Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1994, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1994, Page 6
FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 1994 Neytendur Niðurstaða rannsóknar sænskra vísindamanna: Tyggjó dreifir kvika- silfri um líkamann Þarftu aö merkja framleiðslu þína? Nýja línan frá Bizerba * Strikamerking * Miðastærö, hæð 20-300 mm * Miðastærð, breidd 20-120 mm * Stafastærðir, 30 tegundir * íslenskt letur * Minni 1 MB/8 MB hámark * Prenthraði, hámark 100 mm/s. * Vogatenging * Tölvutenging RS 232 C. RS 485 PC * Tækjastærð 283x483x183 mm * Vörumiðaþjónusta * Hönnun RÖKRÁS HF. Bildshöfða 18 - sími 671020 Engihjalla Glæsibæ Laugalæk Borgarkringlu Ekkert að óttast „Það er rétt að þaö er talið að kvikasilfur leysist upp og gangi út í munnvatnið en það er í svo litlum mæli að fólk þarf ekki aö hafa af því neinar áhyggjur. Viðmiðunartölur miðast við að hámark 300-500 mikrógrömm af kvikasilfri leysist upp á dag, er þá miðað við einn mann og fimm daga vinnuviku. Ef magnið er undir því er fólki engin hætta búin. í nýlegri grein í blaði Alheims- samtaka tannlækna kemur t.d. fram að rannsóknarmenn hafi mælt aö u.þ.b. 2 míkrógrömm af kvikasilfri leysist daglega upp hjá þeim sem eru með tólf amalgamfyllingar í munni. Samkvæmt þessu átti það að taka tíu þúsund ár fyrir allt kvikasilfrið að leysast upp úr þessum fyllingum,“ sagöi Sigurður Þórðarson, varafor- maður Tannlæknafélags íslands, þegar DV bar þetta undir hann. Mæla með tyggjói „Ef við tannlæknar værum óábyrg- ir myndum við að sjálfsögðu mæla með því að öllum silfurfyllingum yrði skipt út svo við hefðum nóg að gera. Staðreyndin er hins vegar sú að þaö hefur ekki fundist neitt efni sem getur komið í staðinn og er jafn gott,“ sagði Sigurður. Hann sagði tannlækna þvert á móti mæla með tyggigúmmíi, sérstaklega því sem innihéldi xylitol, þar sem það yki munnvatnsflæði, lækkaði sýrustig í munni og hreinsaði þ.a.l. tennumar. í þessari sömu grein og Sigurður vitnaði í kemur fram að kvikasilfur sé hluti af daglega lífinu og sé ávallt - ekkerttil að óttast, segir varaformaður Tannlæknafélagsins Tyggigúmmí getur leitt til þess að kvikasilfur úr tannfyllingum leysist úr læðingi, breiðist út um líkamann og safnist þar fyrir. Það er ekki inni- haldið í tyggjóinu sem gerir þetta að verkum heldur þaö að tyggja tyggjó. Þetta er niðurstaða sænskra vísinda- manna á rannsóknarstofu í Gauta- borg sem leggur áherslu á atvinnu- sjúkdóma og á Rannsóknarstofu at- vinnu- og umhverfissjúkdóma í Lundi en niðurstöður rannsókna þeirra eru birtar í sænska dagblað- inu Jyllands-Posten. Vísindamennirnir voru með tvo til- raunahópa. Annar hópurinn tuggði a.m.k. fimm tyggjóstykki yfir daginn í hálft ár eða meira en hinn tuggði tyggjó í mesta lagi 1 'A tíma á viku á sama tímabili eða alls ekkert. Allir voru þátttakendumir með a.m.k. 15 fyllingar af amalgam í tönnunum. Meira kvikasilfur Niðurstaðan varð sú að kvikasilfur mældist mun meira í blóði og þvagi hjá þeim sem mest tuggðu heldur en hjá hinum. Vísindamennirnir kom- ust að þeirri niðurstöðu að kvikasilf- ursupptakan hjá tyggjó-unnendun- um samsvaraði u.þ.b. 'A af hæstu markgildum fyrir starfsfólk í iðnaði. Þá hafði löngum grunað að það að tyggja tyggjó gæti leyst kvikasilfur úr tönnunum en það hefur aldrei fyrr fengist staðfest að hið uppleysta kvikasilfur safnist upp í líkamanum svo það mælist í þvagi og blóði. Nið- urstöðurnar benda til þess að skýrt samhengi sé á milli kvikasilfurs- magns í líkamanum og fjölda tann- fyllinga. „Það að tyggja tyggjó hefur ekkert stórfellt heilsutjón í for með sér en ástandið er þó engan veginn viðunandi. Það er óþarfi að búa með þessum hætti til uppsprettu sem eyk- ur uppsöfnun á kvikasilfri í líkaman- um,“ var haft eftir einum vísinda- mannanna, dósentLars Barregaard. Skiptar skoðanir eru um skaðsemi kvikasilfurs i tannfyilingum. Sænskir vísindamenn telja ástandið óviðunandi en varaformaður Tannlæknafélags íslands segir áhyggjur óþarfar. DV-mynd ÞÖK til staðar í umhverfinu. T.d. losni 150 þúsund tonn af kvikasilfri úr læðingi árlega við eldgos í heiminum og önn- ur 40 þúsund tonn við kolabrennslu og annan iðnað. Þar af leiðandi verði maturinn sem við borðum, loftið sem við öndum að okkur og vatnið sem viö drekkum mengað af kvikasilfri. Verðkönnuná Pampers bleium • einfaldur pakki 35*»" 650 * einungis selt í tvöföldum pakka é 1269 og 1798 krónur 4^0=1 Verökönnuná kartöflum — lægsta kílóverö á hverjum staö ra 'O ro z o * einungis selt 12 kg pokum á 36 kr, 89 kr og 123 kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.