Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1994, Síða 8
24
FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1994
Myndbönd
Steven Spielberg ásamt framleiðandanum Kathleen Kennedy við gerð Jurrassic Park.
Steven Spielberg:
Hefur leikstýrt vin-
sælustu kvik-
myndum allra tíma
Ef einhver kvikmyndagerðarmað-
ur hefur borið höfuð og herðar yfir
aðra á undanfornum misserum er
það Steven Spielberg. Velgengni
hans hvort sem litið er á fjárhags-
hliðina eða hstræna sköpun á sér
enga hliðstæðu í sögu kvikmynd-
anna. Jurassic Park sendi hann frá
sér snemma árs 1993 og er skemmst
frá því að segja að hún er orðin
vinsælasta kvikmynd sögunnar. í
lok ársins kom síðan Schindler’s
List, sem svo sannarlega kom mönn-
um á óvart. Mynd sú er meistarverk
sem líður þeim sem séö hafa seint
úr minni. Og eins og flestir bjuggust
við kórónaði Spielberg sigurgöngu
sína við afhendingu óskarsverðlaun-
anna þegar hann og myndir hans
sópuðu að sér verðlaunum.
Steven Spielberg hefur í raun órð-
ið engan annan til að keppa við en
sjáifan sig. Áður en Jurrassic Park
fór á toppinn sem mest sótta kvik-
mynd allra tíma sat á þar E.T. kvik-
mynd sem hann íeikstýrði 1982. Þar
til vinsælustu kvikmyndir þessa árs,
The Lion King og Forest Gump, fóru
inn á þennan lista átti Spielberg
fjórar kvikmyndir á listanum auk
áöurnefndra kvikmynda. Voru það
Raidérs of the Lost Ark og Jaws.
Áður en Steven Spielberg fékk
loks óskarsverðlaunin sem besti
leikstjóri fyrir Schindler’s List var
hann-orðinn frekar vonlítill um að
ná þessu marki. í fyrra sagði hann í
viðtali þegar hann var spurður um
þetta: „Ég býst við að þurfa að lifa
við það að fá ekki óskarsverðlaun.
Ég ákvað strax í byijun ferils mins
hvemig kvikmyndum ég ætlaði að
leikstýra og þær hafa verið gerðar
að „stórmyndum” án þess að ég
hefði beint ætlað það. Til að mynda
var E.T. aldrei nema lítil kvikmynd
í mínum huga meðan ég var að
leikstýra henni og mjög persónuleg.
Það að hún varð sú metaðsóknar-
mynd sem raunin varð gerði hana
að stærri kvikmynd en hún er.
Hefði peningagróðinn ekki orðið
svona mikill hefði ég örugglega farið
með öðm hugarfari í gerð The Color
Purple og Empire of the Sun.
Lærði að gera
kvikmyndir
af kvikmyndum
„Allir halda að ég hafi eingöngu
einblínt á kvikmyndir Davids
Leans,” segir Steven Spielberg, „en
ég hef séð kvikmyndir Fellinis og
Antonionis mun oftar. Ég tel mig og
mína kynslóð vera þá síðustu sem
lærði að gera kvikmyndir af kvik-
myndum. Nú er ailt að yfirfyllast af
leikstjórum sem vita allt um tækni
og möguleika á því sviði en vita
Engin kvikmynda Spielbergs hefur fengið jafn góðar viðtökur hjá
gagnrýnendum og Schindler's List. Mynd þessi af honum er tekin við gerð
þeirrar myndar.
harla lítið um kvikmyndir. Allur
þeirra lærdómur kemur úr sjón-
varpinu og þá oftar en ekki hafa
þeir eingöngu haft reynslu af tónlist-
armyndböndum.”
Steven Spielberg hefur alla tið
verið mikill aðdáandi eldri meistara
eins og ummæli hans bera með sér.
Sem barn var hann sannkallaður
bíósjúklingur og vissi fljótt hvað
hann ætlaði sér að starfa við í fram-
tíðinni. Aðeins 21 árs var hann far-
inn að leikstýra í sjónvarpi og
tuttugu og fimm ára leikstýrði hann
sinni fyrstu kvikmynd, The Sugar-
land Express. Áður en hann varð
þrítugur var hann búinn að senda
frá sér bæði Jaws og Close Encoun-
ter of Third Kind.
