Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1994, Blaðsíða 32
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast
3.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 632700
FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1994.
4
4
4
Rjúpnaskyttur
skutu hreindýr
Lögreglan á Egilsstööum handtók
í gær tvo menn fyrir ólöglegar veiðar
á hreindýri. Mennirnir voru á
rjúpnaveiöum og gistu í sumarbú-
staö á Fljótsdal.
Lögreglunni barst tilkynning um
að mennirnir, sem eru aðkomu-
menn, heföu skotið hreindýr og var
fariö á staðinn og máliö kannaö. í
ljós kom aö nýskotið hreindýr var á
staönum. Lögreglan lagði hald á
veiöiriffil og kjötið. Mennirnir viöur-
kenndu viö yfirheyrslur að hafa
skotiö dýrið. Hreindýraveiðitíman-
um lauk 15. september síðastliðinn.
Rafmagnsspennir féll:
Kanna PCB-
meng-
un vegna olíuleka
íOddsskarði
„Það er PCB á sumum þessara
spenna. Við eigum eftir að kanna
hvort um slíkt hafi verið að ræöa í
þessu tilviki," sagði Magnús Péturs-
son, rafveitustjóri á Eskifiröi, í sam-
tali við DV í morgun.
Spennir, sem notaður var fyrir
skíðasvæðið og göngin um Odds-
skarð, féll niður af búkkum þar sem
hann beiö flutnings með þeim afleið-
ingum að olía lak af honum. Verið
var að skipta um spenni en rigning
er m.a. talin hafa orsakað fallið.
Þegar DV fór í prentun var verið
að kanna umfang olíulekans og hvort
PCB-efni hefði verið í spennaolíunni.
Magnús sagðist ekki geta sagt til um
hve mikið magn af olíu hefði verið í
spenninum, slikt væri mjög mismun-
andi. í þessu tilfelli hefði verið um
tiltölulega lítinn spenni að ræöa.
Suöureyri:
Selja 80 pró-
sent af kvót-
amim burt
„Við höfum sagt upp um 40 manns
vegna fyrirsjáanlegs hráefnisskorts
eftir 1. desember þegar krókabátarn-
ir fara í lögbundið veiöibann," segir
Óðinn Gestsson, framkvæmdastjóri
Fiskiðjunnar Freyju á Suðureyri.
Freyja hefur átt í rekstrarerfiðleik-
um undanfarin ár og samningar um
sölu á Sigurvon eina bát fyrirtækis-
ins eru komnir á lokastig. Með bátn-
um fara um 80 prósent af kvóta Súg-
firðinga af staðnum og þá hefur fyrir-
tækið ekki á neinu að byggja nema
afla krókabátanna sem verða að
• stoppa frá 1. desember til 1. febrúar.
LOKI
Þýðir þetta að grunnur
grunnskólans sé andlega
alkalískemmdur?
Tollgæslan á Vellinum gómar burðardýr:
Þrír í haldi
efftir amfeta
mínsmygl
• /
Fíkniefnadeild Tollgæslunnar á
Keflavikurflugvelli fann í fyrra-
kvöld 313 grömm af amfetamíni á
karlmanni á fertugsaldri. Maður-
inn var að koma frá Lúxemborg
þegar grunsemdir vöknuöu um að
hann hefði efnið innanklæða og var
málið sent ávana- og fikniefnadeild
lögreglunnar.
Að sögn Kristjáns Inga Kristjáns-
sonar, lögreglufúlltrúa og yfir-
manns fíkniefnadeiidar, lék grunur
á að maðurinn væri einungis burð-
ardýr, það er að hann væri einung-
is að flyfja efnið gegn greiðslu, og
var því krafíst gæsluvarðhaldsúr-
skurðar yfir honum. Héraðsdómur
féllst síðan á 8 daga varðhald.
Tókst að knýja fram játningu hjá
manninum og að sögn Kristjáns
var síðan farið síðdegis i gær og
rúmlega þrítugur maður handtek-
inn í Kópavogi og annar maður sem
var í för með honum. Sá þrítugi er
grunaður um aö hafa fjármagnað
kaupin en þáttur hins er í rann-
sókn. Mennirnir voru handteknir
á þeim stað þar sem burðardýriö
átti að afhenda efnið og fá greitt
fyrir viðvikið.
