Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1994, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1994, Side 25
FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1994 31 dv Merming Kristján Steingrímur sýnir í Birgi Andréssyni gallerí: Horfur í bláu Galleríiö við Vesturgötuna sem virðist heita Birgir Andrésson ef marka má merkingar á hurðinni er ekki stórt en býður þó upp á ýmsa möguleika í uppsetningu. Nýlega betrekkti Jón Óskar sýningarherbergið með port- rettljósmyndum þöktum vaxi og olíu, og fullkomnaði sýninguna með því að gefa samtímis út bók með sambærilegum mannamyndum. Nú hefur Kristján Steingrímur sett upp sína sýningu, „Horfur", og fer hann ailt öðruvísi að. Hér er það herbergið sjálft sem er efniviður verks- ins og rými þess sem ákvarðar umfang verksins. Veggirnir eru blámálað- ir og herbergið er allt fremur drungalegt, en þegar nánar er að gáð kemur í ljós að það er nokkur munur á flötunum: einn veggur gljáir en annar Myndlist Jón Proppé er mattur. Þá má greina í málningunni myndir: geómetrískt mynstur og galdrastaf. Merking þessara tákna er óljós, en skiptir líklega ekki miklu máli - það er mun frekar stíllinn í framsetningunni sem dregur að sér athygb áhorfandans. Stíllinn er hreinn, einfaldur og óvæginn; verkið umlykur áhorfandann og knýr hann til að sættast við umhverfl sem hann getur ekki skilið út frá neinum hversdagslegum forsendum (þetta er íslenska fyrir það sem við annars köllum „minímaliska installasjón"). Sýningin er vel heppnuð og gefur sem fyrr segir til kynna hve miklu má áorka í litlu rými ef það er nýtt sem skyldi. Leiðrétting: Röng kjall- aramynd Með kjallaragrein í DV miðvikud. 19. okt. sl. eftir Sigurð Þráinsson garðyrkjubónda birtist röng mynd, nefnilega af Sigurgeiri Skírnissyni véltæknifræðingi. - Hér birtist rétta myndin - af Sigurði Þráinssyni garð- yrkjubónda. - DV biðst afsökunar á mistökunum. Ný blóma- og gjafavöruverslun, Is-Blóm, hefur verið opnuð að Háaleitisbraut 58-60. Boðið er upp á skreytingar við öll tækifæri og bestu gæði í blómum sem völ er á. Afskorin blóm, pottaplöntur og gjafavörur. Eigandi er Ragnar Stefánsson. Starfa aldraða Langholtskirkja: Aftansöngur kl. 18. Laugarneskirkja: Mömmumorgunn kl. 10-12. Tilkyimingar Fataleiga Garðabæjar Opið hús á laugardaginn frá kl. 14-16. Heiðar verður á staðnum. Mikið af nýjum fótum. Allir velkomnir. Félag eldri borgara í Kópavogi Spiluð veröur félagsvist og dansað í Fé- lagsheimili Kópavogs í kvöld kl. 20.30. Þöll og hljómsveit leika fyrir dansi. Hús- iö öllum opið. Félag eldri borgara í Rvík og nágrenni Félagsvist í Risinu kl. 14 í dag. Guðmund- ur Guðjónsson stjórnar. Göngu-Hrólfar leggja af stað frá Risinu kl. 10 laugardags- morgun. Eskfirðingar og Reyðfirðingar í Reykjavík og nágrenni verða með árlegt síödegiskafíi fyrir eldri sveitunga á sunnudaginn kl. 15 í félagsheimilinu Drangey, Stakkahlíð 17. Hana-nú í Kópavogi Vikuleg laugardagsgánga Hana-nú í Kópavogi verður á morgun. Lagt af stað frá Gjábakka, Fannborg 8, kl. 10. Kafíi