Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1994, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1994
5
13 V
Frálögreglunni:
ferðflugelda
og áfengis
Lögreglan vill vekja athygli
fólks á aö fara varlega með flug-
elda og blys um áramótin. Skot-
elda má ekki selja yngri en 16 ára.
Fullorðió fólk þarf að hafa vit
fyrir börnunum og gæta þess að
þeim stafi ekki hætta af blysum
og flugeldum. Börnin eru stund-
um áköf og vilja gleyma sér við
spennandi aðstæður og ganga þá
stundum lengra en æskilegt getur
talist. Slysin gera ekki boð á und-
an sér.
Lesiö leiöbeiningar sera fylgja
flugeldum og blysum og farið eft-
ir þeim en umfram allt farið var-
lega.
Ennfremur hvetur lögreglan
fólk til þess að gæta hófs í áfengis-
neyslu um áramótin. Þaö er von
hennar að foreldrar gleymi ekki
börnum sínum á þeirri fagnaðar-
stundu. Áfengisneysla fullorð-
inna, ætluö til að auka við gleö-
ina, getur leitt til þess aö börnin
gleymast og þá er hætta á að eitt-
hvað geti farið úrskeiðis sem ekki
veröur aftur tekið. Foreldrar eru
því hvattir til þess að fagna nýju
ári með sómasamlegum hætti og
að þeir sjái til þess að börn þeirra
á öllum aldri megi eiga ánægjuleg
áramót.
Hverjum og einum á að vera
þaö ljóst aö meðferð áfengis og
notkun flugelda og blysa fara alls
ekki saman.
Um leið og þessum skilaboðum
er komið á framfæri vill lögregl-
an oska ölium gleði, farsældar og
friðar á nýju ári.
Fréttir
Áhugasamir skautamenn hafa nýtt sér veðurblíðuna undanfarna daga. Ágætt skautasvell er nú á Reykjavíkurtjörn
og því margir á svellinu. Sólin er nú farin að hækka á lofti og speglast i ráðhúsinu i baksýn. DV-mynd GVA
ísafjörður:
Metár í fæð-
ingum
Sigurjón J. Sigurðsson, DV, fsafirði:
Það stefnir í metár í fæðingum á
Fjórðungssjúkrahúsinu á ísafirði eft-
ir því sem bestu heimildir telja. Um
jólin höfðu fæðst 100 börn á sjúkra-
húsinu en metið er 101 barn. Það var
1992 og samkvæmt fréttum er von á
fleiri fæðingum í ár.
Stúlkur eru í meirihluta þeirra 100
barna sem fæðst hafa eða 53 á móti
47 drengjum. Flestar fæðingar í ein-
um mánuði urðu í júní. Þá fæddust
14 börn. í október fæddust 13 börn á
sjúkrahúsinu og 12 í apríl. Flest börn
á einum sólarhring fæddust 12. júní
eða fjögur.
íslendingur handtekinn með tvö kíló af hassi í Færeyjum:
Úrskurðaður í gæslu-
varðhald fram yfir nýár
- fíkniefnin voru grafin í j örðu við flugvöllinn
Islendingur hefur verið úrskurð-
aður í gæsluvarðhald í Færeyjum til
4. janúar eftir að hann var handtek-
inn 21. desember síðastliöinn með tvö
kíló af hassi á sér.
Að sögn Georgs Otthamars, rann-
sóknarlögreglumanns í Færeyjum,
var íslendingurinn handtekinn á
flugvelhnum í Þórshöfn með fíkni-
efnin innanklæða. Hann segir ekki
ljóst hvort maðurinn á efnið einn eða
hvort hann er burðardýr en grunur
leikur á um slíkt. Efnið hafði verið
grafið í jörðu í nágrenni flugvallarins
og ferðaðist íslendingurinn undir
fólsku nafni.
Þetta er annar Islendingurinn sem
er handtekinn með hass í Færeyjum
á skömmum tíma. Þriðja desember
síðastliðinn var íslendingur hand-
tekinn með 100 grömm af hassi í
Færeyjum en sá maður hafði nýlega
verið í Danmörku og komið til Is-
lands um Færeyjar.
Georg Otthamar útilokar ekki
tengsl á milli málanna tveggja en
fullnaðarrannsókn er ólokið. Hann
segir að möguleiki sé á því að þeir
sem hyggist smygla fíkniefnum til
íslands noti Færeyjar sem umskip-
unarhöfn en enn sem komið er sé
þetta einungis tilgáta.
FLUGELDASALA TIL STYRKTAR VÍMUVÖRNUM
6 BRJÁLAÐAR
RAKETTUR
AÐEINS 500 KR.
ÚTSÖLUSTAÐIR
Kolaportinu, Tryggvagötu, austur endi
Eddufelli2, við hliðina á 11-11
Jardhúsunum, Ártúnsbrekku
TIL STYRKTAR VIMUVORNUM
-meðal barna og unglinga-
ÍUT-ÆSKUL ÝÐSSAMTÖK