Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1994, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1994, Qupperneq 7
MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1994 7 i>v Sandkom nemenduni sínum aö fallbeygja nöfn- in sín skriflega heima og koma með í næsta tíma. Á meöal nemenda var VUhelm Valgeir Guöbjartsson, kall- aöur Vifli Valli (búsettur á Hvamms- tanga í dag ogþekktur undir því naíni). Hann gleymdi heimaverkefn- inu en ílýtti sér að pára beyginguna á blað í tímanumþegar þylja átti upp verkefhíð íyrir kennarann. Svo kom aö Vifla Valla sem hóf upp raust sína:' „Hér er Vilhelm Valgeir, um Villa Valla, frá Vifla Valla, til Vílla Vafla.“ í skólanum, i... Viðskulum. haidaokkur áfratn í skólan- um.íþettasinn vitnumviöi ágietársögúr : sem hirtust í ■; ItlaðmuHeimili ogskóli. l>ar segir m.a. af skólameisíara nokkrum.sem ' eittsin.nkomst dálítiðklaufa- lega að orði í upphafi setningarræðu sinnar: „Miglangartilaðsegjanokk- ur orð áður en ég tek til máls.“ Þá segir af nemanda einum sem kom með eftirfarandi skýringu á hugtak- inu „kjörgengi" á félagsfræðipróft í ónefndum menntaskóia: „Kjörgengi er það nefnt þegar fólki er ekið á kjör- stað en síðan látiö ganga heim.“ Að lokum ur náttúrufræðiprófi á Akur- eyri. Spurt var: Hver er undirstaða alls dýrallfs í sjó? Eitt svarið var stutt ogiaggott: „Botninn." Nágranninn Átram með skólasögurnar. Áprófiíkristn- umtra-ðumíT. bekkéinúmí Reykjavik voni nemendur beðniraðsknfa úppboðorðin : t tíu.Flestirgátu þaönúcnþó vafðistgreini- leþa éítt þeirra ; fyrir einum nemandanum þvi á prófblaðinu háns stóð í stað hins eiginiega boðorös: „Heiðra skaltu eiginkonu nágranna þíns.“ í öðrum skóla í Kópa vogi voru boðorðin tíu til umræðu í kristni- fræðitima. Þar var Guðmundur, sem þótti ekki mikill námsmaður, beðinn að þylja upp öll boðorðin. Hann sagð- ist ekki kpnna þau en kennarinn spurði hvort hann myndi ekki eftir eins ogeinu boðorði „Kannski," sagði Guðmundur. Þegar ýtt var frek- ar á eflir Guðmundi muldraöi hann í hálfum hJjóðum: „Þú skalt ekki gift- astnáungaþinum." Víða komið Haileinlner v ; haidiðað starfsmenn ■ Póstsogsíma væmáhka : húmorslausir ogstofnuniner ioiðinlegþáer liaðiúnnmesti mi.sskiiningur. : A.m.k.erhum- orisímamönn- umefmarka mánýjasta Símablaöíð. Þar er sögð saga eftir Inga Sverri, fulltrúa í notendabúnað- ardefld. Halldóra símsmiður í sömu deild átti leið framhjá Inga Sverri og angaði af sterku ilmvatní. Þá verður Inga að orði: „Það angar hér allt eins og í frönsku hóruhúsi." Halidóra lét ekki standa á svari: „ Víða hefur þú komiö, Ingiminn.“ _________________________________________________________Fréttir Málið sem talið var tengjast kaupsýslumanninum Jósafat Amgrímssyni: Hvanneyrin náðist úr höndum írskra aðila - Ari Guðmundsson ffá Hafnarfirði kaupir skipið og nefnir það Strák Fyrrum varðskipið Arvakur, sem gefiö var nafnið Hvanneyrin og var kyrrsett í Southampton fyrr á árinu, er komið til íslands eftir verulegar cjeilur við ólöglega kaupendur skips- ins ytra þar sem Jósafat Arngríms- son'var talinn hafa komið við sögu. Ari Guðmundsson frá Hafnarfirði hefur keypt skipið og hyggst nefna það Strák. Árið 1993 seldi sýslumaðurinn skipið til hæstbjóðanda á uppboði vegna skulda. Sigríður ída Ulfars- dóttir Nathanaelssonar keypti Hvanneyrina. 1,8 milljónir króna voru greiddar inn á kaupverðið sem var 8,2 milljónir króna. Skipinu var síöan siglt til Bretlandseyja. Úlfar seldi svo skipið manni nefndum Kennedy frá írlandi -án þess að lög- legt afsal lægi fyrir. Samkvæmt frá- sögn Pressunnar á þeim tíma var sterkur orðrómur um aö sá sem Fyrrum varðskipið Árvakur, sem gefið var nafnið Hvanneyrin og var kyrr- sett í Southampton fyrr á árinu, er komið til íslands eftir verulegar deilur við ólöglega kaupendur skipsins ytra þar sem Jósafat Arngrimsson var talinn hafa komið við sögu. Nýr eigandi nefnir skipið Strák. stæði að baki Kennedy þessum væri viðskiptamaðurinn Jósafat Am- grímsson. Eftir söluna voru fimm íslendingar sendir til Southampton, þar sem