Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1994, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1994, Qupperneq 9
FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1994 9 Utlönd Nýjar fréttir af moröum bama á bömum vekja óhug í Noregi: Bitu barn um allan líkamann og drápu morðingjamir tvær fjögurra ára stúlkur en fómarlambið mánaðargamalt „Morð barna á börnum eru sann- arlega sárasjaldgæf og það er tilvilj- un ein að nýtt mál kemur fram í dagsljósið nú strax eftir morðið í Þrándheimi," sagði Bjömar Olaisen, prófessor í réttarlækningum, þegar hann greindi frá því opinberlega í gær að tvær fjögurra ára stúlkur hefðu myrt mánaðargamalt barn á hroðalegan hátt. í skýrslu lækna um málið kemur frma að stúlkumar tvær hafl átt að passa barnið í vagni. Af óútskýrðum ástæðum tóku þær upp á að bíta barnið um allan líkamann áður en þær börðu því við jörðina. Morð þetta var framið í Suður-Noregi fyrir tveimur ámm en lögreglan ákvað aö greina þá ekki frá því opinberlega. Mál stúlknanna tveggja hefur ekki síður vakið óhug í Noregi en morðið í Þrándheimi um síðustu helgi. í Þrándheimsmáhnu hefur komið fram að drengurinn, sem hafði sig mest í frammi við að ganga í skrokk á Silju Maríu Redergárd, átti við and- leg vandamál að stríða. Móðir hans hafði leitað aðstoðar sálfræðinga vegna ofbeldishneigðar hans en án árangurs. Þar hefur og komið fram að dreng- imir trúðu því að Silja María hlyti ekki sakaða af því þótt þeir spörkuðu í hana og berðu með grjóti. Þeim var því engan veginn ljós afleiðing gerða sinna. Drengurinn, sem lengst gekk, vill nú ekki tala meira um morðið og hafa sálfræðingar ákveðið að hann skuli fá að vera í friði með hugsunum sínum fyrst um sinn. Hann hefur farið út að leika sér með félögum sínum og virðist ekki taka málið alvarlega að þvi er faðir hans segir. Akveðið er að útfor Silju Maríu fari fram næstkomandi þriðjudag og er búist við fjöimenni við jarðarför- ina. NTB DíanaogKarl: Skilnaður getur bjarg- aðkonung- dæminu Yfirgnæfandi meirihluti Breta er þeirra skoðunar að konungdæminu verði ekki bjargað nema Karl og Díana skilji og ljúki þannig löngum og umtöluðum hjónabandserjum sínum. Allar líkur eru því á að Bret- ar verði drottningarlausir að Elísa- betu II. genginni. Af trúarlegum ástæðum er vandkvæðum bundið fyrir Karl að kvænast öðru sinni. Díana er nú í Bandaríkjunum og hefur verið forkunnarvel tekið. Aðdáendur hennar bíða í stórhópum hvarvetna þar sem hún fer. Prinsess- unni er óskað velfarnaðar á erfiðum tímum og er almenningur óspar á aðdáun sína. „Ég kom nú bara til að sjá hvort hún væri með einhvern af þessum höttum sínum. Ég er svo hrifm af höttum,“ sagði kona nokkur sem beiö Díönu við hótel hennar. Önnur New York kona sagðist hafa mikla samúð með Díönu. „Þetta er ekkert líf hjá henni. Hún fær hvergi að vera í friði,“ sagði konan sem beiö þess í ofvæni að Díana birtist. Díana er nú farin frá New York og var síðustu nótt í Washington á heimili brasilísku sendiherrahjón- anna. Þau eru bestu vinir hennar og velunnarar. Reuter ' ' ' : Díönu prinsessu hefur verið forkunnarvel