Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1994, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1994, Qupperneq 26
34 FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1994 Afmæli__________________ Bjami V. Guðmundsson Bjarni Valgeir Guðmundsson for- setabílstjóri, til heimilis að Jörfa á Álftanesi, er sextugur í dag. Starfsferill Bjarni fæddist í Reykjavík en ólst upp í foreldrahúsum á Fjalli í Sæ- mundarhlíð í Skagaflrði til tólf ára aldurs og síðan á Botnastöðum í Svartárdal í Húnavatnssýslu. Bjami flutti til Reykjavíkur 1951, hóf nám í bifvélavirkjun, lauk sveinsprófl í þeirri iðngrein og starf- aði síðan við greinina í tuttugu og þrjú ár. Hann hóf störf hjá forseta- embættinu 1980 og hefur starfað þar síðan. Fjölskylda Bjarni kvæntist 24.5.1958 Maríu Birnu Sveinsdóttur, f. 18.3.1936, full- trúa hjá Pósti og síma. Foreldrar hennar: Sveinn Erlendsson, b. á Breiðabólstöðum á Álftanesi, og k.h., Júlíana K. Björnsdóttir hús- freyja. Börn Bjarna og Maríu eru Sveinn Bjarnason, f. 16.7.1957, verkamaður, búsettur á Jörfa; Salbjörg,f. 11.4. 1966, sölumaður, búsett á Áiftanesi og á hún tvö börn, Óskar Örn Þór- hailsson, f. 22.7.1986, og Júlíönu Kristbjörgu Þórhallsdóttur, f. 30.1. 1989; Anna María, f. 22.4.1969, hús- móðir í Reykjavík, gift Jónasi Þóris- syni húsasmið og eiga þau eina dótt- ur, Marey Jónasdóttur, f. 8.10.1993. Bræður Bjarna: Óskar Guð- mundsson, f. 1930, d. 1956, prentari i Reykjavík; Gunniaugur Guö- mundsson, f. 1942, múrarameistari á Álftanesi; Jón Eyjólfur Guð- mundsson, f. 1944, húsasmíöameist- ari í Ástrahu. Foreldrar Bjarna voru Guðmund- ur Jónsson, f. 6.3.1904, nú látinn, bóndi á Botnastöðum og síðast starfsmaður Pósts og síma í Reykja- vík, og k.h., Anna Guðrún Bjarna- dóttir, f. 29.12.1910, nú látin, hús- freyja. Ætt Guðmundur var bróðir Þórðar, afa Þórarins Tyrfingssonar yfir- læknis, og bróðir Helgu, ömmu Pálma Gíslasonar, formanns UMFÍ. Guðmundur var sonur Jóns, skálds á Háreksstöðum, bróður Guðrúnar skáldkonu, Sæmundar, guðfræð- ings og skálds og Jóhanns, alþm. í Sveinatungu, fóður Guðmundar, bæjarfulltrúa í Reykjavík, afa Sveins Rúnars læknis og Óttars Fel- ix framkvæmdastjóra Haukssona. Jón var sonur Eyjólfs, skálds og hreppstjóra í Sveinatungu Jóhanns- sonar, og Helgu Guðmundsdóttur, b. á Sámsstöðum, bróður Sigurðar, afa Jóns Helgasonar, skálds og pró- fessors. Meðal annarra bræðra Guð- mundar voru Jónas og Gísh, afar Steins Dofra ættfræðings. Guð- mundur var sonur Guðmundar, ættfóður Háafellsættarinnar Hjálm- arssonar. Móðir Helgu var Guðrún Þorsteinsdóttir, b. á Hallkelsstöð- um, Hjálmarssonar. Móðir Guðmundar á Botnastöðum var Ragnhildur Þórðardóttir, b. á Brekku, Jónssonar, ogHalldóru Tí- motheusdóttur. Anna Guðrún var dóttir Bjama, smiðs í Glæsibæ í Skagaflrði, bróður Sigurlaugar, móður Jakobs Bene- diktssonar orðabókaritstjóra. Önn- ur systir Bjarna var Hallfr íður, amma Stefáns Guðmundssonar alþm. Bjarni var sonur Sigurðar, b. á Stóra-Vatnsskarði, bróður Stefáns, afa Stefáns íslandi, og bróður Jóns, langafa Ingibjargar, móður Bjama Dags dagskrárgerðarmanns. Sig- urður var sonur Bjarna, skyttu í Sjávarborg, Jónssonar, hreppstjóra í Álftagerði, Bjarnasonar. Móðir Sigurðar var Guðrún Þorsteinsdótt- ir, hreppstjóra og skálds á Reykja- völlum, Páissonar, bróður Sveins landlæknis. Móðir Bjarna var Sal- björg