Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1994, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1994, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1994 Fréttir_____________________________________________i Skipun fulltrúa háskólaráðs í fomleifanefnd: Þetta er f agleg íhlutun - segir dr. Sveinbjöm Rafnsson prófessor „Þetta er fagleg íhlutun sem ekki hefur tíðkast í háskólanum. Hugur okkar til tilneftiingar í forleifanefnd kemur skýrt fram í tillögu sagn- fræðiskorar að dr. Vilhjálmur Órn Vilhjálmsson uppfyllir öll skilyröi og þar að auki kennir hann námskeið i fornleifafræði í heimspekideild, því var þessi tillaga borin upp af forseta heimspekideildar í háskólaráði. Það er líka gert á faglegum forsendum. Það eru fá eða engin dæmi þess að aðrar deildir hlutist til um fagleg málefni einstakra deilda í háskóla- ráði. Það gerist til dæmis ekki um tilnefningar í læknisfræði og lög- fræði að ég veit,“ segir dr. Sveinbjörn Rafnsson, prófessor í sagnfræði við Háskóla íslands og fyrrverandi for- maður fornleifanefndar. Eins og greint var frá í DV sl. föstu- dag er urgur innan sagnfræðiskorar meö tilnefningu háskólaráðs í forn- leifanefnd. Háskólarektor æskti álits sagnfræðiskorar háskólans á hvaöa fulltrúa ráðið ætti að tilnefna og valdi meirihluti hennar dr. Vilhjálm Örn Vilhjálmsson, fornleifafræðing hjá Þjóðminjasafninu og stundakennara við HÍ. Þrátt fyrir þetta var Mjöll Snæsdóttir fomleifafræöingur til- nefnd af háskólaráði í nefndina í september síðastliðnum en ekki gengiö formlega frá tilnefningu hennar. Á fimmtudag var svo fundur í háskólaráði þar sem ætlunin var að ganga frá tilnefningu hennar en niðurstaðan varð að senda málið lög- skýringarnefnd HÍ og bíða álits hennar. Málið var sent lögskýringarnefnd þar sem ný lög um fornleifanefnd tóku gildi um mitt ár. Þau kveða á um að tveir af þremur fulltrúum í nefndinni hafi lokið háskólaprófi með fornleifafræði sem aðalgrein. Þótt Mjöll hafi langa reynslu við fornleifarannsóknir uppfyllir hún ekki þau skilyrði sem lögin gera til nefndarsetu. í fomleifanefnd sitja þrír fulltrúar, fulltrúi þjóðminjaráðs, fulltrúi Fé- lags fomleifafræðinga og einn til- nefndur af háskólaráöi. Gengið hefur verið frá tilnefningu tveggja fyrst- nefndu fulltrúanna. Aðspurður hvað gert verði ef geng- ið verður á svig við álit sagnfræði- skorar og gengið frá tilnefningu Mjallar í fornleifanefnd segir Svein- björn best að bíða eftir lögfræðiálit- inu áður en þeirri spurningu verði svarað. Keflavík: Deilanímynd- bandaleigumál- inuenníhnút Ægir Már Káraaon, DV, Suöamesjum; „Þeir virðast hafa stofnað lög- legt fyrirtæki og okkur finnst ekki rétt að fetta fingur út í þaö. Hins vegar er spurning hvort sið- ferðiö í þessum viöskiptum er eðlilegt, einkum eins og atvinnu- ástandið er í dag. En það er ansi lítiö sem við getum gert,“ sagði Guðni' Þorgeirsson hjá Kaup- mannasamtökunum við DV. Eigendur myndbandaleiga í Keflavík hafa leitað til kaup- mannasamtakanna og beðið um aðstoð í því stríði sem þeir eiga í við knattspymumenn í Kefiavík eftir að knattspymudeildin þar opnaði myndbandaleigu og skýrt hefur veriö frá frá hér í blaðinu. FoFráðmenn knattspymudeild- arinnar hafa sent bréf til allra þeirra 67 fyrirtækja i Kefiavik sem skrifuðu undir bréf eigenda myndbandaleiga um að hætta að styrkja knattspyrnumenn í Keflavík. Forráðamennirnir skýrðu þar sína hlið á málinu og eigendur fyrirtækjanna, sem undirrituðu bréfið, hafa flestir enn ekki tekið ákvörðun um hvað þeir gera í málinu. Jólaskíðin próf uð Agnar Þór er ekki hár i loftinu en hann getur þó ekki beðið eftir því að prófa nýju skíðin. Það er Valdís sem styður hann fyrstu skrefin á jólaskíöun- um. DV-mynd GVA Halldór Blöndal vlll skllyrði vegna Irwing Oil: Flugleiðir f ái að f Ijúga til Kanada „Við íslendingar höfum viljað þegar þeir vilja passa upp á Air frjálsræði á sviði samgangna milli Canada gagnvart Flugleiðum," sagði Kanada og íslands. Við höfum meðal. Halldór Blöndal samgönguráðherra annars farið fram á það að Flugleiðir við DV. Halldór vill skilyrða úthlut- fái, á leið sinni vestur um haf, að un lóðar til kanadíska olíufélagsins koma við í Halifax. Hefur sú beiðni Irwing Oil sem mögulegt er að fái lóö verið rökstudd með því að vestan- fyrir starfsemi sína í Sundahöfn. hafs eru raunar fleiri menn af ís- „í annan stað segi ég að ef Reykja- lensku bergi brotnir en á íslandi víkurborg hefur lóð fyrir erlent olíu- sjálfu. Því sé eðlilegt aö halda uppi félag finnst mér sjálfsagt að borgin góðum samgöngum milli landanna. auglýsi það þannig að fleiri en einn