Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1994, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1994, Síða 24
32 FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1994 Fréttir Refsiheimiklir aðeins f ull- nýtfar í manndrápsmálum - segir Ari Edwald, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra „Eg held að það þarfnist umræðu í þjóðfélaginu hvaða refsipólitík eigi að fylgja og þeirri umræðu þarf að gefa meira vægi. Það eru hins vegar dómstólarnir sem dæma. Refsing- amar hafa verið að þyngjast í kyn- ferðisofbeldismálum og það er æski- leg þróun. Þetta tel ég að sé vísbend- ing um að mál séu að þokast í rétta átt. Öll breyting á dómapraksís tekur sinn tíma,“ segir Ari Edwald, aðstoð- armaöur dómsmálaráðherra, um þá staðreynd að dómstólarnir hafa ein- ungis nýtt sér lítið brot af þeim refsi- heimildum sem fyrir hendi eru í hegningarlögum og beita má gegn barnaníðingum. Hann bendir á að dómsmálaráð- herra hafi þegar beitt sér fyrir þyng- ingu refsinga í ýmsum kynferðis- brotum með breytingu á hegningar- lögum árið 1992. Sú breyting hafi fal- ið í sér styrkingu á kynferðisbrota- lagakafla þeirra laga. Það sé hins vegar einungis í manndrápsmálum sem tilhneiging hafi verið til að dæma í efri mörkum refsiramm- anna. Ari segir eðlilegt að krafa um þyngri refsingar komi fram þegar umræðan um brot af þessu tagi sé áberandi og telur það eðlilega þróun í þessum málaflokki. Ari efast þó um hvort þynging refs- ingar í afbrotamálum almennt skili tilætluðum árangri. Setja megi spumingarmerki við það hvort beint samhengi sé á milli þyngri refsingar og fækkandi afbrota. Einungis þurfi að bera saman Bandaríkin og Evr- ópu. Mikil þynging refsingar í Bandaríkjunum virðist ekki hafa skilað færri afbrotum. Hins vegar þurfi eðlilegt hlutfall að vera á milh refsinga í kynferðisafbrotamálum og öðram málum. Þau fyrmefndu séu miklu aivarlegri en önnur brot. Starfsmannamál ríkisins voru í brennidepli á ráðstefnu sem Friðrik Sophusson fjármálaráðherra hélt í gærdag. Með honum á myndinni eru Ulf Göranson, framkvæmdastjóri vinnuveitendasambands sænska ríkisins, Magnús Pétursson ráðuneytisstjóri, Inga Jóna Þóröardóttir ráðstefnustjóri og Haukur Ingibergsson deildarstjóri. DV-mynd GVA Ráðstefna um launa- og starfsmannamál ríkisins: Gera þarf kröf u um fyllstu hagkvæmni - segir Friðrik Sophusson flármálaráðherra „Mikil umsvif ríkisins krefjast nú- tímalegra vinnubragða og gera kröfu til að fyllstu hagkvæmni sé gætt,“ sagði Friðrik Sophusson fjármála- ráðherra á ráðstefnu sem hann hélt í gær um launa- og starfsmannamál ríksins. Á ráðstefnunni kom fram að út- gjöld ríkisins vegna greiðslu launa eru um 36 milljarðar króna á ári. Starfsmenn ríkisins eru um 25 þús- und og skila um 20 þúsund ársverk- um. Meðallaunin eru um 128 þúsund krónur á mánuði og að jafnaði fá rík- isstarfsmenn greiddar um 39 yfir- vinnustundir á mánuði. Greiðslum- ar taka mið af um 140 kjarasamning- um og í launakerfi ríkisins eru 307 launategundir og 16 þúsund starfs- heiti. í ræðu sinni lagði Friðrik áherslu á ýmsar breytingar sem gera þyrfti á launa- og starfsmannamálum ríkis- ins. Meðal annars vfil ráðherrann leggja af æviráðningar og skerpa ábyrgð yfirmanna ríkisfyrirtækja og stofnana. Þá viil hann hverfa frá þeirri lagalegu sérstöðu sem ríkir um málefni ríkisstarfsmanna og í stað þess að leggja megináherslu á starfs- aldurshækkanir í kjarasamningum viU hann að aukið tillit verði tekið til ábyrgðar og frammistööu. Auk þessa sagðist Friörik vilja freista þess að samræma lífeyrismál opinberra starfsmanna því sem ger- ist á opinberum markaði, færa um- sýsiu launa og starfsmannamála út í stofnanir og sjá þá stefnu mótaða í starfsmannahaldi að ríkið geti keppt við einkamarkaðinn um hæft starfs- fólk á jafnréttisgrundvelli. Á ráðstefnunni flutti Ulf Görans- son, framkvæmdastjóri Vinnuveit- endasambands sænska ríkisins, er- indi um reynslu Svía af breytingum í launa- og starfsmannamálum sænska ríkisins. Að sögn Friðriks var innlegg Ulfs mjög þarft því ýmsa lærdóma megi