Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1994, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1994, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1994 Fréttir Vantrauststillagan tekin fyrir á manudaginn Búist við f rávísunartil- lögu frá stjórnarsinnum - ef vafi leikur á að einhver stjómarþingmaður styðji ekki ráðherra Nú er orðið ljóst að vantrauststil- laga stjómarandstöðunnar á ráð- herrana er orðin að hinu alvarleg- asta máh fyrir stjórnarflokkana. Búist er við því að borin verði fram frávísunartillaga á vantrauststillög- una ef einhver minnsti vafi leikur á að einhver stjórnarþingmaður bili í stuðningi við ráðherra. Geir Haarde, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að stjórn- arsinnar væru með þennan mögu- leika inni í myndinni eftir að stjórn- arandstaðan hafnaði því að hver ráð- herranna 9 fengi sinn ræðutíma. Vantrauststillagan verður tekin fyrir á mánudagskvöld og verður bæði útvarpað og sjónvarpað frá umræðunum. Hver flokkur fær 15 mínútur til umráða en Jóhanna Sig- urðardóttir sjö og hálfa mínútu. Kratar hafa sett þaö skilyrði að all- ir þingmenn Sjálfstæöisflokksins sýni ráðherrum Alþýðuflokksins stuðning í atkvæðagreiðslunni. Þó er undanskiliö að Eggert Haukdal má lýsa yfir vantrausti á Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra. Hann hefur svo oft gert það opinber- lega. Eins er Ingi Björn Albertsson ekki lengur talinn með þingmönnum Sjálfstæðisflokksins. Þetta gera kratar vegna þess að Bjöm Bjarna- son og Egill Jónsson drógu báðir í efa að þeir gætu lýst yfir stuðningi við Guðmund Áma Stefánsson þegar mest gekk á í hans málum. Þá er einnig vitað að fleiri þingmenn Sjálf- stæðisflokksins eru hikandi í mál- inu. Samkvæmt heimildum DV ætlar Davíð Oddsson að ræða persónulega við alla þá þingmenn Sjálfstæðis- flokksins sem talinn er minnsti vafi á að geti bilað í málinu. Stjórnarandstæðingar em með krók á móti bragði ef borin verður fram og samþykkt frávísunartillaga á vantrauststillöguna. Þeir munu þá ætia að bera fram níu vantrauststil- lögur, eina á hvem ráðherra. Það vantraust yrði að taka fyrir og út- varpa og sjónvarpa aftur frá van- traustsumræðum. Verði enn beitt frávísunartillögum mun verða borið fram vantraust á ríkisstjómina í heild og enn þyrftu umræður að fara fram. „Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á að stjórnarandstaðan beri fram frá- vísunartillögu. Það væri staðfesting þess að hún treysti sér ekki til að láta vantraustið fara í atkvæða- greiðslu. Það væri því hrein uppgjöf enda þótt forsætisráðherra væri að kalla eftir vantrauststillögu í eldhús- dagsumræöunum á dögunum," sagði Finnur Ingólfsson, formaður þing- flokks Framsóknarflokksins. Þóröur Friðjónsson: Enginn upp- gangur til aldamóta Mannvirkjaþing 1994 hófst í Húsi iðnaðarins í morgun. Að loknu ávarpi fjármálaráðherra flutti Þórð- ur Friðjónsson, forstöðumaður Þjóð- hagsstofnunar, htinn fagnaðarboð- skap um ástand og horfur til alda- móta í fjárfestingu í mannvirkjum. Þórður sagði að stöðnun myndi ríkja í fjárfestingum næstu árin og fátt benti til þess að uppgangstímar færu í hönd það sem eftir lifði aldarinnar. Þórður benti á að batamerkin í þjóðarbúskapnum væru ekki sérlega sterk. Hagvöxtur yrði hægari en í öðrum löndum og hægari en svo að fjárfesting tæki einhvern fjörkipp. Þórður sagði að því yrði áfram dauft yflr byggingarframkvæmdum og mannvirkjafj árfestingum. Hann tók dæmi um að fjárfestingar í dag væru í kringum 11% af landsfram- leiðslu en hefðu samsvarað um 14% um miðjan síðasta áratug. Þórður reiknaði ekki með að þetta hlutfall hækkaði á næstu árum. Blómlegur vikurútflutningur hefur verið frá Ólafsvík undanfarnar vikur og er það fyrirtækið Vikuriðnaður hf. sem stendur að úHiutningnum. Þrjú skip hafa farið frá Ólafsvík með fullfermi af vikri til Þýskalands frá því í lok septemb- er og er búist við fleiri skipum um mánaðamótin. Þýski fraktarinn Vilm frá Rostock stoppaði nokkra daga i Ólafsvík í vikunni og var myndin tekin þegar verið var að dæla vikrinum í lestir skipsins. DV-mynd Ægir Þórðarson Úttekt DV í gær á dómum í kynferðisaíbrotamálum gegn bömum: Viðbrögðin eru fyrst og fremst