Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1994, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1994, Page 11
FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1994 11 Merming Ólöf Nordal sýnir 1 Gerðubergi: SjáNsmynd íslenskrar konu „Sjálfsmynd" er yfirskrift sýn- ingar Ólafar Nordal í Gerðubergi en þó er hér ekki um eiginleg port- rett af listakonunni að ræða heldur eins konar skoðun á því hver bak- grunnur hennar sé - sögu íslenskra kvenna og þeirri myndhefð sem helst tengist kvennasögu og -störf- um. Á sýningunni eru reyndar að- eins þrjú verk, enda er plássið lítið í sýningaraðstöðunni í Gerðubergi. Engu að síður nær Ólöf að setja fram sterka heildarhugsun á ein- faldan hátt og að marka sér stefnu sem vonandi á eftir að leiöa til stærri sýninga síðar. Ólöf skipar sér í hóp þeirra hsta- kvenna sem á undanförnum árum hafa reynt að nálgast sögu og veru- leika kvenna með tilvísun í hvers- dagslíf og starf kvenna. Hún gerir þetta með því að nota kvenbúninga og vísa til íslenskrar útsaumshefð- ar, en á léttan og frumlegan hátt. Þannig fær áhorfandinn á tilfinn- inguna að henni hafi tekist að nýta sér hefðina til sjálfsskilnings og í stað þess að hefta hana í verkunum virðist hefðin veita henni frelsi til tjáningar. Þótt útfærsla verkanna sé nákvæm virðist hún fyrirhafn- arlaus eins og ávallt er þegar lista- Myndlist Jón Proppé maður hefur fundið rétta tóninn í verki sínu. Hinn þjóðlegi andi verk- anna sýnir hka að það er vel hægt að nýta þær hefðir sem kotungarn- ir forfeður og -mæður okkar þrosk- uðu með sér í einangrun aldanna. Þegar áhorfandinn gengur út af sýningunni réttir hann ósjálfrátt úr bakinu og hrópar glaður innra með sér: „Það er ekkert púkó að vera íslendingur; það er ekkert asnalegt við það að vera íslensk kona!“ Fréttir Bergljót Pétursdóttir, einn vinningshafanna i októbermánuði, var að vonum ánægð með vinninginn, ferð fyrir tvo á íslandi að verðmæti 60.000 krónur. DV-mynd GVA Ferðaáskriftargetraun DV: Dugleg að f erð- ast innanlands „Ég er ein af þeim sem aldrei vinna nokkurn skapaðan hlut svo það kem- ur mér svo sannarlega á óvart að hafa verið dregin út sem einn vinn- ingshafanna í ferðaáskriftargetraun DV,“ sagöi Bergljót Pétursdóttir í Reykjavík. Bergljót var svo heppin aö vera dregin út sem einn af fjórum vinn- ingshöfum októbermánaðar. Hún fær í verðlaun ferð innanlands fyrir tvo að verðmæti 60.000 krónur og getur valið á milli 9 ferðamöguleika. „Ég hef verið nokkuð dugleg að ferðast innanlands þó að ahtaf megi gera meira að því. Ég fór til dæmis í ferð yfir Kjöl og Sprengisand í sum- ar. Ég verð örugglega ekki í vand- ræðum með að ráðstafa vinningnum í eitthvert spennandi ferðalag hér- lendis." Eitt af verkum Olafar Nordal í Gerðubergi. Mtðvifeudag - Fitnmtudag - Föstudag - Laugardag 19.- 22. okt. KRINGLU komdu IFJÓRA DAGA Nýjanmmmá útsöluveröi Gerðu ævintýralega Yfir SOO tilboö á nýíum vörum Aðeins þessa 4 daga KRINGMN AÐALSTÖÐIN kynnir Kringlukast gatan min HELGAR- TILBOÐ > KJÖT OG FISKUR Mjódd Opið 9-20 Sími 73900 Seljabraut Opið 10-23.30 Sími 71780

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.