og meðlæti aö venju í tilefni vetrarkomu. Breiðfirðingafélagið Vetrarfagnaður Breiðfirðingafélagsins verður haldinn í Breiðfirðingabúð, Faxa- feni 14, laugardaginn 22. okt. og hefst kl. 22. Allir velkomnir. Fyrsti vetrardagur - Garða- bæjardagur Laugardaginn 22. okt. kl. 13-17 verður haldinn í Garðaskóla og næsta nágrenni sérstakur Garðabæjardagur undir yfir- skriftinni „Fjölskyldan og bærinn okk- ar“. Deginum er ætlað að vera vettvang- ur fyrir bæjarbúa á öllum aldri til að koma saman, fræðast, njóta skemmtiat- riða og veitinga og kynnast starfsemi ýmissa félagasamtaka og annarra aðila í bænum. Málþing verður haldið í tveimur málstofum, þar verður fyrirlestrar um málefni fjölskyldunnar og fyrirlestrar um ýmis málefni Garöabæjar. Á bóka- safninu verða sögustundir fyrir böm og jafnframt kynningar á bókum um sögu Garöabæjar. Myndlistarskóiinn mun setja upp sýningu á verkum nemenda sinna. Aðgangur er ókeypis og eitthvað ætti að vera viö allra hæfi. SÁÁ-Félagsvist Félagsvist verður í kvöld í Úlfaldanum, Ármúla 17a kl. 20.30. Allir velkomnir. Vegleg verðlaun og kaffiveitingar. Laugardagskaffi Kvennalistans Konur í verkalýðshreyfingunm. Kvenna- listinn býður til laugardagskaffis á Laugavegi 17 á fyrsta degi vetrar, 22. okt. Þar mun Ásdís Guðmundsdóttir leiða umræðuna um konur í verkalýðs- hreyfmgunni, en hún hefur m.a. kannað stöðu kvenna á þingum Alþýðusam- bandsins árin 1940-1992. Húsið er opnað kl. 11 og eru allir velkomnir í þetta fyrsta laugardagskafft Kvennalistans á þessum vetri. 2001 í Undirheimum I dag kl. 19 verða tónleikar í Undirheim- um í Fjölbrautaskólaniun í Breiðholti og eru þessir tónleikar liður í Unglistarhá- tíöinni. Þar mun hijómsveitin 2001 troða upp ásamt upphitunarhljómsveit. Að- gangur er ókeypis éins og á öllum uppá- komum Unglistar. Snerruútgáfan minnir á ljósmyndasýningu, sem stendur nú yfir í verslun ATVR í Kringlunni, Reykjavík. Þar eru sýndar myndir sem prýða almanök útgáfunnar fyrir áriö 1995. Sýningin er opin alla virka daga frá kl. 10-18. Unglist ’94 Laugardaginn 22. október kl. 13-16: Markaðstorg menningarinnar - blönduö dagskrá í Kolaportinu. Kl. 22 rokktón- leikar: Norræna tónlistarhátíðin Norden rokkar á Tveimur vinum. Háskólahátíð verður haldin í Háskólabíói laugardaginn 22. okt. kl. 14 og fer þar fram brautskrán- ing kandídata. Að þessu sinni verða brautskráðir 186 kandidatar. Athöfnin hefst með því að Björk Jónsdóttir sópran- söngkona og Svana Víkingsdóttir píanó- leikari flytja nokkur lög. Því næst mun háskólarektor, Sveinbjöm Björnsson, ávarpa kandídata og ræða málefni Há- skólans. Deildarforsetar afhenda kandíd- ötum prófskirteini. Að lokum syngur Háskólakórinn nokkur lög undir stjóm Hákonar Leifssonar. Regnboginn í dag frumsýnir Regnboginn bandarísku kvikmyndina Pulp Fiction eða Reyfara. Þessi nýjasta mynd hins umdeilda leik- stjóra og handritshöfundar Quentin Tar- antinos hefur vakið gríðalega athygli og hrifsaði til sin Guilpálmannn á kvik- myndahátíðinni í Cannes. Myndin segir í raun þrjár sögur