Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1994, Qupperneq 10
10
FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 1994
Fréttir
Rúmlega sextugum ökukennara enn gefnar aö sök undarlegar starfsaðferðir:
Kærður ffyrir
kynferðislega
áreitni í ökutíma
Stálhólkur settur i stað gömlu brúarinnar á Höfðaá. DV-mynd Örn
- nýlega sýknaður af ákæru um sams konar brot gegn þremur stúlkum
Rannsóknarlögregla ríkisins hefur
til rannsóknar kæru á hendur 62 ára
ökukennara sem er gefið aö sök aö
hafa haft í frammi kynferðisleg
áreitni við unga stúlku sem hann var
að kenna á bíl.
Umræddur maður var nýlega
sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur
af ákæru um sams konar brot. Það
mál kom upp eftir að þijár stúlkur
sem hann kenndi á bíl kærðu hann
fyrir kynferðislega áreitni.
í ákæru kemur fram að ákærði
hafi þrívegis frá því 1989 til 1992
strokið bijóst, læri og kynfæri 17 ára
stúlkna sem hann var að kenna á
bíl. Hann hafi meðal annars farið
með þær upp í Heiðmörk, lagt bíl-
sfjórasætið aftur og lagst ofan á þær.
í eitt skiptið var honum gefið að sök
að hafa hneppt frá tölum á buxna-
klauf einnar stúlkunnar og legið ofan
á henni í 10 til 15 mínútur. I annað
skiptið fyrir sama hlut og jafnframt
reynt að kyssa hana.
Ákærði hélt því fram fyrir dómi
að hann hefði iöulega farið með nem-
endur sína í svokallaðan þjóðvega-
akstur og þá oft farið Heiömerkur-
hring. Lýsti hann því fyrir dóminum
að kennsluaðferðir sinar væru að
ýmsu leyti frábrugðnar hefðbundn-
um kennsluaðferðum ökukennara.
Þær væru einkum frábrugðnar aö
því leyti að hann legði mikla áherslu
á að fá nemendur sína til að slaka á
við stjóm ökutækis. Aðferðimar
væm hins vegar í engri líkingu við
það sem stúlkumar lýstu.
Starfsbræður ákærða, þar á meðal
formaður Ökukennarafélagsins,
greindu frá því að þeir hefðu heyrt
af sérstökum kennsluaðferðum
ákærða. Sagði formaðurinn „aðferð-
ir ákærða ekki vera almennt þekktar
og enga afstöðu taka til ágætis
þeirra."
í ljósi þess hve langur tími leið frá
því að tvær stúlknanna kærðu hina
meintu atburði, en þær lögðu ekki
fram kæm fyrr en sú þriðja kærði
meinta háttsemi ökukennarans, var
ökukennarinn sýknaður. Einnig
horfði dómarinn til þess að engin
sýnileg sönnunargögn um áreitnina
væm fyrir hendi.
„Á þeim tíma sem Ari Edwald liefur
starfað Jyrir mig hef ég fundið að hann
ávinnur sér óskorað transt allra sem
kynnast honum og stöifum Imns. Það
segir meira en mörg orð. “
-Þorsteinn Pálsson
„Ég hef starfað með Ara Edwald
innan íþróttahreyfingarinnar og tel
að hann eigi eftir að vinna vel að
íþrótta- og æskulýðsmálum, eins og
reyndaröðrum málum. “
-Lovísa Sigurðardóttir
formuður Tennis- og badmintonfélags
Reykjavíkur.
AÆriecbwaldí 1.
Kosningaskrífstofa Ara Edwald er að Hafnarstræti 7 oger opin alla daga
frá 10 til 22. Síniar skrífstofunnar eru: 2 40 25 og 2 40 65. Fax: 240 79
Skagafjörður:
Einbreiðar stein-
brýr mölvaðar
Öm Þórarinspan, DV, Fljótum:
í sumar var unnið að endurbótum
á Siglufjaröarvegi milli Hofsóss og
Fljóta og um vetumætur lauk fram-
kvæmdum við Höfðaá. Þar var göm-
ul brú mölvuð niður og settur stál-
hólkur í staðinn. Áður hafði brúnni
á Stafá verið gerð sömu skil.
