Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1994, Qupperneq 3
MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1994
3
Fréttir
Ólafsfj arðarbær hafnar húsaleigubótum en niðurgreiðir húsaleigu bæjarstjórans:
Með 400 þúsund á mánuði og
getur greitt sína húsaleigu sjálf ur
- segir Bjöm Valur Gíslason bæjarfulltrúi
„Ég greiddi því ekki atkvæöi mitt
aö bæjarstjórinn fengi niðurgreidda
húsaleigu. Mín rök fyrir aö hafna því
eru þau aö maður sem er meö laun
fast að 400 þúsund krónum á mánuöi
sé ekkert of góöur til aö greiða sína
húsaleigu sjálfur. Þetta er bara rugl
og gengur ekki. Bæjarstjórinn er meö
margföld laun starfsmanna bæjar-
ins,“ segir Björn Valur Gíslason,
bæjarfulltrúi af lista Vinstri og
óháðra á Ólafsfirði, um það að bæjar-
félagið niöurgreiðir húsaleigu fyrir
bæjarstjórann. Hann segir að niður-
greiðslurnar séu í kringum 30 þús-
und á mánuði og með þeirri uppbót
séu laun hans komin yfir 400 þúsund
krónur. Það var samþykkt á fundi
bæjarstjórnar þann 13. desember sl.
að gera samning viö bæjarstjórann á
þessum nótum.
„Föst laun hjá honum eru 190 þús-
und krónur og hann er með fasta
yfirvinnu upp á 65 tíma á mánuði
sem leggja sig á 130 þúsund krónur.
Hlunnindi og fleira, þar með talin
húsaleiga, hleypa honum upp í ör-
ugglega 400 þúsund krónur," segir
Björn Valur.
„Ég samþykkti þetta með þeim fyr-
irvara að það væri mjög stutt eftir
af kjörtímabilinu og þetta yrði end-
urskoðað á þeim tíma. Þessi samn-
ingur sem nú er kominn á er bara
allt annar samningur og hann felur
í sér 40 þúsund króna hækkun á
launum bæjarstjórans sem er. mjög
umdeOdur," segir Björn Valur.
Gagnrýni hefur komið fram á Ól-
afsfirði vegna þess aö bæjarstjórn
felldi fyrr í haust að greiða húsa-
leigubætur tO almennings en sam-
þykkti svo bætur til bæjarstjórans.
Björn Valur segir að það sé ólga í
kringum bæjarstjórann. Hálfdán
Kristjánsson, bæjarstjóri á Ólafs-
firði, segist ekki kannast við ólgu um
sín störf og ekkert vera óeðlilegt í
kringum niðurgreiðslu á húsaleigu
sinni.
Tvíbrotn-
aði í vél-
sleðaslysi
- liggur á gj örgæslu
Tíu ára drengur liggur alvarlega
slasaður en þó ekki i lífshættu á gjör-
gæsludeild Landspitalans eftir að
hann kastaðist af vélsleða í Bolung-
arvik að kvöldi annars jóladags.
Pilturinn var, ásamt tólf ára bróður
sínum, farþegi á vélsleða sem tvítug-
ur bróðir þeirra ók. Samkvæmt upp-
lýsingum lögreglu var sá elsti að
sækja áburð þégar hann hitti bræður
sína tvo og fengu þeir far með hon-
um. Hann ók á milli hjólfara en lenti
skyndilega ofan í hjólförunum í
sömu mund og hann ók yfir pípuhlið
með þeim afleiðingum að yngri
bræðurnir tveir köstuðust af sleðan-
um. Sá yngsti hentist á stólpa og tví-
brotnaði. Tólf ára bróðir hans slapp
hins vegar minna meiddur og sá sem
ók er ómeiddur.
Drengurinn var fluttur með
sjúkraflugi til Reykjavíkur og gekkst
undir aðgerð í gær. Að sögn lækna
er hann á batavegi en auk beinbrot-
anna hlaut hann aðra minniháttar
áverka.
\iðsl<ii >tal )laðiö
Fyrir þá sem
fylgjast með
Skjotlu sloðum undir björgunarslartið!
því aö kaupa fíugelda af Hjálparsveit skáta í Reykjavík
styrkiröu björgunarstarf sem getur skipt sköpum á neyöarstund.
Mikið úrval - lægra verð
Reynsla - þekking - þjónusta
alveg á eitt sáttir um þessa niður-
stöðu. Þetta er bara hluti af launum.
Það að bærinn greiðir ekki húsa-
leigubætur tengist þessari ákvörðun
ekki á neinn hátt,“ segir Hálfdán. -rt
„Þetta er ýmist þannig að bæjar-
stjórar eru í fríu húsnæði alfarið eða
að þeir greiða einhverja leigu. Ég
vildi greiða leigu þannig að ég fengi
indi. Þetta var samþykkt og síðar
kom það upp að leigan yrði hækkuð
upp tO samræmis við það sem gerist
á almenna markaðnum. Ég sam-
að
ég vildi halda sömu kjörum sem
þýddi hækkun á launum mínum.
Niðurstaðan varð sú að við héldum
þessu óbreyttu þar sem það kæmi
betur út fyrir bæinn. Menn voru ekki
Risaflugeldasyning Hjálparsveitanna í Reykjavík,
Kopavogi og Garðakai, við Perluna 29.des. kl.19.301
S'sve,^
*
Hjálparsveit skáta í Reykjavík
Upplýsingasími: 8 7 4 2 8 8
Nóatún
vestur í bæ
(JLhúsið)
Mörkin 6
(Ferðafélagshúsið)
Skátabúöin
(Snorrabraut)
Skjöldungaheimilið
(Viö Sólheima)
Bílabúð Benna
Globus (Vagnhöfða)
(Lágmúla) \
xMjodd
(Við Kjöt og fisk)
28.-30. DES.
Kl. 10-22
31. DES.
Kl. 10-16
LANDSBJORG
Landssamband björgunarsveita