af nokkmm lítilsigld- um persónum í kvikmyndaborginni Hollywood og allar fléttast sögurnar sam- an í tíma og rúmi. Mikill stjömufans kemur fram í Pulp Fiction, þ. á m. John Travolta, Samuel L. Jackson, Bruce Will- is, Harvey Keitel, Christopher Walken, Uma Thurman, Rosanne Arquette að ónefndum Tarantino sjálfmn. ÞJÓDLEIKHÚSIÐ Sími 11200 Stóra sviðið kl. 20.00 SNÆDROTTNINGIN ettir Evgeni Schvartz Byggt á ævintýri H.C. Andersen Frumsýning mvd. 26/10 kl. 17.00,2. sýn. sud. 30/10 kl. 14.00,3. sýn. sud. 6/11 kl. 14.00. VALD ÖRLAGANNA eftir Giuseppe Verdi Föd. 25/11, uppselt, sud. 27/11, uppselt. Þrd. 29/11, nokkur sætl laus, föd. 2/12, uppselt, sud. 4/12, nokkur sætl laus, þrd. 6/12, laus sæti, fld. 8/12, nokkur sætl laus, Id. 10/12, örfá sæti laus. Ósóttar pantanir seldar daglega. GAURAGANGUR eftir Ólaf Hauk Símonarson Á morgun, nokkur sæti laus, fid. 27/10, fid. 3/11, uppselt, föd. 4/11, fid. 10/11, upp- seit.ld. 12/11. GAUKSHREIÐRIÐ eftir Dale Wasserman í kvöld, föd. 28/10, laud. 29/10, Id. 5/11, föd. 11/11. Litla sviðið kl. 20.30. DÓTTIR LÚSÍFERS eftir William Luce Á morgun, uppselt, föd. 28/10, upp- selt, Id. 29/10, fid. 3/11, Id. 5/11. Smiðaverkstæðið kl. 20.00 SANNAR SÖGURAF SÁLARLÍFISYSTRA eftir Guðberg Bergsson í leikgerð Viðars Eggertssonar. I kvöld, uppselt, föd. 28/10, uppselt, Id. 29/10, Id. 5/11, sud. 6/11. Miðasala Þjóðleikhusslns er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Teklð á móti simapöntunum alla virka daga frá kl. 10.00. Græna línan 99 61 60. Bréfsimi 6112 00. Símil 12 00-Greiðslukortaþjónusta. Húnvetningafélagið Félagsvist á laugardaginn kl. 14 í Húna- búð, Skeifunni 17. Allir velkomnir. Stofnun Árna Magnússonar Kynnrng Flateyjarbókar á vegum Stofn- unar Árna Magnússonar á íslandi. Laug- ardaginn 22. okt. kl. 14-18 verður Árna- stofnun með handritasýningu þar sem m.a. verður sýnd Flateyjarbók, en hún hefur ekki verið á almennum handrita- sýningum mörg undaníarin ár. Jafn- framt veröur handritið kynnt með þrem- ur stuttum fyrirlestrum kl. 16.30 í stofu 201 í Ámagarði. Sérstakt tilefni til að kynna Flateyjarbók nú er að yngsti text- inn í upphaflegum hluta bókarinnar er annáll sem endar áriö 1394 - þannig að Flateyjarbók er nú sex alda gömul. Iðnnemasamband íslands í dag kl. 16 verður 52. þing Iðnnemasam- bands íslands sett í Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6. Við þingsetningu munu Sighvatur Björgvinsson iðnaðarráð- herra, Benedikt Davíðsson, forseti Al- þýðusambands íslands, og Sigurður Gunnarsson, stjórnarformaður Félags- íbúða iðnnema, flytja ávörp. Yfirskrift þingsins aö þessu sinni er „Eru hags- munir iðnnema tryggðir innan sveitarfé- laga?