Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1994, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1994, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1994 Viðskipti Kg Þ r i M i F i F ö Þíngvísit. hiutabr. Álverö erlendis 1910 $/tonn þ r j Sterlingspundið Pundið lækkar Verö fyrir þorsk á fiskmörkuð- um hækkaöi nokkuð á Þorláks- messu, fór aö meðaltali í 134 krónur kílóið. Hlutabréfaverð fór lækkandi í síðustu viku þrátt fyrir stóraukin viðskipti. Þingvísitala hlutabréfa var 1006 stig eftir viðskiptin á Þorláksmessu. Staðgreiðsluverð áls á markaöi í London var 1907 dollarar tonnið þegar viðskipti hófust á Þorláks- messu. Nýrri tölur höfðu ekki borist í gær enda viðskipti engin eftir jól. Gengi sterlingspundsins lækk- aði í síöustu viku um 0,7%. Sölu- gengið var 106,97 krónur á Þor- láksméssu. Að sjálfsögðu var kauphöllin í London lokuð 2. í jólum. Á Þor- láksmessu endaði FT-SE 100 hlutabréfavísitalan í 3083 stigum. Hlutabréfaviðskipti í desember: Helmings aukning - allt að 900 milljóna viðskiptum spáð í vikunni Starfsmenn verðbréfafyrirtækjanna búast við hlutabréfaviðskiptum upp á 700-900 milljónir króna í þessari síðustu viku ársins. Það er töluvert meira en á sama tíma í fyrra þegar hlutabréfaviðskiptin síðustu vikuna námu um 300 milljónum króna. Hlutabréfaverð hefur verið að lækka þar sem framboðið er töluvert um- fram eftirspurn. Það sem af er desember hafa hluta- bréf fyrir 288 milljónir króna skipt um eigendur á Verðbréfaþingi Is- lands. Það eru ríflega helmingi meiri viðskipti en í desember í fyrra þegar þau námu ríflega 140 milljónum. Er þá miðað við timabilið 1. til 23. des- ember. Þessi miklu viðskipti stafa auðvitað af skattaafslættinum sem gefinn er af hlutabréfakaupum en undanfarin ár hefur kapphlaup verið um bréfin síðustu viku ársins. Fyrsti virki dagur milli jóla og ný- árs er yfirleitt rólegur hjá verðbréfa- fyrirtækjunum. Svo var á ílestum stöðum í gær en fram að helgi má búast við örtröð, sér í lagi á morgun og á fóstudag. Einstaklingar geta að hámarki keypt hlutabréf á þessu ári fyrir 130 þúsund krónur. Áttatíu prósent af þeim kaupum, 104 þúsund, má nota til að lækka tekjuskattsstofninn. Fyrir þá sem greiða fullan tekjuskatt lækka þessi kaup skattinn um 43.500 krónur hjá einstaklingi. Hjá hjónum nemur tekjuskattslækkunin 87 þús- und krónum miðað við hámarks hlutabréfakaup. „Umræða um hlutabréf og skatta- afslátt er.meiri en verið hefur,“ sagði Davíð Björnsson, deildarstjóri hjá Landsbréfum, í samtali við DV, að- spurður um skýringu á tvöfalt meiri viðskiptum með hlutabréf í desemb- er en í sama mánuði í fyrra. „Greiðslukjörin vöktu athygh og ollu því að fleiri fóru að leiða hugann að þessu en áður þótt stór hluti kaup- enda hafi ekki nýtt sér lánafyrir- greiðsluna," sagði Davíð en verð- bréfafyrirtækin bjóða fjárfestum upp á lán til hlutabréfakaupa í allt að 24 mánuði. Kaup í hlutabréfasjóðum hagstæðust fyrir byrjendur Fyrir þá sem eru að kaupa í fyrsta Viðskipti með hlutabréf — 1. til 23. des. 1993 og 1994 — Fjöldi viösk: 621 Fjöldi viösk: 401 288,7 milljónir 141,2 milljónir k-caemm ! ' i\ ———— des. '93 des. '94 Hlutabréfaviðskipti verða með líflegra móti í vikunni. Myndin er tekin hjá Landsbréfum í gær þar sem einn kaupandi, til vinstri, spáir i spilin. DV-mynd ÞÖK sinn eða eiga lítið af hlutabréfum er hagstæðast að kaupa bréf í hluta- bréfasjóðum, samkvæmt upplýsing- um DV. Sjóðirnir dreifa áhættunni auk þess sem verðbréfafyrirtækin sem reka þá sjá um að kaupa bréfin til baka. Því má losa auðveldlega við eignina þegar til þess kemur. Fyrir þá sem lengra eru komnir í hlutabréfaviðskiptum kemur margt til greina. Miðað viö þá sem vilja auðseljanleg hlutabréf getur verið hagstætt að kaupa bréf stærstu og virkustu hlutafélaga á markaðnum eins og Eimskipa, íslandsbanka, Flugleiða og olíufélaganna þriggja. Fyrir áhættusjúka