Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1994, Page 6
6
FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1994
Neytendur_______________________________________
f slenskur markaður í Flugstöðinni:
Gamalt og illa
valið lesefni?
- höfum fengið hrós, segir bóksalinn
Um 150 tímaritatitlar og 10-15 aðaltitlar i dagblöðum fást í íslenskum markaði. Myndin er úr verslun í Reykjavík.
„Við höfum einmitt fengið hrós fyr-
ir að vera með góðu vörusamsetn-
ingu. Þama stílum við inn á að hafa
bækur fyrir flugfarþega, bæði fólk
eins og Islendinga sem eru að fara
til útlanda og eins „transit“-farþega.
Ég ætla að u.þ.b. helmingur þeirra
sem koma í Flugstööina fari aldrei
inn í landið og þarna er oft eini vett-
vangur íslenskra bókaútgefenda til
að kynna útlendingum sína fram-
leiðsluvöru. Þarna höfum við mjög
gott úrval af landkynningarbókum
en erlendu ferðamennirnir (transit-
farþegarnir) eru einmitt ánægðir
með að geta komist í íslenska bóka-
búð,“ segir Jón Sigfússon, fram-
kvæmdastjóri hjá Eymundsson.
Gamlir titlar teknir út
Ekki eru alhr á eitt sáttir með sam-
setningu lestrarefnis sem er til sölu
í íslenskum markaði í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar en það eru starfsmenn
bókaverslunar Eymundssonar sem
bera ábyrð á úrvalinu. „Við erum
með mikið af vasabrotsbókum sem
fólki flnnst gott að grípa með sér í
frí, bæði á íslensku og ensku. Þetta
er allavega rifið út. Við erum líka
meö kort, sem margir gleyma að
kaupa áður en þeir fara af stað og
lítið eitt af ritföngum og t.d. spil.“
Gagnrýnin sem barst DV snerist
hka mikið um dagblöð og tímarit og
Jón var spurður sérstaklega út í það.
„Varðandi tímaritin að þá forum við
héðan úr Reykjavík og í verslunina
tvisvar í viku til þess að taka út
gamla titla. Og alltaf þegar við erum
búnir að fá nýjan titil, hvort sem það
er okkar eigin innílutningur eða frá
íslenskum birgi, þá fer það suður
eftir og gamla blaðið er tekið út.
Þannig að sú gagnrýni er örugglega
röng.“
Blöðin uppseld
DV veit hins vegar af nýlegu dæmi
af ferðalangi sem ætlaði að kaupa sér
hið kunna blað Economist en greip
í tómt. Nýjustu tölublöðin voru
hvergi sjáanleg en aftur á móti voru
til nokkurra vikna gömul eintök af
Economist. Hvað segir Jón um það?
„Ég myndi þora að fullyrða að nýj-
ustu blöðin hafa verið uppseld. Ef svo
er þá er þaö eitthvað sem við ráðum
ekki viö. Það er kannski ekkert til
að skammast sín fyrir að eiga eldri
blöðin en auðvitað er aðalatriðið að
eiga nýjustu blöðin.
Um kvartanir vegna gamalla dag-
blaða sagði Jón að oft væru flug frá
Evrópu ekki fyrr en um og eftir há-
degi og það væri þeirra fyrsti séns
til að koma blöðuip í sölu. Hann sagði
rangt að blöðin færu fyrst í bæinn
og svo aftur út í Flugstöð. „Blöðin
eru komin í sölu í Keflavík áður en
við fáum þau hérna í bæinn vegna
þess að það er skilinn eftir skammtur
í Flugstöðinni fyrir íslenskan mark-
að.“ Jón bætti því við þjónusta þeirra
sem dreifðu til þeirra blöðum og
tímaritum væri upp til hópa til fyrir-
myndar og hann hefði ekkert á þá
að klaga.
Árstíðabundið úrval
Um 150 tímaritatitlar eru nú í ís-
lenskum markaði og 10-15 aðaltitlar
í dagblöðum en það er svolítiö árs-
tíðabundið því á veturna er þeim
fækkaö þegar straumur útlendinga
er minni. Jón segir að plássleysi hafi
komið í veg fyrir fleiri titla en um
og eftir næstu mánaðamót standi þó
th að áuka úrvahð. Fram til þessa
hafi plássið, sem þeir hafa til um-
ráða, verið um 50 fermetrar og það
sé afskaplega erfitt að koma öllu fyr-
ir sem þeir vilja.
Hvemig geyma á kartöflur:
Taka þær úr plastinu
og forða frá ljósi
- segir KolbeinnÁgústsson hjá Sölufélagi garðyrkjumanna
Kartöflur hafa verið í brennidepli
að undanförnu en segja má að „verð-
stríð“ hafi ríkt með þessa vöru. Verð-
ið á kílóinu var komið niður í 5 krón-
ur þegar síðast fréttist og sjálfsagt
hugsa margir neytendur sér gott til
glóðarinnar og birgja sig nú upp af
kartöflum. Af þessu tilefni leitaði DV
th Kolbeins Ágústssonar, innkaupa-
og gæðastjóra hjá Sölufélagi garð-
yrkjumanna, og spurði hann hvernig
best væri að geyma kartöflurnar.