“ og mun það verða aðalmál þings- ins. Á laugardeginum hefst þingið kl. 9 með umræðum um drög að ályktunum. Á sunnudeginum kl. 12 verður fram hald- ið umræðum um ályktanir og þær að lok- um afgreiddar og ný stjórn kosin. Fundir Landsfundur jafnréttisnefnda sveitarfélaga Dagana 21. og 22. október verður haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur landsfundur jafn- réttisnefnda sveitarfélaga og námskeið til undirbúnings starfi á nýbyrjuðu kjör- timabili. Að fundinum standa Jafnréttis- nefnd Reykjavíkur, Jafnréttisráð og Samband íslenskra sveitarfélaga. Markmið þessa fundar, sem er annar landsfundur jafnréttisnefnda, er að efla samstarf nefndanna og þeirra aðila sem málið varðar, að miðla reynslu og veita nýskipuðum fullti-úum ffæðslu. Leikhús LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR Litlasviðkl. 20.00 ÓSKIN (G ALDR A-LOFTU R) ettir Jóhann Sigurjónsson Laugard. 22. okt. Sunnud. 23. okt. Þriðjud. 25. okt., uppselt. Fimmtud. 27. okt., örfá sæti laus. Föstud. 28. okt., fáein sætl laus Laugard. 29. okt. Flmmtud. 3. nóv., uppselt. Föstud. 4. nóv., örfá sæti laus. Laugard. 5. nóv. 40. sýn. fimmtud. 10. nóv., örfá sæti laus. Föstud. 11.nóv. Stóra sviðkl. 20. LEYNIMELUR13 eftir Harald Á. Sigurðsson, Emil Thoroddsen og Indriða Waage. Laugard. 22/10, fáein sæti laus, föstud. 28/10, fáein sæti laus, laugard. 29/10, fáein sæti laus. Stóra svið kl. 20. HVAÐ UM LEONARDO? ettir Evald Flisar. Þýðandi Veturliði Guðnason. Leikmynd: Axel Hallkell Jóhannesson. Búningar: Aðalheiöur Alfreðsdóttir. Lýsing: Elfar Bjarnason. Leikhljóð: Baldur Már Arngrimsson. Leikstjóri: Hallmar Sigurðsson. Leikarar: Ari Matthíasson, Bessi Bjarna- son, Guðlaug E. Ólafsdóttir, Magnús Ólafs- son, Margrét Helga Jóhannsdóttir, María Sigurðardóttir, Pétur Einarsson, Soffia Jak- obsdóttir, Valgerður Dan, Vigdis Gunnars- dóttir, Þorsteinn Gunnarsson, ÞórTulinius. Frumsýning í kvöld, uppselt, 2. sýn. sunnud. 23. okt., grá kort gilda, fáein sæti laus, 3. sýn. miðv. 26/10 rauð kort gllda, örfá sæti laus, 4. sýn. fimmtud. 27/10, blá kort gilda, örfá sæti laus. Miðasala er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13.00-20.00. Miða- pantanir I sima 680680 alla virka daga frá kl. 10-12. Munið gjafakortin, vinsæl tækifærisgjöf. Greiðslukortaþjónusta. Leikfélag Reykjavíkur- Borgarleikhús Leikfélag Akureyrar KARAMELLUKVÖRNIN KVORNIN Gamanleikur með söngvum fyrir allafjölskyiduna! Laugard. 22. okt. kl. 14, örfá sæti laus. Sunnud. 23. okt. kl. 14. Þriðjud. 25. okt. kl. 17, örfá sæti laus. BAR PAR Tveggja manna kabarettinn sem sló í gegn á síðasta leikári! Sýnt í Þorpinu, Höfðahlíð 1 Laugard. 22. okt. kl. 20.30. Uppselt. 60. sýning föstud. 28. okt. kl. 20.30. Laugard. 29. okt. kl. 20.30. TAKMARKAÐUR SÝNINGAFJÖLDI! Sala aðgangskorta stendur yfir! Miðasala i Samkomuhúsinu er opin alla virka daga nema mánudaga kl. 14-18 og sýningardaga fram að sýn- ingu. Sími 24073. Simsvari tekur við miðapöntunum utan afgreiðslutíma. Greiðslukortaþjónusta. Kúba á tímum vaxandi heimsátaka Vináttufélag íslands og Kúbu og Mál- fundafélag alþjóðasinna standa að fundi um Kúbu á tímum vaxandi heimsátaka laugardaginn 22. október kl. 15 á Litlu- brekku, bak við veitingahúsið Lækjar- brekku. Nýr sendiherra Kúbu á íslandi, Martin Mora, verður gestur fundarins. Öllum er heimill aðgangur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.