undrun - þarf þyngri doma, segir Arthur Morthens, formaður Bamaheiila „Viðbrögð mín eru fyrst og fremst undrun þótt þetta komi mér ekki á óvart. Það sem er aö gerast gagnvart þessum börnum eru svo alvarlegir hlutir fyrir sálarlíf þeirra að í mörg- um tilvikum, og kannski flestum, eru afleiðingamar ófyrirsjáanlegar um langa framtíð. Þess vegna er maður undrandi á því að réttarkerfið skuli ekki taka harðar á þessum málum en raun ber vitni,“ segir Arthur Morthens, formaður Barnaheiila, um úttekt þá sem birtist í DV í gær um dóma í kynferðisafbrotamálum. Þar kom fram að refsing er alltaf ein- ungis lítið brot af þeim refsiheimild- um sem eru fyrir hendi í hegningar- lögum. Hann segir að þrennt þurfi að koma til: Harðari dómar og þyngri refsing- ar, ráðgjöf við oíbeldismennina sem oftast eru sjúkir og í þriðja lagi ráð- gjöf fyrir börnin þannig að þau geti komist yfir áfallið sem þau verða fyrir. Arthur segir að samtökin hafi rætt refsingar í málum af þessum toga undanfarin ár. Málin hafi verið rædd víða innan kerfisins og á það bent aö nauðsynlegt sé að taka fastar á þessum málum en í dag. „Menn viðurkenna nú almennt að nauðsynlegt er að gera eitthvað í málunum. Síðan kemur hver dómur- inn á fætur öðrum þar sem ekkert gerist. Maður veltir auðvitað upp þeirri spurningu hvort mannréttindi bama í þjóðfélaginu séu ekki fótum troðin hvað varðar viðhorf dómstóla til þeirra." Aðspurður hvort hann telji þá stað- reynd að oftast séu það karlmenn sem sitji í dómarasætinu, þegar dóm- ur er kveðinn upp í málum sem þess- um, hafa eitthvað að segja segist Arthur ekki ætla dómurum aö láta það hafa áhrif á sig. „En auðvitað vekur það upp spumingar. Það fer ekki á milli mála.“ Hann telur að almennum viðhorf- um í íslensku þjóðfélagi sé um að kenna. Það eimi eftir af þeirri gömlu hugsun að böm séu eign þeirra full- orðnu og að böm hafi ekki sjálfstæö- an rétt. Það viðhorf ráði miklu bæöi í dómskerfi og annars staðar. Nauð- synlegt sé að almenn viðhorfsbreyt- ing komi til í samfélaginu og þar skipti miklu máh vönduð umfjöllun fjölmiðla. Málið þurfi að taka uþp meðal lögfræðinga, á Alþingi og til þurfi aö koma fræðsla og umræða í ríkara mæh en er í dag. Samtökin Barnaheih halda upp á 5 ára afmæli sitt um næstu helgi en þau voru stofnuð í kjölfar umræðu í fjölmiðlum og þjóðfélaginu um kyn- ferðislegt ofbeldi. Arthur telur að þaö sem hafi áunnist sé aukin umræöa og áhersla stjómmálamanna á bætt- an hag barna. Þá hafi verið komið á laggirnar meðferðarheimih og margt fleira. Stuttar fréttir Samkeppni í bensínsölu Kanadískt olíufyrirtæki hefur áhuga á að hefja sölu á olíu og bensíni á íslandi. Skv. Morgun- blaðinu hafa fulitniar fyrirtækis- ins átt viðræöur við stjórnvöld um þetta. Skortur á þjónustulund Samhliða fækkun ríkisstarfs- manna þarf að efla hollustu þeirra og þjónustulund við ríkið. Þetta kom fram í máli Siguröur Líndal lagaprófessors á ráðstefnu um launa- og starfsmannamál ríkisins í gær. Gosollihungursneyð Heklugos árið 1693 er talið hafa valdið hungursneyð í Svíþjóð. Mbl. greindi frá þessu. Háskóiahátíð á morgun Háskóh íslands brautskráir á morgun 186 kandídata. Óréttiátur biti Reykjavikurborg hefur haft all- ar sínar tryggingar hjá Sjóvá- Almennum frá 1991. Borgarstjóri segir óréttlátt að eitt tryggingafé- lag fai þennan bita án útboðs. Iðgjöld námu um 40 milljónum í fyrra. RÚV greindi frá þessu. Launfyriraðhætta Forstjóri SVR hefur ákveðið að hætta um áramótin og verður staðan auglýst bráðlega. Tímimi segir starfslokasamning gera ráð fyrir að forstjórinn fái hálf laun í 16 mánuði fyrir að hætta. Bækur hækkaíverði Bókaverð á jólabókavertíðinni í ár mun líklega verða um 10% hærra en í fyrra. Alþýðublaðið hafði þetta eftír forstjóra bókaút- gáfunnar Skjaldborgar. Presti hafnað Sóknarnefnd Grenjaðarstaða- þrestakalls hafnaöi á dögunum Ólafi Þórissyni sem var eini um- sækjandinn um stöðu sóknar- prests. Tíminn greindi frá þessu. Gríðarlegt landgræðsluverk- efiii hófst á Norðausturiandi í haust. Næstu 10 árin á að græða Hólasand upp en hann þekur 140 ferkílómetra, Skv. Tímanum er búið að sá í 10 ferkílóraetra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.