Grænmetisskúffan
og ísskápurinn
„Það er náttúrlega best að geyma
þær í grænmetisskúffunni. ísskáps-
hitinn er mjög góður en hafa þær
bara helst í myrkri, alls ekki í ljósi.
Þegar fólk er nýbúið að kaupa kart-
öflur er mikið atriði að þær séu sem
styst í plastpokanum og halda þeim
frá ljósi en það er mjög mikhl óvinur
kartaflna. Þær verða grænar og þá
eru þær orðnar óætar. Það gildir það
sama í verslunum en það er mjög
Kartöflur er hægt að geyma vikum saman við réttar aðstæður. Þ.e. í myrkri
og undir átta gráðum.
slæmt þegar kartöflur fá að vera í
miklu ljósi og hita.“
Skemmast á skömmum tíma
Þeir sem geyma kartöflur í geymsl-
unni eða bhskúmum verða að hafa
hitastigið í huga en um það segir
Kolbeinn þetta: „Það er allt í lagi að
geyma kartöflur í geymslunni eða
bílskúrnum svo framarlega sem þar
séu ekki yfir tíu gráður. Þær hnast
upp og eyðileggjast á skömmum tíma
ef þær eru geymdar við 10-15 gráö-
ur. Það er hægt að geyma kartöflur
vikum saman en þar verður þá að
vera undir átta gráðum og myrkur."
Pappakassar hentugir
Kolbeinn ítrekar að slæmt sé aö
geyma kartöflunar lengi í plasti.
Hann segir að gömlu bréfpokarnir
hafi reynst vel en slæm auglýsing af
fmnsku kartöflunum geri það að
verkum að ekki sé hægt að nota þá
í dag. Hins vegar sé hið besta mál
að geyma þær í pappakössum.
DV
Nokkrar leidir
til aðfástvið
timburmenn
Sjálfsagt kannast margir við að
vakna upp með timburmenn eftir
að haf'a neytt áfengis. Th að vinna
bug á áhrifunum, höfuðverknum,
ógleðinni og þreytmtni eru ýmis
ráð.
Eitt þeirra er aö drekka ávaxta-
safa, annað er að borða kex og
hunang og það þriðja er að inn-
byrða verkjalyf. Þá má ennfrem-
ur prófa að naga börk, drekka
tært kjötseyði, taka inn B-vítamín
eöa borða amínósýrur. Ef þetta
dugar ekki heldur má fá sér tvo
kaffibolla eða borða góða máltíð.
Varast skal þó að borða eitthvað
sem er þungt í maga.
Frá þessu er sagt í Læknabók-
inni (Heilsugæsla heimilatma).
Hrotur og
mataræðið
í sömu bók er sagt frá því að
þeir sem helst er hætt við að
hrjóta séu miðaldra, feitír karl-
menn. Þeim hinum sömu er bent
á aö neyta léttara fæðis og þá á
miðnæturhressingin að fara á
bannlístann.
Það eru fleiri en fitukeppir sem
glíma við þetta vandamál því um
leið og Mkamsþynd karlmanna
fer 20% yfir æskilega þyngd geta
þeir farið að lirjóta. Hjá konum
er þetta sama hlutfall með kjör-
þyngdina mun hærra, eða
30^0%.
Annað ráð sem bent er á í þessu
sambandi er að liggja á hliðinni
en alls ekki á bakinu. Þetta á þó
bara við um þá sem hrjóta lítið.
Þeir sem hrjóta mikið gera það
án tillits tíl þess hvernig þeir
liggja. Ef allt þetta bregst má láta
makann hafa eyrnatappa.
Fríhöfn og
Flugstöð
Vegna umfjöllunar DV í gær um
bar og kaffistofu í Leifsstöð vildi
starfsmaður Fríhafnarinnar taka
skýrt fram að reksturinn þar
væri ekki á þeirra vegum. Barinn
og kafiistofan væru í Flugstöð-
inni en ekki í Fríhöfninni.
Til varnar
bílnum
Nú þegar veturinn er að ganga
í garö eru væntanlega margh-
farnir að taka til í bílskúmum
með þaö fyrir augum að koma
bhnum þar fyrir í mestu frost-
hörkunum.
Þar sem bílskúrinn er þröngur
eða bfilínn stór verða stundum
skemmdir á hhðum og höggdeyf-
um. Til varnar þessu má klæða
skúrinn að innan með gleypnum
trefjaplötum, a.m.k. þar sem
mæðir á. Skemradahættan
minnkar og bhskúrinn verður
hlýnl. Þetta kemur fram í hand-
bók heimihsins, 500 hohráð.