón Björgvinsson tal-
ar frá Sviss.
8.00 Morgunfréttír. - Morgunútvarpið
heldur áfram.
9.03 Halló ísland. Umsjón: Magnús
R. Einarsson.
10.00 Halló ísland. Umsjón: Margrét
Blöndal.
12.00 Fréttayfirlit og veöur.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Hvítir máfar. Umsjón: Gestur Ein-
ar Jónasson.
14.03 Snorralaug. Umsjón: Snorri
Sturluson.
16.00 Fréttir.
16.03 Dagskrá: Dægurmálaútvarp og
fréttir. Starfsmenn dægurmálaút-
varpsins og fréttaritarar heima og
erlendis rekja stór og smá mál
dagsins.
17.00 Fréttir. - Dagskrá heldur áfram.
Pistill Böðvars Guðmundssonar.
18.00 Fréttir.
18.03 Þjóöarsálin - Þjóðfundur í beinni
útsendingu. Síminn er 91 -68 60
90
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Milli steins og sleggju. Umsjón:
Magnús R. Einarsson.
20.00 Sjónvarpsfréttir.
20.30 Nýjasta nýtt í dægurtónlist.
Umsjón: Andrea Jónsdóttir.
22.00 Fréttir.
22.10 Næturvakt rásar 2. Umsjón:
Guðni Már Henningsson.
24.00 Fréttir.
24.10 Næturvakt rásar 2. Umsjón:
Guðni Már Henningsson.
1.30 Veöurfregnir.
1.35 Næturvakt rásar 2 - heldur áfram.
NÆTURÚTVARPIÐ
2.00 Fréttir.
2.05 Meö grátt í vöngum. Endurtekinn
þáttur Gests Einars Jónassonar frá
laugardegi.
4.00 Næturlög. Veðurfregnir kl. 4.30.
5.00 Fréttir.
5.05 Stund með Madonnu.
6.00 Fréttir og fréttir af veóri, færð og
flugsamgöngum.
6.05 Djassþáttur. Umsjón: Jón Múli
Árnason. (Áður á dagskrá á rás 1.)
6.45 Veðurfregnir. Morguntónar
hljóma áfram.
LANDSHLUTAÚTVARP Á RÁS 2
8.10-8.30 og 18.35-19.00 Útvarp
Norðurlands.
18.35-19.00 Útvarp Austurland.
18.35-19.00 Svæöisútvarp Vestfjarða.
6.30 Þorgeiríkur.
7.00 Fréttir.
7.05 Þorgeirikur. Þorgeir Ástvaldsson
og Eiríkur Hjálmarsson halda
áfram. Fréttir kl. 8.00.
9.00 Morgunfréttir.
9.05 Ágúst Héðinsson. Hressileg tónl-
ist og^helgin nálgast. Fréttir kl.
10.00 og 11.00.
12.00 Hádegisfréttir frá fréttastofu
Stöövar 2 og Bylgjunnar.
12.15 Anna Björk Birglsdóttir. Góð
tónlist fyrir alla-þá sem vilja slappa
af í hádeginu.og njóta matarins.
13.00 íþróttafréttir eitt. Það er íþrótta-
deild Bylgjunnar og Stöðvar 2 sem
færir okkur nýjustu fréttirnar úr
íþróttaheiminum.
13.10 Anna Björk Birgisdóttir. Anna
Björk heldur áfram þar sem frá var
horfið. Fréttir kl. 14.00 og 15.00.
Bjami Dagur Jónsson tekur
fyrir stjórnmál dagsins á
Byigjunni.
15.55 Þessi þjóð. Bjarni Dagur Jónsson
með gagnrýna umfjöllun um mál-
efni vikunnar með mannlegri mýkt.
Fréttir kl. 16.00 og 17.00.
18.00 Hallgrímur Thorsteinson. Með
beinskeyttum viðtölum við þá sem
einhverju ráða kemst Hallgrímur til
botns í þeim málum sem hæst
ber. Hlustendur eru ekki skildir út
undan, heldur geta þeir sagt sína
skoðun í síma 671111.
19.19 19.19. Samtengdar fréttir Stöðvar
2 og Bylgjunnar.
20.00 Hafþór Freyr Sigmundsson.
Kemur helgarstuðinu af stað með
hressilegu rokki og heitum tónum.
23.00 Halldór Backman. Svifið inn í
nóttina með skemmtilegri tónlist.
3.00 Næturvaktin.
Athyglisvert efni
„Utvarpið kemur til með að halda velli þrátt fyrir allar þær innlendu og
erlendu sjónvarpsstöðvar sem okkur bjóðast i dag,“ segir Ásdis Emilsdótt-
ir Petersen, kynningarstjóri dagskrár Útvarps.