fjárfesta geta kaup á hlutabréfum útgerðarfyrir- tækjanna og skyldra fyrirtækja reynst hagstæð. Verðhrun í gámasölu Einn togari seldi afla sinn í Þýska- landi í síðustu viku. Viðey RE seldi 145 tonn og fékk um 22,5 milljónir fyrir. Uppistaða aflans var karfi. Þetta er nokkru lakara verð en fékkst í Þýskalandi vikuna áður. í gámasölu í Englandi seldust 394 tonn fyrir 54,3 milljónir. Meðalverðið lækkaði um 40% milli vikna og fór niður í 125 krónur. Eins og kemur fram á síðunni að ofan voru viðskipti með hlutabréf líf- leg í síðustu viku. Alls námu þau um 128 milljónum króna. Sem fyrr var mest keypt af bréfum hlutabréfasjóð- anna. Hlutabréfaverð -helstu félaga lækkaði nokkuð þannig að þingvísi- tala hlutabréfa hefur lækkaö. Álverð fór hækkandi á erlendum mörkuðum í síðustu viku. Stað- greiðsluverðið fór yfir 1900 dollara tonnið áður en jólahátíðin gekk í garð. Engin viðskipti hafa átt sér stað eftir jól. Sérfræðingar spá því að staðgreiðsluverðið geti farið í 1930 dollara fyrir lok þessa árs. Nýrvaxta- skiptasamning- urekki gerður Þann 1. janúar nk. taka gildi nýjar reglur um verðtryggingu sparifjár og lánsfjár. Samkvæmt þeim verður óheimilt að verð- tryggja óbundin innlán. Þessi breyting mun leiða til þess að verðtryggðar eignir innlánsstofn- ana verða að líkindum meiri en verðtryggðar skuldir. Af þeim sökum hafa bankar og sparisjóðir ekki áhuga á aö gera vaxtaskipta- samninga við Seðlabankann fyrir tímabilið 1. janúar til 1. maí 1995. Þetta kemur fram í fréttatilkynn- ingu frá Seðlabankanum. I ágúst sl. samdi Seðlabankinn við banka og sparisjóði um vaxta- skipti fyrir tímabilið 1. sept. til 1. janúar 1995. Samningarnir byggðust á þeirri forsendu að hækkun lánskjaravísitölu á samningstímanum yrði 1,07% á ársgrundvelli eins og fyrirliggj- andi verðbólguspá Seðlabankans gerði ráð fyrir. Sú spá rættist og komu vaxtaskiptasamningarnir því út á sléttu fyrir samningsað- ila. Munu því engar greiöslur eiga sér stað á milli þeirra vegna þessa tímabils. Markaðskönnun íæðarrækt Æðaræktarfélag íslands hefur samið við Útflutningsráð um að gera markaðskönnun í vetur. At- huga á ýmis grunnatriði varð- andi útflutning og erlenda mark- aði með það markmið að tryggja betur í framtíðinni stöðuga mark- aðssetningu æðardúns. Þetta kom fram á aðalfundi félagsins nýlega. Á árinu hafa verið flutt út tæp- lega 3 tonn af æðardúni sem er heldur betri sala en í fyrra. Æða- ræktarfélagiö varð 25 ára á þessu ári. í tilefni af því var eini eftirlif- andi stofnandi félagsins, Sæ- mundur Stefánsson frá Völlum í Svarfaðardal, heiðraður á aðal- fundinum. Seinni salaá bréf um Lyfja- verslunar Að tillögu framkvæmdanefnd- ar um einkavæðingu hefur verið ákveðið að selja seinni helming hlutabréfa ríkissjóðs í Lyljaversl- un íslands hf. en fyrri helmingur- inn var seldur í nóvember sl. Þetta kemur fram í íjárlögum fyr- ir 1995 sem Alþingi samþykkti á dögunum. Salan á bréfunum fer fram í lok janúar nk. Hún fer fram með svipuðum hætti og á álíka kjörum og í nóvember. ísland undirritar orkusáttmála Sighvatur Björgvinsson, iðnað- ar- og viðskiptaráðherra, undir- ritaði nýlega í Portúgal fyrir ís- lands hönd Samning um orku- sáttmála, Energy Charter Treaty, sem OECD-ríkin eiga aðfid aö auk Eystrasaltsríkjanna, ríkja í Aust- ur-Evrópu og fyrrum Sovétríkj- unum. Samningnum er ætlað að skapa lagalegan ramma um viö- skipti og fjárfestingar á orkusviö- inu í aðildarríkjum hans. Fyrir ísland getur samningur- inn tryggt hérlendum fjárfestum ákveðna vernd í íjárfestingum á orkusviðinu í aðildarríkjum hans og greitt væntanlega fyrir fiár- festingum þeirra, t.d. í nýtingu jarðhita. Þá gefur samningurinn möguleika á þátttöku íslands í samstarfi í orkurannsóknum. Til að fullgilda samninginn af ís- lands hálfu þarf að leggja hann fyrir Alþingi til samþykktar. DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.