Nokkuð víst er að krafíst verði
gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir
þeim þrítuga sem handtekinn var
í Kópavogi en samkvæmt upplýs-
ingum DV útiloka rannsóknaraðil-
ar málsins ekki að fleiri tengist því.
Báðir mennimir hafá áöur komið
við sögu lögreglu. Um er að ræða
samvinnuverkefni fíkniefnadeild-
ar Tollgæslunnar á Keflavíkurflug-
velli og ávana- og fíkniefnadeildar
lögreglunnar.
Börnin i Hafnarfirði njóta þess að náttúran er bæði fögur og hrikaleg innan bæjarmarkanna. Ufið hraunið tekur á
sig hinar fjölbreytilegustu myndir í barnshuganum þannig að hvert skref er sem ferð um heim ævintýranna. Mynd-
in er tekin á Viðistaðatúninu og eins og sjá má kunna börnin að vel að meta umhverfið. DV-mynd GVA
Veðriðámorgun:
Víða all
hvasst
Á morgun verður norðlæg átt,
víða allhvasst. Slydda eða rigning
á Noröur- og Austurlandi en úr-
komulaust suðvestanlands. Hiti
0-7 stig, hlýjast sunnanlands.
Veðrið í dag er á bls. 36
Þjóðhættu-
lega lélegir
grunnskólar?
„Það hafa nýlega komið út skýrslur
um framhalds- og grunnskólastigið.
í þessum skýrslum kemur fram að
það er hreint ótrúlega hátt hlutfall
nemenda sem ekki nær lágmarksár-
angri á grunnskólaprófi. Það er Mka
vitað að árangur milli skóla er afar
mismunandi. Það er vel varöveitt
leyndarmál og ekki gefið upp gagn-
vart foreldrum hver árangur skól-
anna er. Þannig að kerfið í dag vinn-
ur gegn samanburði, vinnur gegn
samkeppni og skilar langt í frá þvi
sem það ætti að geta skilað,“ segir
Þórarinn V Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, um grunnskóla-
kerfið í landinu. Á ráðstefnu sem
haldin var í gær sagði Þórarinn
grunskólana vera „þjóðhættulega lé-
lega.“
Veigamesta skýringin að mati Þór-
arins er að allt of litlir peningar séu
settir í grunnskólana af hinu opin-
bera. „Við leggjum of lítið til grunn-
skólanna og fáum allt of lítið út úr
þeim. Það vantar annað launakerfi
til kennara. Umbuna þarf þeim
kennurum sem ná bestum árangri."
Ólafur H. Óskarsson, skólastjóri
Valhúsaskóla á Seltjamamesi, sagði
við DV að þetta væri kjaftæði í Þór-
arni. „Hann hefur engin tök á að
dæma skólakerfið. Miðað við mjög
lítið framlag hins opinbera miðað við
önnur lönd þá erum viö með nokkuð
góða skóla hérlendis. Launakerfi
kennara er það sem er hættulega lé-
legt,“ sagði Ólafur.
Vanaf astir inn-
brotsþjófar
Tilraun var gerð til innbrots í
Björnsbakarí við Hringbraut í morg-
un. Er þetta í 9 skipti sem reynt er
að brjótast inn eöa brotist hefur ver-
ið inn í bakaríið á skömmum tíma.
Átt hafði verið við hurð á bakaríinu
og unnar skemmdir á henni. Þjófarn-
ir komust þó ekki inn og var enginn
handtekinn þegar lögreglan kom á
vettvang í morgun.
Félagsmálaráöherra:
Les skýrsluna
„Eg hef ekki séð þessa skýrslu og
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
get ekki lagt neitt mat á hana en ég
les hana vafalaust. Ég tel ólíklegt og
ekki í samræmi við venjur að fram-
kvæmdastjóri listahátíöar hafi getað
gengið í sjóði bæjarins," sagði Guð-
mundur Árni Stefánsson félagsmála-
ráðherra í morgun um nýkynnta
endurskoðunarskýrslu um fjármál
Listahátíðar Hafnarfjarðar.
-sjábls.5
4
4
NITCHI
SKAFTTALÍUR
Suduriandsbraut 10. S. 686499.
4
4
4
4
á