Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1994, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1994, Page 5
FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1994 5 PV Fréttir Svört endurskoðunarskýrsla um Listahátíð Hafnarflarðar 1993: Óútskýrt gat tæp milljón - framkvæmdastjóri ábyrgur þar til viðblítandi skýringar fást Endurskoðunarskýrsla vegna Lista- hátíðar Hafnaríjarðar vorið 1993 hef- ur verið lögð fram í bæjarráði Hafnar- fjarðar. í skýrslunni kemur fram að velta hátíðarinnar nam tæpum 55 milljónum og tekjur 18,5 milljónum króna. Bærinn greiddi mismuninn upp á rúmlega 36 milljónir króna, samkvæmt bókhaldi hátíðarinnar. í gögnum bæjarsjóðs kemur fram að framlag bæjarins nam 37 milljónum króna og var framlag bæj arins þannig 867 þúsundum króna hærra en fram kemur í bókhaldinu. í endurskoðun- arskýrslunni segir að þessi mismun- ur sé á ábyrgð Amórs Benónýssonar framkvæmdastjóra þar til viðhlítandi skýringar hafi komið fram. í skýrslunni segir að verulegar veilur séu í bókhaldi listahátíðar í Hafnarfirði og meðferð gagna svo ábótavant að ekki sé unnt að gefa áht á reikningsskilum hátíðarinnar. Fylgiskjöl hafi vantað, þau hafi verið ófullkomin og ekki hægt að henda reiður á að aUar tekjur hafi skilað sér. Greiðslur hafi verið greiddar með peningum án þess að haldin hafi verið sjóöbók og kvittanir hafi ýmist verið í formi reikninga sem ekki hafi verið áritaðir eða sam- þykktir eða greiðslukvittana án þess að reikningar eða samningar lægju Formaður bæjarráðs: Skýrslan hálf- gerður reyfari „Þessi skýrsla er hálfgerður reyfari og skólabókardæmi um það hvernig ekki á að fara með fjármuni úr sam- eiginlegum sjóði bæjarbúa. Við höf- um óskað skýringa frá forráðamönn- um Listahátíðar hf. og embættis- mönnum bæjarins í sambandi við fjármálastjórnina," segir Magnús Gunnarsson, formaður bæjarráðs Hafnarfjaröar, um endurskoðunar- skýrsluna um íjármál Listahátíðar Hafnarfiarðar sem lögð var fram í bæjarráði í gær. „Það vekur mikla athygli að fram- kvæmdastjóri listahátíðar skyldi geta farið beint í aðalreikning bæjar- sjóðs, sem aðeins þrír eru prókúru- hafar að, og tekið út 10 milljónir króna beint af aðalreikningi bæjar- sjóðs Hafnarfiarðar. Þetta er alveg með ólíkindum," segir hann. „Engin ákvörðun hefur verið tekin um kærú til RLR. Við hljótum að leita fyrst skýringa og skoða svo hlutína miðað við þessar niðurstöður og þær skýringar sem við fáum,“ segir Magnús að lokum. Hæstiréttur staðfestir fíkniefnadóma Hæstíréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir 34 ára konu fyrir innflutning á 2,6 kílóum af hassi og 24 ára karli fyrir aðild að máhnu. Konan var dæmd í 6 mánaða fangelsi í héraðsdómi, þar af 3 mán- uði skilorðsbundið. Hún var jafn- framt dæmd fyrir að afhenda efniö manninum og greiða honum 300 til 400 krónur fyrir grammið ef hann seldi efnið á 900 tíl 1000 krónur hvert gramm. Sá maður var dæmdur í 4 mánaða fangelsi, þar af 2 mánuði skilorðsbundið. Þá staðfesti Hæstíréttur einnig dóm í máli manns sem tengdist stóra fíkniefnamálinu. Maðurinn var ákærður ásamt öðrum í stóra fikni- efnamálinu en játaði innflutning og var' mál hans flutt sér. Hann hlaut nokkra mánaða dóm í héraði. fyrir. Ábyrgð á meðferð fiármuna hafi verið á hendi bæjarins. Löggiltír endurskoðendur fóru yfir alla reikninga, kvittanir og samninga listahátíöarinnar og fengu staðfest- ingar fyrir móttöku á öllum óljósum greiðslum þó að það staðfesti ekki að greiðslurnar hafi átt rétt á sér og hafi í raun tilheyrt listahátíð. Nokk- uð var um að fólk fékk hærri greiöslu en gert var ráð fyrir í samningi og segir í skýrslunni að ítrekað hafi komið fram efasemdir um að ein- stakar greiðslur, sérstaklega tíl TKO, hafi verið í samræmi við samninga. Því sé brýnt að stjórn og fram- kvæmdaaðilar listahátíðarinnar gangi úr skugga um réttmæti þessara ásakana. Tekjur listahátíðarinnar voru lagð- ar inn á einn reikning og tók fram- kvæmdastjóri listahátíðarinnar pen- inga út af honum til kaupa á gjald- eyri eða sótti peninga beint til gjald- kera bæjarsjóðs. í hvorugu tilviki þurftí að gera grein fyrir úttektunum heldur gekk hann hindrunarlaust að þessum úttektum án nokkurra skýr- inga, segir í endurskoöunarskýrsl- unni. Gjaldeyriskaupin námu rúm- um 9 milljónum króna. Rétt er að geta þess að framtaldar greiðsiur innlendra aðila árið 1993 námu 8,1 milljón króna. í endurskoð- unarskýrslunni segir aö þær hafi getað numið tæpum 16 milljónum króna. Hagstæðustu ársins! :am Verðið á Renault 19 RN árgerð 1995 er aðeins kr. 1195.000.- INNIFALIÐ: Hörkuskemmtileg og sparneytin 1400 vél, vökvastýri, rafdrifnar rúðuvindur, fjarstýrðar samlæsingar, útvarp/segulband með fjarstýringu, styrktarbitar 1 hurðum, bílbeltastrekkjarar, málmlitur, ryðvörn, skráning .. Fallegurfjölskyldubíll á fínu verði. w Hvar gerir þú betri bílakaup Reynsluaktu Renault! KEMAULT Bílaumboðið hf. Krókhálsi 1 • Sími 876633 • 110 Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.