tekið í Bandaríkjunum en hún er þar á flótta undan öllu umtalinu í Bret- landi. Heima eru Bretar að velta fyrir sér framtíð konungdæmisins og þykir sýnt að grípa verði til örþrifaráða eigi konungsættin gamla ekki að líða undir lok með Elísabetu II. Símamynd Reuter Breskurráð- herra hrakinn úr embættinu John Major, forsætisráð- herra Bret- lands, á enn einu sinni i vök að vcrjast vegna spilling- armála . innan ráðherraiiðs síns eftir að einn aðstoðarráð- herra sagði af sér embætti vegna ásakana um aö hafa þegið mútur. Enn annar ráðherra höfðaði meiðyröamál á hendur blaðinu Guardian sem sagöi frá því að ráðherrarnir hefðu þegið fé af auðkýfmgí fyrir aö bera fram fyr- irspurn í breska þinginu. Auðkýfingurinn hefur hótað að segja frá ráðherra sem þáði um 100 milljónir króna í mútur. Olíuleiðslurí Ijósuntlogum Miklir eldar komu upp í tveim- ur olíuleiöslum sem rofnuðu í gær nærri Houston í Texas. Á annan tug manna slasaðist í lát- unum og nokkur hús urðu eldin- um aö bráð. Þúsundir ibúa voru beðnar um að yfirgefa heimiii sín vegna eldanna en margir þeirra höfðu þurft að fara að heiman fyrr í vikunni vegna flóða. Reuter Stokke tripp trapp Stóllinn sem vex með barninu 5 ára ábyrgð Sama verð og annars staðar á Norðurlöndum kr. 9.760 Faxafeni 7 s- 687733 Tengdafaðir Simpsonssegir hókarhöfund dópista Fyrrum tengdafaðir ruðningshetj- unnar O.J. Simpsons segir að höfundur bókar um dótt- ur hans, sem Simpson er ákærður fyrir að myrða, sé fíkni- efnaneytandi sem þyrfti á pen- ingum að halda en ekki náinn vinur hennar. Blaðið New York Newsday hafði eftir Louis Brown að ekkert mark væri takandi á höfundi bókarinnar, Faye Resnlck. í bók- imú segir að Nicole Simpson hafl sofið bjá kumúngja manns síns og hann hafi hótaö að drepa hana. . ... Re.uter Tilræðismaðurinn í Tel Aviv: Ekki sá sem ég sá - segir sjónarvottur um 27 ára Palestínumann „Þetta er ekki maðurinn sem ég sá í strætisvagninum," sagði Henia Vid- or, síðasti ísraelsmaðurinn sem fór út úr strætisvagninum í Tel Aviv á miðvikudag áður en hann sprakk í loft upp, þegar hún hafði séð mynd- band af 27 ára gömlum Palestínu- manni sem samtök heittrúarmanna sögðu vera sprengjumanninn. Vidor sagðist telja aö tiiræðismað- urinn hefði verið taugaveiklaður eldri maður sem sat í íjóru sætaröð. Hann hefði virst vera Evrópumaður en ekki arabi. „Hann hélt á skjala- tösku og þrýsti henni þétt upp að sér. Hann var hræðilega spenntur. Hann sat eins og snákur hefði bitið hann,“ sagði Vidor. ísraelsstjórn hefur ákveöið leyni- legar aðgerðir gegn skæruiiðasam- tökunum Hamas sem stóðu að sprengjutilræðinu þar sem 21 maður Hamas skæruliðar segja þennan mann hala sprengt strætisvagninn i T el Avi v, Simamynd Reuter fórst. Öryggissveitunum hefur verið veitt aukið svigrúm til að berjast gegn samtökunum og knésetja þau. Reuter ecco - soft Léttir og þægilegir fótlagaskór. Svart, vatnsvarið leður. Slitsterkur sóli. Stærðir 40-47. Verð kr. 5.820 ecco Laugavegi 41, sími13570 PÓ'RÐA'R fyxá v otp pj&nuita/ KIRKJUSTRÆTI8 S I M I 1 4 1 B 1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.