skipið lá, til að ná í það og sigla því heim. Þegar þangað kom var Islend- ingunum sýnt afsal og komu þeir til íslands eftir árangurslausa för. Ýms- ir lögmenn voru fengnir til að vinna að málinu sem endaði meö því að kaupunum var rift enda hafði ekki verið staðið við samninginn. Einnig var farið í svokallað innsetningarmál til að leysa skipið frá kaupendunum ytra. Eftir að skipinu hafði verið siglt til íslands var það afliént sýslu- mannsembættinu á Siglufirði að nýju fyrir hönd veðhafanna en þar var ríkissjóður stærsti aðilinn. Boði ríkissjóðs var síðan tekið um kaup á því en það síðan selt Ara Guðmunds- syni. -Ótt Rússi skrifar bréf á íslensku með ósk um pennavin: „Hjálpa mig kynnast með k venmaður frá ísafold" „Góðan Dag! Kær Fruar og Herrar Minir! Með kær kveðja frá Moskva min góðir hálsar! Til yður skrifa Rússi maður að nafni Gleb, að ættar- nafni Teröhin, fæddur 1960 í borg Moskva. Með leyfi aö spyrja: ekki vænti *g þú getir hjál það mér. Ég biðja þér hjálpa mig kynnast með kvenmaður frá ísafold með tilgangur bréfaðiðskipti." Þannig hefst bréf sem rússneskur maður, Gleb Teröhin, hefur sent til héraösfréttablaðsins Austurlands og birtist þar í jólablaði. Er hann að leita að kvenkyns pennanvini hér á landi. Maðurinn afsakar málfræðivillurn- ar eða „fyrir málfræðilegur fara villt“. Hann skrifar ábyrðgarbréf og hefur ekki annað til hjálpar en Danskt-íslenskt orðasafn eftir Ágúst Sigurðsson, útgefið 1940, og Ensk- íslenska orðabók, útgefna 1972. Segir hann rússnesk-íslenska orðabók aldrei hafa verið auglýsta í Sovétríkj- unum eða Rússlandi. Verður að telj- ast vel að verki staðið að maðurinn .skuli skrifa þetta bréf án þess að kunna neitt í íslensku. í lok bréfsins, sem er stutt, segir: „Leyfa enda min eiginn bréf. Ég vona min bréf ekki vera... framtíð án yðar athygli, eftirtekt. Ég vona taka á móti yðar svar um íslenzkur tunga. Virðingarfyllst! Með takmarkálaus virðing, bera virðingu fyrir til yðar starfsamur íslenzkur þjoð! Mánaðar- dagur: 8 novembermanuður 1994. Eiginhandarundirskrift:" Hópurinn fór að lokinni útskrift á jólahlaðborð á Hótel Stykkishólmi ásamt Helgu Guðmundsdóttur, forstöðumanni farskólans. DV-mynd Arnheiður Stykkishólmur: Vélaverðir útskrifaðir Amheiður Ólafsdóttir, DV, Stykkishólmi: Fjölbrautaskóli Vesturlands braut- skráði 19 nemendur með 1. stig í véla- vörslu hér í Stykkishólmi 17. des- ember. Námið samsvarar einni önn og gefur réttindi sem ættu að tryggja stööu nemenda á vinnumarkaðnum. Farskóli Vesturlands sá um nám- skeiðið. Forsenda þess að námskeiðið gat farið fram hér var að fyrirtæki í bænum lánuðu aðstöðu til kennslu en það þarf flókna tækniaðstöðu til að kenna námsefnið. Það voru Skipa- vík, RARIK og fyrirtæki Soffaníasar Cecilssonar sem lögöu til aðsfóöuna, smiðju og raftækniaðstöðu. Suöumes: Eigaekki bruna- stiga uppí háhýsin Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum: „Við höfum getað leitað til Slökkviliðsins á Keflavíkurflug- velli og fengið þar stigabll. Það er þó engin lausn og ef stigabíll- inn er í notkun fáum við hann ekki,“ sagði Örn Bergsteinsson, varaslökkviliösstjóri hjá Bruna- vörnum Suðumesja, við DV. Það er á fjárhagsáætlun hjá slökkviliðinu að keyptur verði körfubíll svo það sé í stakk búið til að takast á við björgun manns- lifa vegna bruna eða annarrar hættu í háhýsum. Sá bíll sem slökkviliðið hefur nú nær ilia upp á fjögurra hæða hús. Nokkur hærri hús á Suðumesjum em því illa sett að þessu leyti. Slökkvilið- ið hefur gert athugasemdir þegar byggingaverktakar ætla að hyggja hærri Ms en 4 hæða á Suðurnesjum. Talið er aö körfubíll muni kosta á bilinu 4-6 milijónir króna ef leitað væri eftir notuöum bíl frá Evrópu. Slíkur bíll mundi ná upp á rúu hæða hús og henta Bmna- vömum Suöumesja vel. Reyndar er það óverjandi aö jafii íjölmenn byggð og Suöurnes eru skuli ekki eiga slíkan bíl - nema hvað einn slikur er á Keflavíkurflugvelli. ViðsJdi )taJ jlaðið Vikublaö um íslenskt og erlent viðskiptalíf

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.