Auk þess sem Steven Spielberg
leikstýrir eigin myndum hefur hann
í gegnum fyrirtæki sitt Amblin gefið
mörgum ungum kvikmyndagerðar-
manninum tækifæri og óhikað sett
nafn sitt við framleiðsluna. Og hafi
Spielberg álit á einhverjum þá er
hann óspar á gifuryrðinn.
Sumir misskildu hann þegar
hann dró nafn sitt til baka við gerð
spennumyndarinnar Cape Fear, sem
Martin Scorsese leikstýrði. Spiel-
berg átti hugmyndina að endurgerö
þessarar klassísku kvikmyndar.
Hann var með í ráðum viö gerð
handritsins og réð Robert De Niro í
aðalhlutverkið. Stuttu síðar fékk
hann Martin Scorsese til að leik-
stýra myndinni og þá héldu flestir
að hann myndir titla sig sem
framleiðanda:
„Ég gekk um tíma á eftir Marty
til að fá hann til að leikstýra Cape
Fear. Þegar hann loks samþykkti þá
hætti ég öllum afskiptum og sagði
einfaldlega „Sjáumst síðar.“ Ég tel
Martin Scorsese vera besta
bandariska kvikmyndagerðarmann-
inn sem starfar í dag, en þar sem
við erum svo ólíkir væri það aðeins
sýndarmennska hjá mér ef ég hefði
ætlað að vera framleiðandi. Með
þessu móti gátum við verið áfram
miklir vinir. Marty lítur á mínar
kvikmyndir og segir „Ég gæti aldrei
gert svona mynd“ og ég lít á hans
myndir og segi: „Ég gæti aldrei gert
svona mynd“.“
Tvær ógleymanlegar kvikmyndir
á einu og sama árinu er mikið afrek
og á tímabili vann hann við báðar
kvikmyndimar. Meðan hann var að
leikstýra Schindler’s List í Póllandi
á daginn sat hann á kvöldin og
fjarstýrði Jurrassic Park á síðustu
stigum. Þessi vinnubrögð lýsa
honum vel, hann er það hugfanginn
af starfi sínu að stundum virðist
sólarhringurinn ekki nægja honum.
Þessa dagana er hann með mörg
járn í eldinum og þar á meðal er
teiknimynd eftir einum vinsælasta
söngleik allra tima Cats.
Leikur hlæjandi láns
The Joy Luck Club lætur engan ósnortinn sem
hana sér. Myndin lætur ekki mikið yfir sér, engar
stjömur til að auglýsa hana og leikstjórinn nánast
óþekktur. Á mpti kemur að myndin er byggð á
þekktri verðlaunaskáldsögu eftir Amy Tan og
hefur leikstjóranum Wayne Wang tekist að ná fram
dramtískum þunga sögunnar í heillandi kvikmynd.
Myndin greinir frá femum kinverskum mæðgum.
Mæðurnar eiga það sameiginlegt að hafa allar flust
ungar að árum til Bandaríkjanna og stofnað þar
fiölskyldur. Allar eru þær konur með fortið sem
þeim hefur ekki tekist að gleyma. Dætur þeirra
aftur á móti alast upp sem bandarískar nútima-
konur og slær oft i brýnu á milli móður og dóttur,
aðallega yfir gíldismati. Myndin byrjar í veislu þar
sem allar þessar konur hittast, að undanskilinni
einni sem er látin. Ýmislegt i veislunni gerir það
að verkum að konumar fara aö rifja upp fyrri daga, hver í sínu lagi, og í lokin
er áhorfandinn búinn að fá heilsteypta mynd af hverri konu fyrir sig. í The Joy
Luck Club verður góð saga að enn betri kvikmynd.
THE JOY LUCK CLUB - Útgefandl: SAm-myndbönd,
Leikstjóri: Wayne Wang.
Aðalhlutverk: France Nuyen, og Rosalind Chao.
Bandarísk, 1993. Sýningartími 133 mín. Leyfö öllum aldurshópum. -HK
Duttlungar tilverunnar
Alan Rudolph er einn fárra þekktra leikstjóra i
Hollywood sem fer sinar eigin leiðir og hefur tekist
að skapa sér sérstöðu. Þrátt fyrir að myndir hans
höfði ekki til fjöldans hefur Rudolph tekist að fá
þekkta leikara til að leika í myndum sínum.