Sölvadóttir, b. á Steini, Ólafs- sonar. Móðir Önnu Guðrúnar var Val- gerður, systir Árna Hafstað, afa Bjarni Valgeir Guðmundsson. Árna Hjartarsonar jarðfræðings og Árna Árnasonar, ritstjóra hjá Námsgagnastofnun. Valgerður var dóttir Jóns, hreppstjóra og dbrm. á Hafsteinsstöðum, Jónssonar, hrepp- stjóra á Hóli, Jónssonar. Móðir Jóns var Sigríður Magnúsdóttir, hrepp- stjóra á Halldórsstöðum í Laxárdal, Ásmundssonar. Móðir Valgerðar var Steinunn, systir Páls, hrepp- stjóra á Ysta-Mói, og Sveins, hrepp- stjóra á Felh, dóttir Árna, hrepp- stjóra á Ysta-Mói, Þorleifssonar. Bjarni tekur á móti gestum í hátíð- arsal íþróttahúss Bessastaðahrepps íkvöldkl. 20.00. Fólk í fréttum Pétur Þorsteinsson Pétur Þorsteinsson, skólastjóri á Kópaskeri, er frumkvöðull að - og einn af stjórnendum íslenska menntanetsins, tölvunetkerfis sem langflestir íslenskir skólar eru tengdir við. Eins og fram kom í DV-frétt í gær hefur kerfið fengið lofsamlega umflöllun í nýlegri skýrslu framkvæmdastjórnar ESB. Starfsferill Pétur fæddist á Daðastöðum í Núpasveit í Norður-Þingeyjarsýslu og ólst þar upp. Hann lauk stúdents- prófi frá MA1970, stundaði nám í líffræði, sögu og félagsfræði við HÍ 1970-71, stundaði réttindanám við KHÍ1980-90 og lauk þaðan prófi 1990. Pétur var skólastjóri Barnaskól- ans í Grímsey 1971-72, kennari við Barna- og unglingaskólann á Rauf- arhöfn 1972-74, bóndi á Daðastöðum jafnhliða kennslu 1972-82, kennari við Miðskólann í Lundi í Öxarfirði 1975-78 og skólastjóri Grunnskólans á Kópaskeri frá 1979. Pétur hefur kennt á námskeiðum á vegum KHÍ og Fræðsluskrifstofu Norðurlands eystra. Hann átti frumkvæði að stofnun Imbu, Tölvu- miðstöðvar skóla á Kópaskeri sem starfrækt var 1988-92 og síðan ís- lenska menntanetsins og er nú einn af stjórnendum þess. Pétur starfaði í Fylkingunni um árabil og sat í miðstjórn Alþýðu- bandalagsins 1983-87. Fjölskylda Systkini Péturs eru Þorsteinn Þor- steinsson, f. 10.6.1938, þýðandi og kennari hjá Námsgagnastofnun, kvæntur Bríeti Héðinsdóttur; Val- gerður Guðbjörg Þorsteinsdóttir, f. 18.8.1945, ritari við Landsbanka ís- lands, gift Árna Scheving tónlistar- manni. Foreldrar Péturs: Þorsteinn Þor- steinsson, f. 24.7.1909, d. 20.2.1976, hreppstjóri á Daöastööum, og k.h., Ólína Bjarney Pétursdóttir, f. 25.12. 1907, húsfreyja. Ætt Þorsteinn var sonur Þorsteins, hreppstjóra á Daöastöðum, Þor- steinssonar, hreppstjóra á Daöa- stöðum, Þorsteinssonar, b. á Hafra- fellsstöðum, Þorsteinssonar. Móðir Þorsteins og amma Péturs var Petr- ína, systir Halldóru, móður Hólm- gríms, prests á Raufarhöfn, Þor- steins, b. á Vogi, og Jóhanns tón- skálds Jósepssona (Ormarslóns- bræðra). Önnur systir Petrínu var Jóhanna, móðir Lárusar Pálssonar leikara. Petrína var dóttir Þorgríms, b. á Ormarslóni, bróður Jónasar, afa Þorkels Jóhannessonar háskóla- rektors. Annar bróðir Þorgríms var Kristinn, afi Níelsar Árna Lund, deildarstjóra í landbúnaðarráðu- neytinu og varaþingmanns. Þor- grímur var sonur Kristjáns, b. í Leirhöfn á Sléttu, Þorgrímssonar, b. í Hraunkoti, Marteinssonar. Móð- ir Kristjáns var Vigdís Hallgríms- dóttir, ættföður Hraunkotsættar- innar, Helgasonar. Móðir Petrínu var Hólmfríður Pétursdóttir, b. á Oddsstöðum á Sléttu, Jakobssonar, hreppstjóra og alþm. á Breiðumýri, Péturssonar, hreppstjóra á Stóru- Laugum, Jakobssonar. Móðir Hólm- fríðar var Margrét, systir Þórunnar, ömmu