Mér finnst það ekki sjálfgefið að á geti sótt um og hægt verði að sjá sama tíma og við höfum ekki frelsi hvað er í boði. Mér finnst að við eig- til athafna í þessu vinalanái okkar um að hugsa eins og íslendingar í séum við að opna athugasemdalaust þessu máli, gæta okkar viðskipta- fyrir umsvif kanadískra stórfyrir- hagsmuna. Það er því alveg sjálfsagt tækjahérálandi. Þaðerefviðviljum að við tökum Flugleiðamálið upp i halda uppi verndunarsjónarmiðum tengslum við þessa beiðni kanadíska með sama hætti og-Kanadamenn olíufélagsins," sagði Halldór. Með Bryndísi í eftirdragi Ein af eftirlætisiðjum alþingis- manna er að spyrjast fyrir um kostnaö af utanferðum ráðherra. Alveg sérstaklega hafa þó þing- menn áhuga á kostnaði vegna feröa maka ráðherra og eftir því sem Dagfari man best, er það árviss at- burður að slík fyrirspum er lögð fram á þingi. Þaö er sömuleiöis árviss atburður að íjölmiðlar slá því upp í fréttum hjá sér hversu margar krónur hver hafi fengið fyrir að ferðast. Helst er að skilja að ráðherrar eigi að borga með sér ef þeir eru á annað borð að leggja land undir fót. Raunar má ætla að ráðherrar séu oftast í hreinustu erindisleysu í útlöndum og búi sér til ferðir til að safna fé í eigin vasa. Ferðalög ráöherra eru rækilega tíunduð með tilheyrandi fussi og sveii yfir öllu því bruðli sem utanferðunum fylg- ir. Er svo komið að ráðherrar reyna að laumast úr landi og láta fara sem minnst fyrir sér til að láta nú ekki blessaða þjóðina fá vitneskju um aö þeir hafi þurft að sinna embætt- isskyldum sínum erlendis. Hvað þá ef hagsmunir þjóðarinnar eru í húfi. Það má alls ekki fréttast. Og auðvitað er það flottræfils- háttur, sem þjóðin getur seint eða aldrei fyrirgefið, ef makar ráðherr- anna fara með. Auðvitað eiga ráð- herrar að fara einir til útlanda og makarnir geta gjört svo vel að bíða heima á meðan. Þeir eru heldur ekki of góðir til að taka á móti er- lendum gestum og halda þeim boð og haga sér eins og manneskjur. Þó það nú væri. Makar eru ekki á launum hjá rík- inu enda ekki kosnir til trúnaðar- starfa. Makar eiga að vera stilltir og prúðir og fylgja með eins og hundar í bandi og helst að vera sætir og fínir þegar gesti ber að garði, enda er það svo fínt aö vera ráðherra og ennþá finna að vera maki ráðherra að þeir eru ekkert of góðir að sinna því fyrir ekki neitt. Nú var það einn ganginn enn að listi er birtur yfir utanferðir og dagpeninga og enn einu sinni reka menn upp stór augu þegar í ljós kemur að utanríkisráðherra og hans kona hafa verið mest á ferð- inni. Hvað er utanríkisráöherra að gera til útlanda? Getur hann ekki sinnt starfi sínu hér heima? Og ekki nóg með það. Reiknings- glöggir menn finna það út að dag- peningar Bryndísar utanríkisráð- herrafrúar hafi numið heilum 360 þúsund krónum á þessu ári. Hvílíkt og annað eins hneyksli. Það hefur kostað þjóðina 360 þúsund krónur að hafa ráðherrafrúna í ferðalög- um með bónda sínum! Það slagar hátt upp í helminginn af forstjóra- launum í heilan mánuð! Nú var lag, nú var enn eitt tæki- færið til að ná sér niöri á þeim hjón- um enda skilst manni að Jón Bald- vin sé óvinsælasti stjórnmálamað- ur landsins og á ekkert gott skilið. Hann liggur vel við höggi og þá ekki síður konan hans, sem þar að auki er bæði vel af guði gerð og frambærilegri öðrum konum. Það hentar ekki þjóðinni að hafa frambærilegt fólk í forsvari og það ber vel í veiði að níða skóinn af ráðherrafrúnni þegar hún er farin aö kosta þjóðina þvílíka peninga að þjóðin stendur ekki undir því. Þetta hefur Bryndís séð í hendi sér og hefur nú ákveðið aö losa þjóðina undan þessu oki. Hún er hætt og hefur sent þjóðinni reikn- ing fyrir störf sín í þágu þjóðarinn- ar, sem auðvitað verður aldrei greiddur því ráöherrafrúr eiga ekki að senda reikninga. Þær eiga að sinna skyldustörfum sínum fyrir ekki neitt. Þær eiga bara að vera upp á punt. Nú verður ríkisstjórnin og ís- lenska þjóðin án utanríkisráð- herrafrúar það sem eftir lifir kjör- tímabilsins og mikið hlýtur ráð- deildarmönnum almenningsálits- ins og fyrirspyrjendum á Alþingi að létta. Loksins tókst þeim að hrekja í burtu þessa dýru konu sem er óvart gift utanríkisráðherra og hefur plagað þjóðina með fram- komu sinni og ferðalögum um ára- bil. Hér eftir ferðast Jón Baldvin einn og hér eftir mætir hann í móttök- urnar einn og heldur sínar veislur einn, enda er það of kostnaðarsamt fyrir ríkissjóð að drattast með Bryndísi við hliðina á Jóni. Það hefur dregið þjóðina niður í svaðið og rýrt álit þessarar vönduðu og sparsömu þjóðar. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.