Skuggahliðar mannlífsins ásamt duttlungum
tilverunnar er Alan Rudolph hugleikið viðfangsefhi
og er Equinox gott dæmi um þann flókna stil sem
hann hefur tileinkað sér. Aðalpersónumar eru
tvíburar sem voru aðskildir í fæðingu. Þeir alast
upp í nágrenni hvor við annan en vita ekki hvor af
öðrum. Þeir eiga aðeins eftir að hittast einu sinni
og það af tilvifjun. Tvíburamir em eins í útliti en
þar likur samlíkingunni. Matthew er feiminn
einstæðingur sem þráir tilbreytingu í lif sitt en
skortir kjark. Freddy er afhu- á móti í tygjum við
glæpamenn og hefur stórar hugmyndir um sjálfan
sig. Blaöakona fréttir um tilveru tviburanna og ákveður að finna þá. Henni
tekst að hafa uppi á þeim en forlögin taka í taumana áður en hún getur leitt þá
saman. Equinox hefúr áhugaverðar persónur en sagan hefur sínar veiku hliðar
og reynir á þolrifln.
EQUINOX - Útgefandi: Skífan.
Lelkstjóri: Alan Rudolph.
Aðalhlutverk: Matthew Modine, Lara Flynn Boyle og Marisa Tomei.
Bandarísk, 1993. Sýningartími 107 mín. Bönnuð börnum innan 12 ára. -HK
Ljósmyndari í kröppum dansi
Ljósmyndarinn Mickey Dane er frægur fyrir að
hafa komið rokkstjömunni Chelséa á framfæri í
myndaröð. Hún verður heimsfræg en Mickey lifir á
fomri frægð og þar sem nafn hans er ávallt tengt
við rokkstjömuna reynir hann að mynda hana í
tima og ótíma í óþökk hennar. Dag einn kemur
maður til hans og býður honum mikinn pening ef
hann getur myndað óþekkta stúlku á sama máta og
hann gerði við Chelseaj Honum'bregður þegar
hann sér hvað módelið er líkt Chelsea. Daginn eftir
finnst rokkstjaman myrt og böndin beinast aö
Dane. Eftir því sem hann reynir meir og meir að
sanna sakleysi sitt festist 'hann i gildm sem hefur
verið lögð fýrir hann. Body Shot fer vel af stað og
er uppbyggjandi spenna í gangi, allt fram yfir
miðja mynd en eftir þvi sem fléttan í myndinni
verður flóknari minnkar spennan og þótt endirinn
komi á óvart er lítið púður eftir. Body Shot samt er þrátt fyrir nokkra ann-
marka ágæt afþreying.
BODY SHOT - Útgefandi: Háskólabíó.
Lelkstjórl: Dlmltri Logothetis.
Aðalhlutverk: Robert Patrick, Michelle Johnson og Ray Wise.
Bandarísk, 1993. Sýningartími 94 mín. Bönnuð börnum innan 16 ára. -HK
Auga fyrir auga...
Nýir vestrar eru ekki algengir á myndbanda-
markaðinum og þvi er fengur að Dead Man’s
Revenge sem sver sig i ættir við marga vestra og
er eins og klisja af mörgum þekktum vestrum. Hún
er ágætlega uppbyggð og spennandi. Michael Iron-
, side leikur fátækan landeiganda, Luck Hatcher,
sem lendir í deilum við valdamikinn og ófyrir-
leitinn héraðshöfingja, Payton McCay, sem hefur
áhuga á landi hans. McCay leggur snöru sína fyrir
Hatcher og endar sú viðureign með því að hann
drepur eiginkonu Hatcher og son hans og kemur
honum í fangelsi. Hatcher sleppur eftir tuttugu ár
og er þá að sjálfsögðu i miklum hefndarhug. í
millitíðinni hefúr McCay aukið áhrif sín og hefur í
kringum sig hóp illmenna sem verja hann, en
Hatcher fær hjálp úr óvæntri átt. Dead Man’s
Revenge býður upp á skotbardaga, slagsmál og
umfram allt persónur sem eru annaðhvort góðar eða vondar. Það er ekkert
þama á milli. Sagan er að visu í þynnra lagi en gömlu brýnin Michael Ironside
og Bruce Dem standa fyrir sínu.
DEAD MAN’S REVENGE - Útgefandi: ClC-myndbönd.
Lelkstjóri: Alan J. Levi.
Aðalhlutverk: Mlchael Ironside, Bruce Dern og Randy Travis.
Bandarisk, 1993. Sýnlngartfml 90 mín. Bönnuð bömum innan 16 ára. -HK