Vetrardagskrá
Útvarpsins
Þessa dagana er vetrardagskráin
aö hefjast á báöum rásum útvarps-
ins. Ef vikan er skoðuð má nefna aö
á mánudágskvöldum kl. 23.10 er nýr
þáttur sem ber heitið Hvers vegna?
og QaUar um ýmsa lífsreynslu sem
mannfólkiö lendir í, hvemig menn
lenda upp á kant við kerflö eða missa
einhvers konar réttindi og þess hátt-
ar - og til þess aö skoða máhð nánar
em fengnir sérfræðingar til þess að
skýra stöðuna. Á þriðjudagskvöldum
kl. 20.30 er hlustendum boðið að
hlýða á fyrirlestra í Háskóla íslands.
Útvarpað verður fyrirlestmm frá
hinum ýmsu deildum Háskólans og
verða þeir vel kynntir í hvert sinn.
Á fostudögum kl. 13.20 hefst nýr
spumingaþáttur í umsjá Helga Selj-
ans og Barða Friðrikssonar þar sem
keppnislið frá félagsmiðstöðvum
aldraðra í Reykjavík keppa.
í lok nóvember hefjast að nýju út-
sendingar frá helstu tónleikahöllum
heims þar sem hlustendum gefst
kostur á að hlýða á bestu hljóðfæra-
leikara og ópemsöngvara veraldar.
Rás 2 verður með svipuðu sniði og
áður, morgununútvarpið, Þjóðarsál-
in og helgarútvarpið em á sínum
stað en af nýjungum má nefna Mál-
pípuna kl. 14 á laugardögum. Hlutur
fréttastofu útvarps í dagskránni er
töluverður. Fyrir utan hefðbundna
fréttatíma sér fréttastofan um
klukkustundar fréttakskýringaþátt á
laugardögum kl. 13 auk fjölda ann-
arra þátta, svo sem Auðlindarinnar
alla virka daga í hádegisútvarpi.
Madonna er einhver umdeildasta kona samtímans.
Stöð 2 á mánudag:
Óritskoðuð ævi-
saga Madonnu
Mögnuð
mannvirki
Næstu mánudagskvöld sýnir
Sjónvarpiö bandaríska heimild-
armyndaröð sem nefnist Furður
veraldar. í hveijum þætti verður
sagt frá einu af verkfræðiafrek-
um 20. aldarinnar og þar er svo
sem af nógu aö taka. í fyrsta
þættinum er fjallað um Empire
State skýjakljúfinn i New York
sem byggður var á kreppuárun-
um. Til þess tíma voru hús
sjaldnast meira en 6 hæðir vegna
þess aö fólk gat ekki með góðu
móti gengið upp fleiri stiga.
Konur
kveðja sér
hljóðs
Annar þátturinn í þáttaröðinni
um kvenréttindabaráttu á íslandi
fjallar um kvennaskóla. Kvenna-
skólarnir voru fyrstu mennta-
stofnanir kvenna hérlendis, ef
undan er skilin þósmóðurfræðsla
á vegum landlæknisembættisins,
pg nutu þeir gífurlegra vinsælda.
í þættinum er fjallað um stofnun
skólanna, hugmyndafræðina sem
lá að baki þeirri menntun sem
stúlkur fengu í skólunum og gildi
skólanna fyrir konur.
Visasportfer
tílfjalla
í Visasport þættinum á þriðju-
dag fer Ari Trausti upp á fjöll og
sýnir áhorfendum hvemig ör-
uggast er að bera sig að við erfiö-
ar aðstæður. Ari fer jafnframt
yflr þann búnað sem nauðsynleg-
ur er til fjallaferða og annað sem
þarf að hafa í huga í lengri eða
styttri gönguferöum.
Madonna Louise Ciccone er ein-
hver umdeildasta kona samtímans.
Menn skiptast mjög í tvo hópa þegar
nafn hennar ber á góma. Sumir hata
hana, aðrir elska hana en það getur
enginn látið sem hún sé ekki tíl. Á
mánudagskvöld sýnir Stöð 2 þátt þar
sem farið er ofan í saumana á ferh
hennar og sjónum fremur beint að
því hvaðan hún kom en hver hún er
í dag. Fjallaö er um litlu stúlkuna
sem missti mömmu sína í æsku, kom
til New York með nokkra þúsund-
kalla í vasanum en varð innan tíðar
ein helsta stjarna samtímans sem
blaðamenn fylgdu eftir hvert fótmál.
Er hún holdgervingur ameríska
draumsins eða eitthvað allt annað
og vafasamara? Lesendur fá svar við
því í þessum óritskoðaða þætti um
Madonnu.