Þessi verk vom unnin fyrir svo-
kallað öryggisfjármagn Vegagerðar
ríkisins en báðar brýmar vom gaml-
ar, einbreiðar steinbrýr. Kostnaður
við hvora brú nam liðlega þremur
milljónum króna. Verktaki var Þor-
valdur Evensen frá Blönduósi en
hann átti lægst tilboð í þessi verk.
Þorvaldur mun einnig sjá um að end-
umýja brúna á Grófargilsá, skammt
norðan Varmahlíðar.
Eftir að bundið slitlag var lagt á
veginn frá Hofsósi að Sleitustöðum
snemma á liðnu sumri er vegurinn
frá Stafá að Hofi á Höfðaströnd, sem
er 20,8 km langur, orðinn eini kaflinn
milli FJjóta og Sauðárkróks sem ekki
hefur verið lagt bundið slitlag á.
Þessi hluti var yfirkeyrður í sumar
og nam kostnaður við það 3 millj.
króna en við mölun á efni hátt í 8
milljónir. Verktaki var Klæðning hf.
í Reykjavík. Ekki er enn komið á
vegaáætlun að leggja bundið shtlag
á þennan vegarkafla og því var hann
malarborinn nú.
Blindrabókasafnið flutt í Kópavog:
Færri heimsækja safnið
- segir Helgi Hjörvar, forstöðumaður Blindrafélagsins
Blindrabókasafnið er flutt úr
Hamrahlíðinni, þar sem alla aðra
aðstööu bhndra er að finna, á Digra-
nesveg 5 í Kópavogi. Húsnæðið í
Hamrahliðinni sprengdi starfsemina
utan af sér en á sínum tíma var deilt
um á hvorum staðnum starfsemin
skyldi vera.
„Það er miklu rýmra um okkur hér
og aðstaðan er þægilegri. Hitt hús-
næðið var orðið allt of þröngt og það
hefur sýnt sig að það var ekkert vit
í að safnið væri að stækka við sig í
Hamrahlíðinni því þar var ekki nógu
mikið húsnæði fyrir hendi,“ segir
Helga Ólafsdóttir, forstöðumaður
safnsins, í samtali við DV.
„Upphaflega vildum við halda
bókasafninu hjá okkur í Hamrahlíð-
inni. Ég held að menn hafi fyrst og
fremst viljað leysa húsnæðisvand-
ann hér þannig aö þessi þjónustu-
miðstöð fyrir blinda og sjónskerta
væri þar sem önnur þjónusta við þá
væri líka veitt,“ segir Helgi Hjörvar,
forstöðumaöur Blindrafélagsins.
„Ég held að færri heimsæki safnið
í Kópavoginn. Best hefði verið aö
hafa þetta undir einu þaki en við
sættum okkur við orðinn hlut,“ segir
Helgi.
„Okkur leist alltaf vel á þetta hús-
næði og við vorum með það í takinu
meðan á umræðunni stóð fyrir meira
en ári. Starfsemin byggist mikið á
heimsendingarþjónustu. Það er ekki
mikið um að blindir komi hingað en
þeir geta það ef þeir læra leiðina,"
segir Helga.
Vinnuslys á Hvammstanga
Vinnuslys varð á Hvammstanga í
byijun vikunnar þegar starfsmaður
Vegagerðarinnar var aö snúa steypu-
hrærivél í gang. Sveifin losnaði og
slóst í andlit mannsins með þeim af-
leiðingum að tönn brotnaði og hann
skarst í andliti. Hann var fluttur á
heilsugæslustöð þar sem skurðurinn
var saumaður og gert að frekari
meiöslum. Ekki mun vera um mjög
alvarlega áverka að ræða.
EINN, TVEIR OG GEIR!
Styðjum formann þingflokksins - Geir H. Haarde í
Prófkjörsskrifstofan Paxafcni 5 er opin kl. 16 - 22 virka daga og 14 - 19 um hclgar. Simar 811235, 811265 og 81 1275. Allir stuðningsmenn velkomnir!