Gunnars Gunnarssonar skálds. Margrét var dóttir Hálfdán- ar, b. á Oddsstöðum, bróður Stef- áns, langafa Einars Benediktssonar skálds. Hálfdán var sonur Einars, prests í Sauðanesi, Árnasonar, og Margrétar Lárusdóttur Scheving, systur Jórunnar, ömmu Jónasar Hallgrímssonar skálds. Bróðir Óhnu Bjarneyjar var Bjarni, faðir Péturs, alþm. og fræðslustjóra á Vestflörðum. Ólína Bjarney er dóttir Péturs, skipstjóra á Bíldudal, Bjarnasonar, og Valgerð- Pétur Þorsteinsson. ar Kristjánsdóttur, skipasmiðs á Bíldudal, Kristjánssonar, b. á Veðr- ará, Vigfússonar. Móðir Kristjáns á Veðrará var Þórkatla Ásgeirsdóttir, prests í Holti, Jónssonar, bróður Þórdísar, móður Jóns Sigurðssonar forseta. Móðir Þórkötlu var Rann- veig Matthíasdóttir, stúdents í Vig- ur, Þórðarsonar, ættföður Vigur- ættarinnar, bróður Ingibjargar, föð- urömmu Jóns forseta. Þórður var sonur Ólafs, lögsagnara á Eyri og ættföður Eyrarættarinnar, Jóns- sonar. Uppboð á lausafjármunum Eftirtaldar bifreiðar og dráttarvélar verða boðnar upp við lögreglustöðina á Hvolsvelli föstudaginn 28. október nk. kl. 15.30: LV-352 GR-347 P-768 X-3369 X-2900 Ö-9375 R-68192 N-139 ZK-535 ZM-551 KI-621 BG-410 Einnig: Ámoksturstæki, AALÖ árg. 1991. Uppþvottavél, gufuofn og 5 hausa gaseldavél. Vænta má að greiðsla v§rði áskilin við hamarshögg. SÝSLUMAÐURINN í RANGÁRVALLASÝSLU LiTTi Vinningstölur 19. okt. 1994 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING n6afe 2 24.180.000 Tm% 5 af 6 tffl+bónus 0 1.440.181 RH 5 af 6 4 63.677 EH 4 af 6 204 1.986 3 af 6 Ca+bónus 841 206 fljirinniniur fór til Noregs ogSvíþjódar Aðaltölur: 7) (23) (26) BÓNUSTÖLUR (s)@@ Heildarupphaeð þessa viku 50.633.279 áísi, 2.273.279 UPPLY8INGAR, SlMSVARI 81- 88 15 11 LUKKULlNA 9B 10 00 - TEXTAVARP 451 BIRT MEÐ FYHIRVARA UM PRENTVILLUR 80 ára Jóna Erlingsdóttir, Norðurbrún 1, Reykjavík. 75ára GuðmundurBrynjólfsson, Hlöðutúni, Stafholtstungnalireppi. Sigríður Bj arnadóttir, Skálabrekku 19 A, Húsavík. Kona Hilmars er Ágústa Guð- bjartsdóttir, Þautakaámóti gestum i Snar- fara, félags- heimilisport- bátaeigenda við Elliðanaust, laugardaginn 22.10. kl. 18.00- 20.00. Judith tekur á móti gestum í safn- aðarheimih Fella- og Hólakirkju, Hólabergi 88, laugardagiim 22.10. kl. 15.00-19.00. Valgeir Sigurðsson, Vesturgötu 26, Akranesi. 40 ára Andrés Jóhannsson, Þrastarhólum 10, Reykjavík. Hallgrimur Ólafsson, Dalbraut 29, Akranesí. Reynir Guðbjartsson, Kjarlaksvöllum, Sauxföæjarhreppi. Hilmar Þorbjörnsson, aðstoöaryfirlögregluþjónn og formaður Snarfara, Engjateigi 17, Reykjavik, verður sextugur á sunnudaginn. Eyjólfur Guðmundsson, bifVélavirkjameistari, Engjaseli 11, Reykjavík.' Eiginkonahans erEygló Ebenesersdótt- ir. Þau taka á móti gestumíKiw- anishúsinu, Smiðjuvegil3 A, Kópavogi, millikl. 17.00 og 19.00 ídag. Judith E. Christiansen, Orrahólum 7, Reykjavík. Steinunn Skúladóttir, Dalatanga 2, Mosfehsbæ. Guðrún Jónsdóttir, Lyngbergi 23, Hafnarfirði. Sigurjón R. Grétarsson, Háaleitisbraut 153, Reykjavík. Ingibjörg Ingólfsdóttir, Seilugranda 3, Reykjavík. Elna Katrín Jónsdóttir, Vesturgötu 33 B, Reykjavík. Sigurður Hreinn Jónasson, Njarðarholti4, Mosfellsbæ. Sigurður Hreinn er erlendis. Arnar Grétar Pálsson, Móatúni 9, Tájknafiröi. Ingvar Benedikt Ástmarsson, Holtabrún 8, Bolungarvík. Gísli Einarsson, Smáratúni 11, Keilavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.