draga af reynslu Svía. Friðrik segir augljóst að Starfs- mannaskrifstofa fjármálaráðuneyt- isins muni gerbreytast. „Ég tel fylliiega koma til greina að losa hana undan umsjón ráðuneytis- ins. í framtíðinni sé ég fyrir mér að hún sjái um fræöslustörf og aðstoði við gerð kjarasamninga sem færu þá meira og minna fram hjá fyrirtækj- unum og stofnununum sjáifum. Fyr- ir þá aðstoð gæti jafnvel komið ein- hver þóknun," segir Friðrik. Hæstiréttur dæmlr í máli meints kynferöisbrotamanns: Málinu vísað aftur heim - dómur um 15 mánaöa fangelsi ómerktur Hæstiréttur felldi í gær úr gildi 15 mánaða fangelsisdóm Héraðsdóms Norðurlands eystra í máli meints kynferðisafbrotamanns, sem ákærö- ur var fyrir að misnota tvær stjúp- dætur sínar og visaði málinu aftur heim í hérað til meðferðar. Málið var höfðað í héraði í kjölfar þess að konurnar kærðu stjúpföður sinn 8 árum eftir að meintri misnotk- un lauk og fjórum árum eftir að móður þeirra varð kunnugt um meintu misnotkunina. Hæstiréttur telur að mikiisverð gögn eins og sér- fræðilegar skýrslur um líkamlegt og andlegt atgervi kærenda, viðhorf þeirra til ákærða og ákæruefnisins og áhrif hinna meintu brota hefðu á þær vantaði. Þá var því haldið fram fyrir héraðsdómi að viðtalsskýrslur sálfræðings, sem önnur kvennanna gekk til, fyndust ekki þannig að ekki væri hægt að leggja þær fram og læknirinn væri staddur erlendis. Gat Hæstiréttur eigi séð að ákæruvaldið hefði gert nokkuð í því að kveðja lækninn fyrir dóminn til skýrslugjaf- ar. Ennfremur vantaði frekari gögn sem vörðuðu ákærða sjálfan og við- horf hans. í ljósi þessa var málinu vísað aftur heim í hérað til meðferðar. Meiming___________ Á okkar tímum Tvö tónverk voru á efnisská tón- leika Sinfóníuhijómsveitar íslands í gærkvöld, Requiem in Our Time, eftir finnska tónskáldið Einojuhani Rautavaara og A Child of Our Time, eftir enska tónskáldið Mic- hael Tippet. Rautavaara samdi verk sitt á ár- inu 1953 og má segja að með því hafi hann fyrst vakið verulega at- hygli sem tónskáld. Verkið er enda geysivel skrifað og er bæði frum- legt og áhrifamikið. Málmblásarar og slagverk Sinfóniuhljómsveitar- innar stóðu sig með prýði undir styrkri stjórn Osmo Vanská. Síðara verkið á tónleikunum, ór- atorían A Child of Our Time, var beinlínis samið út frá atburðum sem tengdust upphafi síðari heims- styrjaldarinnar. Það var í nóvemb- er 1938 að ungur Pólverji skaut þýskan diplómat til bana í þýska sendiráðinu í París í mótmæla- skyni fyrir morð nasistá á foreldr- um hans. Var Pólverjinn handtek- inn og spurðist síðan ekkert um hann síðan. Nasistar notfærðu sér atvikið til réttlætingar grimmileg- ustu athafna og hófu mestu fjölda- aftökur á gyðingum sem þá höfðu þekkst. Tippett hóf samningu verksins þrem dögum eftir að styrj- öldin skall á og vann að því næstu tvö árin. Textann skrifaði hann sjálfur eftir að hafa ráðfært sig við vin sinn, skáldið T.S. Elliot. Verkið var síðan frumflutt snemma árs 1944. Flytjendur, auk Sinfóníu- hljómsveitar íslands, voru ein- söngvaramir Sigrún Hiálmtýsdótt- ir, sópran, Björk Jónsdóttir, alt, Garðar Cortes, tenór, og Tómas Tónlist Áskell Másson Tómasson, bassi, og auk þess Kór íslensku óperunnar. Þannig má með sanni segja að valinn maður hafi verið í hverju rúmi. Tónleik- amir voru haldnir í Hallgríms- kirkju og hvers vegna er undirrit- uðum hulin ráðgáta. Þetta verk naut sín engan veginn í þeim mikla og langa hljóm sem kirkjan býr yfir. Hraðir kaflar og rytmískir runnu saman og jafnvægi hljóms radda og hljómsveitar var oft ábótavant. Um frammistöðu ein- stakra söngvara, kórs og hljóm- sveitar er því lítið hægt að fullyrða annað en að einsöngsraddirnar hljómuðu fallega þegar þær voru einar eða með litlum undirleik, einkum hljómuðu einsöngsstrófur Sigrúnar Hjálmtýsdóttur vel. Kór- inn virtist og vel æfður en um hljómsveitarleikinn er því miður nánast ekkert hægt að segja annað en að intonasjón var góð. Bæði verkið og flytjendurnir eiga betra skilið, að ekki sé minnst á áheyr- endur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.